Morgunblaðið - 11.04.1995, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 C 9
HESTAR
GOLF / US MASTERS
ÍÞRÓTTIR
Keppt um Morgunblaðsskeifuna á Hvanneyri
Sigurvegarinn komin
fimm mánuði á leið
ERFIÐUR foli og ólétta var engin
fyrirstaða fyrir Brynju S. Birgis-
dótturtil þátttöku íkeppninni
um Morgunblaðsskeifuna á
Hvanneyri á sunnudag. Brynja
sem er frá Gufudal í Hveragerði
gerði sér lítið fyrir og sigraði á
folanum Ögra sem erfrá Stein-
um, undan Kóp og Kötlu frá
sama stað.
Brynja hlaut 79 stig en sá er
næstur kom, Jóhann Reynir
Sveinbjörnsson frá Snorrastöðum,
hlaut 76,5 stig. Hann tamdi og sýndi
hryssu sína Nótt frá
sama stað en hún er
undan Fiðringi frá
Ingveldarstöðum og
Brúnku frá Snorra-
stöðum. Næstur Jóhanni kom Óttar
Bragi Þráinsson frá Miklaholti með
73 stig, einnig með heimafenginn
hest, Glæsi frá Miklaholti sem er
undan Goða frá Sauðárkróki og Von
frá Bræðratungu.
í fjórða sæti varð svo Karvel Lind-
Valdimar
Kristinsson
skrifar
berg Karvelsson á Sleipni frá Hunda-
stapa sem er undan Kolfinni frá
Kjarnholtum og Eldingu frá Hunda-
stapa. Karvel hlaut 68,5 stig. í
fimmta sæti með 68 stig varð Sæunn
Þóra Þórarinsdóttir á Ölfu frá Viðvík
undan Saflr og Þernu frá sama stað.
Sæunn hlaut einnig Eiðfaxa-bikarinn
fyrir besta hirðingu á hrossi sínu
yfir veturinn.
Brynja gerði gott betur en að vinna
Morgunblaðsskeifuna því hún hlaut
auk hennar ásetuverðlaun Félags
tamningamanna og þótti vel að þessu
komin. Ingimar Sveinsson kennari
sem hefur umsjón með tamningum
nemenda sagði að folinn sem Brynja
tamdi hafí verið mjög erfiður, hálf-
gerður villingur og hefðu þau rætt
það á miðjum vetri hvort þorandi
væri að hún héldi áfram með folann
með tilliti til ástands hennar. Hann
hefði þó ráðlagt henni að gefast ekki
upp, taldi slíkt í lagi ef þess yrði þó
vel gætt að tefla aldrei í tvísýnu.
Brynja hafði aðeins riðið Ögra í
frjálsri reið utan gerðis í þq'ár til
ijórar vikur en greinilega með skjót-
um og góðum árangri. Brynja var
að vonum ánægð með árangurinn
en hún er komin fimm mánuði á leið
í meðgöngu.
Öll voru trippin tamin í upphafi
með tamningaaðferðinni „Af fijálsum
vilja“ sem Ingimar hefur kennt á
námskeiðum á Hvanneyri. Sagði Ingi-
mar aðferðina hafa sannað ágæti sitt
og benti á að folinn sem Óttar Þráins-
son tamdi hefði vart verið taminn á
þessum stutta tíma á annan máta.
Magnús B. Jónsson skólastjóri hélt
stutta tölu að lokinni verðlaunafhend-
ingu og kom fram í máli hans að
ekki stæði til að leggja niður kennslu
í hestamennsku á Hvanneyri eins og
þrálátur orðrómur hefði kveðið og
sömuleiðis yrði haldið áfram með
námskeið Ingimars. Hrossin á Hvann-
eyri litu vel út að vanda og greinilegt
að metnaður er lagður í fóðrun og
hirðingu. Ingimar benti á að nú í
fyrsta skipti, líklega í marga áratugi
hafi ekki borið á múkki í hrossunum
og vildi hann þakka því réttri fóðrun.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
BRYNJA S. Birgisdóttlr hafði ástæðu til að fagna góðum ár-
angri, Ögri orðinn vel reiðfær, Morgunblaðsskelfan og ásetu-
verðlaun F.T. í höfn og barn í vændum eftlr nokkra mánuðl.
Norman var nálægt því að ná emi
(2 undir pari) á fímmtándu holunni
og fugli (1 undir) á þeirri sextándu
en sigurvonir hans urðu að engu
þegar honum mistókst hrapalega
innáhögg með sandjárni á 17. hol-
unni og varð síðan að sætta sig við
að deila þriðja sætinu með Jay Haas.
Love lék frábært golf, teighögg
hans voru gífurlega löng og inná-
höggin nákvæm á flestum holum.
Hann lék síðasta hringinn á sex
höggum undir pari sem var besta
skorið á þurrum og hörðum vellinum
lokadaginn, þrípútt á sextándu hol-
unni var hins vegar dýrkeypt og þó
hann næði fugli á þeirri sautjándu
dugði það ekki til.
Crenshaw bar kistu lærimeistara
síns, Penicks, í jarðarför hans síðasta
miðvikudag. Penick veitti Crenshaw
fyrstu leiðsögn í golfi þegar hann
FOLK
■ „TIGER" Woods hlaut sérstök
verðlaun fyrir besta skor áhuga-
manns á bandaríska meistaramótinu
(US Masters). Woods sem er aðeins
nitján ára gamall mátti ekki vera
að því að bíða eftir verðlaunaafhend-
ingunni heldur flaug til Kaliforníu
strax eftir hringinn. Ástæðan var
sú að hann þurfti að mæta í sögu-
tíma í Stanford háskólanum í gær-
morgun.
■ WOODS þakkaði mótstjórninni á
Augustavellinum fyrir sig með bréfi
þar sem hann þakkaði meðal annars
fyrir tækifærið til að upplifa eina
bestu viku ævinnar. „Hér sagði ég
skilið við æskuna og varð að manni,“
sagði hann m.a. í bréfínu.
■ ERNIE Els frá Suður-Afríku
og Nick Price frá Zimbabve voru
þeir kýlfingar sem veðmangarar
höfðu mesta trú á fyrir mótið. Hvor-
ugur náði að sýna sitt besta og báð-
ir féllu úr keppni eftir tvo daga. Els
lék á þremur yfir pari og Price á
flmm höggum yfir pari.
■ JAY HAAS náði besta hring á
US Masters sem náðst hefur í fimm
ár þegar hann spilaði holurnar átján
á 64 höggum annan daginn. Haas
færðist fram fyrir 23 kylfinga og í
toppsætið fyrir þriðja hringinn.
■ BEN Crenshaw er þekktur sem
einn snjallasti púttari í heimi. Hann
hefur notast við sama pútterinn í
aldarfjórðung, Wilson-pútter sem
faðir hans gaf honum í afmælisgjöf
þegar hann var átján ára.
■ JACK Nicklaus sem á sex græna
jakka í fataskáp sínum fyrir sigur á
US Masters bætti enn einu metinu
í safnið þegar hann náði tvívegis að
leika fimmtu holuna, sem er par 4,
í tveimur höggum. Veittir eru kryst-
allsbikarar fyrir þá sem fá „örn“
mótinu og á Nicklaus nú 21 slíkan.
■ FIMMTA holan er tæplega 400
metrar og er fjórða erfiðasta hola
vallarins. Fyrsta keppnisdaginn, sló
hann með fimm járni 160 metra
ofan í holuna og hann lék sama leik-
inn á laugardeginum. Þá notaði hann
sjö járn í annað höggið sem einnig
endaði ofan í holunni. Aðspurður af
fréttamönnum hvort hann hefði séð
þegar boltinn fór í holuna svaraði
hann. „Ég sé ekki svo langt frá mér.“
Crenshaw í
þann græna
BANDARÍKJAMAÐURINN Ben
Crenshaw sigraði á fyrsta stór-
móti ársins í golfi, US Masters
keppninni sem fór fram á Aug-
usta National vellinum í Georg-
furfki í Bandaríkjunum. Crens-
haw lék hringina fjóra á 274
höggum, - fjórtán höggum undir
pari og einu höggi færra en
helsti keppinauturinn Davis
Love III. Sigurvegarinn á Mast-
ers hlýtur ætfð grænan jakka í
verðlaun, auk peninga, og er
þetta annar jakkinn sem Crens-
haw eignast á Augusta vellinum.
Hann sigraði einnig á mótinu
1984.
Mikilli spennu var létt af Crens-
haw eftir að hann setti niður
lokapúttið. Hann huldi andlit sitt,
hallaði sér fram og veitti tilfinning-
unum útrás. Vikan hafði verið erfið
og viðburðarrík, degi áður en mótið
hófst var hann kistuberi á jarðarför
lærimeistara síns í golfíþróttinni og
vinar, Harvey Penick. Hann lýsti því
yfír áður en hann hóf leik á mótinu
að hann mundi tileinka hann Penick
og svo virðist sem Crenshaw, sem
hefur verið sem skugginn af sjálfum
sér á fyrri mótum ársins, hafi fengið
innblástur. „Ég lék með hjartanu en
held að örlögin hafí ráðið sigri mínum
í dag,“ sagði þessi 43 kylfingur eftir
mótið.
Marglr í baráttunni
Keppnin hefur sjaldan verið eins
jöfn og hún var fyrir lokahringinn,
þremur höggum munaði ,á efstu
mönnum, Crenshaw og Brian Henn-
inger og þeim kylfingi sem var í tólfta
sæti og sá höggafjöldi hefur aldrei
þótt mikill fyrir lokahring á Augusta-
vellinum, fjölmargar vatnaholur og
viðsjárverðar flatir hafa gert mögu-
leika margra að engu. Svo fór að
kylfingarnir heltust úr lestinni einn
af öðrum og þegar komið var á síð-
ustu holurnar var ljóst að keppnin
mundi fyrst og fremst standa á milli
Crenshaws og Loves og Greg Nor-
mans en þeir síðamefndu voru ræst-
ir út saman í sjötta síðasta hópi.
Annar jakki í safnið
Reuter
CRENSHAW brast í grát eftir að hafa tryggt sér sfgur. A
efrl myndlnnl er hann ásamt Carl Jackson, kylfusveini sínum
tll margra ðra og á þelrri neðri fer hann í græna jakkann sem
fylgir sigrinum. Það er sigurvegari mótsins í fyrra, Spánverj-
inn Jose Marla Olazabal, sem aðstoðar Crenshaw.
var sex ára og Crenshaw tók síðustu
leiðsögnina hjá hinum aldna meistara
viku áður en hann lést. Þá var heilsu
hins níræða Penicks farið að hraka.
Penick var golfkennari hjá klúbbi í
Austin í Texas og kenndi jafnframt
tveimur af frægari kylfmgum Banda-
ríkjanna, Crenshaw og Tom Kite.
„Fyrir Ben [Crenshaw] er þetta
er eins og að missa föður og sinn
besta vin á sama tíma,“ sagði Davis
Love um fráfall Penicks. „Það er
ekki hægt að minnast hans á betri
hátt en að Ben skyldi vinna Masters
í sömu viku og hann lést,“ sagði
Love sem náði sínum langbesta ár-
angri á stórmóti.
Penick er þó þekktastur fyrir hug-
leiðingar sínar um golf sem hann
færði inn í rauða bók. Bókin var síð-
an gefin út undir sama heiti og seld-
ist í milljónum eintaka og er enn
vinsælasta bók sem komið hefur út
um íþróttir.