Morgunblaðið - 11.04.1995, Page 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Stigaskor leikmanna Njarðvíkurliðsins í úrslitakeppninni 1995
Leikið ...... gegn Vollur Rondey Valur Teitur Friðrik Jóhannes Kristinn ísak Ástþór Jón Júl.
KR Njarðvík 37 18 18 8 3 5 4 . 2
KR Celtj.nes 33 24 18 9 3 7 3 - 0
KR Njarðvík 33 11 11 6 4 7 15 - 2
Skallagr. Njarðvík 20 7 23 11 5 4 12 - 0
Skallagr. Borgarnes 18 5 20 7 9 11 5 - 5
Skallagr. Njarðvík 25 22 18 4 2 8 2 - 2
Grindavík Njarðvík 22 11 28 4 14 10 1 . 3
Grindavík Grindavík 20 15 21 6 10 8 8 4 0
Grindavík Njarðvík 18 17 27 2 17 12 9 0 5
Grindavík Grindavík 32 10 11 6 16 1 0 3 0
Grindavík Njarðvík 32 25 16 8 4 2 8 2 0
Grindavík Grindavík 27 16 20 4 14 4 6 0 2
SAMTALS 317 181 231 75 101 79 73 9 21
|NÍ Fj. leikja 12 12 12 12 12 12 12 5 12
MEÐALTAL 26,4 15,1 19,2 6,2 . 6,6 . 1,8
■ DRAGOSLAV Stepanovic,
þjálfari knattspyrnuliðsins Bayer
Leverkusen í Þýskaiandi, sem ný-
lega framlengdi samning sinn við
félagið til þriggja ára, var rekinn á
föstudag. Liðið hafði tapað fimm
síðustu heimaleikjum í deildinni.
■ ERICH Ribbeck, sem þjálfaði
Leverkusen frá 1985 til 1988, tók
strax við af Júgóslavanum og Le-
verkusen sigraði Gladbach 3:1 á
laugardag á heimavelli.
■ MARTINA Navratilova, sigur-
sælasta tenniskona sögunnar, sem
níu sinnum sigraði í einliðaleik á
Wimbledon mótinu, ætlar að keppa
í tvíiiðaleik á mótinu í sumar —
með Steffi Graf frá Þýskalandi,
sem í gær komst aftur í efsta heims-
listans.
■ NAVRATILOVA, sem er 38
ára, og lék til úrslita í einliðaleik á
Wimbledon í fyrra, hætti keppni í
einliðaleik eftir það. Graf og-hún
mættust þrívegis í úrslitum einliða-
leiks á Wimbledon á níunda ára-
tugnum, 1987, 88 og 89. Navrat-
ilova sigraði fyrsta árið en Graf í
tvö seinni skiptin.
■ NAVRATILOVA, sem þessa
dagana tekur þátt í keppnisferð
ásamt öðrum „gömlum“ tenniskon-
um, sigraði sjö sinnum í tvíliðaleik
íftírnR
FOLK
á Wimbledon á sínum tíma. Fimm
sinnum með Pam Shriver og einu
sinni með Chris Evert og Billie
Jean King.
■ OLIVER McCall hélt heims-
meistaratitli WBC (World Boxing
Council) sambandsins í þungvavigt
hnefaleika eftir bardaga við gamla
brýnið Larry Holmes í Las Vegas
um helgina. McCall, sem er 29
ára, hafði taisverða yfirburði gegn
hinum 45 ára gamla fyrrum heims-
meistara, sem nú sagðist endanlega
hættur. „Það er gott að enda svona.
Þetta var síðasti bardagi minn,“
sagði hann strax á eftir.
■ MIKLAR líkur eru taldar á að
Oliver McCall mæti fyrrum æf-
ingafélaga sínum og fyrrum heirrts-
meistara, Mike Tyson, sem nýlega
var sleppt úr fangelsi eftir þriggja
ára inniveru. McCalI vann á stigum
— úrskurður dómaranna þriggja
var: 114-113, 115-114 og 115-112.
■ ANUTA Catuna frá Rúmeníu
sigraði í sjötta heimsbikarmótinu
í maraþonhlaupi, á hinni einu
sönnu maraþonleið — frá Maraþon
til Aþenu — á sunnudag er hún
hljóp á 2 klst., 31 mín. og 10 sek.
Tími hennar er brautarmet. Lidia
Simon frá Rúmeníu var önnur á
2.31,49.
■ DOUGLAS Wakiihuri frá
Kenýa sigraði í karlaflokki á áður-
nefndu heimsbikarmóti í maraþon-
hlaupi. Hann fór þessa rúmlega 42
kílómetra á 2 klst., 12 mín. og 1
sek. Brautarmetið er u.þ.b. einni
mín. betri, sett af Bretanum Bill
Adcock fyrir 26 árum.
■ DAMON Hill frá Bretlandi
sigraði á sunnudag í argentínska
Formula 1 kappakstrinum á Will-
iams bifreið sinni. Þetta var fyrsti
sigur Hills á keppnistímabilinu og
sá 10. á ferlinum.
■ MICHAEL Schumacher,
heimsmeistari frá Þýskalandi, varð
í þriðja sæti á Benetton en Frakk-
inn Jean Alesi á Ferrari fagnaði
öðru sætinu — kom í mark sex sek.
á eftir Hill. Gerhard Berger er
efstur í stigakeppninni um heims-
meistaratitilinn með 11 stig, Alesi
og Hill hafa báðir 10.
NiARÐVÍK
Njarðvíkingar vörðu íslands-
meistaratitii sinn í körfu-
knattleiknum um helgina, lögðu
Grindvíkinga I sjötta úrslitaleikn-
um og sigruðu þar með 4:2.
Árangur hinna grænklæddu
Njarðvíkinga hefur verið með ein-
dæmum, ekki aðeins í vetur heldur
allar götur frá árinu
1981, eða í 15 ár.
Körfuknattleikslið stað-
arins hefur á þessum
árum níu sinnum hamp-
að íslandsbikarnum og
að auki orðið sex sinn-
um bikarmeistari.
Úrvalsdeildinni var komið á fót
árið 1979 og Njarðvíkingar urðu
íslandsmeistarar árið 1981, aftur
1982 og svo 1984, ’85, ’86 og
’87. Þvínæst varð liðið meistari
1991 og svo í fyrra og núna í ár.
En þrátt fyrir að verða ekki meist-
ari á árunum 1987 til 1991 vann
félagið samt til viðurkenninga.
Njarðvíkingar urðu nefnilega bik-
armeistarar í fyrsta sinn árið
1988, eftir að hafa tapað fimm
sinnum í úrslitaleik keppninnar.
Bikarinn var áfram í Njarðvík
næstu tvö árin, 1989 og 1990,
íslandsmeistaratitill 1991, bikar
1992, en 1993 varð liðið ekki ís-
landsmeistari og lék ekki til úr-
slita í bikarnum. Síðustu tvö árin
hefur liðið tapað í bikarúrslitum,
fyrst fyrir Keflavík og svo Grinda-
vík.
Það segir auðvitað sína sögu
um Njarðvíkurliðið að það tapaði
aðeins einum leik í deildarkeppn-
inni í vetur, sigraði I 31 leik.
Árangur þess á heimavelli hefur
að sjálfsögðu verið glæstur í vet-
ur, þar hafði liðið ekki tapað leik
frá því 4. mars í fyrra þar til á
fimmtudaginn 6. apríl 1995, eða
í rétt rúma þrettán mánuði.
Njarðvíkingar hafa ekki einasta
verið með góða einstaklinga innan
sinna raða, þeir hafa verið einstak-
lega heppnir með erlendan leik-
mann þar sem Rondey Robinson
er, en hann hefur nú leikið með
Njarðvíkingum í fimm ár. Miðað
við hvernig sum félög hafa lent í
vandræðum með erlenda leikmenn
hljóta Njarðvíkingar að teljast
ljónheppnir.
Annað atriði er vert að athuga
í sambandi við lið Njarðvíkur og
þetta á raunar einnig við um
Keflavík. Á þessum bæjum heyrir
það til tíðinda ef leikmenn frá
öðrum félögum ganga til liðs við
UMFN eða Keflavík, en víðast
hvar annars staðar skipta menn
nokkuð títt um félög.
Mönnum hefur stundum orðið
tíðrætt um að leikmenn Njarðvík-
ur séu orðnir full gamlir og það
hljóti að koma niður á liðinu, fyrr
en seinna. Víst er það rétt að
meðalaldur leikmanna íslands-
meistaranna er hærri en hjá mörg-
um liðum. Meðalaldur þeirra tíu
leikmanna liðsins sem tóku þátt í
úrslitakeppninni er 27 ár en til
samanburðar má geta þess að
meðalaldur liðs Grindvíkinga er
21,1 ár. Þetta segir auðvitað ekki
alla söguna því á móti kemur að
reynsla Njarðvíkinga er grlðarleg
og það hefur skilað sér í vetur.
Jóhannes KristbjÖrnsson, leik-
maður UMFN, orðaði það svo í
viðtali á Stöð 2 á dögunum að á
meðan önnur lið næðu ekki að
leggja Njarðvíkinga að velli væri
engin ástæða til að hætta. Þetta
er auðvitað alveg hárrétt, önnur
lið verða að skáka Njarðvíkingum
til að hægt sé að fara að tala um
að lið þeirra sé of gamalt til að
geta náð árangri. Njarðvíkingar
hafa sýnt og sannað að þeir eru
langt frá því að vera of gamlir.
Skúli Unnar
Sveinsson
íslandsmeistararnir
hafa nád einstökum
árangri í körfubolta
Er Njarðvíkingurinn ÍSAK TOMASSOM ákveðinn í að hætta í körfuboltanum?
Þetta voru
síðustu stigin
ÍSAK Tómasson, bakvörður Islandmeistara Njarðvíkur í körfu-
knattleik, tryggði liði sínu sigur í Grindavík á laugardaginn er
hann skoraði af miklu öryggi úr tveimur vítaskotum er 17,4
sekúndur voru eftir af framlengingunni. ísak er Njarðvíkingur
í húð og hár, fæddist þar í maí 1964 og verður því 31 árs eftir
tæpan mánuð og hefur þrívegis klæðst íslenska landsliðsbún-
ingnum. „Þetta voru mín síðustu stig, nú er ég hættur," sagði
ísak eftir leikinn á laugardaginn. Unnusta ísaks er Helga Birna
Rúnarsdóttir og eiga þau von á sínu fyrsta barni síðar á árinu.
Ísak dró heldur í land hvað varð-
ar að leggja skóna á hilluna
frægu. „I dag hafa margir verið
að spyrja mig hvort
ég væri hættur. Ég
ætlaði að hætta í
fyrra en úr því
Kiddi Einars kom
aftur ákvað ég að spila eitt ár með
honum. Ég reikna alveg með því
að ég sé hættur, ég held að þetta
hafí verið mín síðustu stig. Jú, ég
er svona meira á því að hætta
heldur en hitt.“
Þrátt fyrir að vera ekki nema
þrítugur er Isak einn af „gömlu"
mönnunum í liði íslandsmeistar-
anna. Ástæðan fyrir því að vera
orðinn „gamall“ I körfuknattleikn-
um er sjálfsagt sú að hann byijaði
ungur, eins og fleiri í liði meistar-
anna, varð meistari í fyrsta sinn
1982, eða aðeins 18 ára gamall.
„Ég byrjaði í meistaraflokki tíma-
bilið 1981-1982 þannig að ég er
búinn að vera með í öllum titlum
Njarðvíkinga nema þeim fyrsta
sem var tímabilið á undan auk
þess sem við höfum unnið bikarinn
íjórum sinnum k þessum árum.
Við höfum orðið íslands- eða bikar-
meistara þrettán sinnum á fjórtán
árum.“
Er einhver skýring á því hvers
vegna Njarðvíkingar hafa verið
svona sterkir í körfunni?
„Ætli það sé ekki bara að það
hefur meira og minna verið sami
mannskapurinn hjá okkur í gegn-
um tíðina. I liðinu í dag er það
bara ég og Teitur [Orlygsson] sem
höfum leikið með liðinu allan tím-
ann, frá 1983/84.“
Nú hefur verið talað um að þið
Eftir
Skúia Unnar
Sveinsson
Mynd/Páll Ketilsson
ISAK Tómasson seglr það alltaf erflðara og erfiðara að
vera í körfuknattleiknum, eftir því sem árunum fjölgar.
séuð með nokkuð „gamait “ lið. Er
framtíðin samt ekki björt?
„Við vorum nú taldir gamlir í
fyrra og lékum þá til úrslita í bik-
arnum og urðum íslandsmeistarar.
Sömu sögu er að segja frá þessu
tímabili. Gamalt í körfubolta er
afstætt held ég. Hvað er Jordan
gamall?“ spyr ísak, en Michael
Jordan, sem dró skóna fram á ný
í vetur er tveimur árum eldri en
ísak. „Framtíðin er björt hjá Njarð-
vík. Það eru nokkrir ungir strákar
sem eru að tínast inn svona einn
og einn á ári.“
Hvers vegna fórst þú í körfu-
boltann á sínum tíma?
„Það var bara enginn áhugi hér
í Njarðvík á fótbolta á þessum
tíma, annars hefði ég örugglega
valið fótboltann."
Varstu liðtækur í honum?
„Já, já, ég var ansi sprækur."
Hafa orðið miklar breytingar á
körfunni síðan þú byrjaðir?
„Já, heilmiklar. Körfuboltinn er
miklu mun betri núna en þegar
ég byrjaði fyrst. Það er auðvitað
framför í þessu eins og hjá öðrum
íþróttagreinum. Það eru fleiri lið
sem eru betri núna en áður.“
Tekur þetta orðið meira á?
„Já, já, þetta verður alltaf erfíð-
ara og erfiðara. Við lyftum mikið
og það hefur hjálpað okkur mikið.
Þegar við erum orðnir svona gaml-
ir verðum við að styrkja okkur vel
fyrir svona átök eins og voru í
vetur, sérstaklega þegar leikið er
svona þétt og leikirnir eru svona
margir, í vetur voru leikirnir of
margir."