Morgunblaðið - 11.04.1995, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLANDSMÓTIÐ í JÚDÓ
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 C 3
FOLK
Vemharð tvöfaldur
meistari annað árid í röð
Morgunblaðið/Jón
VERNHARÐ bregður á leik
og hnykklar vöðvana eftlr
að meistaratltlarnlr tvelr
voru í höfn. Hann hefur látlö
húðflúra „Mamma" á upp-
handlegginn.
Bjami
alltaf erf-
iðastur
Vernharð Þorleifsson frá KA á
Akureyri telst sigurvegari ís-
landsmótsins með sigri í tveimur
flokkum. „Stefnan var að sjálfsögðu
að halda mínum hlut og vinna allt,
enda væri engin ástæða til að
mæta á svona mót nema það væri
á hreinu. Bjami var erfiðastur, ekki
endilega að hann sé sterkastur,
heldur er þetta bara Bjami — og
baráttan ekki síst á sálrænu nótun-
um. En ég er ánægður með að fá
að glíma við hann,“ sagði Vernharð
sem verið hefur við æfingar á Spáni
undanfarna mánuði — hann er einn
þeirra sjö íslensku íþróttamanna
sem verið hafa á styrk frá Ólymp-
íusamhjálpinni. „Ég fór út í janúar
og kom heim núna í mars. Æfinga-
búðirnar komu mér í gott form en
ég hefði svo sem getað það hér
heima. Til að byrja með vom sterk-
ir menn þama en'síðan fóm þeir,“
bætti Vemharð við.
■ Úrslit / C10
■ EYSTEINN Þorvaldsson, fyrr-
um formaður Júdósambandsins setti
íslandsmótið á laugardag, en þetta
var hið 25. í röðinni.
■ ANTJE Muller sigraði í þeim
tveimur flokkum sem hún keppti í
og fékk afhent verðlaun fyrir — en
forráðamenn Júdósambandsins
fengu úr þvi skorið í gær Ántje
gæti ekki orðið íslandsmeistari, þar
sem hún er þýskur ríkisborgari og
hefur aðeins búið hér í tvö ár. Antje
verður því að skila verðlaununum.
■ KAREL Halldórsson var
snöggur að afgreiða Jón Þór Þor-
valdsson frá Akureyri í -78 kílóa
flokki þegar hann skellti honum
með ippon eftir 7 sekúndur. Það er
ekki í fyrsta sinn sem Karel gerir
þetta því 1987 skellti hann öðmm
andstæðingi í gólfíð á jafn mörgum
sekúndum. „Ég kemst víst í blöðin
á átta ára fresti en ætli ég horfi
ekki bara á þegar ætti að koma að
mér næst, árið 2003,“ sagði Karel
kátur._
■ MÓTIÐ átti að halda í íþrótta-
húsinu við Austurberg en á laugar-
dagsmorgni fengu júdómenn að vita
að húsið væri tvíbókað. Allt var
skóla fékkst með skömmum fyrir-
vara og nokkur tonn af júdódýnum
vom í skyndi flutt á milli húsanna.
■ HANDBOLTAMENN í landsliði
21 árs og yngri urðu fómarlömb
þess að íslandsmótið í júdó var fært
í íþróttahús Seljaskóla. Þeir áttu að
æfa þar kl. 17 en hún var felld niður.
■ ÞYNGSTI maður júdómótsins
um helgina var 128,5 kíló en sá
léttasti um 56,5 kíló.
JÚDÓMENN héldu sitt 25. ís-
landsmót í Seljaskóla og voru
úrslit, sem oft áður, flest eftir
bókinni. Engu að síður mátti
sjá skemmtilegar viðureignir
enda mikil barátta íflestum
þyngdarflokkum. Vernharð
Þorleifsson frá KA varði titla
í -95 kílóa og opnum flokki. í
öðrum flokkum sigruðu ís-
landsmeistarar f rá í fyrra aftur
nema í -65 kflóa flokki þar sem
Sævari Sigursteinssyni úr KA
tókst að hreppa gullið af ís-
landsmeistara síðustu tveggja
ára, Vigni G. Stefánssyni úr
Ármanni.
Mesta baráttan var að venju í
opna flokknum hjá körlun-
um. Þar áttust við 12 keppendur
^■■■■1 úr ýmsum þyngar-
Stefán flokkum og þegar
Stefánsson dró að lokum stóðu
skrifar þyngstu mennirnir
uppi. í undanúrslit-
um náði Akureyringurinn Vernharð
Þorleifsson að leggja Gísla Jón
Magnússon félaga sinn með
fullnaðarsigri, ippon. Hinsvegar
áttust Sigurður Bergmann frá
Grindavík, sem sigraði í +95 kílóa
flokki, og Bjarni Friðriksson, sem
ákvað á síðustu stundu að hella sér
út í slaginn. Sigurður byrjaði á að
skora 3 stig en Bjami svaraði með
7 stigum og liðu 5 mínúturnar án
frekari stiga og Bjarni því kominn
í úrslit.
Úrslitaviðureign Bjarna og
Vemharðs var spennandi. Bjami
sótti fyrstu mínúturnar og fékk
stig en það var afturkallað af dóm-
umm. Er leið að lokum lét Vern-
harð einnig til sín taka og sótti til
baka en án þess að ná sér í stig
og þar sem jafnglími varð að grípa
til dómararúrskurðar. Þar veifuðu
tveir dómarar rauðu flaggi á Vern-
harð og þar með íslandsmeistarat-
itli.
í +95 kílóa flokki vom þrír kepp-
endur. Grindvíkingurinn Sigurður
Bergmann varði Islandsmeistara-
titil sinn í þriðja sinn þegar hann
sigraði Jón Jakobsson, KA, á fasta-
taki og síðan Gísla Jón Magnússon,
einnig að norðan, á ipponi eftir
tvær og hálfa mínútu. I -95 kílóa
flokki varði Vemharð einnig sinn
titil með armlás á Sigurð Krist-
mundsson og í -86 kílóa flokki varð
Halldór Hafsteinsson einnig titil
sinn með fastataki á Þorvaldi
Blöndal, KA, í úrslitum.
Freyr Gauti Sigmundsson, KA,
hefur átt við meiðsli að stríða en
virðlst hafa náð sér og sagðist ekki
eins sterkur og áður en í góðri
æfingu. Hann fór oft úr axlarlið
en var að lokum skorinn upp. Það
kom ekki að sök því í -78 kílóa
flokki sigraði hann Berg Pálsson,
UMFS, á ipponi. í þessum flokki
var búist við afrekum hjá Karel
Halldórssyni, Ármanni, en það
gekk ekki eftir og deildi hann þriðja
sæti með Jóni Þorvaldssyni úr KA.
Eiríkur Kristinnsson, Ármanni,
lagði Bjarna Skúlason úr UMFS á
ipponi í frábærri viðureign í úrslit-
unum og varði þar titil sinn í -71
kílóa flokki.
Vignir G. Stefánsson úr Ár-
manni, íslandsmeistari í -65 kílóa
flokki 1993 og 1994, og Sævar
Sigursteinsson úr KA hafa lengi
eldað grátt silfur saman enda efni-
legustu júdómenn landinu. Enn var
viðureign þeirra löng og ströng,
Sævar byijaði á að skora 5 stig á
Vigni sem náði að svara með þrem-
ur stigum. Sævar kaus því að veij-
ast fimlega og láta Vigni sækja en
5 mínúturnar liðu án þess að fleiri
yrðu stigin og Sævar hafði þar með
varpað Vigni af stalli. í -60 kílóa
flokki varði síðan Höskuldur Ein-
arsson, Ármanni, titil sinn gegn
Andra Júlíussyni félaga sínum.
í kvennaflokki var Antje Muller,
sem æfír með Ármanni, í sér-
flokki. í -66 kílóa flokki keppti hún
í úrslitum við Ármenninginn Gígju
Gunnarsdóttur, sem skoraði þó á
hana 5 fimm stig fyrst. Antje náði
að koma þremur stigum að og síð-
an 5 til viðbótar og stóð því upp
sem sigurvegari. Berglind Ólafs-
dóttir, úr sama félagi, vann -61
kílóa flokkinn en í opna flokknum
átti Antje ekki í vandræðum með
Gígju í úrslitum. Gígja telst hins
vegar íslandsmeistari í báðum
flokkum, þar sem Antje er þýskur
ríkisborgari og hefur ekki búið
hérlendis nógu lengi til að geta
orðið sigurvegari á Islandsmóti.
VERNHARÐ í slgurglímu slnnl í -95 kflóa flokkl
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
— hefur náA ármlásl gegn SlgurAi Kristmundssyni sem gat sig hvergi hreyft.
Búinn að gleyma
hve þetta er erff itt
SævarSigursteinsson KA-maður
Var þreyttur en
ákvað að þrauka
Bjarni Friðriksson, júdókappi —
besti íslendingurinn í þessari
íþróttagrein í fjöldamörg ár — var
með á mótinu um helgina. Hann
sagðist hafa ákveðið að skella sér
í slaginn á síðustu stundu og tók
þátt í opna flokknum, en síðasta
Islandsmót sem hann tók þátt í var
1993.
„Ég er hættur og hef ekki keppt
nema þrisvar síðan eftir íslands-
mótið 1993. Ég var með á móti í
Austurríki í febrúar síðastliðnum,
þar á undan keppti ég í nóvember
og þar á undan á írlandi í haust á
opna írska mótinu. En ég hef ekk-
ert æft — hef bara aðeins verið að
gutla með um leið ég hef verið að
kenna,“ sagði Bjarni við Morgun-
blaðið.
„Ég ákvað þetta í bríaríi, að vera
með núna, en var alveg búinn að
gleyma hvað þetta er erfitt. Að vísu
var ég ekki sáttur við dómaraúr-
skurðinn í lokin en ég ætla ekki
að deila við dómarana og kenni
þeim alls ekki um tapið. Vernharð
er mjög efnilegur en auðvitað hefði
ég viljað vinna hann,“ sagði Bjarni
sem var ekki langt frá því að sigra
í opna flokknum enn eitt árið.
„Vandamálið hjá okkur í júdóinu
er að það vantar fleiri hæfa dómara
— en þau mál eru í athugun."
BJARNI FrlArlksson dró
fram gallann og var meA á
íslandsmótinu um helgina.
Eg var orðinn mjög þreyttur en
ákvað að þrauka út tímann.
Hann var líka orðinn kraftlaus en
hafði meiru að tapa,“ sagði Sævar
Sigursteinsson úr KA, íslandsmeist-
ari í -65 kílóa flokki, við Morgunblað-
ið um úrslitaviðureign sína gegn ís-
landsmeistara síðustu tveggja ára,
Vigni G. Stefánssyni úr Ármanni.
Þeir félagarnir eru taldir efnilegustu
júdómenn landsins og viðureignar
oftast verið spennandi, langar og
strangar. Svo var einnig nú.
„Ég tapaði fyrir honum 1993 en
þann sama dag, hafði ég meiðst þeg-
ar ég tók þátt í fullorðinsflokki. Nú
er um að gera að halda þessum titli
þar sem við erum að koma upp úr
yngri flokkunum,“ bætti Sævar við,
sigurreifur.
Þeir félagar voru um þarsíðustu
helgi í Hollandi þar sem þeir tóku
þátt í Opna Hollenska meistaramót-
inu, sem er A-mót. Þar, voru saman
komnir allir sterkustu júdómennimir
sem stefna á Ólympíuleikana. „Við
vildum sjá stöðu okkar og hveijir
væni helstu veikleikarnir — það er
styrkurinn sem okkur vantar,“ sagð
Sævar.