Morgunblaðið - 21.03.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 C 7
ARAMÓTIÐ í SUIMDI
ÍÞRÓTTIR
) þrjú met
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
annaeyjum, en sunddrottningin frð Keflavík setti þrjú íslandsmet og
lér fagnar Eydís fyrsta metlnu, í 100 metra baksundi.
EfnÍlfttHISt Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
HALLDÓRA Bergvinsdóttlr úr Ægi og Örn Arnarsson úr Sundfé-
lagi Hafnarfjarðar voru valln efnilegust á mótinu í Eyjum.
maí. Lágmörkin fyrir Evrópumeist-
aramótið eru nokkuð sterk og ég
stefni á að taka þau á Smáþjóðaleik-
unum, það þarf að ná þeim tímum í
50 metra braut og tímar mínir núna
eru mjög nálægt lágmörkum, ég nota
bara tímann vel sem ég hef og kíli á
þetta. Mótið var mjög gott og krakk-
arnir ánægðir þetta var vel saman-
þjappaður hópur og liðin hvöttu hvert
annað til að komast sem næst metum
og bæta árangur, heildarmyndin var
mjög góð,“ sagði Logi Jes.
Arnar Freyr Ólafsson Þór var ekki
langt frá því að setja íslandsmet í 400
metra skriðsundi karla þegar hann
synti á 3.58,83 eða aðeins 4/100 úr
sekúndu frá Islandsmetinu.
Birkir Rúnar Gunnarsson setti þijú
íslandsmet í flokki blindra, í 100 metra
flugsundi, 200 metra fjórsundi og 200
bringusundi. Fyrir þetta var hann sér-
staklega heiðraður með blómum á
lokahófi á sunnudagskvöldið. Það voru
veitt sérstök verðlaun fyrir samanlagð-
an stigafjölda úr tveimur greinum.
Verðlaunin hlutu þau Logi Jes Krist-
1
jánsson og Eydís Konráðsdóttir en þau
fengu flest stig bæði fyrir 100 og 200
metra baksund. Verðlaunin sem Flug-
leiðir gáfu voru flugferð á hvaða leið
félagsins sem er utanlands.
Efnilegust af sundfólkinu voru valin
þau Halldóra Bergvinsdóttir Ægi og
Örn Arnarsson úr Sundfélgai Hafnar-
flarðar. „Ég er búin að æfa sund í fimm
eða sex ár og þetta kom mér skemmti-
lega á óvart. Ég hafði ekkert hugsað
út í að ég gæti verið valin sú efnileg-
asta en þetta hvetur mann áfram, ég
sló eitt hnátumet þegar ég var lítíl í
bringusundi , svo er bara stefnan tek-
in á að komast lengra og bæta sig
jafnt og þétt,“ sagði Halldóra.
„Ég er búinn að æfa síðan ég var
sex ára eða tæp sjö ár þannig að þetta
kom mér ekki svo á óvart, mann hafði
dreymt um þetta. Svo er stefnan tekin
á drengjamet í 100 og 200 metra bak-
sundi, sem er aðalsundið hjá mér, og
halda svo áfram að bæta sig,“ sagði
Örn.
■ Úrslit / CIO
TENNIS / MEISTARAMOT
Eriendu þjálfaramir
börðust um sigurinn
ERLENDU þjálfararnir hérá
landi, Svfinn Göran Bergwall
hjá Víkingi og Þrótti og landsl
iðsþjálfarinn Raj Bonifacius
frá Bandaríkjunum léku til
úrsiita á Meistaramóti Tenn-
issambandsins og Trópí sem
fram fór ítennishöllinni um
helgina.
argir áhorfendur höfðu á orði
að ekki hefði sést betri tenn-
isleikur hér á landi en Bergwall
hafði betur eftir að
leikur þeirra hafði
fanð í oddasett.
Átta spilarar
kepptu í karlaflokki
þar af fimm íslendingar, tveir ís-
lendingar náðu í undanúrslitin,
þeir Einar Sigurgeirsson sem þurfti
að játa sig sigraða fyrir Bonifacius
og Atli Þorbjörnsson fyrir Bergw-
all.
Frosti
Eiðsson
skrifar
„Þetta var góður leikur en ég
veit að Raj getur spilað mun bet-
ur. Hann slær mikið fastar en ég
er ánægður hvað ég náði að svara
mörgum uppgjöfum frá honum,“
sagði Göran Bergwall um viður-
eignina í úrslitunum. Svíinn hafði
frumkvæðið í byijun og tókst vel
að svara föstum skellum landsliðs-
þjálfarans. Hann náði sér á strik
í annari lotunni 6:2 en Svíinn sigr-
aði í öllum lotunum í oddasettinu.
„Ég var orðinn þreyttur í lokin en
Göran lék hratt og vel, sérstaklega
í fyrsta settinu," sagði Bonifacius.
Ekkert íslandsmót er haldið inn-
anhúss í tennis, meistaramótið var
boðsmót, sjö spilurum var boðið í
karlaflokki og fjórir spilarar kepptu
um áttunda sætið í keppnina.
Morgunblaðið/Frosti
ÞAU léku til úrslfta á Meistaramótinu í tennís um helglna.
Frá vinstri eru danska stúlkan Jette Wilhelmsson sem sigr-
aði í kvennaflokki, þá íslenski landsliðsþjálfarinn Raj Bon-
ifacius sem þjálfað hefur hjá Fjölni síðustu tvö ár og tók við
landsllðinu um síðustu áramót, Göran Bergwal sigurvegari
mótslns sem þjálfað hefur hér á landl frá áramótum og þá
Stefanía Stefánsdóttir sem hafnaði í öðru sæti.
Öruggt hjá þeirri dönsku
Danska stúlkan Jette Wilhelms-
son sigraði nokkuð örugglega í
kvennaflokki. Hún þurfti reyndar
að gefa leikinn gegn Stefaníu Stef-
ánsdóttir í riðlakeppninni á laugar-
dag vegna flensu og hafnaði þar
af leiðandi í öðru sæti í sínum riðli.
Það kom ekki að sök, danska stúlk-
an mætti sterk til leiks á sunnudeg-
inum og sigraði Hrafnhildi Hannes-
dóttur í undanúrslitunum 6:3 og
6:4 og tók síðan Stefaníu 6:0 og 7:5.
„Ég var þreytt og bakkaði aðeins
í síðari lotunni í stað þess að halda
áfram að sækja. Mér fannst Stefan-
ía spila vel og reikna með því að
hún væri á meðal 15. - 20. bestu
í Danmörku," sagði sú danska sem
er 22 ára og hefur ferðast víða um
heiminn síðustu átján mánuði til
að spila tennis og er talin í 10. sæti
í kvennaflokki í heimalandi sínu.
„Ég er nokkuð svekkt með eigin
frammistöðu og var alltof lengi í
gang. Það er ekki hægt að neita
því að hún er góð en ég ætlaði mér
samt sigur í úrslitaleiknum," sagði
Stefanía. „Þetta er í fyrsta sinn sem
við fáum útlenska spilara og von-
andi gerist það aftur því það hefur
mikið að segja fyrir okkur.“
KORFUKNATTLEIKUR
Blikar í úivalsdeildina
Breiðablik tryggði sér sæti í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik
næsta vetur með sigri á ÍS, 88:65,
í íþróttahúsi Hagaskóla um helgina.
Staðan i leikhléi var 38:33 fyrir
Blika.
Varnir beggja liða voru góðar í
fyrri hálfleik og lítið skorað. Einnig
ríkti greinilega nokkur taugaspenna
í herbúðum beggja. Um miðjan hálf-
leikinn náðu Blikar góðum tökum á
leiknum og stjórnuðu hraðanum.
Þeir höfðu svo augljóslega yfirstigið
taugaspennuna þegar í seinni hálf-
leik kom, voru fullir sjálfstrausts og
sýndu mjög góðan leik. Var sigur
þeirra mjög öruggur þegar upp var
staðið, þó svo leikmenn IS hafí einn-
ig sýnt góða takta á köflum.
I liði Breiðabliks voru Bjarni
Magnússon og Tony Carter bestir,
en allt liðið lék mjög vel, allir fengu
að spreyta sig og breiddin er greini-
lega ágæt. Lárus Ámason var yfir-
burðamaður í liði ÍS. Liðið mætir
ÍA í aukaleik um sæti í úrvalsdeild-
inni næsta vetur og ætti að eiga
talsverða möguleika í þeirri viður-
eign, ef marka má frammistöðuna
gegn Breiðabliki.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
LIÐ Breiðabliks, sem komst í úrvalsdeildina. Aftari röð f.v.: Hannes Jónsson, stjórnarmaður,
Rúnar Sævarsson, Einar Hannesson, Árni Þór Jónsson, Tony Carter, Högnl Friðríksson, ívar
Asgrímsson, Hörður Pétursson, llðsstjórl, Jóhann Árnason, formaður körfuknattlelksdelldar
og Haukur Hauksson, varaformaður. Fremri röð f.v.: Elnar Pétursson, formaður melstaraflokks-
ráðs, Bjarni Magnússon, fyrirliði, Brynjar Slgurðsson, Sigurður Kjartansson, Guðmundur
Björnsson, Pálmar Sigurðsson, þjálfari, Kjartan Haraldsson og Eggert Baldvinsson. Fyrlr fram-
an eru „lukkutröllín" Aron Pálmarsson (Sigurðssonar) og Alex Oli ívarsson (Ásgrímssonar).