Morgunblaðið - 17.05.1995, Page 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MARKAÐIR
Fiskverð heíma
18.v i 19Ívl'0
Faxamarkaður
Fiskmarkaður
Hafnarfjarðar
Fiskmarkaður
Suðurnesja
Alls fóru 465,9 tonn af þorski um fiskmarkaðina þrjá hér syðra
í síðustu viku. Um Fiskmarkað Hafnarfjarðar fóru 57,3 tonn á
76,40 kr./kg. Um Faxamarkað fóru 43,8 tonn á 77,33 kr./kg
og um Fiskmarkað Suðurnesja fóru 364,8 tonn á 83,88 kr./kg.
Af karfa voru seld 55,4 tonn. í Hafnarfirði á 48,95 kr. (18,01),
á Faxagarði á 48,61 kr./kg (4,51) en á 53,26 kr. (32,91) á F.
Suðurnesja. Af ufsa voru seld 129,0 tonn. í Hafnarfirði á 43,49
kr. (31,91), á Faxagarði á 37,92 kr. (1,11) og á 51,22 kr. hvert
kíló á Suðurnesjum (96,01). Af ýsu voru seld 167,3 tonn á
mörkuðunum þremur hér syðra og meðalverðið 69,86 kr./kg.
Karfi
Kr./kg
80
70
60
50
40
Ufsi
Fiskverð ytra
Eingöngu var seldur
fiskur úr gámum í
Bretlandi i síðustu
viku, samtals 762,8
tonn á 94,64 kr./kg.
Þar af voru 27,1
tonn af þorski seld
á 108,75 kr./kg.
Af ýsu voru seld
309,5 tonná 75,19
kr./kg, 162,9 tonn af
kola á 98,51 kr./kg,
90,8 tonn af grálúðu
á 163,37 kr./kg. og
12,6 tonn af karfa á
87,22 kr. hvert kíló.
Þorskur —<i"nn Karfi ■■■■■» Ufsi «■■■■
Eitt skip seldi afla sinn í Þýskalandi í síðustu viku.
Viðey RE 6 seldi 207,6 tonn á 93,66 kr./kg. Þar af voru
160,9 tonn af karfa á 96,79 kr./kg, en 25,4 tonn af ufsa á 60,99 kr./kg.
Vinsældir síldarinnar
dvínandi I Þýskalandi
mmmmm ÞÝSKALAND er einn
stærsti markaður heims
fyrir neyslusíld, árleg
lir SÍÓ neysla tæP 200.000 tonn
upp úr sjó. Síld hefur
gegnum árin verið vinsælasta fiskitegundin í Þýskalandi. Árið 1993
var síldin með um 23,2% markaðshlutdeild af heildarfiskneyslunni í
landinu. Þetta samsvarar tæplega 117.000 tonnum af neyslusíld, eða
rúmlega 194.000 tonnum uppúr sjó.-Vinsældir síldarinnar virðist þó á
undanhaldi. Árið 1993 var neyslan 26.000 tonnum minni en árið 1992.
Árleg neysla t
200.000 tonn upp
Rúmlega 18% samdráttur var í
neyslu síldarafurða í Þýskalandi
árið 1993 samanborið við árið áður.
Þar með tók sú samfleytta neyslu-
aukning seinustu ára enda. Neyslan
náði hámarki 1992 þegar Þjóðveijar
neyttu tæpra 143.000 tonna af síld-
arafurðum, en það magn samsvarar
tæplega 260.000 tonnum upp úr
sjó. Þrátt fyrir að neysla hafi dreg-
ist saman er síld ennþá með hæstu
markaðshlutdeild allra fiskitegunda
í Þýskalandi eða 23,2% árið 1993.
Til samanburðar var hlutdeildin
28,6% árið 1992. Ástæða þessa
samdráttar í síldameyslunni er
margþætt. Talið er að einna þyngst
vegi aukin samkeppni, samfara
auknu framboði af hinum ýmsu
fiskitegundum á markaðnum fyrir
sjávarafurðir í Þýskalandi, og
breyttir neysluhættir. Til að stemma
stigu við þessari þróun var á sein-
asta ári lagt út í stórt markaðsátak
sem hafði það að markmiði að auka
síldarneysluna. Hvort það starf hef-
ur skilað árangri er ekki að fullu
vitað þar sem tölur um neyslu sein-
asta árs liggja ekki fyrir. Bráða-
birgðatölur gefa hins vegar í skyn
aukningu í síldameyslunni árið
1994. Þannig að markaðsátakið
virðist hafa skilað einhverjum ár-
angri.
Mikill innflutningur
Það sem einkennir markaðinn
fyrir síldarafurðir í Þýsklandi einna
mest er hversu háður innflutningi
hann er. Enda hafa síldveiðar Þjóð-
veija minnkað mjög mikið seinustu
áratugi og dekka þær í dag einung-
is um 20% af því magni sem mark-
aðurinn þarf. Innflutningurinn er
því í kringum 80% af því magni sem
fer til neyslu eða tæp 95.000 tonn
árið 1993. Það er ekkert sem bend-
ir til að hlutfall þetta muni breytast
til muna á næstu ámm. Þannig að
Þýskland mun halda áfrarg,að flytja
inn mikið magn síldarafurða .
Helstu innflutningsþjóðir era
Danmörk, Holland, írland, Noregur
og Kanada. Þar af er Danmörk
stærsti innflytjandinn með innflutn-
ing á bæði ferskum og frosnum síld-
arafurðum. Kanadamenn flytja nær
eingöngu frosnar síldarafurðir til
landsins og Hollendingar era með
mestan innflutning saltsíldar. írar
og Norðmenn flytja aðallega inn
ferskar síldarafurðir, en einnig eitt-
hvað af frosinni. Ef við lítum á þró-
unina í innflutningi á síldarafurðum
seinustu ára er athyglisvert að inn-
flutningur á afurðaflokknum fersk
flök, hefur dregist mikið saman
milli áranna 1992 og 1993. Á sama
tímabili hefur innflutningur á
kryddsíld aukist verulega. Fyrir hina
flokkana eru breytingarnar minni.
Innflutningur heillar, ferskrar
síldar og heilfrystrar síldar eykst á
tímabilinu 1990 til 1993, en inn-
flutningur frosinna flaka og saltsíld-
ar dregst saman. Því mesta af veið-
um Þjóðveijanna sjálfra er landað
sem heilli síld bæði frosinni og
ferskri, en mun minna sem flök. Sú
neyslusíld sem kemur á land í Þýsk-
landi fer að mestu leyti til frekari
vinnslu hinna ýmsu síldarrétta. Það
er mikil hefð fyrir síldarneyslu í
landinu og fjölbreytt framboð af
hinum ýmsu síldarréttum i verslun-
um. Sem dæmi um það er: reykt
síld, marineruð síld, ýmis salöt og
matjessíld. Síldar er einnig neytt
ferskrar í talsverðum mæli.
Sveiflur í útflutningi
Það er athygglisvert að þrátt fyr-
ir að Þýskaland þurfí að flytja inn
um 80% af sinni neyslusíld er út-
flutningur á síld frá landinu tals-
verður. Árið 1993 vora rúmlega 26%
af þeirri síld sem kom á land í Þýska-
landi flutt út. Þetta er stór aukning
í útflutningi þar sem einungis rúm-
lega 10% þeirrar síldar sem í land
kom árið 1990 voru flutt út. Annars
er útflutningurinn mjög sveiflu-
kenndur milli ára og erfitt að gera
sér grein fyrir þróun hans. Þó virð-
ist hann fara vaxandi sé tekið mið
af allra seinustu árum. Það er aðal-
lega marineruð síldarflök sem Þjóð-
veijar flytja út, en útflutningur heil-
frystrar síldar og frosinna og fer-
skra síldarflaka er einnig talsverður.
Útflutningur heilfrystrar síldar
sýnir að Þýskaland er „transit“-
markaður fyrir þessa afurð. Þær
breytingar hafa verið helstar í út-
flutningi síldarafurða frá Þýska-
landi að mun minna er flutt út af
heilfrystri síld árið 1993. Árið 1992
voru tæp 25.000 tonn af þessari
afurð flutt út og var það rúmlega
18.500 tonnum meir enn árið áður.
Töluvert hefur dregið úr þessum
útflutningi síðan og var hann kom-
inn niður í rúmlega 11.300 tonn
árið 1993. Önnur markverð breyting
er sú að árið 1993 var flutt út mun
meira af söltuðum síldarflökum en
árið áður.
Það sem einkennir framleiðslu
íslendinga af síldarafurðum er
hversu stór hluti aflans fer til
bræðslu. Þróunin í útflutningi ís-
lendinga síðustu árin hefur verið sú
að stöðugt meira af aflanum fer til
bræðslu. Þetta má að miklu leyti
rekja til hruns saltsíldarmarkaðar-
ins í Rússlandi. Af þeim u.þ.b.
117.000 tonnum af síld sem veidd
vora á íslandi 1993 fóra um 60% í
bræðslu, til samanburðar fóru yfir
70% aflans í bræðslu árið áður. Það
magn sem fer til bræðslu virðist því
hafa minnkað nokkuð.
Hlutdeild íslenskrar síldar
lítil á markaðnum
Lítið af síldarafla íslendinga fer
til Þýskalands. Það er helst landfiyst
síldarflök sem Þjóðveijar kaupa af
okkur. Um 26% af þeim flökum sem
framleidd vora hér á landi fóra til
landsins árið 1993. Þetta er um
1.400 tonn. Frá árinu 1990 hefur
þessi útflutningur aukist veralega.
Einnig vor flutt út lítils háttar magn
af söltuðum síldarflökum, heilsalt-
aðri síld og saltaðri heilskorinni síld.
Hlutdeild íslenskrar síldar er samt
mjög lítil á markaðnum.
Verðmæti þeirrar síldar sem fer
til bræðslu er mun minna en ef um
neyslusíld væri að ræða. Það er því
áhugaverð spurning hvort Þýska-
landsmarkaður geti tekið á móti
meira magni neyslusíldar frá ís-
landi. Það er, eftir því sem best
verður á komist, tvennt aðallega
sem gerir að verkum að Þjóðverðar
vilja ekki íslensku síldina. Fyrir það
fyrsta er fituinnihald hennar of lítið
að mati þýskra kaupenda og passar
því ekki í framleiðslu þeirra afurða
sem Þjóðveijar gera úr síldinni.
Einnig hafa verið háir tollar á síld
frá Islandi og hefur það haft sín
áhrif.
Höfundur er Andri Þorieifsson
sjávarútvegsfræðingur
Afli
GRANDI hf.:
Afli 1993 og 1994
37.148 tonn
Annar afli
31.495 16,9% Úthafs-
11,0% karfi
63,3% 47,2%
Karfi
1993 1994
12,3% 11,5% Ufsi
■MP Þorskur
7.- 1
Mesti afli í sögu
Granda hf.
HEILDARAFLI skipa Granda hf.
var í fyrra hinn mesti í tíu ára
sögu fyrirtækisins, annað árið í
röð. Alls veiddust 37.148 tonn á
móti 31.495 tonnum árið áður.
Aukningin nemur 5.653 tonnum
eða 17,9%. Afli Grandatogaranna
utan kvóta jókst mikið, var liðlega
34% heildaraflans en var innan við
13% árið 1993. Mest munar um
margföldun úthafskarfa sem á síð-
asta ári var tæplega 31% af afla
skipa Granda hf. Uthaldsdögum
fjölgaði um 236, úr 2.199 í 2.435,
enda fjölgaði um einn togara í
skipastól fyrirtækisins. Vegna
góðra úthafskarfaveiða jókst afli
á úthaldsdag um 7%, eða úr 14,3
tonnum árið 1993 í 15,3 tonn á
síðasta ári. Aflahæsti togari fyr-
irtækisins var Þemey með 6.207
tonn að verðmæti 502 milljónir kr.
Ráðstöfun
GRANDI hf.:
Ráðstöfun aflans 1993
og 1994 37.148 tonn
Innl. mark. Erl.
31.495 16,9%
25,1% | 42,3% markaðir
29,2% Sjó- vinnsla
43,3% 37,2% Land- vinnsla
[/1993 1994
GRANDI hf. vann meiri fisk úti
á sjó en í landi á síðasta ári. Áður
hafði stærri hluta aflans verið
landað til vinnslu í landi. Þá dró
mjög úr siglingum á erlenda fisk-
markaði. Afla Grandatogaranna
var í fyrra ráðstafað þannig að
liðlega 37% fóru til vinnslu í landi,
liðlega 42% í sjóvinnslu, siglt var
með tæplega 17% aflans á erlenda
markaði og 3,6% aflans var boð-
inn upp á innlendum fiskmörkuð-
um. Innvegið hráefni til land-
vinnslu í Norðurgarði minnkaði
lítillega í heildina. 1.000 tonna
aukning í loðnufrystingu fór
langt með að jafna samdrátt í
botnfiskvinnslunni.
Botnfiskaflinn í helstu verstöðvum landsins sept. 1994 til apríl 1995
32.545 tonn
30 þús. tonn -
25 ---
20 -----
15 I i-
: u.:
I.CÖi
10 |
! Ci
: C!
5i CO!
if
j </>i
n iSi
&
■*Q
-c:
o
XX
i q>:
?!
o co:
•«Oi :
iteri I S «
iilt I
í tt sc
m
ss
mto
3 3
1 v.' *2 3 io C VS* S jg
5
C3 .co ■*-
S Q.
iLi ^ í
»| ; | CO j
>- 3 3
c 'D 3 “5 :o 3 ■E § to . ■p ^ 3 :o íg. *§ « ;o S V.
3 42 Á5 O o' V) 4C 1 .v :g £ ! 11 $ 1 2 & 03 c Q Tð S C 43 :0 •S2 £ & "p > f ^ 42 g cp 45 -íc ^3 CO *o ÍO O) § Q.
co ’ C 1 C3 S 3 j ] ^ 0) QC Ll S P p-j ; CO, ÍB Q' e Oi
il s. i 1 C.7J C3 3 íid L-J \ká U LJ [ j IfU í. 1
sl
o
-O
g
3