Morgunblaðið - 21.03.1995, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 C 5
IÞROTTIR
HANDKNATTLEIKUR
Herdís stjórnaði vel
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
HERDIS Sigurbergsdóttir stjórnaöi lelk Stjörnunnar gegn Fram með glæslbrag þegar llö henn-
ar vann fyrsta lelk úrslltakeppnlnnar. Hér er Herdís komin framhjá Þórunnl GarAarsdóttur.
Öruggur sigur Stjörnunnar í fyrsta úrslitaleiknum
Vantaði græðgi,
frekju og grimmd
„EG VARÐ fyrir miklum von-
brigðum, okkur vantaði alla
græðgi, frekju og grimmd. Við
brutum of lítið á þeim í sókn-
inni og kláruðum aldrei brotin.
Annars eru mestu erfiðleikar
mfnir að ná baráttu upp í liðinu.
Við erum búnar að ná lengra
en við ætluðum og það er eins
og stelpurnar telji þetta bara
orðið fínt í bili," sagði Guðríður
Guðjónsdóttir þjálfari og leik-
maður Fram eftir 26:20 tap
gegn Stjörnunni í Garðabænum
á sunnudaginn, ífyrsta leik lið-
anna um íslandsmeistaratitil-
inn. Sigurinn var sfst of stór.
Ibyrjun var varla hægt að greina
mikilvægi leiksins á frammi-
stöðu leikmanna, varnir slakar og
mikið af mörkum.
Stefán Stjörnustúlkur byij-
Stefánsson uðu Þó betur með
skrífar fjölbreyttum sókn-
ÞYSKALAND
arleik á meðan Framstúlkum voru
ákaflega mislagðar hendur.
Garðbæingum tókst að rétta sig af
og með þremur mörkum í lok fyrri
hálfleiks og fimm gegn einu strax
eftir hlé, sem setti stöðuna i 20:11,
var björninn unninn. Varnir komust
í lag og Fram náði í smátíma bar-
áttu í vörninni en úrslitin voru ráðin.
„Ég bjóst ekki við svona léttum
leik en þetta er ekki í fyrsta sinn
sem við vinnum fyrsta leikinn í
úrslitakeppninni og alltaf höfum við
fyllst bjartsýni," sagði Herdís Sig-
urbergsdóttir, sem átti góðan leik
fyrir Stjörnuna en lið hennar hefur
leikið til úrslita fjögur síðastliðin
ár og alltaf unnið fyrsta leikinn en
tapað þegar upp er staðið. „Við
erum rosalega ákveðnar núna því
töp í úrslitakeppninni síðustu ár,
og höggið eftir tapið í bikarnum,
hefur legið á okkur eins og mara.
Nú á að stíga skrefið til fulls, taka
einn leik í einu og spara stóru orð-
Kiel varð meistari
Júlíus gerði níu mörklyrírGummersbach
KIEL varð þýskur meistari í
handknattleik um helgina,
þrátt fyrir að hafa tapað í ná-
grannaslagnum gegn Flensborg
Handewitt, 21:23, því lærisveinar
Kristjáns Arasonar í Dormagen
sigruðu Niederwúrsbach 25:23, en
það var eina liðið sem gat ógnað
Kiel.
Júlíus Jónasson átti stórleik þeg-
ar Gummersbach gerði jafntefli,
23:23, á heimavelli gegn Essen.
Hann var lang markahæstur, gerði
níu mörk, þar af þijú úr vítum.
Hefur staðið sig mjög vel í síðustu
leikjum og fengið afbragðs dóma í
fjölmiðlum. Júlíus og félagar voru
óheppnir að sigra ekki í leiknum
því Essen jafnaði fjórum sek. fyrir
leikslok.
Fjárhagsstaðan hjá Gum-
mersbach hefur verið afar slæm
undanfarið og var jafnvel óttast að
atvinnumennsku yrði hætt hjá fé-
laginu. Nú hefur málunum hins
vegar verið bjargað og búið að
kaupa fjóra nýja leikmenn fyrir
næsta keppnistímabil. Meðal þeirra
eru landsliðsmaðurinn Holger Löhr
frá Leutershausen, og Ralf Heck-
man frá Wallau Massenheim.
Héðinn Gilsson gerði tvö mörk
fyrir Diisseldorf sigraði Massen-
heim 19:18 á heimavelli.
Önnur úrslit urðu þau að Hameln sigraði
Schwartau 32:22, Lemgo vann Magdeburg
25:20, Grosswalstadtt vann Eitra 27:21 og
Nettelstedt sigraði Leutershausen 25:21. I
Kicker í gær kemur fram að Nettelstedt sé
á eftir pólska landsliðsmanninum Bogdan
Wenta, sem leikur nú með Barcelona á
Spáni, en áður hafði komið að meistarar
Kiel hafi augastað á honum.
in,“ bætti Herdís við. Stjörnustúlkur
sýndu mun meira hugmyndaauðgi
í sóknarleik sínum og komu greini-
lega mun betur undirbúnar í leik-
inn. Þegar vörnin small saman eftir
hlé lokaðist leiðin að markinu enda
tók það Fram 16 mínútur að gera
tvö mörk. Guðný Gunnsteinsdóttir
var frábær á línunni þangað sem
hún fékk margar góðar sendingar
og reif sig lausa. Laufey Sigvalda-
dóttir og Ragnheiður Stephensen
áttu góðar syrpur.
Bikarmeistarar Fram verða held-
ur betur að herða róðurinn ef þær
ætla ekki að tapa næstu tveimur
leikjum. Baráttan var lítil og vörnin
götótt sem Stjaman nýtti sér ræki-
lega. Um miðjan síðari hálfleik tóku
þær þó viðbragð og þá vegna þess
að Guðríður þjálfari lét leikmenn
sína heyra það. Zelka Tosic var
þeirra best en Þórunn Garðarsdótt-
ir, Kristín Hjaltested og Guðríður
voru ágætar.
HM’95
BLAK
Þróttur varð
deildar-
meistari karia
Guðmundur
Helgi
Þorsteinsson
skrifar
REYKJAVÍKUR-Þróttarar
tryggðu sér endanlega deild-
armeistaratitilinn eftir að hafa
skellt Stúdentum í
fimm hrinu leik í
íþróttahúsi Haga-
skólans á laugar-
daginn, en enn er
ein umferð eftir af deildarkeppn-
inni.
Það blés ekki byrlega fyrir Þrótt-
ara í byijun því Stúdentar náðu að
vinna fýrstu hrinuna 17:15. Leik-
menn Þróttar náðu hins vegar að
rétta úr kútnum í framhaldinu en
þar fór fremstur í flokki Valur
Guðjón Valsson uppspilari sem náði
hvað eftir annað að lauma listilega
á Stúdenta. Stúdentar tóku hins
vegar öll völd í fjórðu hrinunni og
sterkri hávöm var fýrst og fremst
að þakka að þeir tryggðu sér úr-
slitahrinu.
Úrslitáhrinan varð æsispennandi
og bæði liðin áttu möguleika á að
gera út um hlutina í lokin, jafnt
var 14:14 og 15:15 en leikmenn
Þróttar fengu tvö síðustu stigin
ódýrt, fyrst eftir að Stúdentum
hafði mistekist uppgjöf og síðan var
smassað út. Hjá Stúdentum lék
Ólafur Viggósson sinn besta leik í
vetur og Arnar Halldórsson uppspil-
ari átti ágæta spretti en hjá ný-
krýndum deildarmeisturum var
Valur Guðjón bestur en leikur liðs-
ins virkaði ekki sannfærandi.
HK átti að mæta KA í Digranesi
en KA menn komust ekki til leiks-
ins og hann var flautaður af sem
og kvennaleikur sömu liða 3:0. For-
ráðamenn KA em hins vegar langt
í frá að vera ánægðir með þá niður-
stöðu og telja að Blaksambandið
hafi ekki staðið sig í stykkinu.
Víkingsstúlkur grimmar
Nýkrýndir deildarmeistarar Vík-
ings léku eins og meisturum sæmdi
þegar þær skelltu Stúdínum sann-
færandi í íþróttahúsi Hagaskólans
á laugardaginn. Björg Erlingsdóttir
uppspilari Víkingsstúlkna var í fínu
formi og dreif sitt lið áfram. Vík-
ingsstúlkur unnu fyrstu tvær hrin-
umar, 17:15 og 15:12 en Stúdínur
þá þriðju 15:13 en síðan var eins
og eitthvað gæfi sig hjá Stúdínum
þegar Víkingsstúlkur kafsigldu þær
15:4.
KNATTSPYRNA / TYRKLAND
Besiktas með
fimm stiga forystu
Félagið vill kaupa Eyjólf Sverrisson
EYJÓLFUR Sverrisson og sam-
heijar í Besiktas em með fimm
stiga forystu á Trapzonspor í tyrk-
nesku deildinni en átta umferðir eru
eftir. Fenerbache vann Galatasaray
3:0 og em bæði liðin átta stigum
á eftir Besiktas.
Besiktas fékk Petrolofisi frá
Ankara í heimsókn og vann 3:1 en
Eyjólfur lék ekki með vegna
meiðsla. „Ég meiddist á æfingu
fyrir leik, sparkað var í fótinn á
mér og trampað ofan á ristina með
þeim afleiðingum að litla táin fór
úr liði,“ sagði Eyjólfur við Morgun-
blaðið í gær eftir að hafa farið í
rannsókn og röntgenmyndatöku.
„Ég er ekki brotinn en böndin eru
vel teigð,“ sagði hann og vonaðist
Morgunblaðið/Kristinn
til að geta leikið með gegn Altay í
Izmir um næstu helgi.
Eins og greint hefur verið frá
leigði Besiktas Eyjólf frá Stuttgart
í Þýskalandi með forkaupsrétti og
sagði hann að félagið vildi kaupa
sig. Hins vegar væri ekki tímabært
að taka ákvörðun í því efni vegna
þess að ýmislegt kæmi til greina
„en þetta skýrist á næstu vikum.“
Christoph Daum, þjálfari, hefur
verið orðaður við nokkur lið, m.a.
í Þýskalandi og Belgíu, en er óráð-
inn og sagðist Eyjólfur ætla að
hafa samráð við þjálfarann um
framhaldið. Aðspurður um hvort
hann myndi fylgja Daum ef hann
færi sagði Eyjólfur að ekkert hefði
verið rætt um það.
Coca Cola
styrkir HM ’95
COCA Cola verður opinber
styrktaraðili HM ’95 á íslandi.
Samningur þess efnis var undir-
ritaður í húsakynnum Vífilfells
hf. sl. föstudag. Hlutverk Coca
Cola er „að styðja við bakið á HM
með því að kappkosta að öll um-
gjörð og aðstaða verði óaðfinnan-
leg og lslandi og íslendingum til
sóma,“ eins og segir í tilkynningu
frá Vífilfelli. Fyrirtækið hefur
m.a. látið sérhanna merki í tilefni
HM og verður það prentað á
ýmsan varning s.s boli, blöðrur,
flögg, glös og límmiða svo dæmi
séu tekin. Heildar framlag fyrir-
tækisins til þessa verkefnis er
áætlað á þriðja tug milljóna. A
myndinni sýna þau Hákon Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri HM ’95
og Sara Lind Þorsteinsdóttir,
auglýsingastjóri Vífilfells, bol
með HM-áletrun.