Morgunblaðið - 04.07.1995, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4.JÚLÍ 1995 C 5
KÖRFUKIMATTLEIKUR
Sigurmerkið á lofti!
JÚGÓSLAVAR fagna ógurlega eftir aö sigurinn var í höfn. í Serbíu nota menn þrjá flngur sem
merki fyrir sigur eins og sjá má, en þetta er sama merki og dómarar nota í körfuknattleik
þegar leikmaður hefur skorað þriggja stiga körfu.
Júgóslavar urðu
Evrópumeistarar
JÚGÓSLAVAR urðu á sunnu-
daginn Evrópumeistarar í
körfuknattleik er þeir sigruðu
Litháa 96:90 í æsispennandi
úrslitaleik, þar sem litlu mun-
aði að allt syði uppúr á loka-
mínútunum er Litháar ætluðu
að neita að fara inná völlinn til
að mótmæla dómgæslunni
sem þeirtöldu halla mjög á
sig. Króatar urðu í þriðja sæti,
unnu Grikki 73:68.
Þegar tvær mínútur voru til loka
var staðan 89:83 og dæmt var
tæknivíti á varamannabekk Litháens
fyrir að mótmæla hinum bandaríska
dómara. í kjölfarið ákváðu leikmenn
að yfirgefa völlinn og hætta leik.
„Ég tel að þetta hafi verið rétt
ákvörðun hjá okkur, en okkur var
sagt að við yrðum að greiða háa
sekt [rúmar þtjár milljónir króna]
ef við kláruðum ekki leikinn. Við
vorum ekki nógu kjarkmiklir til að
standa vð ákvörðun okkar þrátt fyr-
ir að Sabonis byðist til að borga
sektina," sagði Vladas Garastas
þjálfari Litháa eftir leikinn. „Júgó-
slavar voru á grænu ljósi allan leik-
inn. Þeir áttu að verða Evrópumeist-
arar. Þetta er bara pólitík,“ bætti
hann við.
Litháar voru mjög ósáttir við dóm-
gæsluna, sérstaklega var hinn
bandaríski dómari, George Toliver,
þeim óvilhallur að þeirra mati.
„Hann var hræðilegur," sagði Ga-
rastas og Dusan Ivkovic þjálfari
Júgóslava var ekki heldur ánægður
með dómarann. „Ég er ekki heldur
ánægður með dómgæsluna. En það
sem gerði útslagið var að okkur tókst
að halda Sabonis og Marciulionis
niðri. Tvö bestu liðin áttust hér við,
á því er ekki nokkur vafi. Við höfð-
um áhorfendur á móti okkur vegna
þess að við unnum Grikki í undanúr-
slitunum, en leikmenn mínir létu það
ekki á sig fá,“ sagði Ivkovie sem var
einnig þjálfari Júgóslava þegar þeir
urðu heimsmeistarar árið 1990 og
Ev.rópumeistarar ári síðar.
Tuttugu þúsund Grikkir létu vel
í sér heyra allan leikinn og þeir voru
allir sem einn á bandi Litháa, en
Júgóslövum tókst engu að síður að
leika vel og höfðu yfir er tvær mínút-
ur voru eftir. Svo virtist sem ekki
yrði leikið meira en eftir fortölur
leikmanna Júgóslavíu komu Lithá-
arnir aftur inná og luku leiknum.
Litháinn Sarunas Marciulionis
leikmaður Seattle SuperSonics var
Reuter
Sigurinn tryggður
PREDRAG Danilovic frá Júgóslavíu lék vel í úrslitaleiknum
og hér fer hann alls óhræddur upp í skot á móti þremur
varnarmönnum Litháa. Um tíma var útlit fyrir aö Litháar
myndu ekki leika síöustu tvær mínúturnar en þá voru þeir
búnir aö fá sig fullsadda af bandarískum dómara sem þeir
töldu dæma eins og æðstu menn FIBA óskuöu — Júgóslavar
ættu að sigra hvaö sem það kostaði. En um síðir létu leik-
menn Litháens til leiðast.
valinn besti maður mótsins og hann
gerði þriggja stiga körfu um leið og
leikurinn hófst á ný og minnkaði
muninn í 91:86 en bestu menn Júgó-
slavíu, þeir Aleksandar Djordejevic
og Predrag Danilovic settu niður
vítaskot og tryggðu sigur Júgóslava.
Ungur bakvörður í liði Júgóslava,
Dejan Bodiroga átti einnig mjög
góðan leik en Vlade Divac gerði
aðeins 5 stig í leiknum en lék vel í
vörninni. Litháar tóku 25 varnarfrá-
köst en Júgóslavar 23.
Ahorfendur ekki sáttir
við nýja Evrópumeistara
Fyrirfram
ákveðið!
Þetta var ákveðið fyrirfram," r— .....
kölluðu 20 þúsund áhorfend-
ur í íþróttahöllinni í Aþenu þegar
Júgóslavar tóku við bikarnum fyrir
Evrópumeistaratitilinn í körfu-
knattleik. En það voru fleiri en
áhorfendur og leikmenn Litháen
sem sökuðu Bandaríkjamanninn
George Toliver, annan dómara
leiksins, fyrir að hafa dæmt eftir
pöntun æðstu manna Alþjóðak-
örfuknattleikssambandsins, FIBA.
„Sigurinn var hreinlega tekinn
af Litháum, sem voru með besta
liðið hér og áttu skilið að sigra,“
sagði Costas Politis fyrrum lands-
liðsþjálfari Grikkja eftir leikinn.
„Svo virðist sem þrýstingur frá
Serbum hafi orðið til þess að
ákveðið var fyrir keppnina hvaða
lið ætti að sigra,“ sagði hann.
„Krúnan er leikaraskapur" stóð
í stórri forsíðufyrirsögn í Sportime,
stærsta íþróttablaði Grikklands og
undirfyrirsögnin var: „Júgóslavía
vann Litháen 96:90 í „svartasta“
úrslitaleik sögunnar".
Sarunas Marciulionis, besti
maður mótsins sagði eftir keppn-
ina: „Við erum ekki brúður, við
erum körfuknattleiksmenn og það
er dapurlegt að geta ekki haft
áhrif á hvernig leikurinn þróast,
sama hversu vel menn leika.
Körfuknattleikur í Evrópu hefur
náð botninum, þetta er bara pólí-
tík.“
Borislav Stankovic, fram-
kvæmdastjóri FIBA, sem er frá
Júgóslavíu, slapp ekki heldur við
gagnrýni. „Ef FIBA og hinn sterki
maður í körfuknattleiknum
[Stankovic] vildu endilega að Júgó-
slavía yrði Evrópumeistari hefðu
þeir getað gert það án þess að
láta alla leggja svona mikið á sig
Óhress
ARVYDAS Sabonis var
óhress með bandaríska
dómarann og lét það í Ijós.
í hálfan mánuð,“ sagði í grein
Sportime. Stankovic, sem barðist
af krafti fyrir þvl að Sameinuðu
þjóðirnar afléttu íþróttabanninu af
Júgóslavíu, var ekki viðstaddur
verðlaunaafhendinguna.