Morgunblaðið - 11.04.1995, Qupperneq 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKIMATTLEIKUR
Æ
Níundi Islandsmeistaratitill Njarðvíkinga á fjórtán árum
Úrslitakeppnin
í körfuknattleik 1995
Sjötti leikur líðanna i úrslitunum,
leikinn í Grindavik 8. apríl 1995
GRINDAVÍK NJARÐVÍK
86 Stig 93
17/22 Víti 11/16
3/18 3ja stiga 4/14
33 Fráköst 38
22 (varnar) 24
11 (sóknar) 14
13 Bolta náð 9
16 Bolta tapað 22
13 Stoðsendingar 17
20 Villur 23
Lokamínútan var æsispennandi.
Grindvíkingar komust 76:72
yfir þegar 2 mín voru eftir. Marel
Guðlaugssyni, sem
SkúliUnnar lei,kið hafðiix1vei j
Sveinsson soknmni, mistokst að
skrifar skora úr nokkrum
þriggja stiga skotum
auk þess sem hann hitti ekki úr up-
plögðu færi þar sem hann var kom-
inn undir körfuna. Þegar 42 sek.
voru eftir minnkaði Valur Ingimund-
arson muninn með þriggja stiga
körfu, 76:75, Marc Mitchell kom
heimamönnum aftur þremur stigum
yfír með tveimur vítaskotum er 32
sek. voru eftir, 78:75. Þegar 12 sek.
voru eftir jafnaði Teitur með þriggja
stiga körfu utan af kanti.
Teitur og fráköstin
Aðdragandinn að þessari körfu
Teits var merkilegur. Njarðvíkingar
voru þremur stigum undir og urðu
því að gera þriggja stiga körfu. Fyrst
skaut Jóhannes en hitti ekki. Hann
gerði sér þó lítið fyrir og tók sjálfur
frákastið. Sóknarfrákast númer 1!
Valur fékk boltann fyrir utan þriggja
stiga línu, skaut en hitti ekki en
Rondey tók frákastið. Sóknarfrákast
númer 2! Rondey fór út í hom og
reyndi þriggja stiga skot. Hann hitti
ekki og það sá Teitur með nokkrum
fyrirvara, kom sér vel fyrir undir
körfunni og tók frákastið. Sóknarfr-
ákast númer 3! Þetta vegur auðvitað
gríðarlega þungt. Grindvíkingar áttu
auðvitað ekki að láta Njarðvíkinga
taka þijú sóknarfráköst í einni og
sömu sókninni.
NJARÐVÍK varð á laugardaginn íslandsmeistari í körfuknattleik
í níunda sinn á fjórtán árum. Njarðvikingar unnu Grindvíkinga
86:93 íframlengdum leik í Grindavík og unnu þar með ífjórum
leikjum af sex. Leikurinn var æsispennandi og fjörugur og alveg
nákvæmlega eins og úrslitaleikir eiga að vera. Dramatík í lokin
þar sem dómarar úrskurðuðu körfu, sem Grindvíkingar gerðu á
síðasta sekúndubrotinu, ógilda og því varð að framlengja. Þar
voru gestirnir sterkari og fögnuðu Islandsmeistaratitlinum öðru
sinni á jafn mörgum árum, í sama íþróttahúsi og í fyrra en þá
léku þessi lið einnig til úrslita. Leikurinn var glæsilegur endir á
skemmtilegu móti, endir eins og þeir eiga að vera, en það hefði
óneitanlega verið skemmtilegra að þessi endir hefði verið í kvöld.
Þá hefðu áhorfendur fengið að sjá enn einn leikinn, en hinir
grænklæddu Njarðvíkingar eru örugglega sáttir við að hafa tryggt
sér titilinn á kosningadaginn.
ÍÞRÓmR
FOLK
■ JÓNKr. Gíslason þjálfari Kefl-
víkinga spáði því fyrir Morgunblað-
ið fyrir úrslitaleikina að Njarðvík
myndi sigra í sex leikjum, 4:2, eins
og síðar kom á daginn.
■ ÁRANGUR liðs Njarðvíkur í
vetur er með ólíkindum. Liðið tap-
aði aðeins einum leik í deildar-
keppninni, en þar lék liðið 32 leiki.
í úrslitakeppninni lék liðið 12 leiki,
tapaði þremur og sigraði í níu. Ef
deildin er tekin í heild lék liðið 44
leiki, sigraði í 40 og tapaði fjórum,
91% vinningshlutfall.
■ ÞEIR leikmenn UMFN sem
voru ekki í byrjunarliðinu á laugar-
daginn komu mikið við sögu í leikn-
um. „Bekkurinn" berði 34 stig fyrir
Njarðvík, en „bekkurinn" hjá
Grindavík gerði aðeins 3 stig.
■ GRÆNI liturinn virðist vera vin-
sæll þessa vordaga. Islandsmeistar-
ar Njarðvíkur klæðast grænum
búningum eins og íslandsmeistarar
kvenna, Breiðablik og á laugar-
daginn fögnuðu framsóknarmenn
góðum árangri í alþingiskosningun-
um^en litur þeirra er einmitt grænn.
■ ÍSAK Tómasson gerði tvö stig
úr vítaskotum fyrir Njarðvík rétt
fyrir leikslok og gerði endanlega
úfyum vonir Grindvíkinga um að
jafna leikinn. Þetta voru síðustu
stig hans með liðinu: „Já, nú er ég
hættur. Þetta er búið að vera gam-
an; ég er að vinna áttunda íslands-
meistaratitilinn á ferlinum og ég
hef unnið fjóra bikarmeistaratitla
þannig að þetta er ágætt. Mér líður
vel eftir erfiðan leik þar sem tauga-
spennan var fram á síðustu mínútu
en við höfðum þetta,“ sagði Isak.
Morgunblaðið/Bjami
FÉLAGARNIR Teitur Örlygsson og Ástþór Ingason höfðu
ærna ástæðu tll að fagna þegar meistaratitillinn var í höfn.
Teitur hefði hæglega getað lagt
boltann í körfuna og minnkað mun-
inn í eitt stig. Nei, hann lét það ekki
nægja, heldur fór út í horn með bolt-
ann, þóttist ætla að skjóta, hætti við
en fór svo upp og skaut án þess að
Guðjón Skúlason næði að trufla hann
nægilega. Skotið fór beinustu leið í
körfuna og þar með orðið jafnt,
78:78.
Grindvíkingar fóru í sókn og þegar
um 2 sekúndur voru eftir skaut Pét-
ur Guðmundsson en hitti ekki. Marel
tók frákastið alveg undir körfunni
og skaut, Rondey Robinson reyndi
að veija skotið en niður fór boltinn.
Nú tók við nokkur rekistefna þar sem
Kristinn Albertsson, aðaldómari
leiksins, þurfti að gera upp hug sinn.
Var tíminn búinn áður en Marel
sleppti knettinum eða var karfan lög-
leg? Kristinn sagði körfuna ekki
„góða“ og því þurfti að framlengja.
Njarðvíkingar sterkari
Eftir eina mínútu í framlenging-
unni hafði hvort lið gert tvö stig og
Jóhannes Kristbjörnsson fékk
fímmtu villu sína. Guðmundur
Bragason skoraði síðan úr einu víta-
skoti, 81:80, og Rondey kom Njarð-
vík í 81:82. Pétur kemur heimamönn-
um einu stigi yfír með óvæntu lang-
skoti, 83:82 og framlengingin ná-
kvæmlega hálfnuð.
Rondey skoraði úr einu víti og
Teitur bætti við þriggja stiga körfu,
83:86 og 1,40 mín eftir. Mitchell
reyndi þriggja stiga skot sem mis-
fórst, Teitur brunaði fram, fékk
langa sendingu og Mitchell braut á
honum og fékk þar með sína fímmtu
villu. Allt þetta gerðist á tíu sekúnd-
um og Teitur skoraði úr öðru skot-
inu, 83:87 og 1,30 mín eftir. Guðjón
gerði tvö stig, Rondey svaraði hinum
megin og Pétur hitti síðan úr öðru
vítaskoti sínu, staðan 86:89 þegar
27,7 sek. voru eftir.
ísak tryggði sigurinn
Brotið var á ísaki Tómassyni þeg-
ar 17,4 sek. voru eftir og honum
brást ekki bogalistin, setti bæði skot-
in niður og tryggði þar með Njarðvík-
ingum íslandsmeistaratitilinn. Rond-
ey átti síðan síðasta orðið, fékk bolt-
ann fram og tróð með stæl og fagn-
aði ógurlega. Langri og strangri úr-
slitakeppni var lokið og stórkostleg
frammistaða Njarðvíkinga í allan
vetur hafði skilað liðinu íslands-
meistaratitli.
Grindvíkingar leiddu lengstum í
fyrri hálfleik, eða allt þar til þijár
mínútur voru eftir og staðan 40:35.
'Njarðvíkingar gerðu síðustu 14 stig
fyrri hálfleiks og leiddu því 40:49
er leikmenn tóku sér hlé. Þetta hefur
örugglega komið illa við heimamenn.
Þeir tóku leikhlé á þessum kafla en
svar Njarðvíkinga var að skora tíu
næstu stig.
Grindvíkingar náðu að þjappa sér
saman í leikhléinu og minnkuðu
muninn í 50:51 því Njarðvíkingar
gerðu aðeins tvö stig S 5,47 mínútur.
Eftir þetta þurftu heimamenn ávallt
að sækja að Njarðvíkingum, náðu
reyndar að komast yfír og héldu
naumri forystu allt þar til Teitur jafn-
aði eins og áður er lýst.
Marc Mitchell var sterkur í liði
Grindvíkinga eins og í flestum leikj-
um úrslitakeppninnar. Marel átti
einnig mjög góðan dag, Guðmundur
lék ágæta vörn lengst af en átti
nokkur mjög ótímabær skot og eins
og venjulega barðist Pétur af hreint
ótrúlegum krafti. Ómetanlegur fyrir
liðið.
Hjá ísiandsmeisturunum áttu þeir
Rondey, Teitur og Valur allir mjög
góðan leik og Jóhannes var einnig
traustur og barðist af mikilli grimmd.
ÍSLANDSMEISTARAR Njarðvíkur, aftari röð frá vinstri: Jón Benediktsson, læknir, Rúnar Árnason, Júlíus Valgeirsson, liðs-
stjóri, Jóhannes Kristbjörnsson, Kristinn Elnarsson, Páll Kristinsson, Valur Ingimundarson, þjálfari, Rondey Robinson, Ægir
Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sigurður Einarsson I búningi lukkudýrs UMFN og Ólafur Eyjólfsson, formaður körfuknattleiks-
deildar UMFN. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson, Friðrik Ragnarsson, Jón Júlíus Árnason, Ástþór Ingason, fyrirliði, og
ísak Tómasson með fánann fyrir titilinn 1995 sem var tilbúinn, en leikmenn vissu ekki stjórnin hafði látið gera fánann.
íslandsmeistararnir
Morgunblaðið/Bjami