Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 8
8 C ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
SKÍÐI
Kóngur og drottning
Reuter
ÞAU stálu senunnl f helmsbikarnum í vetur; Vrenl Schneider og Alberto Tomba, sem unnu
þrefalt. Scnelder vann helmsbikarinn í fjórða sinn en Tomba í fyrsta slnn.
Tomba og Schneider
enduðu með þrennu
ÍTALINN Alberto Tomba og
Vreni Schneider frá Sviss urðu
þrefaldir heimsbikarmeistarar,
en síðustu mót vetrarins fóru
fram í Bormio á Ítalíu um helg-
ina. Tomba endaði tímabilið
með sigri í stórsvigi á laugar-
dag en féll úr keppni í sviginu
á sunnudag. Schneider sigraði
í svigi á sunnudag og vann þar
með 55. heimsbikarmótið á
ferlinum.
Tomba sigraði í stórsviginu á
laugardaginn og þar með var
það ljóst að þrennan var hans. Þetta
var 11. heimsbikarsigur hans á
tímabilinu og 44. á ferlinum. Giint-
her Mader frá Austurríki varð ann-
ar, 0,40 sek á eftir ítalanum.
„Ég tileinka foreldrum mínum
sigurinn en þau eru hér meðal
áhorfenda. Þetta keppnistímabil
hefur verið mér mjög hagstætt.
Fyrir tímabilið var markmiðið að
vinna heimsmeistaratitil, en ég end-
aði sem þrefaldur meistari í heims-
bikamum. Ég er orðinn mjög
þreyttur eftir langt og strangt tíma-
bil og það er gott að fá frí,“ sagði
ítalska skíðastjarnan.
í sviginu á sunnudag missti
Tomba jafnvægið strax er hann
kom út úr rásmarkinu í fyrri um-
ferð og krækti fyrir stöng í öðru
porti og vonbrigði ítalskra adáenda
hans sem biðu hans í markinu urðu
mikil. „Ég keppti í sviginu fyrst og
fremst fyrir aðdáendur mína því
sigurinn var þegar í höfn í saman-
lagðri keppni og sviginu. En ég gat
horft á síðari umferðina með þeim
í markinu," sagði Tomba.
Norðmaðurinn Olav Christian
Furuseth sigraði í sviginu og var
þetta fyrsti sigur hans í vetur.
Thomas Stangassinger frá Austur-
ríki varð annar og Yves Dimier,
Frakklandi, þriðji.
Spennandi
hjá konunum
Vreni Schneider vann stórsvig-
stitilinn þó svo að hún hafnaði að-
eins í níunda sæti á laugardaginn,
en sigurvegari var Spela Pretnar
frá Slóveníu. Helsti keppinautur
hennar um titilinn, Heidi Zeller-
Báhler, fór út úr brautinni í fyrri
umferð. Til að sigra í heildarkeppn-
inni þurfti Schneider að vera í fyrsta
eða öðru sæti í sviginu á sunnudag-
inn til að komast upp fyrir Katju
Seizinger. Schneider brást ekki
aðdáendum sínum og sigraði í svig-
inu. Hún náði langbesta tímanum
í síðari umferð eftir að hafa verið
í fjórða sæti eftir fyrri umferð. Hún
fékk því sex stigum meira en Seizin-
ger í heildarstigakeppninni og er
það minnsti munur í kvennakeppn-
inni frá upphafi.
Schneider, sem er 31s árs, segist
ekki hafa gert það upp við sig hvort
hún keppi í heimsbikarnum næsta
vetur. „Nú ætla ég að táka mér frí
frá skíðunum og gefa mér tíma til
að hugsa málið," sagði svissneska
skíðadrottningin sem hefur unnið
55 heimsbikarmót á ferlinum og
fjórum sinnum í samanlögðu. Anna-
emarie Moser-Pröll er sú eina sem
hefur unnið fleiri heimsbikarmót,
en hún vann 62 mót.
HM I NORRÆNUM GREINUM
Fyrsti HM-sigur Fauners
Silvio Fauner frá Ítalíu varð
heimsmeistari í 50 km göngu
á HM í Thunder Bay í Kanada á
sunnudaginn og vann þar með
fyrsta heimsmeistaratitil sinn.
Norðmaðurinn Bjöm Dæhlie hafði
forystu í göngunni þar til þrír kíló-
metrar voru eftir, en átti ekki svar
við endaspretti Fauners sem var
rúmlega einni mínútu á undan
Dæhlie í mark. Vladimir Smirnov,
sem hafði unnið allar þjár göngurn-
ar fyrir keppnina á sunnudag, varð
þriðji.
„Ég byijaði af miklum krafti og
reyndi að koma mér í þægilega
stöðu fyrir lokasprettinn, ég keyrði
mig þó ekki út því ég vildi eiga
eitthvað inni í lokin. Ég hef alltaf
trúað því að ég væri sterkari í styttri
göngunum, en nú veit ég að lengri
göngumar eiga líka vel við mig,“
sagði Fauner.
„Við náðum að bijóta múrinn er
við sigruðum í boðgöngunni á
Ólympíuleikunum í Lillehammer í
fyrra. Sú ganga gaf Fauner það
sjálfstraust sem hann þurfti í þessa
göngu. Hann vissi að hann gat
unnið bæði Dæhlie og Smimov,"
sagði Alessandro Vanoi, landsliðs-
þjálfari ítala.
„Þegar ég fór upp síðustu brekk-
una fann ég fyrir mikilli þreytu.
Ég hafði ekki meira þrek, það var
ekkert eftir. Ég fór of hratt í byij-
un, en ég hafði svo sannarlega löng-
un til að vinna gullið,“ sagði Dæhlie.
Smimov, sem varð fyrstur til að
vinna þrenn gullverðlaun á heims-
meistaramóti, var ánægður með
þriðja sætið. „Fyrir gönguna var
ég þreyttur enda var það ekki auð-
velt að vinna hinar göngurnar þijár.
Þær tóku mikinn toll. Ég bjóst ekki
við að vinna til verðlauna í dag og
er því ánægður með bronsið," sagði
Smirnov.
Sjötti HM-titill
Vaelbe
Jelena Vaelbe frá Rússlandi vann
sjötta HM-titil sinn á laugardaginn
er hún sigraði í 30 km göngu
kvenna. Hún hafði forystu í
göngunni frá upphafi. „Ég gat ekki
sofíð mikið í nótt. Ég hafði svo
mikla löngun til að vinna gullið að
ég gat ekki sofið,“ sagði Vaeibe.
Manuela DiCenta, sem varð
Ólympíumeistari í þessari vega-
lengd í Lillehammer, varð önnur,
13 sekúndum á eftir Vaelbe.
DiCenta datt í brekku í brautinni
er 10 km voru eftir en hún stóð
upp aftur og lauk göngunni með
glæsibrag. „Eg var svo reið þegar
ég datt að það gaf mér mikinn
styrk. Ég var ákveðin í að ná í
verðlaun," sagði DiCenta. Rússn-
eska stúlkan Antonina Ordina, sem
keppir nú fyrir Svíþjóð, varð þriðja.
____KMATTSPYRIMA_
Dortmund
steinlá heima
Dortmund mátti sætta sig við
stóran skell, 0:3, gegn Bayer
Leverkusen á heimavelli í þýsku
1. deildinni um helgina. Ottmar
Hitzfeld, þjálfari Dortmund, hrós-
aði liði Leverkusen eftir leikinn.
„Leverkusen lék mjög vel, en við
náðum okkur ekki á strik — sóknar-
leikur okkar var bitlaus." Vert er
að geta þess að ungir og óreyndir
leikmenn voru í fremstu víglínu
Dortmund — Stephane Chapuisat
og Karlheinz Riedle eru meiddir.
Daninn Flemming Povlsen er hins
vegar að verða góður eftir meiðsli,
hefur spreytt sig með varaliðinu
undanfarið og er von á honum í
aðalliðið fljótlega. Hans Lehnhoff,
Markus Muench og Andreas Thom
skoruðu mörk Leverkusen.
Gladbach
meistari?
Dortmund, sem tapaði þama í
fyrsta sinn á heimavelli í vetur,
hefur eins stigs forskot á Werder
Bremen, sem tapaði einnig um
helgina — 0:2, fyrir Borussia Mönc-
hengladbach, sem er þremur stig-
um á eftir Dortmund eins og Kais-
erslautem.
Þýskir fjölmiðlar em nú farnir
að tala um Mönchengladbach sem
líklega meistara, því liðið sem hefur
sigrað í síðustu fjórum leikjum og
leikur mjög vel um þessar mundir.
Stefan Effenberg hefur verið fram-
úrskarandi á góður á miðjunni;
stjórnar leik liðsins eins og sannur
herforingi. Berti Vogts, landsliðs-
þjálfari, á heima rétt við völl félags-
ins, en hefur ekki komið á leik þar
í nokkra mánuði, og hafa fjölmiðlar
haft orð á því undanfarið að hann
mætti nú alveg fara að líta við.
Effenberg, sem Vogts rak heim frá
HM í Bandaríkjunum sl. sumar,
segist vita að landsliðsþjálfarinn
vilji sig ekki aftur í liðið og þurfi
því ekki að mæta í þeim tilgangi
að skoða sig, en hann mætti að
ósekju kom á kíkja á aðra leikmenn
Gladbach.
Bayern Munchen gerði jafntefli
1:1 í Hamborg. Það var Jörg Al-
bertz sem skoraði jöfnunarmark
Hamburgar SV á síðustu mín.
leiksins, en áður hafði Mehmet
Scholl skorað fyrir Bayern úr víta-
spyrnu. Bayem lék geysilega vel.
„Þetta var besti leikur okkar á
keppnistímabilinu,“ sagði Trappa-
toni, hinn ítalski þjálfari liðsins, en
heppnin var ekki með strákunum
úr Svartaskógi.
Helgi Sigurðsson var í byijunarl-
iði VfB Stuttgart í Frankfurt, en
var skipt út af á 67. mín. fyrir
Brasilíumanninn Elber. Liðin gerðu
jafntefli, 2:2.
Niimberg sigraði
Nurnberg vann annan sigurinn
í röð, nú 1:0 í Chemnitz. Andre
Golke gerði markið á 14. mín.
Bjarki Gunnlaugsson kom inná fyr-
ir Arnar tvíburabróður sinn á 90.
mínútu.
Vialli tryggði
Juventus sex
stiga forskot
Gianluca Vialli skoraði sigurmark
Juventus með hjólhesta-
spyrnu, 1:0, gegn Cremonese í ít-
ölsku 1. deildinni um helgina og
hefur Juventus nú sex stiga forskot
á Parma, sem varð að sætta sig við
jafntefli, 2:2, gegn Reggiana. Þetta
var tólfta mark Viallis, sem skoraði
á 72. mín. eftir sendingu frá Ro-
berto Baggio. Þegar yfir Iauk voru
leikmenn Cremonese aðeins níu inni
á vellinum, þar sem Stefano De
Agostini og Corrado Verdelli fengu
að sjá rauða spjaldið. Fyrir leikinn
skrifaði Marcello Lippi, þjálfari Ju-
ventus, undir nýjan samning til
1997, en undir hans stjórn er liðið
með örugga forustu í 1. deildar-
keppninni og komið í undanúrslit í
UEFA-keppninni og ítölsku bikar-
keppninni.
Rússinn Igor Simutenkov gerði
vonir Parma um sigur að engu, þeg-
ar hann skoraði jöfnunarmarkið, 2:2,
fyrir Reggina með skalla á 67. mín.
Marco Simone skoraði sitt fimmta
mark í þremur leikjum þegar AC
Milan vann Sampdoría, 3:0. De-
metrio Albertini skoraði hin mörkin
— beint úr aukaspyrnu á 71. mín.
og úr vítaspyrnu á síðustu mín. leiks-
ins.
Argentínumaðurinn Abel Balbo,
sem hefur skorað fimmtán mörk,
tryggði Roma sigur, 1:0, úr víta-
spyrnu á 18. mín., gegn Cagliari,
sem tapaði sínum fyrsta heimaleik í
vetur.
Parísariiðið
óstöðvandi
Brasilíumaðurinn Ricardo, sem
hefur lítið getað leikið með
franska meistaraliðinu París St.
Germain í vetur vegna meiðsla,
hélt upp á endurkomu sína með
því að skora bæði mörk liðsins, sem
tryggði sér rétt með að leika í
undanúrslitum frönsku bikar-
keppninnar með því að leggja 2.
deildarliðið Nancy að velli, 2:0.
Ricardo skoraði bæði mörkin
með skalla. París St. Germain, sem
tefldi fram varaliði sínu, er komið
í undanúrslit á þremur vígstöðvum
— einnig í frönsku deildarbikar-
keppninni og Evrópukeppni meist-
araliða. Hin liðin í undanúrslitum
bikarkeppninnar í Frakklandi eru
Marseille, Strasbourg og Metz.
Metz vann 2. deildarliðið Mulho-
use 2:0. Strasbourg vann Borde-
aux, 2:0, í leik þar sem þrír leik-
menn Bordeaux fengu að sjá rauða
spjaldið. Marseille er komið í und-
anúrslit í sjöunda skiptið á tíu
árum.