Morgunblaðið - 09.05.1995, Side 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
-1
j
HM I HANDKNATTLEIK
Glæsileg
setningar-
athöfn í
Höllinni
ÞAÐ var vor I lofti á sunnudaginn
þegar fjórtánda heimsmeistara-
keppnin í handknattleik var form-
lega sett í Laugardalshöll. Athöfn-
■■■■■I in innandyra var í
Skúli Unnar góðu samræmi við
Sveinsson veðrið úti, í einu
skrifar orði sagt glæsileg.
Hún var stutt og
hnitmiðuð og þeir 5.000 áhorfend-
ur sem fylltu Laugardalshöllina
skemmtu sér vel.
Athöfnin hófst með því að um
400 krakkar hlupu í salinn klædd-
ir í hvíta boli og rauðar, grænar,
bláar og svartar stuttbuxur.
Krakkamir hlupu í hring og fylltu
nær gólf Hallarinnar. Síðan komu
krakkar með spjöld með nöfnum
keppnisþjóðanna og skömmu síðar
hlupu 24 krakkar inn með þjóð-
fána landanna.
200 manna blandaður kór
söngvara úr Karlakór Reykjavík-
ur, Kvennakór Reykjavíkur og
kammerkór Langholtskirkju,
söng eitt lag á meðan meðlimir
hans gengu um gólf Hallarinnar
og ungmenni héldu á sex upplýst-
um boltum, en ljósin í Höllinni
höfðu verið deyfð. Tilkomumikil
sjón. Þvínæst sýndu 11 fimleika-
stúlkur dans og fimleika.
Draumur rætist
Geir H. Haarde, formaður
framkvæmdanefndar keppninn-
ar, hélt stutta ræðu þar sem hann
ságði meðal annars að draumur
fjölmargra íslendinga væri að
rætast. Hann þakkaði öllum sem
lagt hafa hönd á plóginn til að
gera þessa keppni mögulega og
afhenti síðan OIafi B. Schram,
formanni HSI, skújptúr sem er
tákn keppninnar. Ólafur hélt
stutta tölu þar sem hann sagði
meðal annars að þetta væri
stærsta mót sem haldið hefði ver-
ið hér á landi og einnig fjölmenn-
asta heimsmeistarakeppni í hand-
knattleik sem nokkru sinni hefði
farið fram og vildi hann þakka
öllum sem gert hefðu þetta mögu-
legt.
Morgunblaðið/RAX
BORN komu mikið vió sögu á opnunarhátíðinni. Hér má sjá hluta þeirra 400 barna sem hlupu um Höllina og geróu alls konar
æflngar. Krakkarnir stóðu slg mjög vel og virtust hafa æft atriði sltt vel því varla var hægt að sjá nokkurn hnökra á atriði þeirra.
FIMLEIKASTÚLKUR af höfuðborgarsvæðinu sýndu dans og
fimleika á opnunarhátíðlnni við fjöruga tónlist og klapp frá
áhorfendum. Hluti stúlknanna var nýkominn heim af Norður-
landamótinu í Trompi í Danmörku, þar sem llð Gerplu lentl
í fimmta sæti og Stjörnustúlkur í áttunda sæti. Þær urðu
að hraða sér heim til að ná á opnunarhátíðina.
ERWIN Lanc, formaður al-
þjóða handknattleikssam-
bandsins, tekur við tákni
HM95 frá Ólafi B. Schram,
formanni HSÍ. Lanc setti svo
keppnina með stuttri ræðu.
Hann afhenti síðan Erwin Lanc,
forseta alþjóða handknattleiks-
sambandsins, tákn keppninnar.
Lanc lofaði allan undirbúninginn
og breytingarnar á Laugardals-
höllinni og þakkaði íslenskum
skattgreiðendum fyrir. Áhorfend-
ur kunnu vel að meta þær þakkir
og klöppuðu vel og lengi fyrir
Austurríkismanninum. Hann las
bréf frá Samaranch, forseta Al-
þjóða ólympíunefndarinnar þar
sem hann óskaði handknattleiks-
mönnum góðs gengis í keppninni
og að því loknu lýsti hann því
yfir að keppnin væri hafin.
Lokaatriðið var einstaklega
glæsilegt því þá sundu Egill Olafs-
son og Sigrún Hjálmtýsdóttir lag
keppninnar, Bræðralagið sem
Gunnar Þórðarson samdi og Dav-
íð Oddsson, forsætisráðherra,
gerði textann við. Kórinn aðstoð-
aði Egil og Diddú við sönginn og
vakti flutningur þeirra mikla
ánægju.
INNRITUNARKORT
í Litla íþróttaskólann Laugarvatni
Stórkostlegt tækifæri fyrir 9 til 13 ára stelpur og stráka
fyrir aðeins 16.100,- krónur
Kostnaður er 16100,-. Vinir scm skrá sig saman fá 1000 - kr
afslátt. Systkini fá 10% afslátl (1610 kr. livcrt).
Scndu skráningarkortið til:
Lítli íþróttaskóiinn
íþróttamiöstöö íslands
840 Laugarvatni ...eða faxar i 98-61255
i
Ég hciti.................................Námskeið:
kt:................-......... 1.) 18.-24. júní ( )
Hcimili:................................ 2.) 25.-01. júlí ( )
Póstnúmer:............................ 3.) 02.-08. júlí ( )
Nafn ábyrgðarmanns (grciðanda/foreldris): 4.) 09.-15. júlí ( )
Símanúmer:..........
Vinnusími:.........
***
Vinur/systkini hcitir:
kt:.................
BRÆÐRALAGIÐ hljómaðl einstaklega glæsilega í Laugardalshöllinni á sunnudaglnn. Hér hefja
Sigrún Hjálmtýsdóttir og Eglll Ólafsson upp raust sína og njóta til þess aðstoðar 200 manna
blandaðs kórs. Það var ekki laust við að menn fengju gæsahúð enda flutningurlnn frábær.
I