Morgunblaðið - 27.06.1995, Page 15

Morgunblaðið - 27.06.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ1995 C 15 Morgunblaðið/Þorkell ÞAÐ VERÐUR æ algengara, að fólk Iáti innrétta þvottaherbergi sérstaklega. Þetta þvottahús er framhald af eldhúsi og hinn sterki, blái litur er ráðandi Iitur alls staðar i húsinu, eins og myndin af eldhúsinu hér fyrir neðan ber með sér. i I i1 : m 0 — j _ ef teiknuð eru lítil þvottaherbergi í hús. Fó!k vill geta hengt upp þvott- inn sinn, þótt það hafi þurrkara. Nú biður fólk um síma inn í þvotta- hús og jafnvel sjónvarp. Það vill geta fylgst með fréttum og fleiru meðan það straujar. Gangar eru sóun á rými Ef ég fæ það verkefni að skipu- leggja hús frá grunni þá reyni ég að taka sem flesta ganga af. Mér finnast gangar sóun á plássi, vera dýrir fermetrar. Þetta getur verið erfítt stundum og ég þarf jafnvel að margteikna skipulagið áður en viðunandi lausn fæst. Ef fólk óskar hins vegar eftir sér svefnherbergis- álmu þá getur verið erfitt að kom- ast hjá því að hafa ganga. Stigar og stigahandrið eru verk- efni sem gjaman er leitað til innan- hússhönnuða með. Stigar em mjög margvíslegir. Þeir geta verið steypt- ir, úr járni eða úr timbri. Mér finnst það skipta mestu máli að stigar séu ömggir, þannig að börn geti ekki farið sér að voða í stigunum. Það er hægt að teikna óskaplega glæsileg stigahandrið en mörg þeirra geta verið hættuleg hvað böm snertir. Góður stigi þarf að vera með góðu uppstigi og framstigi. Við hann þarf að vera gott handrið sem hægt er að halda sér í. Efnin sem em á stig- anum mega helst ekki vera hál, en oft getur verið erfitt að komast hjá því. Tískusveiflur em miklar í stig- um, einkum hvað snertir handrið. Gólfefni hafa tekið miklum breyt- ingum á síðustu áratugum. Einu sinni vom dúkamir allsráðandi en hurfu að miklu leyti um tíma en em að koma aftur. Það er til ótrúlega mikið úrval af fallegum linole- umdúkum. Það þarf að vera gott undirlag undir dúka og fá fagmann til að leggja þá. Miklu fleiri geta lagt parkett. Parkett er mjög al- gengt efni á gólf í dag. Inn á milli vill fólk flísar, en þær hafa ekki komist með „tærnar“ þar sem park- etið hefur „hælana“. Einstöku sinn- um er beðið um teppi en það er mjög lítið um það hjá þeim sem leita til mín. Mistök eru dýr Sumir halda að það sé mjög dýrt að leita til innanhússhönnuða. Auð- vitað kostar allt peninga en þeim fer fjölgandi sem vilja heldur fá aðstoð í upphafi og sneiða hjá mis- tökum heldur en þurfa að borga seinna fyrir að endurbæta það sem aflaga hefur farið vegna vanþekk- ingar. Margir tala líka um að svona aðstoð spari tíma og hlaup. — Ráð mitt til þeirra sem standa andspænis því að innrétta ný og gömul hús er að flana ekki að neinu, heldur athuga vel sinn gang, segir Edda Ríkharðsdóttir innanhússarki- tekt að lokum. — Ef um er að ræða flókin verkefni borgar sig að leita eftir aðstoð. Stundum er hringt í mig og ég beðin að finn lausn á tilteknum skipulagsatriðum, jafnvel mjög smáum, þótt fólk láti ekki sérteikna innréttingar fyrir sig. Aðstoð innanhússhönnuða getur því verið mjög margvísleg. Morgunblaðið/Þorkell LÖGMANNSSTOFA í Kópavogi, sem Edda Ríkharðsdótir hann- aði. Sterkir litir og glerveggir setja svip á umhverfið. BORGAREIGN Fasteignasala Suðfirlandsbraut 14 © 5 888 222 Skoðunargjald innifalið i söluþóknun FELAG í^/ FASTEIGNASALA K jartun Kagnars. hæslarcllarlögmaOur, lögg. lasleignasali. Karl (iunnarsson. sölusljóri, hs. 670499. Einbýli - raðhús Góöur valkostur fyrir eldri borgara Vorum að fá i böIu ca 60 fm raðh. v. Boðahlein 27 í Hafn. (v. Hrafn- istu). Laust strax. Verð 7,3 millj. Suðurhliöar — Rvík. Vorum að fá i sölu glaesil. íb./sérhæð á tveímur hæðum ca t80 fm. Góðar stofur, 3-4 svefnharb., suðursv. 25 fm btlsk. Mjög vönduð eign. Verð 12,9 millj. Skeiðarvogur. Endaraöh. á tveimur hæðum ca 130 fm. Á neðri hæð eru góöar stofur, gestasn. og eldh. Suðursv. Á efri hæð 3 góð svefnherb. og baðherb. Fallegur garður. Verð 10,9 millj. Furubyggð — Mos. Vandað oa 140 fm parh. ásamt góðum 27 fm bflsk. Áhv. 5-6 millj. Verð 12,9 mlllj. Grafarvogur — í smíðum Hrísrlmi Parhús á tveimur hæðum við Hrísrima, tilb. u. tróv. Verð 10,9 millj. Laufrimi Parhús á einni hæð ca 140 fm við Lauf- rima. Afh. fullb. að utan, málað og búið að ganga frá lóð, fokh. að innan. Verð 7,7 millj. Hæðir Bústaðahverfi — lækkað verð. Vorum að fá ( sölu fallega neðri hæð i þrib. v. Básenda. (b. skipt- ist m.a. í ágæta stofu og 3 svefn- herb. Fallegur garður. Fráb. staður. Verð 7,7 mlllj. Áhv. 3,2 millj. byggsj. Hjallavegur. Glæsil. hæð ásamt 38 fm bílsk. Hæðin skiptist m.a. í stofu og 3 herb. Allt nýtt m.a. nýjar innr., gólfefni, lagn- Ir o.fl. Glæsil. eign. Áhv. ca 5,1 millj. Verð 9,5 mlllj. Hátröð - neðri hæð i tvib. ca 95 fm. Stór bílsk. ca 92 fm. Fallegur garður. Áhv, ca 1500 þús. Verð 8,5 millj. Logafold. Ca 100 fm neðri sér- hæð í tvlb. 2-3 svefnherb., göðar stof- ur. Suðurgarður. Áhv. byggsj. tll 40 ára ce 4,6 miilj. Verð 9,7 millj. Rauðalækur svefnherb., góðar stofur. Suðursv. Góð og míkið endurn. eign, m.a. nýl. gler og járn á þaki. Parket. Verð 9,4 millj. Skipasund. Ca 100 fm hæð ásamt bílsk. Verð 9,5 millj. Hringbraut, Rvík. Falleg ca 80 fm sérhæð. Verð 7,4 millj. Hofteigur 28, Rvík. Góð ca 114 fm ib. á 1. hæð. Góð stofa. 3 herb. Suð- ursv. Áhv. ca 3,7 millj. Verð 8,6 millj. Álfheimar. Til sölu sérlega glæsil. sérhæð (miðhæðin) ca 170 fm sem skiptist m.a. í góðar stofur, 3-4 svefnherb. og 35 fm bilsk. V. 13,5 m. 4ra herb. Grandavegur, Rvik. Vorum að fé í einkasölu fallega ca 105 fm 4ra herb. ib. é 2. hæð í lyftuhúsi. M.a. góð stofa og sjónvstofa. Suð- ursv. Parket. Pvhús í fb. Áhv. byggsj. 5 mlllj. til 40 ára. V. 9,9 m. Veghús. 5-6 herb. ib. á tveimur hæðum ca 140fm.Áhv.ca6,1 millj. Verð 8,9 millj. Hvassaleiti. 100 fm íb. á 3. hæð ásamt bilsk. Verð 8,9 millj. Kleppsvegur. Sem ný 4ra herb. íb. Verð 6,8 millj. Álfheimar — Rvík. Ca 100 fm íb. á 3. hæð. Laus strax. Verð 7,3 millj. Breiðvangur — Hf. Góð ca 110 fm endaib. Góð stofa, suðvestursv. Gott út- sýni. 3 góð svefnh. Sérþvottah. í íb. Verð 7.8 millj. Háaleitisbraut. Góð ca 110 fm ib. + biisk. Verð 8,3 millj. Blikahólar. 4ra herb. ib. í lyftuhúsi. Verð aðeins 6,5 millj. Holtsgata. 4ra herb. ca 95 fm íb. Verð ca 7,3 milij. Frostafold. 5 herb. með bílsk. Verö 9.9 millj. Suðurhliðar — Kóp. Vorum að fa i sölu glæsíl. 3ja herb. ca 90 fm ib. á 2. hæð ásamt 22 fm bflsk. Áhv, byggsj. lan til 40 ára 5,0 millj. Verð 9,1 mlllj. Efstihjalli — Kóp. Góð ca 80 fm ib. á 1. hæð í tveggja hæða fjölb. Góð stofa. Suðursv. Gott ástand á sameign og húsi. Verð 6,6 millj. Ástún — Kóp. Falieg ca 75 fm ib. á 3. hæð. Gott útsýni. Laus strax. Verð 6,5 mlllj. Hjallabraut, Hf. Góð ca 90 fm íb. á 3. hæð. Suðursv. Glæsíl. útsýnl yfir höfnina. Áhv. 4,5 mlllj. Verð 6,5 miilj. Álftamýri. Góð ca 70 fm endaib. á 3. hæð. Verð 6,5 millj. Hamraborg. Tvær 3ja herb. íbúðir. Verð frá 5,9 millj. 2ja herb. Neðstaleiti. Vorum að fá í sölu ca 72 fm endaíb. á 1. hæð. Sérsuðurgarður. Bílskýli. Verð 7,5 millj. Nýbýlavegur Vorum að fá góða 2ja herb. íb. á 2. hæð ásamt bílsk. Verð 6,5 millj. Suðurhlíðar — Kóp. Séri. glæsil. ca 60 fm íb. á 1. hæð í nýl. fjölb. við Trönuhjalla. Áhv. 4,5 mlllj. Verð 6,5 millj. Rofabær. Góð 2ja herb. ib. á 2. hæð. Áhv. góð lán ca 2,6 millj. Verð 4,9 miiij. Vantar 2ja—3ja herb. ibúðir á skrá. Góð eftirspurn. Furugrund, Kóp. Góð ca 70 fm íb. á 1. hæð. Gott skipul. íb. fylgir aukaherb. í kj. Leigutekjur af herb. 15 þús. á mán. Verð 6,0 millj. Sléttahraun 27 — Hf. Góð 2ja herb. íb. á 1. hæð. Suðursv. Laus strax. Verð 5,1 millj. Þangbakki. Til sölu 2ja herb. ca 63 fm íb. Verð 5,7 millj. Vesturbær. Snotur 2ja herb. risíb. við Nesveg 66. Verð 4,2 m. Miðbær - Rvík. Einstaklíb. við Snórrabraut 48,1. hæð. Verð 2,7 m. Laus. Hamraborg. Góð 2ja herb. íb. í lyftu- húsi. Verð 4,9 millj. Efstihjalli — enginn hússjóð- ur. Sérl. góð 2ja herb. ca 70 fm íb. á 2. hæð. Mikið útsýni. Vönduð eign. V. 6,2 m. Bústaðahverfi Vorum að fá í sölu ca 55 fm 2ja herb. íb. Sérinng. Suðurgarður. Er ekki kominn tími til aó vió seljum fyrir þig? Vantar allar geróir eigna á skrá Gotl einbýlishús við Bjargartanga meiri eftir einbýlishúsum með 2ja íbúða möguleika, annað hvort með HÚSIÐ er á tveimur hæðum, um 245 ferm. Innbyggður bílskúr fylgir. Húsið er til sölu hjá fasteignasölunni Gimli. TÖLUVERT framboð er á góðum einbýlishúsum. Fasteignasalan Gimli auglýsir nú glæsilegt einbýlishús við Bjargart- anga í Mosafellsbæ. Húsið er á tveimur hæðum, um 245 ferm. alls og með möguleika á séríbúð á neðri hæð. Innbyggður bílskúr fylgir húsinu. Ásett verð er 16,4 millj. kr. — Það hefur verið þó nokkur hreyfing á stærri húseignum hjá okkur að undanförnu. í þessum mán- uði höfum við selt fjögur einbýlishús, þar á meðal eitt í Stekkjahverfí og tvö á Seltjarnarnesi á bilinu 15-20 millj. kr., sagði Ólafur Blöndal, sölustjóri hjá Gimli. — Eftirspumin er alltaf útleigu fyrir augum eða þá að fjöl- skylda vill kaupa saman, t.d. for- eldrar með bömum sínum. Ólafur kvaðst gera ráð fyrir, að sala á stærri eignuni færi vax- andi með vaxandi lána- möguleikum. — Verðbréfyf- irtækið Handsal hefur nú auglýst lán til allt að 25 ára, sagði hann. — Þetta er sami lánstími og á húsbréf- unum. Hámark á húsbréfa- lánum er aðeins 5,4 millj. kr. nú, hvort sem keypt er 8 millj. kr. íbúð eða einbýlis- hús á bilinu 20-25 millj. kr. Það má því vera ljóst, að húsbréfalán duga skammt við kaup á stóru eignunum. Nú skapast möguleiki á lánum til viðbótar og þessi nýja lánafyrirgreiðsla ætti því að verða til þess að auka möguleika á sölu stærri eignanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.