Morgunblaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 5
4 E FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 E 5 Sterkja 'aftur komin á svarta listann ENN einu sinni hafa kennif- eður heilsufæðunnar vent kvæði sínu í kross. Núna stað- hæfa þeir að fitusnautt og kolefnaríkt fæði sé ekki endi- lega væn- leg leið til að við- halda grönnum líkams- vexti. Nýj- ar rann- sóknir gefa til kynna að sterkjurík Er pasta fæða eins óhollt? og pasta og hvítt brauð stuðli að offitu. Frá sjötta áratugnum hafa næringarfræðingar reynt að hræða fólk með óhollustu sykurs, salts og fitu. Núna beina þeir aftur spjótum sín- um að sterkju, sem áður þótti hinn mesti skaðvaldur, en komst í náðina hjá sérfræð- ingum á sjöunda og áttunda áratugnum. Vandinn kann að felast í insúlíni; hormóni sem stjómar ýmsum þáttum lík- amsstarfseminnar, t.d. efna- skiptum kolvetna. Að áliti sumra næringar- fræðinga nýtist kolefnaríkur megrunarkúr ekki þeim sem eru of feitir eða ef líkaminn framleiðir of mikið insúlín eftir neyslu sykurs og sterkju, en slíkt hijáir um 25% Banda- ríkjamanna. Því meira insúlín sem líkaminn framleiði þeim mun meiri líkur séu á að hann breyti kaloríum í líkamsfitu. Til að sneiða hjá hættunni ráðleggja sérfræðingar minni neyslu einfaldra kolefna í sterkjuríkum mat en benda fólki á að snúa sér að fjöl- breytilegum kolvetnum, sem finnast í ávöxtum og grænmeti. ■ IUNNUR EVA OG BENEPIKT Vöfflur eða annað heimabakað meðlæti á borðum um helgar naia- a ut ími ekki ir en ■ ÆFhJ h Heimilisbíllinn er Isuzu árg. 1991, en hann er af- rakstur vinnuárs- ins 1993 og verö- ur seldur ef f jár- hagsáætlun heim- ilisins stenst ekki. SAMBÚÐ Unnar Evu Jónsdóttur, 22 ára nema á fyrsta ári í textíl- deild KHÍ, og Benedikts Jónssonar, 24 ára nema á fyrra ári í Tölvuhá- skóla VÍ, hófst fyrir fjórum árum þegar Unnur flutti í herbergi kær- astans í foreldrahúsum. Þar bjuggu þau í góðu yfirlæti meðan Benedikt var við nám í skóla Flugmála stjórnar og Unnur lauk námi í FG. Að rúmlega tveimur árum liðnum fannst þeim tímabært að leigja sér íbúð og standa á eigin fótum, enda bæði komin í vinnu. Unnur Eva vann á leikskóla og Benedikt á innréttingaverkstæði föður síns. Þau töldu að árslaun beggja og ein- stök fyrirhyggjusemi ásamt sumarvinnu myndu duga þeim til að komast bærilega af er þau hæfu nám að nýju. Þann tíma sem þau bjuggu undir verndar- væng foreldra Bene- dikts gafst þeim gott tækifæri til að safna í búið og áttu því flestan nauðsynlegan húsbúnað og búsá- höld þegar þau hreiðruðu um sig í lítilli leiguíbúð í Hafnarfirði. Unnur Eva og Benedikt voru ekki lengi ein í kotinu, því fljótlega fæddist þeim dóttirin Sóley Ósk, sem nú er níu mánaða. Þau viður- kenna að þeim hafi brugðið svolítið í brún þegar ljóst var að hún var á leiðinni, enda ætluðu þau að ljúka námi áður en bam kæmi til sögunn- ar. Núna segjast þau varla geta hugsað sér lífið án hennar og hún raski í engu framtíðaráformum þeirra. Samtíningur úr ýmsum áttum Fæðing Sóleyjar Óskar varð þó til að þau ákváðu að flytja sig um set til Reykjavíkur þar sem þau fengu leigða litla þriggja herbergja risíbúð við Sigtún fyrir 26 þús. kr. á mánuði. Þaðan er stutt fyrir þau að fara allra sinna ferða og töluvert sparast í bensínkostnaði. Heimilis- bíllinn er Isuzu árg. 1991, en hann er afrakstur vinnuársins 1993 og verður seldur ef fjárhagsáætlun heimilisins stenst ekki. I henni fólst að ein milljón króna auk fæðingar- orlofsins skyldi duga til framfærslu þar til í vor, en þá hefur Unnur Eva von um vinnu á skrifstofu Eimskips og Benedikt á Reykjavíkurflugvelli eða í fyrirtæki föður síns. Reynsla hans þar hefur komið að góðum notum, því hann er liðtækur smið- ur, smíðaði m.a. hjónarúmið, borð- stofuborðið og skáp undir hljómtæk- in. Þau fékk Unnur Eva frá ömmu sinni þegar hún var tvítug, ísskáp- inn keyptu þau notaðan, en annað á heimilinu segja þau vera samtín- ing úr ýmsum áttum, sem þau hafa fengið lánað eða gefins. Fyrir tveimur árum tók Benedikt námslán og senn hefjast afborgan- ir, sem eru um 30 þús. á mánuði. Ýmis útgjöld við heimilishaldið komu þeim á óvart og því sótti1 Unnur Eva um námslán og á von á útborgun þess í vor. Þeim finnst ekki fara ýkja mikið í matarkaup kostnaður vegna rafmagns, hita, síma, áskrifta að Morg- unblaðinu og sjónvarps- stöðvunum og margs sem þau áður höfðu ókeypis not af, léttir pyngjuna ískyggilega mikið. Eini munaðurinn sem þau veita sér er áskrift að Stöð 2. Þau fara lítið út að skemmta sér, fóru síðast í bíó fyrir jólin. Félagamir í matar- klúbbnum hittast annan hvern mánuð, hver með sinn rétt og gömlu vina- tengslin hafa haldist. Flestir vinimir eru í sömu aðstöðu; ný-farnir að búa og nýbúnir að eignast barn. 5 kg af hrísgrjónum Þau segjast hafa þurft að draga saman seglin síðustu mánuðina og nú séu kók og heimsendar pizzur ekki lengur til umræðu. Pasta og hrísgijónaréttir eru oftast á borð- um, enda gaf móðir Benedikts þeim 5 kg af úrvals hrísgijónum nýverið. Sunnudagssteikina snæða þau oft- ast í boði ættingja sinna, en Unni Evu finnst tilhlýðilegt að bjóða upp á vöfflur, snúða eða annað heima- bakkelsi um helgar. Benedikt segir myndarskap kærastu sinnar slíkan að ætla mætti að hún væri af ann- arri kynslóð. Ekki væri nóg með að hún bakaði alla daga, heldur væri hún sípijónandi og saumandi. Unnur dregur svolítið úr þessum yfirlýsingum, en segir að Benedikt mætti vel vera lukkulegri með fram- takið og hugsa meira um að næra sig almennilega. Yfirleitt sér Unnur Eva um mat- reiðsluna, en Benedikt um viðhald bílsins, íbúðarinnar og þess háttar. Þau annast Sóleyju Ósk jöfnum höndum og skiptast á um uppvask- ið. Unnur Eva segir að Benedikt hafi verið fordekraður í uppvextin- um og sé gjarn á að leggjast upp í sófa með tæmar upp í loft og gleyma uppvaskinu þar til daginn eftir. Þetta mál hyggst Unnur Eva taka föstum tökum á næstunni. Benedikt bjó alltaf í sama húsinu í Garðabæ ásamt foreldrum og tveimur bræðrum. Hann segir að þar hafí ekkert skort og þeir bræð- urnir ekki verið vanir að taka þátt í heimilisstörfum. Unnur Eva á DAGLEGT LÍF DAGLEGT LÍF endann á skuldabagganum Heimilishaldið* Barneignir • Uppeldið • Námið • Vinnan • Fjárhagurinn • Hjónabandið • Afþreyingin • Verkaskiptingin INGA ROS OG HJORTUR Út að borða og í bíó fyrir þátttöku í spurningaleikjum og getraunum INGA Rós Antoníusdóttir, 16 ára, og Hjörtur Smárason, 19 ára, fluttu inn í þriggja herbergja kjallaraíbúð við Skipasund í ágúst sl. Með u.þ.b. 70 þús. kr. ráðstöfunarfé á mánuði segj- ast þau búa við allsnægtir og munað, enda eigi þau góða að, sem geri þeim kleift að búa leigulaust í íbúðinni þar til bæði hafi lokið námi. Sonurinn, Antoníus Smári, leit dagsins ljós fyrir fjórum mánuðum og þótt mörgum ættingjum hafi brugðið í brún þegar uppvíst varð um tilvist hans í móðurkviði, segir unga parið að hann sé sólargeisli allra og pössun sé ekkert vandamál. Án hjálpar aðstandenda sinna segj- ast þau hefðu orðið að hætta námi og fara út á vinnumarkaðinn. Inga Rós var í MS þegar hún varð ófrísk og Hjörtur í þriðja bekk, í Kvennaskó- lanum. Þótt barneignir hafi ekki ver- ið á dagskrá þá, vora þau full eftir- væntingar og hófu að skipuleggja framtíðina með tilliti til breyttra að- stæðna. Síðastliðið sumar unnu þau myrkranna á milli; Hjörtur við fisk- markaðinn á Patreksfirði og Inga Rós dældi bensíni á bíla á bensínstöð í Reykjavík. Upp úr krafsinu höfðu þau laun, sem dugði þeim fram að jólum. Núna segjast þau lifa af 58 þús. fæð- ingarorlofi á mánuði og 10 þús. kr. meðlagi frá föður Hjartar. Þau eru alin upp við ólíkar aðstæð- ur, Inga Rós, ásamt tveimur yngri systkinum, hjá foreldrum í góðum efnum, en Hjörtur við fremúr þröngan kost hjá einstæðri móður. Inga Rós viðurkennir að hafa verið svolítil dek- urrófa, sem hafí þó snemma lært að bjarga sér og aðlagast breyttum að- stæðum þar sem fjölskyldan bjó fyrst nokkur ár í Kúvæt og síðar í Þýska- landi. Hjörtur var 15 ára þegar hann kom suður í skóla og þurfti að standa straum af námi og uppihaldi. HELENA OG BJARKI Mikil vinna þar til sér fyrir Morgunblaðið/Kristinn BENEDIKT, Unnur Eva og Sóley Ósk. yngri systur og foreldra, sem hafa búið í Bandaríkjunum undanfarin ár, en þar bjó hún líka frá 15-18 ára aldri. Hún á ekki eins fastar rætur og Benedikt því í uppvextin- um bjó hún m.a. á Selfossi, Eski- firði og víðar. Að námi loknu langar Benedikt að starfa sem flugmaður. Hann er svartsýnn á að sá draumur rætist, en segir tölvunámið hagkvæmt og tryggja góðar tekjur. Unnur Eva býst við að starfa sem handavinnu- kennari a.m.k. í hlutastarfi eftir því sem heimilisástæður leyfa. Þau langar til að byggja sér einbýlishús í framtíðinni, finnst eitt barn nóg í bili, en gætu hugsað sér tvö til viðbótar þegar þau eru búin að koma sér betur fyrir. Gifting er ekki á næsta leiti en þegar þar að kemur vilja þau gifta sig í kirkju og halda veislu fyrir nánustu ætt- ingjaogvini. ■ Morgunblaðið/Kristinn BJARKI, Helena og Stefán Ingi Enginn kotungsbragur Það virðist þó enginn kotungsbrag- ur á heimili þeirra. Ibúðin er glæsileg og búin fáum en nýtískulegum hús- gögnum. Einungis á eftir að smíða stigann upp í risherbergið, en tvöföld lofthæð er í íbúðinni, sem er 60 fm að gólffleti. Hverfið er enn í byggingu og Helena býst ekki við að geta spók- að sig mikið með bamavagninn í sum- ar. Þau segja að sumum vinum þeirra finnist Grafarvogurinn vera á hjara veraldar og því séu óvæntar heim- sóknir fátíðar. Bjarki viðurkennir að hann sé oft þreyttur á aukavinnunni. Hann sættir sig þó við ástandið, meðan þau eru að komast yfir erfíðasta skuldabagg- ann og gefur sér tíma til að æfa fót- bolta tvisvar í viku. Skotveiðina hefur hann að mestu lagt á hilluna, enda er hún dýrt tómstundagaman. Þau fara sjaldan í bíó og á skemmtistaði, segjast hafa fengið sinn skammt á árunum áður. Mest umgangast þau þá vini sína sem eru í svipaðri aðstöðu og þau, því þeir sem enn eru einir á báti eru uppteknir í skemmtanalífínu. Bjarki hefur minnkað reykingarnar eftir að Stefán Ingi fæddist og reykir nú ekki innan veggja heimilisins. Hann er lítið fyrir að kaupa sér föt, en Hel- ena segist kaupa sér eina flík á mán- uði, en það vegi upp á móti peningum sem fara í tóbaksfíkn Bjarka. Þeim fínnst gaman að hafa góðan mat á borðum. Steikur og annað góð- gæti láta þau oft eftir sér en fylgjast vel með verðlagi og kaupa þar sem hagstæðustu kjörin bjóðast hveiju sinni. Þar sem Helena er heimavinn- andi sér hún að mestu um matseldina. Hún kunni lítið fyrir sér í þeim efnum áður en hún fór að búa en segir að Bjarki hafí kennt sér undirstöðuatriðin. í uppvextinum þurfti hann að bjarga sér með léttar máltíðir á daginn því foreldrar hans voru útivinnandi, en hann segist hafa sloppið við önnur heimilisstörf. Helena ólst aftur á móti upp við að taka til hendinni á heimilinu en var ekki hleypt nálægt pottunum. Ef allt gengur að óskum ætla þau að taka sér ærlegt frí, helst í Banda- ríkjunum, áður en næsta lota hefst, þ.e. stærri íbúð og nýr bíll. Þau lang- ar ekki í einbýlishús, segja slíkt allt of mikið umstang; endalaust viðhald og garðvinna. Stór og rúmgóð íbúð í blokk er þeim meira að skapi og nýjan bíl fínnst þeim nauðsynlegt að eiga, enda orðin langþreytt á gömlu drusl- unni sinni. Enn sem komið er hafa Helena og Bjarki lítið rætt um hjónaband. Helena segist þó vilja vera gift kona áður en hún verður 27 ára og Bjarki segir hjónabandið hluta af „prógramminu". Brúðkaupið ætla þau halda með stæl, en fínnst óviðeigandi að foreldrarnir borgi brúsann. ■ Morgunblaðið/Ámi Sæberg HJÖRTUR, Inga Rós og Antoníus Smári. Að minnsta kosti fimm börn Inga Rós hætti í MS, en hóf nám í þremur námsgreinum í öldungadeild MH eftir áramótin. Hana langar til að halda áfram í kvöldskóla, því þá geti þau Hjörtur skipst á að passa Antoníus Smára og jafnframt sparað 30 þús. kr. á mánuði. Með slíku fyrir- komulagi hittast þau aðeins stuttan tíma í senn meðan skólastarfið stend- ur sem hæst. Eftir stúdentspróf stefnir Inga Rós á Þroskaþjálfaskól- ann, en helst vill hún að Hjörtur mennti sig sem mest og best þannig að hann fái vel launaða vinnu í fram- tíðinni og hún geti verið heima og alið upp börnin fimm, sem þau eru ákveðin í að eignast. Hjörtur lýkur stúdentsprófi í vor og ætlar að reyna að komast á sjóinn í sumar. Þannig telur hann sig geta séð fyrir fjölskyldunni næsta vetur samhliða námi í HI, en hugurinn stefnir einkum á fjölmiðlafræði eða mannfræði. Húsbúnaður á heimili þeirra er úr ýmsum áttum, flest fengu þau gef- ins, t.d. sófasettið og hjónarúmið og barnadótið fengu þau notað frá tveggja ára hálfsystur Hjartar. Þvottavél og ísskáp keyptu þau notað en segjast lítið annað hafa þurft að kaupa sér utan körfu fyrir óhreina tauið og nokkrar sleifar. Bæði áttu hljóm- flutningstæki, en Inga Rós komst að hagstæðu sam- komulagi við bróður sinn um að hún fengi 12“ sjón- varpstæki sem hann átti og hann í staðinn græjurnar ’ hennar. Bílakostur heim- ilisins er Volvo árg. 1982, sem þau segja alltof mikla bensínhít og ætla fljótlega að fá sér annan sparneytnari. Pasta og aftur pasta Ekki segjast þau dug- leg að færa heimilisbók- hald, en þau nota reiðufé eða debetkort og vita því alltaf nákvæmlega hver staðan er. Matarreikningurinn er u.þ.b. 20 þús. kr. á mánuði, en lamba- skrokkurinn sem Hjörtur vann sér inn fyrir smölun í haust er drjúg búbót og sömuleiðis fiskur, sem vinir og vandamenn senda þeim að vestan. Frystikistan sem Hjörtur keypti ásamt vini sínum fyrir tveimur árum kemur því að góðum notum. Annars segjast þau lifa meira og minna af pasta, sem þau kunna að matreiða á ýmsan máta, enda hefðu þau fengið 13 matreiðslubækur í jólagjöf. Eitt og annað segja þau að leggist sér til. Matarheimboð til mömmu og pabba, afa og ömmu komi með reglu- legu millibili og um tíma lifði Hjörtur á pizzum á kostnað nemendafélags Kvennaskólans, er hann var á æfing- um fyrir spurningakeppni framhalds- skólanna. Hjörtur segist í mesta lagi hafa keypt sér eina flík á ári, en nú sé tengda-mamma ^ oft að gauka að sér einni og einni flík og einnig passi hún upp á að IpP^ dóttirin sé sómasam- lega til fara. Þótt Inga Rós og Hjörtur séu ekki mikið út á lífinu þessa dagana, rækta þau áfram tengsl við vini og kunningja, sem. koma í heimsókn og taka í spil. Helsti munaðurinn sem þau veita sér er að fara einstaka sinnum út að borða eða í bíó. Þar eru þau svolítið útsmoginn, því hvenær sem færi gefst taka þau þátt í hin- um ýmsu spurningaleikj- um og getraunum í útvarpi, sjónvarpi og biöðum, en vinningarnir eru oft matur á hinum og þessum veitinga- húsum eða bíómiðar. Á heimilinu er engin föst verka- skipting, Hjörtur verður þó enn um sinn að taka að sér allt umstang kringum bílinn þar sem Inga Rós er ekki komin með bílpróf. Þau hafa engar áhyggjur af framtíðinni, gifting bíður betri tíma.....þegar við höf- um efni á fallegum brúðarkjól og brúðkaupsferð," segir Inga Rós dreymin á svip. Stórt einbýlishús er ekki efst á óskalistanum, en íjárhags- legt öryggi finnst þeim mikilvægt og barnalán hin mesta gæfa. ■ Matarreikningur- inn er u.þ.b. 20 þús. kr. á mánuði, en lambaskrokk- urinn sem Hjörtur vann sér inn fyrir smölun í haust er drjúg búbót. HELENA Birgisdóttir, 23 ára, og Bjarki Guðmundsson, 24 ára rútubíl- stjóri, voru reiðubúin að leggja tölu- vert á sig til að eignast eigin íbúð. í tvö ár bjuggu þau hjá foreldrum Bjarka og söfnuðu í búið og fyrir fyrstu útborgun. Innan um búsáhöld og húsbúnað, sem nú prýðir heimili þeirra í Flétturima í Grafarvogi, var orðið harla þröngt um þau í gamla herberginu hans Bjarka. Frítt fæði og húsnæði þenn- an tíma gerði þeim fært að ráðast í íbúðarkaup fyrir tveimur árum, en þá dugði splunkunýr bíll, gamall jeppi og skyldusparnaður beggja fyrir útborgun upp á eina milljón. íbúðin kost- aði 6,1 milljón, afborganir voru 140 þús. kr. á tveggja mánaða fresti þar til nýver- ið að þau skuldbreyttu og dreifðu afborgunum á lengri tíma. 3,7 millj. kr. húsbréfalán fengu þau í ársbyijun 1994, en af því greiða þau 28 þús. kr. á mánuði. Til þess að eignast 3ja herbergja íbúð í blokk segjast þau hafa þurft að vinna mikið og spara hveija krónu. Helena vann hjá Sýslumanns- embættinu í Reykjavík og Bjarki ók langferðabílum vítt og breitt um Iandið, var barþjónn og dyravörður á hinum ýmsu skemmti- stöðum auk þess sem hann var einn vetur í kvöldskóla í Iðnskólanum. Þótt bæði stefni á frekara nám og sjái fram á fjárþrengingar næstu árin, fannst þeim engin ástæða til að bíða með barneignir. Frumburðurinn, Stef- án Ingi, fæddist í desember sl., hálfu ári eftir að þau fluttu inn í íbúðina sína. Helena og Bjarki búast við að hagur þeirra taki að vænkast eftir þijú ár og þá finnst þeim tímabært að eignast næsta bam. Þijú eiga böm- in að vera og helst ekki meira en þijú ár á milli þeirra. Með puttana í bílum Ef kennaraverkfallið setur ekki strik í reikninginn ætlar Helena í nám á snyrtibraut í Fjölbrautaskóla Breið- holts í haust. Þegar hún hefur iokið námi hyggst Bjarki setjast aftur á skólabekk í Iðnskólanum. Helst hefur hann hug á húsasmíði eða bifvéla- virkjun. Hann hefur verið með puttana í bílum frá blautu barnsbeini, enda faðir hans bifvélavirki og eigandi bíla- varahlutaverslunar. Hand- lagni og þekking Bjarka á bílum hefur sparað þeim dijúgan skildinginn því Coltinn þeirra er kominn til ára sinna og þá kemur í hlut Bjarka að lappa upp á hann. Varahlutina fá þau með afslætti hjá foreldrum Bjarka en að öðru leyti segjast þau ekki njóta ljárhagsaðstoðar. Samanlagðar tekjur þeirra eru um 170-190 þús. á mánuði. Þar inn í er fæðingarorlof, daglaun Bjarka fyrir akstur með skólabörn í Grafarvogi og langferða- keyrsla allar helgar. í kennaraverkfall- inu fór Bjarki á loðnu í Sandgerði þannig að launin héldust nánast óbreytt og sömuleiðis lítil viðvera hans á heimilinu. Þau segja ráðstöfunartekj- ur sínar ekki miklar þegar búið er að draga frá skatta, afborganir af íbúð- inni og ýmis föst útgjöld. Til hagræð- ingar hafa þau Iátið bankann sinn um greiðsludreifingu og borga því alltaf sömu upphæð á mánuði. Steikur og annað góðgæti láta þau oft eftir sér en fylgjast vel með verðlagi og kaupa þar sem hagstæð- ustu kjörin bjóðast hverju sinni. Þótt margir hafi á orði að Island sé barnfjandsamlegt þjóð- félag og lítið sé gert til að létta undir með ungum barnafjöl- skyldum virðist landinn í eðli sínu barnelskur. Mikil gleði ríkir jafnan hjá fjölskyldum þegar nýr afkomandi fæðist og flestir kjósa að stofna fjölskyldu og eignast börn. Um þessar mundir virðast frambjóðendur stjórnmálaflokk- anna einkum bera hag ungra barnafjölskyldna fyrir bijósti. Þeir keppast við að lýsa yfir hvernig þeir ætla að gera sitt besta til að afkomu þeirra verði borgið í framtíðinni. Trúlega treystir margt ungt fólk fremur á aðstoð og hjálpsemi foreldra sinna og ættingja en loforð stjórnmálamanna. Að minnsta kosti virtust ungu kærustupörin, sem Daglegt líf ræddi við njóta aðstoðar foreldra sinna í ein- hveiju formi við upphaf sambúð- ar og voru allsendis ósmeyk við framtíðina. ■ VIÐBRIGÐIN að flytja úr for- eldrahúsum, hefja sambúð og eignast barn eru meiri en marg- an grunar. Ekki er alltaf hægt að hlaupa til mömmu og pabba ef eitthvað bjátar á. Ábyrgðin, peningaáhyggjur og umönnun ungbarns verður óft þungamiðja tilverunnar. HUGURINN starfar best þegar líkaminn er vel hvíldur og fullur af náttúrulegri orku. GINSANA G 115 styrkir þessa þætti; eykur úthald og eflir andlegt og líkamlegt þrek sem gerir þér betur kleift aö standast álag. GINSANAG 115 inniheldur vísindalega prófaö ginseng þykkni úr völdum ginseng rótum. Efldu huga og hold með GINSANA G 115 fih, leilsuhúsið Skólavörðustíg & Kringlunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.