Morgunblaðið - 01.08.1995, Qupperneq 8
FRJALSIÞROTTIR
Ivan Pedrosofrá Kúbu stökk 8,96
metra í langstökki í Sestriere
Reuter
Próflaus bfleigandi
IVAN Pedroso frá Kúbu í metstökklnu í Sestrlere, tll hægrl,
og broslr breltt eftlr aö hafa fenglð afhenta Ferrarl-blfrelölna
glæsllegu sem heimsmetl fylgdl. Hann er reyndar próflaus
en seglst ætla að læra til bílprófs hið snarastal
Spuminga-
merki við
metstökkið
Þróun heimsmetsins
Heimsmetið í langstökki karla hefur þróast sem hér
segir á þessari öld; lengd í metrum, nafn stök-
kvara, þjóðerni og dagsetning metstökksins.
7,61 Peter O’Connor (Bretlandi).........5.8.1901
7,69 Edwin Gourdin (Bandaríkj.)..........23.7.21
7,76 Robert LeGendre (Bandaríkj.).........7.7.24
7.89 William DeHartHubbard (Bandar.) ...13.6.25
7,93 Sylvio Cator (Haiti).................9.9.28
7,98 Chuhei Nambu (Japan)...............27.10.31
8,13 Jesse Owens (Bandaríkj.)............25.5.35
8,21 Ralph Boston (Bandaríkj.)...........12.8.60
8,24 Boston..............................27.5.61
8,28 Boston..............................16.7.61
8,31 Igor Ter-Ovanesyan (Sovétríkj.).....10.6.62
8.34 Boston..............................12.9.64
8.35 Boston..............................29.5.65
8.90 Bob Beamon (Bandaríkj.)............18.10.68
8.95 Mike Powell (Bandaríkj.)............30.8.91
8.96 Ivan Pedroso (Kúbu).................29.7.95
ÍVAN Pedroso frá Kúbu stökk 8,96
metra í langstökki á móti í Sestri-
ere á Ítalíu á laugardaginn. Þar með
hafði hann bætt heimsmet Banda-
ríkjamannsins Mike Powells um einn
sentímetra, en hann stökk 8,95 á
HM í Japan 1991 — sló þá metið
sem menn reiknuðu með að aldrei
yrði slegið; met Bándaríkjamannsins
Bobs Beamons frá því á Ólympíuleik-
unum 1968. Kúbumaðurinn hlaut
að gjöf frá mótshöldunum í Sestriere
glæsilega sportbifreið, að verðmæti
rúmlega átta milljónir króna. Á
sunnudaginn komu strax fram efa-
semdarraddir um réttmæti heims-
met Pedrosos. Talsverður vindur var
meðan keppnin stóð yfir, en bent
var á, á sunnudag, að starfsmaður
hefði gengið fyrir vindmælinn í þann
mund er Kúbumaðurinn stökk, þann-
ig að hugsanlega hafi ekki mælst
réttur vindhraði.
„Mér þykir það leitt að hafa ekki
stokkið niu metra í dag, en ég finn
að ég það inni. Mér tókst að stökkva
9,03 metra á Ameríkuleikunum í
mars, en var sagður hafa gert ógilt,
sagði Pedroso, nýbakaður heimsmet-
hafi, eftir keppnina á laugardag.
„Þetta er æðislegt, þetta er fyrsti
bíllinn sem ég eignast um ævina og
það sem meira er ég hef ekki öku-
skírteini, en nú ætla ég að fara að
læra í einum hvelli,“ bætti hinn 22
ára gamli og sigurvegari á heims-
meistaramótinu innanhúss árið 1993
við. Hann átti fyrir lengsta stökk
ársins, 8,71 m, en því stökki náði
hann á móti á Spáni í byijun júlí.
„Á heimsmeistaramótinu í Gauta-
borg fæ ég hörkukeppni,
en geri mér vonir um að
stökkva ekki skemur þar,“
bætti Pedroso. í Gauta-
borg mætir hann m.a.
fyrrum heimsmethafa
Mike Powell sem hefur
ekki náð að sýna sitt rétta
andlit á stökkbrautunum í
sumar og að ógleymdum
Carli Lewis sem oft hefur
náð sér vel á strik á stór-
mótum. Ivan Pedroso varð
fjórði í langstökkskeppni
síðustu Ólympíuleika en
lenti í meiðslum eftir
heimsmeistaramótið inn-
anhúss árið 1993 og gat
ekki tekið þátt í HM í
Stuttgart um sumarið.
Þessi tuttugu og tveggja
ára gamli Kúbumaður
stökk fyrst yfir átta metra
árið 1990 og hefur sótt
mjög í sig veðrið á síðustu árum,
sérstaklega eftir að hafa náð sér upp
úr erfiðum meiðslum sem hijáðu
hann árið 1993.
Talsvert hvassviðri var á meðan
keppnin fór fram á laugardaginn.
Áður en Pedroso tókst að bæta
heimsmetið í sjötta stökki hafði hann
m.a. stökkið 8,89 m en vindur reynd-
ist of mikill til þess að hann fengi
stökkið dæmt gilt. Pedroso gerði sér
ekki grein fyrir því fyrr en þulurinn
á vellinum tilkynnti að um heimsmet
væri að ræða hvað honum hafði tek-
ist, en þá varð líka allt vitlaust. Hann
dansaði og hoppaði um í miklum
fögnuði. Strax komu fram efasemdir
um að stökkið væri gilt, of mikill
meðvindur hefði verið og starfsmaður
vallarins hefði gengið fyrir vindmæl-
inn á meðan stökkið var framkvæmt
og mælingar fóru fram. En Pedroso
sagði allt vera með felldu. „Ég beið
bara eftir því að vindinn lægði og
um leið og ég fann að hann var kom-
inn niður fyrir leyfileg mörk, þá lét
ég mig vaða og árangurinn var þessi,
nýtt heimsmet."
Lágskýjað var og skyggni slæmt
meðan keppnin í Sestriere fór fram,
þannig að vindmælirinn sást ekki á
sjónvarpsmyndum. Hins vegar hefur
komið í ljós að á myndbandstupptöku
áhugamanns sést að maður í bláum
jakka stendur mjög ná-
lægt mælinum.
Italska íþróttadagblað-
ið Tuttosport hélt því fram
á sunnudag að einhver
hefði viljandi staðið fyrir
vindmælinum, í flest skipti
er Pedroso stökk. „Aðeins
þegar Pedroso var um það
bil að stökkva stillti ein-
„hver í bláum jakka sér upp
fáeinum sentímetrum fyr-
ir fram vindmælinn,“
sagði blaðið.
„Er hér um að ræða
skemmdarverk, tilviljum
eða fyrirfram ákveðið
svindl?" spurði hið virta
dagblað Corríere Della
Sera. Dómarinn sem
fylgdist með vindmæling-
unni, Denis Morino,
kvaðst hafa kvartað und-
an því, við upphaf lang-
stökkskeppninnar, að fólk væri ná-
lægt vindmælinum, en sagðist ekki
hafa tekið eftir því að neinn hefði
staðið nálægt er Pedroso stökk.
„Ég sá ekki þennan mann [í bláa
jakkanum]. Ég einbeitti mér að vél-
inni,“ sagði haft eftir honum í Gazz-
etta Sportiva. „En mér virtist sem
vindurinn væri ekki mjög mikill á
þessu augnabliki [þegar Pedroso
setti metið].“
Vindur hefur ætíð verið vandamál
í Sestriere, sem er í 2.035 metra
hæð yfir sjávarmáli. 1992 stökk
Mike Powell til dæmis 8,99 metra
en fékk árangurinn ekki skráðan
vegna of mikils meðvinds.
Paul Gascolgne
Gascoigne
í banastuði
ENSKI landsliðsmaðuriim
Paul Gascoigne lék frábærlega
með Glasgow Rangers á fjög-
urra liða móti á Ibrox, heima-
velli Rangers, um helgina.
Hann fér á kostum á laugar-
dag er skosku meistaramir
burstuðu rúmenska liðið Ste-
aua Búkarest 4:0. Gascoigne
skoraði eitt mark — potaði í
netið úr markteignura — og
skoraði þar með í fyrstu fímm
leikjunum fyrir félagið. Á
sunnudag sigraði Rangers svo
italska félagið Sampdoria 2:0
i úrslitaleik mótsins og aftur
lék Gascoigne ipjög vel, þó svo
hann hafí ekki skorað.
Gascoigne hefur átt í erfíð-
leikum vegna meiðsla síðasta
eitt og hálfa árið, en virðist
nú búinn að ná sér. Hann er
hins vegar ekki kominn í nægi-
lega líkamlega æfíngu til að
spila heilan leik á fullu og var
skipt út af er 20 min. voru
eftir i báðum leikjum helgar-
innar — og var hylltur af eld-
heitum Rangers-aðdáenduin,
sem kunnu vel að meta fram-
lag hans.
Hill klúðrar
og Schum-
acher sigrar
ÞJÓÐVERJINN Michael
Schumacher vann þýska kapp-
aksturinn á Hockenheim
brautinni á sunnudaginn, fyrir
framan 128.000 áhorfendur,
sem flestir voru á hans bandi.
Schumacher er nú með gott
forskot í keppninni um heims-
meistaratitilinn en Damon Hill,
sem er næstur að stigum féll
úr leik í öðrum hring keppn-
innar. Ók útaf og á grindverk.
„Þetta gerðist allt ipjög
óvænt, afturendinn rann
skyndiiega af stað í hraðri
beygju. Afturbremsurnar læst-
ust og ég fékk ekki við neitt
ráðið. Ég kann enga skýringu
áþessum útafakstri,” sagði
Hill. Schumacher er með 21
stigsforskotáHiU.
Schumacher hafði allt í
hendi sér, eftir að HUI var
dottinn úr leik, en það var
helst Bretinn David Coulthard
á WiUiams, sem veitti honum
keppni. Schumacher varð hins-
vegar sex sekúndum á uudan
í mark, en Austurríkismaður-
inn Gerhard Berger varð þriðji
á Ferrari. Schumacher var í
skýjunum eftir sigur á heima-
velU. „Það er frábær tilfínning
að vera fyrsti Þjóðveijinu, sem
vinnur Formula 1 keppni á
heimaveUi. þegar ég sá Hiil
aka útaf, hugsaði ég með mér
að þetta væri auðunnið, en
Coulthard veitti mér harða
keppni,“ sagði Schumacher.