Morgunblaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 8
FRJALSIÞROTTIR Ivan Pedrosofrá Kúbu stökk 8,96 metra í langstökki í Sestriere Reuter Próflaus bfleigandi IVAN Pedroso frá Kúbu í metstökklnu í Sestrlere, tll hægrl, og broslr breltt eftlr aö hafa fenglð afhenta Ferrarl-blfrelölna glæsllegu sem heimsmetl fylgdl. Hann er reyndar próflaus en seglst ætla að læra til bílprófs hið snarastal Spuminga- merki við metstökkið Þróun heimsmetsins Heimsmetið í langstökki karla hefur þróast sem hér segir á þessari öld; lengd í metrum, nafn stök- kvara, þjóðerni og dagsetning metstökksins. 7,61 Peter O’Connor (Bretlandi).........5.8.1901 7,69 Edwin Gourdin (Bandaríkj.)..........23.7.21 7,76 Robert LeGendre (Bandaríkj.).........7.7.24 7.89 William DeHartHubbard (Bandar.) ...13.6.25 7,93 Sylvio Cator (Haiti).................9.9.28 7,98 Chuhei Nambu (Japan)...............27.10.31 8,13 Jesse Owens (Bandaríkj.)............25.5.35 8,21 Ralph Boston (Bandaríkj.)...........12.8.60 8,24 Boston..............................27.5.61 8,28 Boston..............................16.7.61 8,31 Igor Ter-Ovanesyan (Sovétríkj.).....10.6.62 8.34 Boston..............................12.9.64 8.35 Boston..............................29.5.65 8.90 Bob Beamon (Bandaríkj.)............18.10.68 8.95 Mike Powell (Bandaríkj.)............30.8.91 8.96 Ivan Pedroso (Kúbu).................29.7.95 ÍVAN Pedroso frá Kúbu stökk 8,96 metra í langstökki á móti í Sestri- ere á Ítalíu á laugardaginn. Þar með hafði hann bætt heimsmet Banda- ríkjamannsins Mike Powells um einn sentímetra, en hann stökk 8,95 á HM í Japan 1991 — sló þá metið sem menn reiknuðu með að aldrei yrði slegið; met Bándaríkjamannsins Bobs Beamons frá því á Ólympíuleik- unum 1968. Kúbumaðurinn hlaut að gjöf frá mótshöldunum í Sestriere glæsilega sportbifreið, að verðmæti rúmlega átta milljónir króna. Á sunnudaginn komu strax fram efa- semdarraddir um réttmæti heims- met Pedrosos. Talsverður vindur var meðan keppnin stóð yfir, en bent var á, á sunnudag, að starfsmaður hefði gengið fyrir vindmælinn í þann mund er Kúbumaðurinn stökk, þann- ig að hugsanlega hafi ekki mælst réttur vindhraði. „Mér þykir það leitt að hafa ekki stokkið niu metra í dag, en ég finn að ég það inni. Mér tókst að stökkva 9,03 metra á Ameríkuleikunum í mars, en var sagður hafa gert ógilt, sagði Pedroso, nýbakaður heimsmet- hafi, eftir keppnina á laugardag. „Þetta er æðislegt, þetta er fyrsti bíllinn sem ég eignast um ævina og það sem meira er ég hef ekki öku- skírteini, en nú ætla ég að fara að læra í einum hvelli,“ bætti hinn 22 ára gamli og sigurvegari á heims- meistaramótinu innanhúss árið 1993 við. Hann átti fyrir lengsta stökk ársins, 8,71 m, en því stökki náði hann á móti á Spáni í byijun júlí. „Á heimsmeistaramótinu í Gauta- borg fæ ég hörkukeppni, en geri mér vonir um að stökkva ekki skemur þar,“ bætti Pedroso. í Gauta- borg mætir hann m.a. fyrrum heimsmethafa Mike Powell sem hefur ekki náð að sýna sitt rétta andlit á stökkbrautunum í sumar og að ógleymdum Carli Lewis sem oft hefur náð sér vel á strik á stór- mótum. Ivan Pedroso varð fjórði í langstökkskeppni síðustu Ólympíuleika en lenti í meiðslum eftir heimsmeistaramótið inn- anhúss árið 1993 og gat ekki tekið þátt í HM í Stuttgart um sumarið. Þessi tuttugu og tveggja ára gamli Kúbumaður stökk fyrst yfir átta metra árið 1990 og hefur sótt mjög í sig veðrið á síðustu árum, sérstaklega eftir að hafa náð sér upp úr erfiðum meiðslum sem hijáðu hann árið 1993. Talsvert hvassviðri var á meðan keppnin fór fram á laugardaginn. Áður en Pedroso tókst að bæta heimsmetið í sjötta stökki hafði hann m.a. stökkið 8,89 m en vindur reynd- ist of mikill til þess að hann fengi stökkið dæmt gilt. Pedroso gerði sér ekki grein fyrir því fyrr en þulurinn á vellinum tilkynnti að um heimsmet væri að ræða hvað honum hafði tek- ist, en þá varð líka allt vitlaust. Hann dansaði og hoppaði um í miklum fögnuði. Strax komu fram efasemdir um að stökkið væri gilt, of mikill meðvindur hefði verið og starfsmaður vallarins hefði gengið fyrir vindmæl- inn á meðan stökkið var framkvæmt og mælingar fóru fram. En Pedroso sagði allt vera með felldu. „Ég beið bara eftir því að vindinn lægði og um leið og ég fann að hann var kom- inn niður fyrir leyfileg mörk, þá lét ég mig vaða og árangurinn var þessi, nýtt heimsmet." Lágskýjað var og skyggni slæmt meðan keppnin í Sestriere fór fram, þannig að vindmælirinn sást ekki á sjónvarpsmyndum. Hins vegar hefur komið í ljós að á myndbandstupptöku áhugamanns sést að maður í bláum jakka stendur mjög ná- lægt mælinum. Italska íþróttadagblað- ið Tuttosport hélt því fram á sunnudag að einhver hefði viljandi staðið fyrir vindmælinum, í flest skipti er Pedroso stökk. „Aðeins þegar Pedroso var um það bil að stökkva stillti ein- „hver í bláum jakka sér upp fáeinum sentímetrum fyr- ir fram vindmælinn,“ sagði blaðið. „Er hér um að ræða skemmdarverk, tilviljum eða fyrirfram ákveðið svindl?" spurði hið virta dagblað Corríere Della Sera. Dómarinn sem fylgdist með vindmæling- unni, Denis Morino, kvaðst hafa kvartað und- an því, við upphaf lang- stökkskeppninnar, að fólk væri ná- lægt vindmælinum, en sagðist ekki hafa tekið eftir því að neinn hefði staðið nálægt er Pedroso stökk. „Ég sá ekki þennan mann [í bláa jakkanum]. Ég einbeitti mér að vél- inni,“ sagði haft eftir honum í Gazz- etta Sportiva. „En mér virtist sem vindurinn væri ekki mjög mikill á þessu augnabliki [þegar Pedroso setti metið].“ Vindur hefur ætíð verið vandamál í Sestriere, sem er í 2.035 metra hæð yfir sjávarmáli. 1992 stökk Mike Powell til dæmis 8,99 metra en fékk árangurinn ekki skráðan vegna of mikils meðvinds. Paul Gascolgne Gascoigne í banastuði ENSKI landsliðsmaðuriim Paul Gascoigne lék frábærlega með Glasgow Rangers á fjög- urra liða móti á Ibrox, heima- velli Rangers, um helgina. Hann fér á kostum á laugar- dag er skosku meistaramir burstuðu rúmenska liðið Ste- aua Búkarest 4:0. Gascoigne skoraði eitt mark — potaði í netið úr markteignura — og skoraði þar með í fyrstu fímm leikjunum fyrir félagið. Á sunnudag sigraði Rangers svo italska félagið Sampdoria 2:0 i úrslitaleik mótsins og aftur lék Gascoigne ipjög vel, þó svo hann hafí ekki skorað. Gascoigne hefur átt í erfíð- leikum vegna meiðsla síðasta eitt og hálfa árið, en virðist nú búinn að ná sér. Hann er hins vegar ekki kominn í nægi- lega líkamlega æfíngu til að spila heilan leik á fullu og var skipt út af er 20 min. voru eftir i báðum leikjum helgar- innar — og var hylltur af eld- heitum Rangers-aðdáenduin, sem kunnu vel að meta fram- lag hans. Hill klúðrar og Schum- acher sigrar ÞJÓÐVERJINN Michael Schumacher vann þýska kapp- aksturinn á Hockenheim brautinni á sunnudaginn, fyrir framan 128.000 áhorfendur, sem flestir voru á hans bandi. Schumacher er nú með gott forskot í keppninni um heims- meistaratitilinn en Damon Hill, sem er næstur að stigum féll úr leik í öðrum hring keppn- innar. Ók útaf og á grindverk. „Þetta gerðist allt ipjög óvænt, afturendinn rann skyndiiega af stað í hraðri beygju. Afturbremsurnar læst- ust og ég fékk ekki við neitt ráðið. Ég kann enga skýringu áþessum útafakstri,” sagði Hill. Schumacher er með 21 stigsforskotáHiU. Schumacher hafði allt í hendi sér, eftir að HUI var dottinn úr leik, en það var helst Bretinn David Coulthard á WiUiams, sem veitti honum keppni. Schumacher varð hins- vegar sex sekúndum á uudan í mark, en Austurríkismaður- inn Gerhard Berger varð þriðji á Ferrari. Schumacher var í skýjunum eftir sigur á heima- velU. „Það er frábær tilfínning að vera fyrsti Þjóðveijinu, sem vinnur Formula 1 keppni á heimaveUi. þegar ég sá Hiil aka útaf, hugsaði ég með mér að þetta væri auðunnið, en Coulthard veitti mér harða keppni,“ sagði Schumacher.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.