Morgunblaðið - 09.05.1995, Blaðsíða 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
HM I HANDKNATTLEIK
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
Glæsileg
setningar-
athöfn í
Höllinni
ÞAÐ var vor í lofti á sunnudaginn
þegar fjórtánda heimsmeistara-
keppnin í handknattleik var form-
lega sett í Laugardalshöll. Athöfn-
in innandyra var í
góðu samræmi við
veðrið úti, í einu
orði sagt glæsileg.
Hún var stutt og
hnitmiðuð og þeir 5.000 áhorfend-
ur sem fylltu Laugardalshöllina
skemmtu sér vel.
Athöfnin hófst með því að um
400 krakkar hlupu í salinn klædd-
ir í hvíta boli og rauðar, grænar,
bláar og svartar stuttbuxur.
Krakkarnir hlupu í hring og fylltu
nær gólf Hallarinnar. Síðan komu
krakkar með spjöld með nöfnum
keppnisþjóðanna og skömmu síðar
hlupu 24 krakkar inn með þjóð-
f ána landanna.
200 manna blandaður kór
söngvara úr Karlakór Reykjavík-
ur, Kvennakór Reykjavíkur og
kammerkór Langholtskirkju,
söng eitt lag á meðan meðlimir
hans gengu um gólf Hallarinnar
og ungmenni héldu á sex upplýst-
um boltum, en Ijósin í Höllinni
höfðu verið deyfð. Tilkomumikil
sjón. Þvínæst sýndu 11 fimleika-
stúlkur dans og fimleika.
Draumur rætist
Geir H. Haarde, formaður
framkvæmdanefndar keppninn-
ar, hélt stutta ræðu þar sem hann
ságði meðal annars að draumur
fjölmargra íslendinga væri að
rætast. Hann þakkaði öllum sem
lagt hafa hönd á plóginn til að
gera þessa keppni mögulega og
afhenti síðan Olafi B. Schram,
formanni HSÍ, skúlptur sem er
tákn keppninnar. Ólafur hélt
stutta tölu þar sem hann sagði
meðai annars að þetta væri
stærsta mót sem haldið hefði ver-
ið hér á landi og einnig fjölmenn-
asta heimsmeistarakeppni í hand-
knattleik sem nokkru sinni hefði
farið fram og vildi hann þakka
öllum sem gert hefðu þetta mögu-
legt.
Morgunblaðið/RAX
BÖRN komu mikið við sögu á opnunarhátíðinni. Hér má sjá hluta þeirra 400 barna sem hlupu um Hölllna og gerðu alls konar
æfIngar. Krakkarnlr stoðu slg mjðg vel og vlrtust hafa œft atrlðl sitt vel því varla var hægt að sjá nokkurn hnökra á atrlði þeirra.
Hann afhenti síðan Erwin Lanc,
forseta alþjóða handknattleiks-
sambandsins, tákn keppninnar.
Lanc lofaði allan undirbúninginn
og breytingarnar á Laugardals-
höllinni og þakkaði íslenskum
skattgreiðendum fyrir. Áhorfend-
ur kunnu vel að meta þær þakkir
og klöppuðu vel og lengi fyrir
Austurríkismanninum. Hann las
bréf frá Samaranch, forseta Al-
þjóða ólympíunefndarinnar þar
sem hann óskaði handknattleiks-
mönnum góðs gengis í keppninni
og að því loknu lýsti hann því
yfir að keppnin væri hafin.
Lokaatriðið var einstaklega
glæsilegt því þá sundu Egill Olafs-
son og Sigrún Hjálmtýsdóttir lag
keppninnar, Bræðralagið sem
ERWIN Lanc, formaður al- Gunnar Þórðarson samdi og Dav-
þjóða handknattleikssam- íð Oddsson, forsætisráðherra,
bandsins, tekur vlð táknl gerði textann við. Kórinn aðstoð-
HM9S frá Ólafi B. Schram, aði Egil og Diddú við sönginn og
formanni HSÍ. Lanc setti svo vakti flutningur þeirra mikla
keppnina með stuttri ræðu. ánægju.
FIMLEIKASTULKUR af höfuðborgarsvæðlnu sýndu dans og
fimleika á opnunarhátíðinnl við fjöruga tónllst og klapp frá
áhorfendum. Hluti stúlknanna var nýkomlnn heim af Norður-
landamótinu f Trompi í Danmörku, þar sem llð Gerplu lenti
í fimmta sæti og Stjörnustúlkur í áttunda sætl. Þær urðu
að hraða sér heim til að ná á opnunarhátíðina.
INNRITUNARKORT
í Litla íþróttaskólann Laugarvatni
Stórkostlegt tækifæri fyrir 9 til 13 ára stelpur og stráka
fyrir aðeins 16.100.- krónur
Kostnadur er 16100,-. Vinir scm skrá sig saman fá 1000- kr.
afslátt. Systkini fá 10%afslátt (lóiokr. hvcrt).
Scndu skráningarkortið til:
Litli íþróttaskólinn
iþróttamíöstöö íslands
840 Laugarvatni ...eöa faxar í 98-61255
Ég heiti:.....................................................Námskeið:
kt:..........................-............... 1.) 18.-24. júní ( )
Heimili:.................................................... 2.) 25.-01. júlí( )
Póstnúmer:............................................ 3.) 02.-08. júlí ( )
Nafn ábyrgðarmanns (grciðanda/forcldris): 4.) 09.-15. júlí ( )
Símanúmer:...........................
Vinnusími:...........................
+**
Vinur/systkini heilir:.....................................................
kt:.......'.....................-.....................
BRÆÐRALAGIÐ hljómaöi einstaklega glæsilega í Laugardalshöllinnl á sunnudaglnn. Hér hefja
Sigrún Hjálmtýsdóttir og Eglll Ólafsson upp raust sína og njóta til þess aðstoðar 200 manna
blandaðs kórs. Það var ekkl laust við að menn fengju gæsahúð enda flutningurlnn frábær.