Morgunblaðið - 09.05.1995, Síða 16
- " - YgET/ . v ligiimii f Z':P- * BBj
mám
88 M ; -
' « - - i'' *t '■ --, -- '. ' ,1: - //.s4 í, '
HM I HANDKNATTLEIK
Þorbergur bjartsýnn
ANNAR leikur íslendinga í
heimsmeistarakeppninni er
á dagskrá í kvöld. Þeir mæta Tún-
ismönnum í Laugardalshöll kl. 20,
og Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari, er bjartsýnn fyrir
viðureignina.
„Það er alveg klárt að þetta
verður ekki létt. Þeir spila vömina
mjög framarlega og við höfum oft
Ient í vandræðum gegn liðum sem
spila þannig varnarleik," sagði
Þorbergur í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Túnis tapaði fyrsta leik sínum,
á-sunnudag, gegn Sviss.
„Við erum búnir að fara mjög
vel í gegnum allt hjá Túnismönn-
um, og það er styrkur okkar nú
að við vitum mikið um þá. Bæði
var að við fengum góðar upplýs-
ingar um þá fyrir mótið, og svo
sáum við þá á sunnudaginn. Þetta
byggist mikið á einum einstaklingi
— skyttunni Mohamed Madi — og
hornin virðast ekki sterk hjá
þeim,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
„Við munum því reyna að þétta
vörnina hjá okkur verulega inn á
miðjuna, og pössum að láta þá
ekki „læsa“ okkur í sóknarleiknum
— að menn reyni ekki mikið uppá
eigin spýtur, heldur láti boltann
ganga hratt og vel. Og við verðum
að vera mjög hreyfanlegir. Það
er mikil stemmning fyrir þessum
leik. Þetta er einn af þeim leikjum
sem við verðum að vinna — og
ég er bjartsýnn á það takist," sagði
Þorbergur. Hann sagði ekkert
hafa komið sér á óvart í leik Túnis-
manna, nema hvað þeir-virtust lík-
amlega betur á sig komnir en
hann átti von á.
Óvæntustu úrslitin á HM til þessaerAlsírbúarsigruðu Dani
„Öðruvísi" handboKi,
en árangursríkur
Valur B.
Jónatansson
skrifar
ALSÍR braut blað í handbolta-
sögunni í gærkvöldi er liðið
vann Danmörku 25:24 og um
leið fyrsta sigur sinn í úrslita-
keppni heimsmeistarakeppn-
innar. Fögnuður Alsírmanna
var mikill í leikslok enda ástæða
til. Danir voru að sama skapi
vonsviknir og sögðu úrslitin
mikil vonbrigði. Staðan í hálf-
leik var 16:9 fyrir Alsír.
Ovæntustu úrslitin á heimsmeist-
aramótinu til þessa var sigur
Alsír í gær. Fyrirfram var búist við
að Danir ættu auð-
veldan leik fyrir
höndum en annað
kom á daginn. Þeir
voru hreiniega
slegnir út af laginu í fyrri hálfleik
og gengu inn í leikhléið sjö mörkum
undir. Alsírmenn léku varnarleikinn
maður á mann út um allan völl og
Danir áttu ekkert svar.
Danir komu ákveðnir til leiks í
síðari hálfieik og léku þá varnarleik
sinn aðeins framar og komu grimm-
ari út á móti Alsírmönnum. Þegar
sjö mínútur voru liðnar af síðari
hálfleik voru Danir búnir að saxa
forskotið niður í eitt mark, 16:17.
Alsír var ekki á því að gefast upp
og með ótrúlegri leikgleði og hraða
náði liðið að halda frumkvæðinu sem
eftir var og sigra verðskuldað.
Ulf Schefvert, þjálfari Dana, var
svekktur í leikslok. „Auðvitað eru
úrslitin mikil vonbrigði fyrir mig.
Nú verðum við að vinna hina ieikina
í riðiinum. Við spiluðum ekki hand-
knattleik í fyrri hálfleik en í síðari
háifleik gekk þetta betur og það
vantaði aðeins herslumuninn í lokin.
Við renndum alveg blint í sjóinn
varðandi alsírska liðið því við vissum
ekkert um það. Ég reyndi að afla
mér upplýsinga um það fyrir keppn-
ina en var sagt að þeir hefðu ekk-
ert verið að spilað,“ sagði Schefvert.
„Ég er í sjöunda himni með fyrsta
sigur okkar í heimsmeistarakeppni
frá upphafi," sagði Mohamed Mac-
hou, þjálfari Alsír. „Lið okkar leikur
öðruvísi handbolta en þið eigið að
venjast, en hann er árangursríkur.
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
DANIR áttu erfitt uppdráttar gegn barðttuglöðum Alsírmönnum. Hér reynlr Claus Jacob Jens-
en skot en elns og svo oft áður var Bouanani mættur tll að hlndra skot hans. Sigur Alsírs var
sá fyrsti sem þeir fagna í heimsmeistarakeppninni frá upphafi.
Við erum ekki með eins stóra og
sterka leikmenn og flestar hinna
þjóðanna og því verðum við að nota
þessa aðferð í vörninni." Um undir-
búning liðsins fyrir keppnina sagði
hann að liðið hefði tekið þátt í tveim-
ur mótum, lék þrjá leiki í Frakk-
landi og þijá í Ungveijalandi.
Úrslit /B15
KRINGLUKAST
Vésteinn: 61,96 m
VÉSTEINN Hafsteinsson varð sigurvegari á móti I Alabama í
Bandaríkjunum á sunnudaginn, er hann kastaði kringlunni 61,96
m. Vésteinn kastaði kringlunni best 64,91 m í fyrra.
HANDBOLTI
Guðmundur
ráðinn þjálf-
ari Framara
GUÐMIUNDUR Guðmundsson,
fyrrum þjálfari Aftureldingar í
Mosfellsbæ, hefur gert tveggja
ára samning við Fram, sem leik-
ur í 2. deild. „Við erum mjög
ánægðir að vera komnir með
Guðmund í herbúðir okkar,“
sagði Guðmundur B. Ólafsson,
formaður handknattleiksdeildar
Fram. „Það er engin launung að
við stefnum upp í fyrstu deild.
Guðmundur er búinn að sanna
sig sem þjálfari og vonandi ger-
ir hann góða hluti hjá okkur,“
sagði formaðurinn.
Jón Þórðarson, vinstrihandar
hornamaður úr Stjörnunni, hef-
ur skipt yfir í Fram. Jón hefur
verið í 21s árs landsliðinu.
KNATTSPYRNA
Flowers
hetja
Blackburn
TIM Flowers, markvörður, var
hetja Blackburn í gærkvöldi,
þegar liðið lagði Newcastle að
velii heima, 1:0, með marki Alans
Shearer með skalla — þetta var
36. mark hans á keppnistímabil-
inu. Blackburn nálgast enska
meistaratitilinn, þegar liðið á
einn leik eftir er það með fimm
stiga forskot á Man. United., sem
á einn leik til góða. Blackburn,
hefur ekki orðið Englandsmeist-
ari síðan 1914, á eftir að leika
gegn Liverpool í síðasta leik sín-
um. Flowers varði oft mjög
glæsilega á síðustu stundu.
Manchester United á tvo leiki
eftir — gegn Southampton í
kvöld og West Ham í London á
sunnudaginn. Ef United nær
ekki að leggja Southampton að
velli, þá verður Blackburn meist-
Staðan / B14
KORFUBOLTI
Jafnir riðlar í
úrvalsdeild
næsta vetur
ÁRSÞING Körfuknattleikssam-
bands íslands var haldið að Flúð-
um um helgina og voru Kolbeinn
Pálsson, formaður og aðrir
stjórnarmenn sambandsins ein-
róma endurkjörnir. Samkvæmt
venju var dregið í riðla í úrvals-
deildinni fyrir næsta vetur og
varð útkoman sem hér segir. I
A-riðli: Njarðvík, Tindastóll,
Breiðablik, Haukar, ÍR og Kefla-
vík. í Bjriðli leika Grindavík,
Valur, í A, Þór, KR og Skalla-
grímur.
Breyting var gerð á úrslita-
keppninni þannig að eftir að
riðlakeppni lýkur er búin til ein
stöðutafla og mun efsta liðið
mæta liði í 8. sæti, lið í 2. sæti
liðinu sem verður í 7. sæti og svo
framvegis.
Ákveðið var að fjölga liðum
um tvö í 1. deild karla og munu
þvi tíu lið leika i einum riðli á
næstu leiktíð.
GETRAUNIR: 1X1 111 111 11X1 LOTT