Morgunblaðið - 22.06.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995 C 5
LAUGARDAGUR 24/6
MYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
KOMIIMN HEIM I
HEIÐARDALINN
VESTRI
Sveitadrengir (Good Old Boys)
+ +Vi
Leikstjóri Tommy Lee Jones.
Handritshöfundur Tommy Lee
Jones og J.T. Allen, byggt á bók
eftir Elmer Kelton. Tónlist John
McEuen. Aðalleikendur Tommy
Lee Jones, Terry Kinney,
Frances McDormand, Sam
Shepard, Sissy Spacek, Wilford
Brimley. Bandarísk Turner
Pictures 1994. Sam myndbönd
1995. 115 mín. Öllum leyfð.
Titillinn á frummálinu segir eig-
inlega allt sem
þarf. Þetta er
vel þekkt Suður-
ríkjaorðtak yfir
nána, ódrepandi
vináttu vaskra
drengja og Tex-
asbúinn Tommy
Lee Jones færir
þetta allt snyrti-
lega í stílinn í
þreföldu starfi
handritshöfundar, leikstjóra og
aðalleikara. Sagan er ekki ný af
nálinni. Jones leikur æringja, hálf-
gerða landleysu, sem ekki hefur
verið á þeim buxunum að stað-
festa ráð sitt. Snýr aftur heim í
heiðardalinn og tekur lífið traust-
ari tökum - með hjálp þeirrar út-
völdu.
Jones er einatt góður stofugest-
ur og hér smellur hann í hlutverk
sem er svosem ekkert tímamóta-
mál fyrir leikarann, sem er allur
að sækja í sig veðrið eftir að aldur-
inn fór að færast yfir. Jones var
í gegnum tíðina traustur skap-
gerðarleikari sem fékk sjaldan að
spreyta sig í krefjandi verkefnum.
En ef þau bárust honum í hendur
afgreiddi hann málin fagmannlega
(sbr. Executioner’s Song, Dóttir
kolanámumannsins). Frá fimm-
tugu hefur karl blómstrað í hverri
stórmyndinni á fætur annarri (og
ekki síst sjónvarpsþáttunum frá-
bæru, The Lonsome Dove) og á
örugglega eftir að skemmta okkur
um ókomin ár. Hann hefur fest
sig í sessi. Hér nýtur hann trausts
stuðnings, einkum frá hinni stór-
kostlegu og glæstu Frances
McDormand, sem er alltof sjaldséð
á tjaldinu og skjánum.
FEÐGAR
DRAMA
Næst bestur (Second Best) +s>
'kxh
Leikstjóri Chris Menges.
Handritshöfundur - saga og
handrit David Cook. Aðalleik-
endur William Hurt, John Hurt,
Chris Cleary Miles. Bandarísk.
Regency Enterprises 1994.
Warner myndir 1995. 101 mín.
Öllum leyfð.
Mikil tilfinningamynd sem fór
eitthvað fyrir
bijóstið á al-
menningi í
Bandaríklunum
er hún var sýnd
þar í bíóhúsum
á síðasta ári.
Næst bestur
segir sögu ein-
manna, mið-
aldra pósts
(William Hurt)
sem ættleiðir 11
ára dreng sem átt hefur bágborna
fortíð. Faðir hans situr í fangelsi
og það þarf að ryðja mýmörgum
vandamálum úr vegi áður en far-
sæl lausn finnst á tilvistarkreppu
persónanna.
Það er mannval sem stendur
að Næst bestum og á pappírnum
hefur hún alla burði til að hitta í
mark. Einn af framleiðendunum
er Arnold Milchan, en nafn hans
er að verða ein haidbesta trygg-
ingin fyrrir óvenju vandaðri Holly-
woodframleiðslu. Leikstjórinn er
kvikmyndatökumaðurinn góðk-
unni, Chris Menges, sem á síðari
árum hefur gert nokkrar metnað-
arfullar en gloppóttar myndir.
Næst bestur er allt að því óað-
finnanleg í útliti en efnið og ekki
síður efnismeðferðin jaðrar við
væmni á köflum. William Hurt er
nú orðið helst að sjá í myndum
sem þessum, hann fer á kostum
líkt og John Hurt og Chris Cleary
Miles er eftirtektarverðir í hlut-
verki piltsins. Forvitnileg mynd
fyrir vandláta.
EIN LEIÐ FÆR
SPENNUMYND
Vágestir (The Only Way Out) k
Leikstjóri Rod Hardy. Hand-
ritshöfundur Jerome Hall. Aðal-
leikendur John Ritter, Henry
Winkler, Stephanie Faracy,
Sam Mancuso, Matthew Walker,
Julianne Phillips. Bandarísk
kapalmynd. ABC Dustribution
Company 1995. SAM myndbönd
1995. 90 mín. Aldurstakmark
16 ára.
Eitthvað er það við hann John
Ritter sem veld-
ur því að hann
hefur ekki eign-
ast hóp svarinna
aðdáenda heldur
klúbba kvik-
myndahúsgesta
sem setja sig
ekki úr færi að
sjá allar John
Ritter myndir til
að gera grín að
aumingja manninum. Hann verður
örugglega seint tekinn alvarlega.
Vágestirer slök mynd um fráskild-
an, tveggja barna föður (Ritter)
og óskemmtileg viðskipti hans við
hinn „nýja pabba“ bamanna
(Henry Winkler).
Myndin er með miklum ólíkind-
um og leysist uppí algjöra rök-
leysu. Ekki bæta leikararnir úr
skák. Winkler er ekki á heimavelli
í hlutverki skúrksins og Ritter er
einsog álfur útúr hól sem faðirinn
sem tekur málin í sínar traustu
hendur. Tímasóun.
BÍÓMYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
SKÓGARLÍF (JUNGLE BOOK)
k k'A
Með Jason Scott
Lee, Lena Hed-
ley, Cary Elwes,
John Cleese,
Sam Neill. 90
mín. Öllum
leyfð.
Útlitslega nær
' myndin ævin-
týraveröld Kipl-
ings og friðþæg-
ir alla þá sem
lásu hina frá-
bæra Skógarlíf á unglingsárunum.
Leikaravalið er upp og ofan en
hvað svo sem maá segja um
frammistöðu Jasons Scott Lee, .þá
passar hann líkamlega í hlutverk
sitt. Cleese og Neill eru meira
uppá punt. Prýðileg fjölskyldu-
mynd þrátt fyrir lapþunnt handrit
þar sem stiklað er á stóru.
(1) Tom Hanks
(4) Helmut Kohl
(2) Boris
Yeltsin
(3) Carly Simon
(5) Jóhannes (6) Donna
Páll II páfi Karan
Hverjir
gáfu hvað?
ALSIÐA er að koma færandi hendi
þegar höfðingjar eru sóttir heim en
gestirnir eru ekki öfundsverðir af
því að reyna að brydda upp á nýj-
ungum í gjafapakka þess sem varla
vanhagar um nokkuð og hefur eng-
in sérstök áhugamál.
Gestir Hvíta hússins í tíð Ron-
alds Reagan voru ekki í vandræð-
um að finna gjafír enda er forsetinn
mikill hestamaður. Margir sáu sér
því leik á borði að færa Reagan
hesta í alls kyns myndum, sem
styttur eða á striga, söðla eða önn-.
ur reiðtygi. George Bush er veiði-
maður mikill og barst því ógrynni
af stöngum og veiðihjólum í forseta-
tíð hans. Þrautin er hins vegar
þyngri með Bill Clinton sem ekki
gerir upp á milli áhugamála.
Lech Walesa brá eitt sinn á það
ráð að gefa Clinton skreyttan
30.000 króna kristalsvasa. Öllu
rausnarlegri var írski forsætisráð-
herrann Albert Reynolds öðru
sinni er hannsplæsti í 70.000 króna
kristalsskál handa forsetanum. Sá
kemst þó vart með tærnar þar sem
ísraelski forsætisráðherrann Yitzh-
ak Rabin hefur hælana í gjafamál-
um en Rabin færði forsetanum eitt
sinn ævaforna leirskál sem ekki
verður metin til fjár.
Helstar gripa í safni Clintons ber
þó að nefna tvær dýrindis mahoní
vindlaöskjur sem filipeyski forset-
inn Fidel Ramos gaf starfsbróður
Clinton með fullar
hendur af gjöfum.
sínum. í skrá yfír sendingartil for-
setans er sú skriflega athugasemd
gerð að vindlunum hafi verið eytt
en þess ekki getið hvort þeir hafi
brunnið upp til agna.
Glöggir lesendur geta skemmt
sér við það að spá í hver gaf Clint-
on hvað á eftirtöldum lista en gef-
endurnir eru efst á síðunni:
a) Silkibindi
b) Málverk
c) Myndarammar
d) Þij ár myntir úr Vatikaninu með
myndum af páfa
e) Tveir Mont Blanc pennar
f) Útskorin rostungstönn með sjö
þrívíðum rostungum
•ugípSio^qgíjglDx :aoAg
V
UTVARP
RÁS 1
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir.
6.50 Bæn: Séra Kristinn Ágúst
Friðfinnsson flytur. Snemma á
laugardagsmorgni Þulur velur
og kynnir tónlist.
8.07 Snemma á laugardags-
morgni heldur áfram. 8.55
Fréttir á ensku.
9.03 Út um græna grundu. Þátt-
ur um náttúruna, umhverfið og
ferðamál. Umsjón: Steinunn
Harðardóttir. (Endurfluttur
annað kvöld kl. 21.00)
10.03 Veðurfregnir.
10.15 „Já, einmitt!" Óskalög og
æskuminningar. Umsjón: Anna
Pálína Árnadóttir. (Endurflutt
nk. föstudag kl. 19.40)
11.00 í vikulokin. Umsjón: Logi
Bergmann Eiðsson.
12.00 Útvarpsdagbókin og dag-
skrá laugardagsins.
12.45 Veðurfregnir og auglýsing-
ar.
14.00 Stef. Umsjón: Bergþóra
Jónsdóttir.
14.30 Helgi í héraði Útvarpsmenn
á ferð um landið. Áfangastaður:
Hvammstangi. Umsjón: Hall-
dóra Friðjónsdóttir og Ævar
Kjartansson.
16.05 Fólk og sögur. í þættinum
eru söguslóðir á Suðurnesjum
sóttar heim. Umsjón: Anna Mar-
grét Sigurðardóttir. (Áður á
dagskrá 14. júní sl.)
16.30 Ný tónlistarhljóðrit Ríkisút-
varpsins. Sellókonsert i B-dúr
eftir Luigi Boccherini. Gunnar
Kvaran leikur með Sinfóníu-
hljómsveit íslands undir stjórn
Guillermo Figueroa. (Endurtek-
inn þáttur frá 28. jan. s.l.)
Umsjón: Dr. Guðmundur Emils-
son.
17.10 Tilbrigði. Tónar frá hörpu
Heinesens. Umsjón: Trausti 01-
afsson. (Endurflutt nk. þriðju-
dagskvöld kl. 23.00)
18.00 Heimur harmóníkunnar.
Umsjón: Reynir Jónasson. (End-
urflutt nk. föstudagskvöld kl.
21.15)
18.48 Dánarfregnir og auglýsing-
ar.
19.30 Auglýsingar og veðurfregn-
ir.
19.40 Óperukvöld Útvarpsins. Frá
sýningu ensku þjóðaróperunnar
í Lundúnum 3. júní sl. Draumur
á Jónsmessunótt eftir Benjamin
Britten. Flytjendur: Óberon,
álfakóngur: Christopher Robson
Títanfa, álfadrottning: Lillian
Watson Brokki: Emil Wolck Þe-
seifur hertogi i Aþenu: Mark
Richardson Hippólíta, brúður
Þeseifs: Jean Righy Lísander:
John Graham-Hall Demetríus:
Chrostopher Booth- Jones
Hermía: Eirian James Helena:
Susan Chilcott Spóli, vefari:
John Connell Kvistur, timbrari:
Donald Adams Hvinur, fisibelgj-
astagari: Christopher Gillett
Stútur, ketilbangari: Terry
Jenkins Snikki, klénsmiður:
Andrew' Greenan Sultur,
skraddari: Richard Halton Kór
og hljómsveit ensku þjóðaróper-
unnar; Stuart Bedfort stjórnar.
Umsjón: Elísabet Indra Ragn-
arsdóttir.
22.10 Veðurfregnir. Orð kvölds-
ins: Ólöf Kolbrún Harðardóttir
flytur.
22.20 Langt yfir skammt. Gluggað
í gamlar bækur og annað góss.
Umsjón: Jón Hallur Stefánsson.
(Endurtekið frá 8. júní)
23.00 Dustað af dansskónum.
0.10 Um lágnættið.
— Konsert nr. 2 í f-moll fyrir píanó
og hljómsveit eftir Fréderic
Chopin. Claudio Arrau leikur
með Fílharmóníusveit Lúndúna;
Eliahu Inbal stjórnar.
— Fjögur verk fyrir fiðlu og píanó
eftir Edward Elgar. Nigel
Kennedy og Peter Pettinger
leika.
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns. Veðurspá.
FriHir ó RÁS I og RÁS 2 kl. 7, 8,
9, 10, 12.20, 16, 19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
8.05 Morguntónar. 9.03 Laugar-
dagslif. Umsjón: Hrafnhildur Hall-
dórsdóttir. 12.20 Helgi í héraði.
Umsjón: Þorsteinn J. Vilþjálmsson.
14.30 Þetta er í lagi. Georg Magn-
ússon og Hjálmar Hjámarsson.
16.05 Létt músik á siðdegi. Ásgeir
TómaBson. 17.00 Með grátt í vöng-
um. Umsjón: Gestur Einar Jónas-
Rós 2 kl. 12.20. Helgi í héraði.
Umsjón: Þorsloinn J. Vilhjólmsson.
son. 19.30 Veðurfréttir. 19.32 Vin-
sældalisti götunnar. Umsjón: Ólaf-
ur Páll Gunnarsson. 20.30 Á hljóm-
leikum með The The. 22.15 Snigla-
bandið í góðu skapi. 23.00 Nætur-
vakt Rásar 2 0.10 Næturvakt Rás-
ar 2. Guðni Már Henningsson.
NÆTURÚTVARPID
1.00 Veðurspá. 1.05 Næturvakt
Rásar 2. 2.00Fréttir. 2.05 Rokk-
þáttur Andreu Jónsdóttur. 3.00
Næturtónar. 4.30 Veðurfréttir.
4.40 Næturtónar. 5.00 Fréttir.
5.05 Stund með Barböru Streisand.
6.00 Fréttir, veður færð og flug-
samgöngur. 6.03 Ég man þá tíð.
Hermann Ragnar Stefánsson.
(Veðurfregnir kl. 6.45 og 7.30).
Morguntónar.
LANDSHLUTAÚTVARPÁRÁS 2
11.00-12.20 Útvarp Norðurlands.
Norðurljós, þáttur um norðensk
málefni.
ADALSTÖDIN
90,9 / 103,2
9.00 Sigvaldi Búi. 13.00 Halli
Gísla. 16.00 Gylfi Þór. 19.00
Magnús Þórsson. 21.00 Næturvakt
Aðalstöðvarinnar.
BYLGJAN
FM 98,9
9.00 Morgunútvarp með Eiríki
Jónssyni. 12.10 Jón Axel Ólafsson
og Valdís Gunnarsdóttir. 16.05
Erla Friðgeirsdóttir. 19.00 Gull-
molar. 20.00 Laugardagskvöld.
3.00 Næturvaktin.
Fréttir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30.
BYLGJAN, ÍSAFIRDI
FM 97,9
9.00 Samtengt Bylgjunni FM 98,9.
20.00 Tveir tæpir. Víðir Arnarson
og Rúnar Rafnsson. 23.00 Gunnar
Atli með næturvakt. Síminn í hljóð-
stofu 93-6211. 2.00 Samtengt
Bylgjunni FM 98.9.
BR0SIÐ
FM 96,7
10.00 Jón Gröndal. 13.00 Léttur
laugardagur. 17.00 Ókynntir tón-
ar. 23.00 Næturvaktin.
FNI 957
FM 95,7
9.00 Ragnar Páll Ólafsson í morg-
unsárið. 13.00 Fló á skinni. Helga
Sigrún. 16.00 Lopapeysan. Isl. tón-
list. Axel Axelsson. 19.00 Björn
Markús. 23.00 Mixið. Ókynnt tón-
list. 1.00 Pétur Rúnar Guðnason.
4.00 Næturvaktin.
LINDIN
FM 102,9
8.00 Morguntónar. 11.00 Á laugar-
dagsmorgni. 13.00 Ókynnt tónlist.
16.00 íslenski kristilegi listinn
(endurfluttur). 18.00 Ókynnt tón-
list. 20.00 Laugardags vaktin.
23.00 Næturvaktin.
SÍGILT-FNl
FM 94,3
8.00 Ljúfir tónar. 12.00 Á létturq
nótum. 17.00 Ljúfirtónar á . 20.00
í þá gömlu góðu. 24.00 Næturtón-
ar.
TOP-BYLGJAN
FM 100,9
7.00 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM
98,9. 10.00 Svæðisútvarp TOP-
Bylgjan. 11.00 Samtengt Bylgj-
unni FM 98,9.
X-ID
FM 97,7
10.00 Örvar Geir og Þórður Örn.
13.00 Árni Þór. 15.00 X-Dómínós-
listinn. 17.00Þossi. 19.00 Kristján
og Helgi. 22.00 Næturvakt.3.00
Næturdagskrá.