Morgunblaðið - 09.05.1995, Page 13

Morgunblaðið - 09.05.1995, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1995 B 13 ÍÞRÓTTIR Kemur vel undan vetri NÖKKVI frá Vestra Geldíngaholti kemur vel undan vetri og hlaut góðar einkunnir, knapf er Eiríkur Guðmundsson. Klárhestarnir góðir GENGI klárhestanna var býsna gott. Hér situr Elías Þórhalls- son Gals frá Ytri-Skógum sem hlaut 8,5 fyrir tölt og brokk. Bikarinn í höndum eiganda Sprota frá Hæli Aðalbjargar Aðalsteinsdóttur, knapi er Eiríkur Guðmundsson. Ekkert stjömuflug á stóðhestastöðinni Hestadagar í reiðhöllinni FÁNAREIÐINNI í upphafi var sleppt en þess í stað riðu skart- klædd ungmenni á vaðið með vel útfærðri munsturreið. Stóðhestarnir í aðalhlutverkum ENGIR stórskörungar skutu upp kollinum á sýnlngu Stóðhesta- stöðvarinnar í Gunnarsholti á laugardag eins og gjarnan hefur gerst síðustu árin. Hæst dæmdi hesturinn í fjögurra vetra flokki í fyrra, Hjörvar frá Arnarstöð- um, varð nú að gera sér að góðu annað sætið í fimm vetra flokki en Hrynjandi frá Hrepp- hólum var einhverjum aukastöf- um hærri að þessu sinni og hreppti fyrsta sætið. Báðir eru þessir hestar skeiðlaus- ir og- verður ekki betur séð en vegur þeirra, þ.e. klárhestanna í ■■■■■■■■ röðum stóðhesta, Valdimar fari áfram vaxandi. Kristinsson Er það vel, í þeirri skrifar viðleitni að bæta töltið í hrossastofn- inum og eyða skeiðtöltinu sem er og hefur verið landlægt alltof lengi í stofninum. í fjögra vetra flokki var klárhesturinn Sproti frá Hæli efstur með býsna góðar tölur ef undan er skiiinn réttleiki 7,5 og hófar 6,5 sem er reyndar dapurlegt á svo jafngóð- um hesti að öðru leiti. Hann fékk m.a. 9 fyrir háls og herðar á sýning- unni, hækkaði í 9 fyrir brokk. Lík- legt verður að teljast að tölteinkunn- in 8,5, eigi eftir að hækka að ári þótt dálítið hafi hann verið klárgeng- ur á sýningunni en betri að sögn í dómunum á miðvikudag. Sproti er undan Hrafni 802 frá Holtsmúla og má sýnt vera að þessi gamli undra- hestur haldi áfram að gefa af sér úrvals stóðhesta fram í andlátið hve- nær sem það nú ber að garði en Hrafn er nú 27 vetra gamall. Hrynjandi frá Hrepphólum hækk- .aði nokkuð í einkunn frá því í fyrra og stelur topp sætinu frá Hjörvari frá Arnarstöðum sem var lækkaður um sjö kommur í byggingu. Báðir hækkuðu þe'ssir keppinautar um hálfan fyrir brokk í laugardagssýn- ingunni og eru því jafnir með 8,09. Ætla má að þessir tveir hestar séu verðmætir fyrir ræktunarstarfið næstu árin. Segja má að af stöðvar- hestum hafi þetta verið einu hestarn- ir sem eitthvað kvað að en aðeins átta hestar þaðan hlutu dóm að þessu sinni. Einnig vaknar óneitan- lega sú spurning hvort úrvals stóð- hestsefni séu hætt að skila sér til uppeldis og tamningar á stöðina. Heldur náðu aðkomuhestarnir að teygja sig lengra upp kvarðann og stóð þeirra efstur Nasi frá Hrepphól- um, klárhestur með örlitlu skeiði ef marka má einkunn en hann sýndi ekkert skeið á laugardagssýning- unni. Góður dagur hjá Hrepphóla- bóndanum. Af fimm vetra hestum bar Nökkvi frá Vestra Geldingaholti nokkuð af þótt ekki munaði verulega í einkunnum. Nökkvi er afar fasmik- ill hestur, prúður á fax og tagl og verklegur í allri framgöngu en sjálf- sagt stórbrotinn í lund enda dálítill Hornfirðingur í honum. Af fjögra vetra aðkomuhestum má geta tveggja. klárhesta þeirra Jarls frá Búðardal og Galsa frá Ytri-Skógum, báðir með 8,5 fyrir tölt og brokk en tæpir í byggingareinkunn. Þá var Snældusonurinn Byrnjar frá Árgerði nokkuð frískur á skeiðinu en ein- kunnir fyrir fætur afar slakar og ekki bætir úr að ennistoppurinn er býsna rýr. Ráðunautarnir Þorkell Bjarnason og Kristinn Hugason lýstu dómum á líflegan hátt en hinsvegar tók sýn- ingin óþarflega langan tíma og mætti án efa stytta tímann. Aðeins tveir knapar sýndu hesta stöðvarinn- ar og mynduðust oft eyður þegar þeir sóttu nýja hesta. Væri vafa- laust til bóta ef þeim yrðu færðir hestarnir tilbúnir að vellinum eða þá að aðkomuhestarnir kæmu á milli. Einnig mættu vera tveir til fjórir hestar á brautinni í senn og herða má kröfurnar um gæði hross- anna sem fram koma. Á laugardag- inn mátti sjá hest í sýningu sem ekkert erindi átti á samkomuna. Ráðunautarnir tilkynntu þegar hestar hækkuðu sig í einkunn sem gerir sýninguna skemmtilegri og áhorfend- ur verða virkari í sínu persónulega mati. Tamningamenn á stöðinni í vetur voru þeir Eiríkur Guðmundsson og honum til aðstoðar Elías Þórhall- son og sýndu þeir stöðvarfolana. HESTAUNNENDUR fjölmenntu á Hestadaga Fáks og sunnlend- inga um helgina í reiðhöliinni í Víðidal um helgina enda lítið um reiðhallarsýningar í vetur. Boðið var upp á nokkuð hefðbundin atr- iði, gæðinga kynbótahross og ýmislegt léttmeti með. Á sunnu- dag var fyrri sýningin sérstak- lega sniðin fyrir yngri kynsióðina. Alls var boðið upp á fjórar sýn- ingar og var vel mætt á þær allar og uppselt á laugardagskvöidið. Stóðhestarnir, með þá Galsa frá Sauðárkróki og Svart frá Unalæk í broddi fylkingar, vöktu athygli. Þá vann gæðingshryssan Krafla hug og hjörtu áhorfenda með góðri endurkomu en hún er orðin áiján vetra gömul og hefur átt 10 foiöld en kom eigi að síður vel fyrir. Voru sýningargestir al- mennt ánægðir með þessa iang- þráðu hestadaga. HAUKUR frá Hrafnagili og eigandinn Gísli á Hofstöðum mættu í afkvæmasýningu Gáska frá Hofstöðum og slógu enn og aftur í gegn. GALSI frá Sauðárkrókl var með eftlrminnilega sýningu um helgína ásamt Svarti frá Unalæk, knapi er Baldvin Ari Guðlaugsson. KORFUKNATTLEIKUR / NBA Miller hetja en Jordan klúðraöi REGGIE Miller var hetja helgar- innar í NBA-deildinni og var mað- urinn á bak við sigur Indiana á New York. „Töframaðurinn“ Mill- er gerði átta stig á síðustu 18 sekúndunum og stal sigrinum frá New York, 107:105. Þetta var fyrsti leikur liðannq í undanúrslit- um og lokaspretturinn talinn ótrú- legasti í 45 ára sögu NBA. Leikurinn var harður með 57 villur, 6 tæknivítum og tveir leik- menn reknir útaf. Flestir töldu sigur Indiana í höfn þegar Greg Anthony kom New York í 105:99 þegar 18,7 sekúndur voru eftir en Miller var ekki búinn að segja sitt síðasta orð. Hann byijaði með þriggja stiga körfu, stal síðan boltanum og jafnaði með annarri þriggja stiga körfu. Síðan var brotið á Miller og hann skoraði úr vítaskotunum. „Þeir klúðruðu leiknum og það á eftir að reynast þeim dýrkeypt því við tökum þá í fjórum leikjum,“ sagði Miller. Hollendingurinn Rik Smits var stigahæstur Indiana með 34 stig og Miller gerði 31 en hjá New York gerði John Starks 21 stig og Oakley 17. Stjörnur Chicago Bulls urðu að jáfa sig sigraða gegn Orlando Magics í fyrsta leik liðanna í und- anúrslitum á sunnudaginn, 94:91, og það var sjálfur Michael Jordan sem klúðraði möguleika Chicago. Þegar 18 sekúndur voru eftir og Chicago einu stigi yfir, var Jordan að reka boltann upp völlinn þegar Nick Anderson komst á bak við hann og stal boltanum. í næstu sókn misfórst síðan sending Jor- dans inná Scottie Pippen. En það var ekki bara Jordan sem átti slæ- man dag því Pippen nýtti aðeins tvö af 11 skotum sínum og lauk leiknum með 7 stig. „Svona gjafir frá Jordan eru sjaldgæfar. Við eigum að leika aftur við þá á miðvikudaginn og þá verðum við að gera enn betur ef við eigum að sigra,“ sagði Brian Hill, þjálf- ari Orlando, O’Neal var með 26 stig fyrir Orlando, þaraf 12 af 16 úr vítum, og Nick Ánderson gerði 20. Jordan endaði með 19 stig og Tony Kukoc 17. I vesturdeildinni mátti Los Angeles Lakers þola 110:94 tap gegn San Antonio Spurs á heima- velli Spurs í Texas, en það var fyrsti leikur liðanna í undanúrslit- um. „Eg hugsa að þeir hafi verið nokkuð þreyttir," sagði David Robinson sem fór á kostum með 33 stig og 11 fráköst. Avery John- son gerði 19 stig og átti 12 stoð- sendingar. Hjá Lakers var Elden Campbell stigahæstur með 29 stig og 10 fráköst en Vlade Divac með 25 stig og 11 fráköst. Boston Celtic kvaddi sinn gamla heimavöll aðfararnótt laug- ardagsins og um leið úrslitakeppni NBA þegar Orlando Magics vann 95:92. Þetta var síðasti leikur í hinum gamla heimavelli Boston Garden sem verður nú rifinn nið- ur. Clyde Drexler gerði 41 stig og Hakeem Olajuwon var með 40 stig fyrir Orlando. Shaquile O’Ne- al koma niður 25 stigum og hirða 13 fráköst. Houston Rockets náðu að snúa við blaðinu eftir að hafa verið 2:1 undir og komast í aðra umferð í með því að sigra Utah Jazz í tveimur síðustu leikjunum. Fimmti leikurinn endaði með 95:91 sigri Houston en þegar fimm mínútur voru þeir 7 stigum undir. Clyde Drexler gerði 31 stig fyrir Houston sem eiga fyrsta leik við Phoenix í undanúrslitum. Karl Malone gerði 35 stig fyrir Utah.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.