Morgunblaðið - 12.05.1995, Blaðsíða 8
8 C FÖSTUDAGUR 12. MAÍ1995
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Hoinstraidir
aðlifna
NÚ ER nóttin á Homströndum
að mestu orðin björt og fiðringur
kominn í þá sem fyrstir leita norð-
ur í þessa náttlausu furðuveröld.
Menn eru farnir að huga að húsum
sínum, en óvenju snjóþungt er víða
nyrðra á þessu vori. Aðrir huga
að reka og nokkuð hefur verið sótt
í svartfugl sem fyllir sjóinn út af
björgunum.
Rekahlunnindi hafa löngum ver-
ið talin mikilvæg búbót, en auk
lögbýlanna, sem að sjálfsögðu eiga
reka á sínum fjömm, hafði kirkjan
og yfirvöld komið málum þannig
fyrir að margar góðar rekafjörur
urðu utan lögbýla á svokölluðum
almenningum. Gísli fréttaritari var
á rekafjöru í byrjun maí. Svo virð-
ist sem norðvestan áttin í vetur
hafi valdið því að megin rekinn
hafi lent austan Hombjargs. Stór-
viðrin í vetur hafa valdið því að
Ækinn er hátt uppi og margt
áhugavert að skoða fyrir þá sem
þama verða í sumar.
Innan skamms halda svo eggja-
tökumennirnir í Hornbjarg, en
þangað leitar hvert vor sveit full-
huga sem fara á handvöðum um
bergið og safna svartfuglseggjum,
sem lenda svo á borðum fólksins
í bæjum og borg, sem margt
dreymir um ævintýrin í björgunum.
■
Úlfar Ágústsson, ísafirði
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
UM HELGINA
ÚTIVIST
EFNT er til dagsferðar sunnudag
14. maí og verður þá farið í létta
fjallgöngu á Miðfell, austan við
Þingvallavatn. Fjallið er ekki hátt
en gefur einstakt útsýni yfir Þing-
vallavatn, Grafning og Þingvalla-
sveit.
Frítt er fyrir böm yngri en 16
ára. Lagt af stað frá BSÍ kl. 10.30.
Stansað við Árbæj-
arsafn og í Mos-
fellsbæ fyrir þá sem
eiga hægara með að
komast þangað.
FÍ
Föstudag 12. maí kl.
20 er brottför í ferð-
ina SnæfelIsjökuII-
Snæfellsnes. Geng-
ið á jökulinn á laug-
ardag og er um 7
klst. ganga. Gist í
svefnpokaplássi á Lýsuhóli.
Laugardag 13.maí verður hin ár-
lega fuglaskoðunarferð í samvinnu
við Hið ísl. náttúrufræðifélag. Brott-
för er kl. 10 frá BSÍ og Mörkinni.
Áhugi fólks á náttúrufræði hefur
farið mjög vaxandi og ekki síst á
fuglum og lifnaðarháttum þeirra.
Síðan 1967 hefur FÍ farið fuglaskoð-
unarferð um Miðnes og Hafnarberg
í maí þegar flestir farfuglar eru
komnir.
í Hafnarbergi má sjá allar bjarg-
fuglategundir landsins, að haftyrðli
undanskildum. Af bjargbrún sér til
Eldeyjar þar sem súlan heldur sig
og flýgur oft nærri berginu. Þá má
e.t.v. sjá skrofuna syndandi en hún
verpir í Eyjum. Straumandarstegg-
urinn þykir hvað fegurstur fugla og
skyggnst verður sérstaklega eftir
straumöndinni þama. í fuglaskoð-
unarferð 1970 var farið að skrá þær
fuglategundir sem sáust í ferðum frá
ári til árs og þátttak-
endur era með í að
gera þessa fuglaskrá.
Loks er að nefna
raðgöngu FÍ, nátt-
úruminjagangan,
sem farin er í tilefni
náttúravemdarárs
Evrópu. Fjórði áfangi
er á sunnudag og
leiðin er þvert yfir
Reykj anesskagann,
en hún hófst á Sel-
tjarnamesi 23.apríl.
Henni lýkur á Selatöngum 25.júní.
Með göngunni er vakin athygli á stöð-
um og svæðum sem eru á náttúra-
minjaskrá og í flestum áfanganna er
fræðsla um náttúrufar staðanna.
í áfanganum nú sem lagt er í kl.
13 á sunnudag verður gengið frá
Elliðavatni niður í Selgjá við Vífils-
staðahlíð. Margir hafa verið með frá
bytjun en nú er tækifæri til að vera
með í þeim hluta leiðarinnar þar sem
gengið er með Reykjanesfjallgarði.
Fimmti áfangi er kvöldganga í Búr-
fellsgjá miðvikudag 17.maí. ■
Valhúsa-
thaáJ
3. ferð: 3. maí,
« kl. 20:00
{ Fossvogsdalur-
Elliðavatn
Suðurncj
Höskuldar-
vellir á
1. ferð: 23. aprfl, kl. 13:00L
Suðumes - Valhúsahæð
2. ferð: 30. apríl, kl.
Valhúsahæð'Öskjuhlið
10:30
Náttúru-
minja-
gangan
Raðganga
Ferðafélags ^
íslands 1995:<://y
4. ferð: 14. maí, kl. 13:00
Elliðavatn-Selgjá
Fjölskylduganga: kl. 13:00
Vifilsstaðahlfð-Selgjá
f-x-rr‘VK
5. ferð: 17. maí, kl. 20:00
Selgjá-Búrfellsgjá-Kaldársel I *v |Kaldársel
7. ferð: 11. júní, kl. 10:30
Vatnsskarð-Eldborg-Djúpavatn
Fjölskylduganga: kl. 13:00
Höskuldarvellir-Djúpavatn
Kcilir
Húsfcll
y
6. ferð: 25. maí, kl. 13:00
Kaldársel-Vatnsskarð
yVfS
ögmundar-
hraun
Selatangar
/ Vigcíísar-,
vellir {/ 'I\r ' /"}
!? Kiýsuvík;/
Mælifdl' K
■ J r 1 r'fti'0
O'suv/kurberg
8. ferð: 25. júní, kl. 10:30
Djúpavatn-Núpshlíðar-
háls-Selatangar
Fjölskylduganga: kl. 13:00
Selatangar
Vinnuvikan
stytt í Kína
KÍNVERSKIR ráðamenn hafa
ákveðið að stytta vinnuviku fólks
úr 44 stundum í 40 og gekk þetta
í gildi frá 1. maí. Þetta mun skapa
um það bil eina milljón nýrra
starfa, einkum í iðnaði og þjón-
ustugreinum.
Atvinnumálaráðuneyti Kína
stytti vinnuvikuna í fyrra úr 48
stundum í 44 og varð það til að
framleiðni í iðnaði jókst um 30%
á árinu. Frá þessu er greint í tíma-
ritinu Far Eastern Economic Revi-
ew. ■
Farfuglaheimili
í Hafnarfirði
UM MÁNAÐAMÓTIN
tók til starfa farfugla-
heimili, Arahús, í
Hafnarfirði og er það í
hjarta bæjarins, við
Strandgötu 21. I upp-
hafí aldarinnar hét hús
á þessari lóð því nafni.
Þar er rúm fyrir 20
gesti og áætlað að bæta
við fimm 2ja manna
herbergjum í haust.
Gisting í Arahúsi
kostar frá 1.250 kr.
nóttin og kostur er gef-
inn á morgunverði fyrir
þá sem þess óska. Eig-
endur segjast í framtíð-
inni ekki síst sækjast
eftir íslendingum sem koma utan
af landsbyggðinni til útréttinga eða
hvíldar á höfuðborgarsvæðinu eða
Stórhafnarfjarðarsvæðinu eins og
einn Gaflarinn orðaði það. Frá far-
fuglaheimilinu er stutt í sund, versl-
anir, pósthús, banka eða veitinga-
hús og almenningsvagnar stoppa
rétt hjá.
Eigendur Arahúss era Ingvar
Geirsson og Sigurður S. Bjarnason
og er heimilið félagi í Bandalagi
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SIGURÐUR S. Bjarnason, annar eigenda far-
fuglaheimilisins í Hafnarfirði, við Arahús.
ísl. farfugla. Þeir Sigurður og Ing-
var vildu koma því á framfæri við
þá sem þekktu ekki til á farfugla-
heimilunum að gestir ættu aðgang
að eldhúsi með öllum tækjum og
geta eldað sér máltíðir þar og snætt
í borðstofu heimilisins. Morgunverð
er hægt að kaupa með gistingu og
er hann framreiddur af veitinga-
staðnum Ólsen Ólsen og ég sem er
á götuhæð hússins. I
Mynd im
etriár
Hamsuns
í BLAÐINU Norwaysegir frá því
að nú standi yfir gerð myndar um
síðustu æviár rithöfundarins
Knuts Hamsun og Maríu konu
hans sem var 25 árum yngri en
hann. Það er sænski kvikmynda-
leikstjórinn Jan Troell sem stendur
að gerð myndarinnar. Max von
Sydow fer með hlutverk Hamsuns
og danska leikkonan Gita Nörby
leikur konu hans.
Hamsun var mjög umdeildur á
árunum fyrir síðari heimsstyijöld-
ina og meðan á henni stóð vegna
meintrar hollustu við nasisma.
Ekki tóku við betri ár eftir að stríð-
inu lauk og var Hamsun hnepptur
í fangelsi og leiddur fyrir dómstól
fyrir landráð. Ákærur voru látnar
niður falla vegna aldurs en Hams-
un var þá á tíræðisaldri. ■
Beint tlug
til Toronto
SAMVINNUFERÐIR-Landsýn
efna til beinnar ferðar til Toronto
í Kanada þann 15. júlí og heim-
ferð er 4. ágúst. Verð flugferðar
með sköttum er 48.600 kr. á
mann. Bent er á í fréttatilkynn-
ingu SL að frá Toronto sé stutt
til allra átta, bæði fyrir þá sem
vilja skoða íslendingabyggðir í
Kanada eða halda til Bandaríkj-
anna. Borgin er við Ontariovatn á
landamærum Kanada og Banda-