Morgunblaðið - 09.05.1995, Side 5

Morgunblaðið - 09.05.1995, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1995 B 5 IÞROTTIR Morgunblaðið / Rúnar Þór STAFFAN Olsson og Magnus Wislander máttu hrósa happl með að fagna sigrl á Akureyri. Bengt Johansson, þjálfari Svía, hrósaði happi Vorum heppnir að sigra ^engt Johansson, þjálfari Evr- ópumeistara Svía, var fyrst og fremst ánægður með stigin gegn Hvíta-Rússlandi en sagði að lið Svía gæti og yrði að gera betur. „Ég er ánægður með stigin en ekki leik okkar í seinni hálfleik. Þá lékum við ekki vel. Hins vegar stóð Erik Hajas sig með prýði og ég var heppinn að hafa Tomas Svensson & MATS OLSSON MEÐ GLÆSILEGT MET, LEIKUR I FIMMTA SINN I HM Mats Olsson. Fæddur 12. janúar 1960 í Maimö. Hóf að leika handknattleik 1970 með Dalhelm, þálOára. Gekk til liðs við Lugi 1980, 20 ára. Gerðist síðan leik- maður með Tekaá Spáni 1988. Hefur leikið 20 leiki í HM og bætir met Gunnars Kámpendahl, 21 leik, í HM á íslandi. Olsson hefur leikið á átta stórmótum, HM 1982,1986,1990, 1993 og 1995, Ólympíuleikunum 1984,1988 og 1992. Svíar sem leikið hafa í flestum HM Leikmaður Fjöldi HM Fj. leikja Mats Olsson 5 1982,1986,1990,1993,1995 20 Kjell Jönsson 4 1954,1958,1961,1964 20 Gunnar Kámpendahl * 4 1958,1961,1964,1967 21 Donald Lindbrom 4 1958,1961,1964,1967 16 Sigmundur Ó. Steinarsson tók saman/ Morgunblaðið GÓI til taks þegar Mats Olsson brást í markinu. Tomas varði vel í lokin en við vorum heppnir að sigra. Við getum leikið betur og það er gott að vita til þess að við vorum ekki að sýna okkar besta leik.“ Bengt sagði að riðillinn væri erf- iður en sérstaklega fyrir Kúveit og Brasilíu. „Hvíta-Rússland er með eitt besta liðið í riðlinum en á þess- ari stundu er erfitt að segja til með hvernig fjögur efstu liðin raðast.“ Of mörg mistök Spartak Mironovich, þjálfari Hvíta-Rússlands, sagði að lykil- menn hjá sér væru með þýskum og spænskum liðum og vegna þátt- töku þeirra í Evrópumótum hefði hann ekki náð að hafa liðið saman fyrr en nú. „Við höfum aðeins verið saman í viku og það er í fyrsta sinn í sög- unni sem sterkasti hópurinn er sam- an. Þetta er líka í fyrsta sinn í sög- unni sem þjóð okkar tekur þátt í Heimsmeistarakeppninni og við er- um ánægðr með það sem og höll- ina. En við lékum ekki nógu vel, vorum ekki nógu samhentir. í eðli sínu vitum við hvernig á að leika en ég og leikmennirnir gerðum of mörg mistök. Það er hlutur sem við þurfum að bæta i næstu leikjum.“ Alfreð Gíslason fylgdist með leikj- um D-riðils á Akureyri í gær og fannst byrjun liðanna dæmigerð. Hann var á því að Svíar hefðu sýnt bestan leik og síðan Hvíta-Rússland en varð fyrir vonbrigðum með Spán- veija. . „Spænsku leikmennirnir hafa sagt mér að þeim finnist þreyta í mönnum eftir Evrópuleiki félagsliða og þeir segja að þar sem svo stutt sé síðan þeir luku keppni sé undir- búningur liðsins ekki nógu góður,“ sagði Alfreð við Morgunblaðið. „Þá var Dujshebaev meiddur á ökkla og línumaðurinn Luis Garcia var ekki með vegna veikinda en þess vegna varð útispilari að fara á línuna. Engu að síður náði liðið góðri forystu í byrjun en því tókst ekki að fylgja henni eftir og allt fór í baklás. Hins vegar var miklu meiri stemmning hjá Kúveit, leikmennirnir voru dug- legri við að hirða fráköstin og svo fengu þeir flesta vafadóma." Alfreð sagði að Spánveijarnir gætu miklu meira en þeir sýndu. „Þeir eiga eftir að verða mun betri og það er líka ljóst að þeir verða að bæta sig verulega ætli þeir sér eitthvað mikið.“ Línumaðurinn Barbashinski fór illa að ráði sínu hjá Hvít-Rússum Kúveitar stríddu Spánverjum Stefán Þór Sæmundsson skrifar frá Akureyri Fyrsti leikurinn í D-riðlinum á Akureyri var viðureign Spán- veija og Kúveita. Óhætt er að segja að leikurinn hafi komið áhorfendum í opna skjöldu, svo skrautlegur var hann. Allir bjuggust við öruggum sigri Spánveija en þeir máttu prísa sig sæla með 24:21 sigur eftir að staðan var jöfn þegar fjórar mínútur voru til leiksloka. Mikil taugaspenna og mistök ein- kenndu leikinn framan af. Spánveij- ar skoruðu fyrsta markið eftir fjórar mínútur og komust i 3:0. Fyrsta mark Kúveita kom eftir 11,16 mín. og það var aðeins léleg frammistaða Spánveija sem bjargaði þeim frá afhroði í fyrri hálfleik. Spánveijar komust þó í 5:1 og 6:2 en áhorfend- ur fýlgdust agndofa með Kúveitum skipta um gír og jafna. Staðan í leik- hléi var 9:9 eftir mikil mistök á báða bóga og lélega sóknarnýdingu. Hafi það komið einhveijum á óvart að Kúveitar skyldu sýna mót- spymu í fyrri hálfleik þá bættu þeir enn um betur eftir hlé. Þeir náðu þriggja marka forskoti, 13:10, og hrifu áhorfendur með sér. Flestir bjuggust þó við að Spánveijar færu að taka við sér og þeir náðu góðum kafla, skoruðu sex mörk í röð á 5 mínútum og breyttu stöðunni úr 11:14 í 17:14. Á þessum kafla fór markvörður þeirra Fort Mauri að veija eins og berserkur og Spánver- jarnir röðuðu inn mörkum úr hrað- aupphlaupum. Kúveitar gáfust ekki upp. Dyggi- lega studdir af áhorfendum héldu þeir í við Spánverja og jöfnuðu 21:21 þegar rúmar 4 mín. vom eftir. Þeir vom síðan of bráðir í lokin og Spán- veijar knúðu fram sigur. Þegar á heildina er litið reyndist leikurinn vera hin besta skemmtun þótt ekki hafi gæðunum verið fýrir að fara. Áhorfendur vom vel með á nótunum og tengdust Kúveitum vin- áttuböndum. Þeim var næstum búið að takast hið ómögulega, en Spán- veijar verða að gera betur ef þeir ætla sér að gera rósir gegn Svíum og Hvít-Rússum. Stórskyttan Ale- many og hinn lipri Munaiz héldu þeim á floti og skomðu 6 mörk hvor en hetjan Dujshebaev sást varla. Salah Álmarzouq gerði 5 mörk fyrir Kúveit en liðið átti góða spretti og gaman að sjá sérkennileg tilþrif sumra leikmanna. Þeir em ekki bún- ir að segja sitt síðasta. „Gerðum okk- ar besta<( HINN kunni þjálfari Kúveita, Rússinn Anatólíj Evtútsjenkó, sagði á fréttamannafundi eftir leikinn að þetta hefði verið athyglisverður leikur. „Lið okkar er reynslulaust og ekki hægt að bera okkur saman við Spánveija sem hafa mikla reynslu í heimsmeistara- keppni. Þeir eru með gott lið en léku þó ekki vel á móti okk- ur. Við gerðum líka mikið af mistökum," sagði Evtútsjenkó. Fyrirliði Kúveita bætti við þessa yfiriýsingu afar kunnug- legu slagorði: „Við gerðum okkar besta.“ José Diaz, þjálfari Spán- veija, þurfti að réttlæta slaka frammistöðu sinna manna. „Þetta var jú fyrsti leikurinn og mikil taugaspenna í liðinu. Við erum fegnir að hafa unnið og náð í 2 stig. Kúveitum hefur farið mikið fram í handknatt- leik,“ sagði spænski þjálfarinn. f • I tyrirJL Þii kaupir eina pizzu og færð aðra ókeypis Gildir i heimsendingu og þegar pizza er sótt. Alfreð Gíslason spáir í spilin á Akureyri Spánveijar verða aðbætasig I veitingasal a llotel l.sju og í Mjodd: Ahot á IVpsi og l -ils öl a goöti veröi. Gildir ekki meö öörum tilboöum. V' Æfr 4, - A? og sagði Alfreð að hann hefði bjarg- að Svíum. „Hann hélt Svíum á floti en þetta var besti leikurinn. Svíar voru ekki sannfærandi í seinni hálf- leik en héldu fengnum hlut. Ég var hissa hvað Khalepo spilaði lítið með Hvít-Rússum en þeir eiga eftir að vera erfiðir." Meistaratilboð á Tulfíp 3JJK ARA ABVRGÐ l Tulfíp tölvumlH Tulip Vision Line I 486 SX2/66 VJ 270MBdnl NÝHERJI B L.IM rlD UlSKUr SKAFTAHLÍÐ 24 - SlMI 569 7700 I Alltaf skrefi á undan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.