Morgunblaðið - 13.05.1995, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995 D 5
HM I HAIMDKNATTLEIK
Þrjátíu manna hópurfrá
Japan kynnir HM’97
BORGIN Kumamoto á Kyushu-
eyju í suðurhluta Japan verður
heimavöllur næstu heimsmeist-
arakeppni í handknattleik árið
1997. Af þeirri ástæðu er stadd-
ur hér á landi á meðan HM fer
fram þijátíu manna hópur Jap-
ana til þess að kynna Kuma-
moto, borgina og nágrenni
hennar og hvað þar er boðið
upp á. Japanska sendinefndin
er með kynningarbás í anddyri
Laugardalshallar, auk þess sem
hún heimsækir hin keppnishús-
in, á Akureyri, í Hafnarfirði og
í Kópavogi. Úr básnum dreifa
þeir kynningarritum um borg-
ina og nágrenni hennar og sýna
myndbönd auk þes að tala við
gesti og gangandi. Um leið eru
þeir að kynna sér aðstæður á
HM95, umfang og umgjörð
keppninnar og læra af þeim
mistökum sem íslendingar
hugsanlega gera í framkvæmd
mótsins, eins og Kojo Kazuya,
einn fulltrúi í japönsku sendi-
nefndinni komst að orði í sam-
tali við Morgunblaðið. Hann
sagðist ánægður með þær við-
tökur sem þeir hefðu fengið hér
á landi.
KojaKazuga sagði umgjörð
keppninnar hér á landi vera
einfalda en allt virtist ganga
vel og þeim leist vel á aðbúnað-
inn. Hann kvað handbolta ekki
vera meðal vinsælustu greina í
heimalandi sínu, en nú í tengsl-
um við heimsmeistarakeppnina
í Kumamoto væri verið að gera
átak til að auka útbreiðsluna.
Líkt og í knattspyrnu og öðrum
íþróttagreinum þar í landi
Pólskir
fyrstir heim
FYRSTU dómaraparið hefur
heltst úr lestinni á HM. Það
er pólska parið Marek
Szajna og Jacek Wroblewski.
Ástæðan fyrir því að þeir
halda ekki áfram að dæma
er sú að líkamlegt form
þeirra er slakt og fyrir neðan
þær kröfur sem settar eru
til dómara á HM. Þeir pólsku
dæmdu einn Ieika á Akur-
eyri. í þeirra stað kemur ís-
lenska dómaraparið Hákon
Sigurjónsson og Guðjón L.
Sigurðsson.
Ekki séð hand-
bolta í fjögur ár
ÁSTRALIR eiga fulltrúa meðal
fréttamanna á heimsmeistara-
keppninni. Maðurinn heitir Paul
O’Keeffe og er hvorki ókunnugur
handboltanum né íslandi því
hann bjó hér á landi 1991 og spil-
aði þá í markinu hjá Njarðvík.
Hann er hér á vegum ástralska
handboltasambandsins til að
halda þeim upplýstum með úrslit
og fleira en er einnig að skrifa
greinar fyrir bandaríska hand-
boltasambandið.
„Eg hef ekki séð handboltaleik
síðan ég fór 1991 til Bandaríly-
anna svo það er nýög skrýtið að
horfa á núna. Keppnin er góð og
leikirnir góðir. Það er gaman að
sjá lið eins og Alsír og Kúbu og
ég er viss um það kemur hand-
bolta í heiminum til góða og eyk-
ur fjölbreytnina," sagði Paul við
Morgunblaðið. Hann lék með ástr-
alska landsliðinu i handbolta 1989-
1990 en vildi þá læra meira um
handbolta og dreif sig til Evrópu.
væru það fyrirtæki sem rækju
íþróttafélögin og þá væri það
alltaf spurningin um vinsældir
og tengslin við auglýsingar. En
talsverð útbreiðsla væri í hand-
knattleik í skólum og gera
menn sér vonir um að það
hjálpi íþróttinni á næstu árum.
Þess vegna væri mikilvægt að
nota það góða tækifæri sem
gæfist með HM 97 til að ýta
undir áhuga. Koja sagði að vin-
sælustu íþróttagreinarnar í
Japan væru Sumoglíma, horna-
bolti og knattspyrna en vin-
sældir hennar hefðu aukist
mjög á sl. árum.
ísland er fyrsta landið sem
Japanirnir heimsækja í þeim
tilgangi að kynna HM í Kuma-
moto í árið 1997 og sögðust
þeir vonast til að á næstu mán-
uðum færu þeir til fleiri Evr-
ópulanda í því skyni.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
JAPANIR eru með kynnlngarbás í Laugardalshöllinni.
TV^IHGO
**%BS!!32SFm
-SÉRSTAKUR OG SATUR!
VERÐ AÐEINS KR 898.000,-
Reynsluaktu TWINGO!
Það er vel þess virði.
RENAliLT
RENNUR ÚT!
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf.
ÁRMÚLA 13 • SÍMl 553 1236