Morgunblaðið - 06.07.1995, Page 2
2 B FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
_______________________VIÐSKIPTI
Ávöxtunarkrafa hús-
bréfa hækkar
Líkur á auknu framboði skuldabréfa fyrirtækja og sveitarfélaga í ár
Morgunblaðið/Jón Svavarsson.
Fjölhæfar litljós-
' ritunarvélar
LANDSBRÉF hækkuðu í gær
ávöxtunarkröfu í nýjustu flokka
spariskírteina um 0,04% eða úr
5,95% í 5,99%. Þetta er fyrsta breyt-
ingin frá því 4. apríl sl.
Óttar Guðjónsson, hagfræðingur
hjá Landsbréfum, segir að rekja
megi þessa hækkun að nokkru til
aukins framboðs verðtryggðra
skuldabréfa að undanförnu. Þannig
hafi Stofnlánadeild landbúnaðarins
boðið út ríkistryggð skuldabréf að
fjárhæð 600 milljónir til 15 og 25
ára miðað við 6% raunávöxtun.
Jafnframt liggi fyrir sölutilboð í 600
milljónir króna af húsbréfum á
Verðbréfaþingi miðað við 5,97%
ávöxtunarkröfu, en væntanlega sé
Seðlabankinn þar á ferð.
Að sögn Óttars hafa lífeyrissjóð-
TÖLUVERÐ lækkun varð á meðal-
ávöxtun samþykktra tilboða í útboði
á 3ja, 6 og 12 mánaða ríkisvíxlum
sem lauk í gær. Að sögn Péturs
Kristinssonar, framkvæmdastjóra
Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa,
staðfestir vaxtalækkunin þá þróun
sem hefur átt sér stað á Verðbréfa-
þingi undanfarið.
Alis bárust 56 gild tilboð í ríkis-
víxlana, samtals að fjárhæð 5.841
milljónir króna. Heildaríjárhæð tek-
imir á sama tíma verið að þreifa
fyrir sér með erlendar ijárfestingar
auk þess að ijárfesta í innlendum
veðskuldabréfum.
Aukin ásókn í húsbréf í haust
Landsbréf hafa spáð því að tölu-
vert framboð af skuldabréfum fyrir-
tækja og sveitarfélaga verði á verð-
bréfamarkaði á næstu mánuðum. I
nýútkomnu fréttabréfi fyrirtækisins
fyrir lífeyrissjóði er bent á 300 millj-
óna króna skuldabréfaútgáfu Eim-
skips sem þegar hefur verið sett á
markað. Vitað sé um fyrirætlanir
fleiri sterkra útgefenda um skulda-
bréfaútgáfu.
Þá er bent á að óvissu um láns-
tíma í húsbréfakerfínu verði vænt-
anlega eytt nú á haustmánuðum,
inna tilboða er 4.128 milljónir króna
og þar af enj 1.297 milljónir frá
Seðlabanka Islands á meðalverði
samþykktra tilboða.
Heildarupphæð samþykktra til-
boða í þriggja mánaða ríkisvíxla var
3.930 milljónir króna og meðalávöxt-
un var 6,89%. í lok maí sl. var meðal-
ávöxtunin 7,13%.
Samþykkt tilboð í 6 mánaða rík-
isvíxla voru samtals 1.150 milljónir
og meðalávöxtun 7,36%. Við síðustu
en við það megi ætla að eftirspum
einstaklinga eftir húsbréfalánum
taki aftur að aukast. Talið er að
allstór hópur einstaklinga haldi að
sér höndum á fasteignamarkaði í
þeirri von að þá verði hægt að sækja
um 40 ára húsbréfalán.
Þar að auki þykir Landsbréfum
trúlegt að ríkissjóður verði að beina
töluverðum hluta af lántökum sínum
á innlendan markað á síðari hluta
ársins, ef marka megi ummæli ráð-
herra.
Að öllu samanlögðu telja Lands-
bréf að leiða megi líkur að því að
framboð verðtfyggðra skuldabréfa
sé nægilegt á markaði, nú sem
stendur og næstu mánuði, til að
ekki verði þar um vaxtalækkun að
ræða að öðru óbreyttu.
viðskipti, í lok maí, var meðalávöxt-
unin 7,55%. Að lokum voru sam-
þykkt tilboð í 12 mánaða ríkisvíxla
samtals að fjárhæð 761 milljón.
Meðalávöxtunin var 7,90% sam-
anborið við 8,20% í lok maí.
„Þetta er staðfesting á þeirri lækk-
un sem hefur átt sér stað á Verð-
bréfaþingi undanfarið. Tvennt kemur
til, aukin trú manna á stöðugleika
hér innanlands og vaxtalækkanir
erlendis," sagði Pétur.
OPTÍMA í Ármúla hélt fyrir
skömmu námskeið í litlj'ósritun
fyrir eigendur litUósritunarvéla.
Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu á
slíkum vélum og þjónustuvörum
fyrir þær. Nú nýlega fékk Op-
tíma einkaumboð fyrir þýska fyr-
irtækið The Magic Touch en það
sinnir þjónustu og sölu á rekstr-
arvörum fyrir litljósritunarvélar
og sérhæfir sig í að flytja lit-
myndir á slétta fleti með ljósrit-
unartækni. Theresa M. Brisch,
sölustjóri The Magic Touch var
fyrirlesari á námskeiðinu en hún
heldur því fram að með hjálp lit-
ljósritunartækni sé hægt að
koma litmyndum á alla slétta
fleti
Björgvin Ragnarsson, sölu-
sljóri Optíma, telur að um 55 Iit-
ljósritunarvélar séu nú til á Is-
landi og að flestar þeirra séu
notaðar á ljósritunar- eða ljós-
myndastofum. „Nú eru þær aðal-
lega notaðar til að koma litmynd-
um á pappír eða boli. Vélarnar
búa þó yfir miklu fleiri möguleik-
um en margur ímyndar sér og á
námskeiðinu var sýnt hvernig
nota má þessa tækni til að koma
litmyndum á útiskilti, bolla,
málm, gler, plastpoka og kerti
svo eitthvað sé nefnt. Helsti kost-
urinn við litljósritun er hve hún
er einföld og fljótleg. Til dæmis
eru nú mörg fyrirtæki að upp-
götva að það er miklu ódýrara
og fljótlegra að koma vörumerki
eða mynd á ákveðinn hlut með
litljósritun en mörgum öðrum
aðferðum," segir Björgvin. Á
myndinni eru frá vinstri: Jón
Georgsson frá Pedromyndum á
Akureyri, Albert Már Stein-
grimsson frá Filmum og fram-
köllun í Hafnarfirði og Theresa
M. Brisch.
Vextir 3ja mánaða ríkis-
víxla úr 7,13% Í6,89%
Innflutningur notaðra ökutækja
Reglum um ákvörð■
un tollverðs breytt
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkur
*
Avöxtun með því
lakasta sem þekkist
NÝJAR reglur hafa tekið gildi um
ákvörðun tollverðs notaðra öku-
tækja en það er liður í að fram-
fylgja skuldbindingum íslendinga
samkvæmt GATT-samningnum.
Fjármálaráðherra hefur sett reglu-
gerð um tollverð og ákvörðun þess
sem nær til allra innfluttra vöru-
tegunda.
Með gildistöku laga um breyt-
ingar á lögum vegna aðildar ís-
lands að alþjóðaviðskiptastofnun-
inni fellur úr gildi heimild í tolla-
lögum til að láta sérstakar reglur
gilda um tollverð notaðra bifreiða.
Indriði H. Þorláksson skrif-
stofustjóri í fjármálaráðuneytinu
sagði að í gömlu reglunum hafi
tollverð notaðra bifreiða verið
ákvarðað annars vegar miðað við
nývirði nýjustu árgerðar sömu bif-
reiðar og sérstakar afskriftareglur
vegna aldurs bifreiða hins vegar.
Upplýsingar um nývirði hafi ís-
lensk bifreiðaumboð veitt.
Vörureikningur lagður til
grundvallar tollverði
í nýju reglugerðinni gildir sú
regla um notaðar bifreiðar eins
og aðrar vörur að vörureikningur
er lagður til grundvallar tollverð-
inu. I henni eru þó einnig veittar
heimildir til að vísa vörureikningn-
um til hliðar ef ástæða er til að
ætla að hann sýni ekki raunveru-
legt viðskiptaverð.
Sérstakar reglur kveða þá á um
hvernjg staðið skuli að ákvörðun
tollverðsins en í stórum dráttum
er verð sömu eða sambærilegrar
vöru haft til hliðsjónar. Megin-
markmiðið er að komast eins ná-
lægt raunverulegu viðskiptaverði
og hægt er.
Ef allt um þrýtur segir Indriði
að notast megi við þá reglu að
áætla líklegt fob-verð á nýrri bif-
reið og síðan að afskrifa hana eft-
ir sömu afskriftareglu og áður.
Hann taldi líklegt að mikið reyndi
á þessa reglu sérstaklega þegar
um værri að ræða aðila sem flyttu
inn bíla sem þeir hefðu átt og
notað erlendis í mörg ár. í þeim
tilvikum sé ekkert kaupverð til að
miða tollverð við.
Til að koma í veg fyrir misnotk-
un á reglunum munu íslensk toll-
yfirvöld bera verð á innfluttu öku-
tæki samkvæmt aðflutnings-
skýrslu saman við viðmiðunarverð
á ökutækjum af sömu tegund og
árgerð í því landi sem ökutækið
var keypt.
Gæti leitt til
verðlækkunar
Indriði sagði að gamla reglu-
gerðin um ákvörðun tollverðs hafi
verið gagnrýnd af innflytjendum
notaða bíla fyrir þá sök að nývirði
bíla hafi verið ofmetið. Afskrifta-
reglumar hafi aftur á móti þótt
bærilegar.
„Gagnrýnin beindist einkum að
því að miða tollverð við söluverð
nýrra bifreiða sem umboðin gefa
upp,“ sagði Indriði. „Ef það reyn-
ist rétt að nývirði bifreiða hafi
verið ofmetið með þessum hætti
munu breytingarnar líklega leiða
til einhverrar lækkunar á verði
notaðra bíla.“
Stækkun
kartöflu-
verksmiðju
Hellu. Morgunblaðió
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við
600 fm viðbyggingu Kartöfluverk-
smiðjunnar í Þykkvabæ.
Að sögn verksmiðjustjórans,
Auðuns Gunnarssonar, var þörf á
auknu rými eftir að verksmiðjan
hóf framleiðslu á nasli sem var
áður framleitt á hennar vegum í
Hafnarfirði. Oll framleiðslan
franskar, skifur, forsoðnar kart-
öflur auk naslsius og fl. tegunda
er nú í Þykkvabænum, en i sumar
er einmitt verið að markaðssetja
þrjár uýjar tegundir af nasli.
Eftir stækkun hefur verksmiðj-
an til umráða 1.700 fm en starfs-
menn hennar eru tíu. Dreifingar-
stöð og skrifstofa fyrirtækisins er
í Garðabæ þar sem starfsmenn eru
sjö, en framkvæmdastjóri Kart-
öfluverksmiðjunnar er Friðrik
Magnússon.
Nýja viðbyggingin er frá Lím-
tré hf. á Flúðum og Yleiningum.
BORGARENDURSKOÐUN gagn-
rýnir í nýútkominni endurskoðunar-
skýrslu sinni Lífeyrissjóð starfs-
manna Reykjavíkurborgar fyrir
slaka ávöxtun eigna. Bent er á að
raunávöxtun sjóðsins hafi verið með
því lakasta sem gerist hjá lífeyris-
sjóðum í landinu eða einungis 4,87%
árið 1993. Með sömu reikningsskila-
aðferð fyrir árið 1994 hefði sam-
bærileg ávöxtun orðið 5,11%.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um
ávöxtun lífeyrissjóðsins á árinu
1994, en borgarendurskoðun telur
að ávöxtunin sé lakari én gerist hjá
lífeyrissjóðum þrátt fyrir nokkurn
bata. Breyting varð á reglum um
vexti af inneign sjóðsins hjá borgar-
sjóði á árinu og hækkuðu vextirnir
úr 0,5% í 5,5%.
Samkvæmt tryggingafræðilegri
úttekt á sjóðnum nema áfallnar líf-
eyrisskuldbindingar í árslok tæplega
13,2 milljörðum miðað við 2% vexti.
Hafa þær hækkað um 30% á síðustu
fjórum árum.
Hrein eign til greiðslu lífeyris nam
hins vegar tæplega 1,6 milljörðum
í árslok og hefur hækkað um 79,5%
á síðustu fjórum árum.
Samkvæmt þessu hefur nettó
skuldbinding, þ.e. áfallin skuldbind-
ing að frádreginni hreinni eign til
greiðslu lífeyris, hækkað um 25%.
Er raunhækkun nettó lífeyrisskuld-
bindingar sjóðsins rúmlega 10%.
Borgarendurskoðun bendir á að raun-
hækkunin samsvari 951 milljónum
en á árunum 1991-1994 hafí framlag
borgarsjóðs og borgarstofnana verið
768 milljónir. Framlagið hefði þurft
að vera u.þ.b. 124% hærra en það
var umrætt tímabil til að nettó lífeyr-
isskuldbindingin stæði í stað.