Morgunblaðið - 06.07.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1995 B 5.
Framleiöendur lýsis 1895
Áætluður hlutur hverrar þóðar
spurnir erlendis frá um harðfeiti.
Herslugeta verksmiðja í Evrópu
er því sem næst fullnýtt enda er
mikil spum eftir smjörlíki í Austur-
Evrópu. Nú eru helstu notendur
og framleiðendur á harðfeiti í Bret:
landi, Þýskalandi og Hollandi. í
Asíu er einnig allstór markaður
fýrir hert lýsi sem er notað til steik-
ingar og matargerðar. Ástæðan
er sú að í löndum eins og Ind-
landi, Pakistan og Bangladesh
mega sumir trúarhópar ekki nota
dýrafeiti til matargerðar. Þess
vegna nota þeir hertar jurta- og
fiskiolíur til áðurgreindra nota. Þá
er Mexíkó einnig dæmi um annan
stóran markað þar sem löng hefð
er fýrir harðfeitineyslu.“
Aukin fullvinnsla hráefnis
rétti tíminn til að snúa þessu við
og aðstæður em að mörgu leyti
heppilegar til að hefja markaðs-
sókn erlendis. Fyrst skal nefna að
við hjá Lýsi höfum áratuga þekk-
ingu og reynslu á viðfangsefninu
og höfum einungis beðið eftir hent-
ugu tækifæri til að hefja útflutn-
ing. Okkur berast sífellt fleiri fyrir-
Baldur segir að þetta útflutn-
ingsverkefni sé ekki síst athyglis-
vert í ljósi þeirra umræðna sem
hafi verið áberandi að undanförnu
um betri nýtingu afla og full-
vinnslu sjávarafurða. „Manni renn-
ur óneitanlega til rifja að horfa á
eftir stórum hluta lýsisins til er-
lendra hersluverksmiðja á hveiju
ári. Þá má einnig geta þess að hér
Gengur illa að finna
arðvænlega kosti
En hvaða tækifæri skyldu vera
fyrir Þróunarfélagið í óskráðum
og arðvænlegum hlutafélögum?
„Það verður að segjast eins og
er að Þróunarfélaginu hefur ekki
gengið of vel að finna arðvænlega
fjárfestingarkosti í þessum
óskráða hluta markaðsins. Það er
takmarkað framboð af góðum
fjárfestingarkostum á þeim mark-
aði. Öll góðu málin lenda ekki
endilega á okkar borði, t.d. ef
eignaraðilar hafa ekki áhuga á því
að fá utanaðkomandi íjárfesta og
vilja eiga fyrirtækin einir. Þá era
mörg af stóra fyrirtækjunum að
Q'árfesta í öðrum smærri fyrir-
tækjum, t.d. þeim sem tengjast
þeirra starfsemi þannig það er
einnig veruleg samkeppni um arð-
vænleg hlutabréf.
Sjávarútvegurinn er okkar
raunveralega stóriðja ásamt ýmis-
konar afsprengjum af því 'í sam-
bandi við veiðar og vinnslu. Við
höfum mörg ánægjuleg dæmi um
fyrirtæki í framleiðslu á búnaði
fyrir sjávarútveg eins og Marel
og Sæplast. Það er erfiðara að
benda á mörg dæmi í hugbúnaðar-
iðnaði um fyrirtæki sem hafa
gengið vel en þar held ég að tæki-
færin séu mörg. Mér sýnist eitt-
hvað lengra í land í líftækni. Þá
er ferðaþjónustan mjög vaxandi
grein. Við höfum litið í kringum
okkur á því sviði og raunar fjár-
fest líka. Við höfum velt því fyrir
okkur hvar raunveruleg tækifæri
fjárfesta liggja en segja má að
greinin skiptist í megindráttum í
þrennt, þ.e. flutninga, aðbúnað og
afþreyingu.“
Framkvæmdastjóri Draupnis-
sjóðsins hefur vakið athygli fyrir
skeleggan málflutning á aðalfund-
um og var Hreinn spurður hvort
þess væri að vænta að Þróunarfé-
lagið myndi veita slíkt aðhald í
framtíðinni.
„Ég held að þetta aðhald hafi
verið mjög mikilvægt fyrir
markaðinn, þ.e. að gerð sé krafa
um arðsemi og að stjómendur
hlutafélaga hugi betur að hluthöf-
unum sem eru í raun og vera eig-
endur fyrirtækjanna. Þróunarfé-
lagið hefur auðvitað veitt stjórn-
endum aðhald í smærri félögum
þar sem félagið á hlut og við
munum halda því á lofti að menn
gleymi ekki hagsmunum hluthaf-
anna. Aðalfundir fyrirtækjanna
eru vettvangur hluthafanna til að
tjá sig og láta álit sitt í ljós. Ég
á von á því að hluthafar almennt
muni láta meira heyra í sér, eftir
því sem hlutabréfaformið verður
algengara meðal almennings og
markaðurinn eflist."
ÖRUGG
HEILDARLAUSN
í RAFSUÐU OG LOGSUÐU.
itf
BETRI RAFSUÐU-
OG LOGSUÐUVÖRUR \
VPUDÐV
AlllVii m I
HÁGÆÐA RAFSUÐU VÉ LAR
Gastalin
BETRI HÐGERÐAR-
TÆKWILEG ÞJÓINIUSTA
0 isteBoal liffo
Nethyl 2 Ártúnsholti
Sími: 587-9100 Grænt nr: 800-6891
VIÐSKIPTI
er um orkufrekan iðnað að ræða.
Vetnið sem notað er til framleiðsl-
unnar er framleitt með rafgrein-
ingu sem er mjög orkufrekur ferill
þannig að ef dæmið gengur upp
mætti segja að Hydrol væri komið
í orkuútflutning."
Samstarfsaðila leitað
Lýsismenn hafa áhuga á að fá
önnur fyrirtæki til liðs við sig um
stofnun Hydrols og leita nú að
heppilegum samstarfsaðila.
„Áhætta vegna verðbreytinga er
mikil í lýsisframleiðslu og því telj-
um við heppilegt að fá lýsisfram-
leiðanda, einn eða fleiri, til liðs við
okkur um stofnun Hydrols. Með
slíku samstarfi yrði tryggt að Hyd-
rol hefði ávallt greiðan aðgang að
hráefni á góðum kjörum. Við léggj-
um hins vegar til tæki, hugvit og
sérþekkingu. Þannig gæti Hydrol
haldið þeirri yfirburðastöðu sem
það hefur hér innan lands og um
leið haslað sér völl á sviði útflutn-
ings. Sæmilegur tækjakostur er nú
þegar fyrir hendi og við stefnum
að því að nýta hann til fuílnustu
en jafnframt að halda föstum
kostnaði í lágmarki þannig að fyrir-
tækið verði vel undir það búið að
mæta verðsveiflum á markaðnum.
Áformað er að útflutningurinn hefj-
ist árið 1997 og verði orðinn að
minnsta kosti 2.000 tonn á ári um
aldamótin.
Alþjóðlegt samstarf
Auk þess að vera forstjóri Lýsis
gegnir Baldur formannsstöðu hjá
einni af fastanefndum Alþjóðasam-
bands fiskimjöls- og lýsisframleið-
enda. Hann segir að „lýsisheimur-
inn“ sé fremur lítill og lýsisfram-
leiðendur hvaðanæva að eigi gott
samstarf. „Þátttaka okkar í þessu
alþjóðasamstarfi er meðal annars
sá grannur sem byggt verður á_
þegar við tökumst á við útflutning-
inn af einurð og krafti,“ segir Bald-
ur. „Samstarfið gerir okkur kleift
að fylgjast með því hvað aðrir fram-
leiðendur eru að gera í hráefnisnýt-
ingu, gæðamálum, vöruþróun og
markaðssetningu svo eitthvað sé
nefnt og markmið okkar er síðan
að gera jafn vel eða betur. Á næst-
unni munum við væntanlega hefja
viðræður við stönduga'Mýsisfram-
leiðendur um að standa með okkur
að stofnun Hydrols. Um leið og það
gengur eftir mun fyrirtækið hefja
þá innrás á alþjóðamarkað sem
hefur verið í undirbúningi síðastlið-
in ár.
Innflutningur frá
Norður-Ameríku
Innflutningur frá Norður-Ameríku er í öruggum höndum hjá Eimskip. Goðafoss og
Skógafoss sigla nú á tveggja vikna fresti milli íslands og fimm hafna í Norður-
Ameríku. Innflutningshafnir okkar eru í Boston, New York og Norfolk í Bandaríkjunum,
Halifax í Kanada og St. John's á Nýfundnalandi.
í rúm áttatíu ár hafa Ameríkuskip Eimskips verið traustur hlekkur í viðskiptum íslands •
og Vesturheims. Hér eftir sem hingað til höfum við að leiðarljósi víðtæka og !
persónulega þjónustu í þína þágu. '•
„Hjá innflutningsdeild og skrifstofu
Eimskips í Norfolk og St. John's, býðst
þér fyrsta flokks þjónusta við innflutning
frá Norður-Amerfku.“
Eimskip býður viðskiptavinum upp á heildarlausnir í flutninga-
þjónustu, inn- og útflutning, vöruhúsaþjónustu, innanlands-
flutninga, framhaldsflutninga og forflutninga erlendis.
EIMSKIP
Sfmi 525 7000 • Fax 525 7179
Netfang: mottaka@eimskip.is