Morgunblaðið - 21.03.1995, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.03.1995, Qupperneq 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ HANDKIMATTLEIKUR Morgunblaðið/Bjami Eiríksson Þrumufleygur JÓN Kristjánsson, stórskytta Vals, var erfiður fyrrum félögum sínum í KA síðari hálfleik. Hann gerði þá flmm glæsileg mörk með þrumuskotum. Valdimar Grímsson átti stórleik Viðhöfum ekkisagt okkar síðasta Geir Sveinsson, fyrirliði Vals, sagðist ánægður með sigurinn en ekki leikinn í heild. „Það er mjög fátt sem ég er sáttur við í þessum leik nema sigurinn. Við duttum nið- ur á þeirra hraða stóran hluta af fyrri hálfleik og vorum ekki að spila okkar bolta. Það jákvæða í þessum leik er góð innkoma Axels í mark- inu. Ég held að það hafí líka háð okkur að það eru níu dagar síðan við spiluðum síðast og því vantaði okkur tempóið í þessum leik.“ - Hvað þarf helst að bæta hjá ykkur fyrir leikinn á Akureyri (í kvöld)? „Það er flest allt. Sóknar- og varnarleikur. í þessum leik voru lykilmenn að bregðast og þar á meðal ég. Það er varla hægt að verða Islandsmeistari með svona spilamennsku. Leikurinn í KA-heim- ilinu verður mjög erfiður en við ætlum okkur að vinna þann leik.“ Forsmekkurinn aö því sem koma skal „Ég held að þessi leikur sé for- smekkurinn að því sem koma skal í næstu leikjum. Þetta verða allt hörkuleikir eins og þessi,“ sagði Valdimar Grímsson, KA-maður og fyrrum Valsmaður. „Bæði liðin leggja mikið upp úr varnarleiknum og markvörslu. Valsmenn sigruðu í þessum leik en við komum til með að læra mikið af leiknum og mætum tvíefldir til næsta leiks. Ég er klár á því að við jöfnum þetta á Akur- eyri.“ - Breiddin í Valsiiðinu er meiri og þið eruð að keyra á sömu leikmönn- unum nær allan leikinn. Skiptir þetta ekki máli er upp verður stað- að? „Jú, það getur vel verið. Allir eru sammála því að Valur er með mestu breiddina í deildinni en staðreyndin er sú að það eru bara sjö leikmenn sem spila inná í einu. Við erum með sterkan „karakter" í liðinu og með gamla refí innan um sem kunna ýmislegt fyrir sér. Ég held að við förum langt á því að bíta á jaxlinn og gefa aðeins meira í. Við erum búnir að sýna það og sanna í vetur að seiglan er gífurleg í liðinu. Þetta er bara rétt að byija og við höfum ekki sagt okkar síðasta," sagði Valdimar. Akureyringamir í Valslið- inu KA-mönnum erfiðir AKUREYRINGARNIR íValslið- inu, Axel Stefánsson og Jón Kristjánsson, lögðu grunninn að sigri liðsins, 23:21, gegn KA í fyrstu viðureign liðanna um íslandsmeistaratitilinn, að Hliðarenda á laugardaginn. Leikurinn var jafn og spenn- andi og réðust úrslit ekki fyrr en á síðustu sekúndunum. Liðin leika annan leik sinn á Akureyri í kvöld. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki hampar íslandsbikarnum. Leikurinn var spennandi eins og við mátti búast milli þessarra öflugu liða. Varnarleikurinn var í hávegum hafður hjá báðum liðum og vel Jónatansson ^ið á, án þess þó skrifar að menn væru með ljót brot. Sóknar- leikurinn var að sama skapi ekki mikið fyrir augað. Leikurinn var í járnum allan fyrri hálfleikinn eða allt þar til staðan var 6:6. Þá gerði Valdimar Grímsson fjögur mörk gegn einu marki Vals og fímm mínútur til leikhlés. Valsmenn sýndu mikinn „karakter“ og gerðu fjögur síðustu mörk háifleiksins og komust yfír, 11:10. Valdimar gerði þrjú fyrstu mörk síðari hálfleiks úrvítum, 11:13. Jón Kristjánsson, fyrrum KA-maður, svaraði með tveimur þrumufleyg- um og staðan jöfn 13:13. Axel Stefánsson, hinn „KA-maðurinn,‘ í Valsliðinu, varði vel á næstu mín- útum og Valur náði undirtökunum og þegar rúmar fimm mínútur voru eftir var staðan 20:16 fyrir Val og allt útlit fyrir öruggan sig- ur. KA-menn náðu með ótrúlegri baráttu að minnka muninn í eitt mark 21:20 þegar ein mínútu var eftir. Ólafur Stefánsson kom Val í tveggja marka forskot 22:20, en Alfreð svaraði aðeins tíu sekúndum síðar eða þegar 14 sekúndur voru eftir. Sveinn Sigfinnsson nýtti síð- ustu sókn Vals — fór innúr hominu og gulltryggði sigurinn á síðust sekúndu leiksins. Valsmenn byijuðu frekar illa en óx ásmegin eftir því sem á leikinn leið. Þorbjöm Jensson, þjálfari, gat leyft sér að skipta mönnum inná eftir vild enda hefur hann yfir mik- illi breidd að ráða á meðan KA var að keyra nánast á sömu leikmönn- unum allan tímann. KA-menn máttu illa við því er Patrekur var tekinn úr umferð. Ógnunin varð minni því í 90% tilfeila er það hann eða Valdimar sem ljúka sóknunum. Jón Kristjánsson var mjög góður í síðari hálfleik hjá Val, gerði þá fimm glæsileg mörk. Axel stóð sig vel í markinu eftir að hann fékk tækifærið undir lok fyrri hálfleiks. Það var eins og KA-menn hafi vanmetið hann því um leið og hann kom inná fóru þeir að ljúka sóknunum á mun skemmri tíma en áður. Ólafur Stefánsson var góður og vex með hveijum ieik og eins skilaði Sveinn Sigfinnsson sínu vel. Hjá KA var Valdimar allt í öllu. Hann sýndi ótrúlegt öryggi í víta- köstunum. Sigmar Þröstur stóð einnig vel fyrir sínu í markinu. Leó og Erlingur voru ótrúlega duglegir við að físka vítaköst. Patrekur byijaði vel en eftir að Valsmenn fóru að hafa sérstakar gætur á honum sást hann varla. Alfreð var lítið með í sókninni en var öflugur í vörninni að vanda. Fyrir leikinn á Akureyri í kvöld eru Valsmenn með vænlega stöðu og hafa stigið einu skrefi nær titil- vörninni. KA-menn verða að vinna í kvöld ætli þeir sér að eiga mögu- leika á að vinna tvöfalt í ár. Ég skal í gegn! LEÓ Örn Þorleifsson reynir hér að troða sér í gegnum varn- armúr Vals, en Finnur Jóhannsson, sem er eigandi hægri handarlnnar vinstra megin á myndinnl og Dagur Sigurðsson eru ekki á þvl að hleypa honum í gegn. Leó Örn náði að fiska fjögur vítaköst í leiknum að Hlíðarenda. SOKNARNYTING Fyrsti leikur liðanna í úrslitum (slandsmótsins, laugardaginn 18. mars 1995. Urslitakeppnin f handknattleik 1995 Valur Mörk Sóknir % KA Mörk Sóknir % 11 21 52 F.h 10 21 48 12 23 52 S.h 11 24 46 23 44 52 Alls 21 45 47 9 Langskot 4 0 Gegnumbrot 4 3 Hraðaupphlaup 1 2 Horn 3 4 Lína 0 5 Vlti 9 Þannig vörðu þeir Guðmundur Hrafnkelsson, Val 4 (þar af 1 til móthéija). 1 langskot, 2 (1) úr horni og 1 gegnumbrot. • Axel Stefánsson, Val 10 (þar af 4 til mótheija). 7 (3) lang- skot, 2 (1) af línuj og 1 hrað- aupphlaup. Sigmar Þröstur Óskarsson, KA 17/1 (þar af 3 til mót- heija). 10 (2) langskot, 3 (1) af línu, 2 úr horni, 1 hraðaupp- hlaup og 1 víti. Ætlum að anda að okk- ur norðlensku lofti ÞORBJÖRN Jensson og læri- sveinar hans hjá Val, eiga möguleika á að verða íslands- meistarar þriðja árið í röð. Þeir leika annan leik sinn í úrslita- keppninni gegn KA á Akureyri í kvöld. Þorbjörn er ekki ókunn- ugur norðan heiða — hann lék þar með Þór áður en hann gerð- ist leikmaður með Val. Vals- menn fara með hádegisvélinni til Akureyrar. „Við ætlum að fara með fyrri skipunum til að anda að okkur norðlensku lofti fyrir átökin,“ sagði Þorbjörn. Hvernig hefur Valsmönnum gegngið gegn KA á Akureyri? „Lengi vel áttum við í erfiðleik- um á Akureyri, en tvö síðastlið- in keppnistímabil höfum við fagnað þar sigri í deildarkeppn- inni — og að sjálfsögðu stefnum við að því að vinna þriðja leik- inn í röð. Til þess að ná því verðum við að leika betur en á laugardaginn. Við reynum að klára dæmið í þremur leikjum, en þess má geta að hingað til hefur ekkert lið fagnað sigri eftir þijá leiki.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.