Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Nær Þorbjörn
þrennunni ?
Úrslitaleikur í Evrópukeppni
meistaraliða í Miinchen
íslandsmeistari
<Nj
1977 1978
1979
1980
Þorbjörn
Jensson
varþjálfari og
leikmaður með
Maimö IFK
1986-1988.
Sigurvegari í
1. deild 1988.
LEIKMAÐUR
Að gera Valsmenn að
íslandsmeisturum
þrjú ár í röð?
Eins og hann
varð sjálfur sem
leikmaður með Val.
C:
■2
>•55
1989
1990
1991 1992
ÞJÁLFARi
i i ~Éí | nt
i ÍIS ÍIB
cs ctl c^
2 .co qS •2 •2
E e e
e •2 ■S «
■2 2”” 1
OQ ca '•2
19 9 3 1994
— — o
■
cv.
cr
2 2
•52
Q5 cu
E s
OJ
C5 '■2
1995
■ TALSVERT hefur verið rætt
um körfuna sem Jón Kr. Gíslason
gerði fyrir Keflvíkinga í fyrri leikn-
um gegn Grindvíkingum á föstu-
daginn og ekki var dæmd gild.
■ SÁ misskilningur hefur verið
uppi að eftirlitsmaður leiksins, Pét-
ur Hrafn Sigurðsson hafi úrskurð-
að að leiktíminn hafí verið runninn
út þegar Jón Kr. skaut. Starf eftir-
litsmanns er að fylgjast með að
allt sé í lagi á ritaraborðinu en ekki
að segja dómurum fyrir verkum.
Hann getur sagt dómara sitt álit,
leiti dómari eftir því, en það er
ávallt dómarinn sem verður að taka
ákvörðunina. Kristinn Albertsson
gerði það í þessu tilviki, en ekki
eftirlitsmaðurinn.
■ BRYNJA Þorsteinsdóttir frá
Akureyri varð í 42. sæti í svigi á
heimsmeistaramóti unglinga í alpa-
greinum, sem fór fram í Voss í
Noregi um helgina. Bryi\ja var
eini íslenski keppandinn.
■ GUÐJÓN Guðmundsson ís-
landsmeistari í fimleikum tók þátt
í Evrópubikarmóti í París um
helgina og varð þar í 32. sæti en
ÍMémR
FOLK
keppendur voru 58 talsins. Guðjón
fékk 8,60 í einkunn fyrir gólfæfing-
ar', 7,45 fyrir bogahest, 8,45 fyrir
hringi, 8,70 fyrir stökk, 8,35 fyrir
svifránna og 7,95 fyrir tvíslánna.
■ GUÐJÓN fer í dag til Moskvu
þar sem hann mun dvelja við æfing-
ar fram að Evrópubikarmóti sem
þar fer fram innan skamms.
■ MICHAEL Jordan körfuknatt-
leikssnillingurinn sem hóf að leika
á nýjan léik með Chicago Bulls
um helgina, hætti að leika með lið-
inu fyrir 17 mánuðum. Þá hafði
hann leitt Chieago til þriggja
meistaratitla á jafn mörgum árum
og sagði hann að hungrið væri horf-
ið, hann hefði ekki að neinu að
keppa lengur. Hann fór að æfa
hafnabolta með Chicago White
Sox komst ekki í aðalliðið og í vet-
ur hefur verið verkfall og því engir
leikir. Hungrið í að fá að spila var
því farið að segja til sín hjá Jord-
an, og hann sló til.
■ MIA Audina, 15 ára gömul bad-
mintonkona frá Indónesíu, er kom-
in í 8-manna úrslit á All-England
mótinu sem nú stendur yfir í Birm-
ingham. Hún sigraði Takako Ida
frá Japan 10:12, 11:8 og 11:4 í 3.
umferð í gær og er yngst kvenna
til að komast svo langt í sögu
keppninnar.
■ JOKO Suprianto, fyrrum
heimsmeistari frá Indónesíu, féll
óvænt úr keppni á AIl-England
mótinu í 2. umferð. Hann tapaði
fyrir Park Sung-woo frá Suður-
Kóreu, 15:11 og 15:4. Suprianto
var í þriðja sæti á styrkleikalita
mótsins en hefur átt við bakmeiðsli
að stríða sem tóku sig upp í leikn-
um. Heryanto Arbi og Ardy Wir-
anata frá Indónesíu, sem eru í
fyrsta og öðru sæti á styrkleikalist-
anum, komust nokkuð auðveldlega
í þriðju umferð.
ORTROÐ
Enn einu sinni hefur fyrir-
komulagið í handboltanum,
og reyndar körfunni líka, sannað
sig. Úrslitakeppni greinanna
höfðar jafnt til virkra sem óvirkra
þátttakenda. Leikmenn, þjálfarar
og dómarar finna
hver öðrum allt til
foráttu og stuðn-
ingsmenn sameinast
gegn öllum sem
fylgja ekki sama lit.
Allir hafa ávallt rétt
fyrir sér en þar sem
íþróttir eru þess eðl-
is að fylgja ber settum reglum
verða sumir að sætta sig við að
fá ekki öllu sínu framgengt. í
hita leiksins er ýmislegt gert sem
betur væri ógert, ýmislegt sagt
sem betur væri ósagt. En þegar
frá líður gleymast pústramir og
stóryrðin, þvf þó enginn sé ann-
ars bróðir í leik skilja sannir
íþróttamenn sáttir að leikslokum.
Þrátt fyrir þetta venjulega —
útaf með dómarann, aðsúg að
einstökum leikmönnum sem ann-
aðhvort eru aðsópsmiklir eða
brotlegir og hróp að þjálfurum
sem halda ekki ró sinni og skipta
sér af dómum — er ekki hægt
annað en dást að áhorfendum.
Til að eiga möguleika á að kom-
ast inn f húsin verða þeir að
mæta tímanlega, helst um það
bil klukkutíma fyrir leik. Síðan
fer um þá eins og sfld í fullri
tunnu þar til vel eftir leik, enginn
getur sig hrært nema þá í takt
við næsta mann og þeir gera það
snilldarlega. Eins og þeir hafi
aldrei gert annað. Reyndar fengu
einhveijir sting sem þeir réðu
ekki við í átta liða úrslitunum í
handboltanum og vildu heilsa
dómurum, að sjóarasið eins og
einhver kallaði það en menn virð-
ast sjóast í þessu eins og öðru.
Oft er það svo í boltanum að
kappið hleypur með menn í gönur
en leikmenn mega almennt eiga
það að þeir reyna að læra af
reynslunni. Jafnvel leikmenn,
sem einhverra hluta vegna hafa
fengið það orð á sig að vera gróf-
ir, hafa tekið sig saman í andlit-
inu. í síðustu handboltaleikjum
hefur verið áberandi að mönnum
hefur lent saman en eftir að hafa
látið nokkur vel valin orð fjúka
hafa þeir sæst og tekist i hend-
ur. Það er framkoma sem ber að
virða enda til eftirbreytni.
Einhverjir þjálfarar létu í sér
heyra í átta liða úrslitum en síðan
hafa þeir róast. Þeir vita lfka sem
er að það sem ekki gengur upp
er ekki allt öðrum að kenna. A
vissum tímapunkti, í átta liða
úrslitum, eiga þjálfarar stundum
erfitt með sig, einkum þeir sem
falla úr keppni, en þegar lengra
er komið taka menn gleði sína á
ný. Brosa af mistökum.
Úrslitakeppnin er við hæfi en
sama verður ekki sagt um sjálfa
deildarkeppnina og á það jafnt
við um handboltann sem körfuna.
Allan veturinn er hugurinn víðast
hvar við lokaslaginn. Fyrir vikið
er áhugaleysið alls ráðandi lengi
vel á keppnistímabilinu og það
hlýtur að vera áhyggjuefni hjá
þeim sem málið varðar — breyt-
inga er þörf ef vilji til að vertíðin
standi undir nafni.
Steinþór
Guðbjartsson
Úrslitakeppni höfdar
til allra en deildar-
keppni síður
Hvað^rjslandsmeistamn EINARSIGURGEIRSSON aðfástyiðÍÞýskaiandi?'
Tenniskappi
á faraldsfæti
EINAR Sigurgeirsson var
fimm ára gamall þegar fjöl-
skylda hans reif sig upp og
flutti yfir hálfan hnöttinn til
Ástraliu. Þarlend stjórnvöld
vantaði vinnuafl í byrjun átt-
unda áratugarins, buðu
ókeypis flugfar og öruggt
starf og fjöldi íslendinga flutti
búferlum. Einar hóf að stunda
tennis ytra en hann hefur orð-
ið íslandsmeistari íþeirri
grein sex síðustu ár og hyggst
reyna fyrir sér á atvinnumóta-
röðum íþeirri grein næsta
haust.
að er ekki skrýtið að Einar
skuli tala íslenskuna með
nokkrum hreim því á 28 ára langri
ævi hans hefur hann lengst af
verið með fasta búsetu erlendis.
Hann bjó í Ástralíu
til 23 ára aldurs,
var næstu fimm
árin í Alabama þar
sem hann nam
sálarfræði. Síðasti kaflinn í ferða-
sögu hans hófst í Þýskalandi sl.
haust en hann hefur leiðbeint og
æft tennis hjá klúbbi í Karlsruhe
frá því í haust. Einar var hér á
landi um helgina og tók þátt í
Meistaramóti TSÍ.
Hvemig stóð á því að þú fórst
að æfa tennis?
„Ég reyndi fyrir mér í krikket
og áströlskum fótbolta. Þegar ég
var fimmtán ára byrjaði ég að
spila tennis og fann að það var
frábær íþrótt. Eftir sex mánuði
var ég farinn að æfa á hveijum
degi og veðrið er þannig í Perth
að hægt er að æfa alla daga árs-
ins utanhúss. Ég fluttist síðan til
Sydney þar sem möguleikarnir eru
enn meiri.“
Hvað með ísland. Vissurðu að
ieikinn væri tennis þegar þú komst
heim frá Ástralíu?
„Já, tennis er vinsæl grein í
Ástralíu þannig að ég gekk eigin-
Iega að því sem vísu. Það kom
mér svo mikið á óvart hvernig
aðstæðurnar voru og ég átti erfitt
með að trúa því. Ég man eftir því
að fyrsta árið æfði ég á bílastæði
í Laugardalnum. Mikið hefur
breyst síðan þá, sérstaklega á
fimm, sex síðustu árum og að-
stæðumar eru allt aðrar í dag.“
Þú hefur ekki í hyggju að flytja
til fslands?
„Ég kom oft hingað á sumrin
og um jól. Núna get ég ekki verið
hérna ef ég ætla að stefna að at-
vinnumennsku. Þá mundi ég detta
niður, ég gæti ekki æft nóg og
lítið spilað á mótum gegn sterkari
spilurum. Vonandi verður það
samt hægt í framtíðinni og það
munar mikið um það héma að
hafa þjálfara sem jafnframt em
góðir spilarar."
Eftir
Frosta
Eiðsson
Morgunblaðið/Frosti
EINAR Sigurgeirsson, íslandsmeistari í tennls býr nú í
Karlsruhe í Þýskalandi, þar sem hann kennlr og »flr tennls.
Af hverju Þýskaland? í Bandaríkjunum og vildi komast
„Ég var búinn að vera fímm ár á stað þar sem ég gæti æft mikið
og jafnframt fengið laun fyrir að
þjálfa. Þýskaland er frábær staður
upp á það að gera. Tennis er
stærsta íþróttin á eftir fótboltan-
um. Áhuginn er mjög mikill í Bad-
en. Það er sama ríki og Boris
Becker og Steffi Graf fæddust í.
Það er frábært að geta sameinað
þetta tvennt og kaupið er ágætt
í Þýskalandi."
Hefurðu keppt við einhverja
sterka spilara?
„Jú, ég æfi með fólki, unglingum
sem efnilegir em og ofarlega á
tennislistanum og líka spilurum
sem náð hafa sér í ATP stig og
réttindi til að keppa á atvinnu-
mótaröðunum."
Hvaða eiginleika þarf góður
tennisspilari að hafa?
Tennis er mikil sálfræði og
menn þurfa að trúa á sjálfan sig
mjög vel. Menn tapa oft, 32 kepp-
endur skrá sig í rnót og 31 þeirra
tapar og menn mega ekki láta
töpin draga sig niður heldur að
fá áhuga til að æfa betur. Svo er
margt sem þarf að læra og það
tekur langan tíma að tileikna sér
margt. Góðir spilarar þurfa að
vera rólegir en jafnframt að geta
æst sig upp eins og þegar menn
byija að finna fyrir þreytu.“
Hefur þú þessa eiginleika?
„Ég hef alltaf trúað því að ef
ég æfi nóg og held áfram að beij-
ast þá muni ganga vel. Ég byijaði
seint að æfa og tapaði þar af leið-
andi oft fyrstu árin. Það tók stund-
um á taugamar en ég lærði þá
lexíu að tapa án þess að vera að
svekkja mig á því. Sumir efnilegir
spilarar eiga frá unga aldri erfitt
með að sætta sig við töp þegar út
í atvinnumótin er komið og gefast
upp.“