Morgunblaðið - 13.05.1995, Síða 12
HM I HANDKNATTLEIK
Morgunblaðið/Rúnar Þór
STAFFAN Olsson gerðl fjögur mörk fyrlr Svía gegn Egyptum. Leikur Svía snérist aö mestu leyti um hraöaupphlaup og þar var
Erlk Hajas aðalmaöur, enda gerði hann 13 mörk. Hér er hins vegar hefðbundin sókn í gangi og Staffan reynir línusendingu.
■ ■
Oruggt hjá Svíum
Eg er ánægður með leik liðsins
í dag, sagði Bengt Johansson
þjálfari Svía eftir að þeir lögðu
Egypta örugglega
að velli 33:22 í D-
riðlinum á Akur-
eyri. „Við spiluðum
vel í vörninni með
Ola Lindgren
fremstan í flokki, en ég tel hann
vera einn besta varnarmann í
heimi í dag. Við náðum svo að
keyra í hraðaupphlaup þar sem
Reynir B.
Eiríksson
skrifar
frá Akureyri
■I fc
Erik Hajas var í essinu sínu“.
Svíar byrjuðu leikinn vel og
náðu strax forystu sem þeir héldu
allan hálfleikinn og þegar gengið
var til búningsklefa var staðan
16:12. Á tólftu mínútu fékk Mo-
hamed Mahmoud Nakieb mark-
vörður Egypta að líta rauða
spjaldið fyrir gróft brot á Svía
sem var í hraðaupphlaupi.
Jafnt var á með liðunum í byij-
un seinni hálfleiks en þegar liðnar
voru um átta mínútur fór „Svía-
vélin“ að mala og allt fór í baklás
hjá Egyptum sem gerðu ekki
mark í 16 mínútur á meðan Svíar
náðu hveiju hraðaupphlaupinu á
fætur öðru og gerðu þeir níu
mörk í röð. Á síðustu mínútum
leiksins náðu Egyptar að klóra í
bakkann er Svíar slökuðu á eftir
að öruggur sigur var í höfn og
urðu lokatölur leiksins 33:22
Svíum í vil.
Egyptar léku mjög framarlega
í vörninni og gekk Svíum ekki vel
að að leika gegn þeim í fyrri hálf-
leik þrátt fyrir að þeir hefðu ávalt
yfirhöndina en eftir hlé náðu
Svíar að beita hraðaupphlaupum
sem Egyptar réðu ekki við. Á
sama tíma var vörn Svía mjög
góð og komust Egyptar hvergi
gegn henni. Sigur Svía var örugg-
ur og í raun aldrei í hættu frá
upphafsmínútunum.
■ Úrslit / D11
■ Staðan / D11
Kúveiti
dæmdur í
bann í HM
AGANEFND alþjóða hand-
knattleikssambandsins,
IHF, dæmdi í gær Kúveit-
manninn Saad Alazmi í leik-
bann á HM og bann frá al-
þjóölegum leikjum í þrjá
mánuði, eftir að hann féll á
lyfjaprófi sem var tekið eft-
ir leik Egyptaland og Kú-
veit á Akureyri. 28:21. Þá
var Kúveitum dæmdur
leikurinn tapaður 0:10. Ör-
vandi efni, Pseudephedrine,
fannst í þvagsýni Saad
Alazmi.
Þetta er í annað skiptið
í sögu heimsmeistarakeppn-
innar, sem leikmaður fellur
á lyfjaprófí. Rúmenskur
markvörður féil á prófi í
HM í Sviss 1986, eftir tap-
leik gegn Svíum, 20:25, sem
var dæmdur sigur 10:0.
AKUREYRI
120 krakkarfrá
Hvammstanga
MIÐASALAN tók kipp á Akur-
eyri í gær og seldust um 500
barnamiðar á leiki dagsins.
Gunnar Jónsson, formaður
HM-nefndarinnar á Akureyri,
sagði við Morgunblaðið að
lækkun miðaverðs niður í 500
kr. fyrir daginn hefði haft mik-
ið að segja. Til að mynda komu
120 krakkar frá Hvammstanga
og sáu leiki dagsins en héldu
svo heimleiðis á ný um klukkan
hálf tíu í gærkvöldi.
Á morgun verða úrslitaleikir
riðilsins og sagði Gunnar að
miðasalan benti til þess að það
yrði uppselt í íþróttahöllina.
Barist um sæti
í síðustu
umferðinni
TVEIR mikilvægir leikir fara
fram í síðustu umferð D-riðils á
Akureyri á morgun. Svíþjóð og
Spánn leika til úrslita í riðlinum
en sigurvegarinn mætir liðinu í
4. sæti C-riðils. Þá beijast Hvíta-
Rússland og Egyptaland um
þriðja sætið til að komast hjá því
að mæta sigurvegara C-riðils í
16-liða úrslitum.
Leitað að Pox mynd
POX söfnunarmyndir af leikmönnum landsliðanna í HM njóta
mikilla vinsælda hjá krökkum en sumir erlendu leikmennimir
hafa einnig sýnt myndunum áhuga. Þegar Spánverjinn Juan Dom-
inguez, sem gerði fimm mörk gegn Egyptum í gær, frétti að hann
væri á svona söfnunarmynd bað hann fararstjóra liðsins um að
útvega sér eina slíka. Fararstjórinn hafði samband við eiun starfs-
manninn í fréttamannamiðstöðinni á Akureyri sem á börn á „söfn-
unaraldrinum“ og bað um aðstoð. Stúlkan brást skjótt við og bað
strákana sína um að finna mynd af kappanum sem hann segist
ætla að gefa fjölsky Idumeðlimi sínum.
Kúveitar teknir í bakaríid
Mesta burst D-riðiIs leit dagsins
ljós í gær þegar Hvít-Rússar
tóku Kúveita í bakaríið. Þeir tefldu
fram sínu sterkasta
Stefán Þór liði og keyrðu hrað-
Sæmundsson ar sóknir og léku á
skrifar frá a|s oddi. Uppskeran
Akuæyn varð 21 marks sig-
ur, 39:18. Ekki þarf að fjölyrða um
þennan leik. Hvít-Rússar tóku risp-
ur, skoruðu 6-8 mörk í röð á köflum
og skildu Kúveitana eftir. Jakímo-
vítsj var grimmur og fyrirliðinn
Andrej Paratsjenko lék vel að vanda
en hann hefur verið besti maður
liðsins í keppninni. Einnig má geta
um Barbashínskí og Lakízo sem
léku vel. Hvít-Rússar skoruðu alls
15 mörk úr hraðaupphlaupum og
segir það sitt um keyrsluna. Mark-
varslan var í molum hjá Kúveit,
samtals fimm skot varin og það
fyrsta eftir 22ja mínútna leik.
Kúveitar gjalda að sjálfsögðu
fyrir að þjálfari liðsins er i leik-
banni en áhorfendur hafa ekki yfir-
gefið þá og létu í sér heyra. Yfir-
burðir Hvít-Rússa voru hins vegar
algjörir og sigurinn hefði getað orð-
ið enn stærri.