Morgunblaðið - 09.08.1995, Blaðsíða 7
t
i'
6 E MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1995
Janus skoraði
gegn Sviss
ÍSLENDINGAR og Svisslendingar
hafa leikið þrjá landsleiki — alla í
Evrópukeppni landsliða. Svisslending-
ar hafa unnið alla leikina, skorað fimm
mörk gegfn einu. Janus Guðlaugsson
skoraði mark Islands gegn Sviss á
Laugardalsvellinum 9. júní 1979,1:2.
Stuttu áður höfðu Svisslendingar
fagnað sigri í Bern, 2:0. Svisslendingar
fögnuðu einnig sigri, 1:0,16. nóvem-
ber 1994 í Lausanne.
Sigurður Grét-
arsson meistari
í Sviss
SIGURÐUR Grétarsson, fyrrum fyr-
irliði landsliðsins, hefur fagnað meist-
aratitli í Sviss, sem leikmaður með
Grasshopper, en Sigurður lék einnig
með Luzern í Sviss.
Sex aðrir íslenskir landsliðsmenn
hafa leikið með svissneskum liðum —
Ómar Torfason, sem lék með Sigurði
hjá Luzern, lék einnig með Olten, Jan-
us Guðlaugsson, sem lék með Lugano,
Guðmundur Þorbjörnsson, Baden,
Sævar Jónsson og Ágúst Gylfason,
léku með Solothurn og Hörður Magn-
ússon, sem lék nokkra leiki með 3.
deildarliðinu Steffen sl. vetur.
Hafa leikið Evr-
ópuleiki í Sviss
ÞRJÚ íslensk félagsiið hafa leikið
gegn liðum frá Sviss í Evrópukeppni.
Iþróttabandalag Akureyrar, IBA,
lék gegn FC Ziirich í Evrópukeppni
bikarhafa 1970 — báða leikina í Sviss
ogtapaði 1:7 og 0:7. Kári Árnason
skoraði markið.
Fram lék gegn Basel FC 1973 í
Evrópukeppni meistaraliða — báða
leikina í Sviss, tapaði 0:5 og 2:6. Jón
Pétursson og Ásgeir Elíasson, lands-
liðsþjálfari, skoruðu mörkin.
Valur lék gegn Sion í UEFA-keppn-
inni 1991. Valur tapaði heima, 0:1, en
gerði jafntefli, 1:1, í Sviss. Gunnlaugur
Einarsson skoraði markið.
Geiger til
Grasshopper
FYRIRLIÐI Svisslendinga Alain Gei-
ger, sem hefur leikið 106 landsleiki,
er kominn í herbúðir meistaraliðsins
Grasshopper, sem keypti hann á dög-
unum frá Sion. Ástæðan fyrir því er
að liðið vildi styrlga vörn sína fyrir
keppni í Evrópukeppni meistaraliða.
Geiger, sem er 34 ára, lék áður með
Servette og St. Etienne i Frakklandi.
í Gautaborg eru því allar leiðir opnar fyrir útflytjendur vegna áframflutnings, hvort sem
áfangastaðurinn er Finnland, Eystrasaltslöndin, Rússland eða önnur fjarlæg lönd.
Gautaborg er jafnframt hagkvæm lestunarhöfn fyrir innflytjendur. Tvö gámaflutninga-
skip annast Norðurlandaflutninga Eimskips. Þau lesta vöru í Gautaborg á hverjum
föstudegi og eru komin til Reykjavíkur næsta miðvikudag.
„Hjá Eimskip i Gautaborg og
innflutningsdeild Eimskips býðst þér
viðtæk ráðgjöf og þjónusta þegar inn- og
útflutningur um Svíþjóð er annars vegar.“
Eimskip býður viðskiptavinum upp á heildarlausnir í flutninga-
þjónustu, inn- og útflutning, vöruhúsaþjónustu, innanlands-
flutninga, framhaldsflutninga og forflutninga erlendis.
MORGUNBLAÐIÐ - AUGLYSING
MORGUNBLAÐIÐ - AUGLÝSING
Gautaborg
Hjá Eimskip í Svíþjóð bjóðast þér víðtækir möguleikar enda státar Gautaborg af
stærstu vöruhöfn á Norðurlöndum. Um höfnina fer um hálf milljón gáma á hverju ári.
Gautaborg er miðpunktur flutninga í Skandinavíu og þangað liggur leið fjölmargra
aksturs-, járnbrauta- og skipafélaga.
Benedikt Ingi Elísson,
forstöðumaður Eimskips í Gautaborg
Undir stjóm
Englendingsins
Roy Hodgson
hafa Svisslend-
ingar nóð mjög
góðum órangri
ENGLENDINGURINN Roy
Hodgson hefur náð mjög góðum
árangri með landslið Sviss síðan
hann tók við liðinu 1992.
Keppnisárið 1994 var það besta
í hundrað ára sögu Knatt-
spyrnusambands Sviss — níu
sigurleikir, þrjú jafntefli og
aðeins þrjú töp í fimmtán leikj-
um Svisslendingar þurfa að
fara aftur um 71 ár, eða til
ársins 1924, til að finna svipað-
an árangur; þá unnust sjö af tíu
leikjum Sviss. Það er ekki langt
síðan að það tók svissneska
landsliðið fimm til sex ár til að
vinna níu iandsleiki.
Hodgson tókst það sem tíu
landsliðsþjálfurum hafði ekki tek-
ist frá 1966, að koma Sviss í úr-
slitakeppni HM. Hann hefur náð
að byggja upp gott landslið, sem
leikur leikaðferðina 4-4-2. Þegar
Hodgson tók við landsliðinu óskaði
hann eftir því að aukagreiðslur til
leikmanna fyrir sigurleiki hækk-
uðu, sem var gert. Þá kallaði hann
leikmenn sína saman í æfíngabúð-
ir tvisvar til þrisvar á keppnistíma-
bili, en landsliðsmenn Sviss voru
saman í 85 daga á árinu 1994.
Sigurður Grétarsson, fyrrum
fyrirliði landsliðsins, sem lék með
Luzern og Grasshopper, hefur
fylgst vel með uppbyggingunni á
landsliði Svisslendinga, segir að
stór hluti landsliðsmanna Sviss
leiki með liðum í Þýskalandi,
Frakklandi og Englandi.
„Það þekktist varla fyrir tíu
árum að Svisslendingar léku með
liðum utan Sviss. Þessi breyting
hefur styrkt landslið Sviss, sem
hefur marga mjög góða leikmenn,
Adrian Knup, sem lék með Eyjólfi Sverrissyni hjá Stuttgart,
hefur skorað 24 mörk í 39 landsleikjum. Hann er að ná sér á
strik eftir meiðsli.
Alain Sutter lék lítið sem ekkert með Bayern Miinchen sl. keppnistímabil og um tíma stóð tll
að selja hann frá liðinu. Otto Rehhagel, nýráðinn þjálfari Bayern, vildl gefa Sutter annað tækifæri.
eins og Stephane Chapuisat hjá
Dortmund, sem er meiddur og leik-
ur ekki á íslandi, Ciriaco Sforza
og Alain Sutter hjá Bayern
Munchen og Adrian Knup hjá
Karlsruhe, sem er allur að koma
til eftir þrálát meiðsli síðastliðið
keppnistímabil.“
Sigurður sagði að leikurinn í
Reykjavík væri mjög þýðingarmik-
ill fyrir Svisslendinga.
„Þeir ætla sér að ná í þrjú stig
til Reykjavíkur — þannig að þeir
geti leikið afslappaðir í næsta leik
sínum, gegn Svíum í Svíþjóð. Ég
hef trú á því að Svisslendingar
leiki til sigurs — ég á ekki von á
því að þeir dragi lið sitt til baka.
Þeir eru með gott lið, sem er skip-
að leikmönnum sem geta stjórnað
leiknum, þar sem þeir halda knett-
inum mjög vel og eru einnig vel
spilandi. Vörnin er veikasti hlekkur
liðsins.
Sá sem stjórnar miðvallarspilinu
er Sforza, sem var keyptur frá
Kaiserslautern til Bayern. Hann
er geysilega yfirvegaður leikmað-
ur, sem hefur gott auga fyrir sam-
leik. Ég kynntist honum vel, þar
sem við lékum saman hjá Grass-
Roy Hodgson, 47 ára, lék á
árum áður með Crystal
Palace. Hann gerðist fram-
kvæmdastjóri Bristol City,
áður en hann fór að þjálfa í
Svíþjóð — hjá Halmstad,
Örebro, Malmö FF. Þaðan
fór hann til Sviss og gerðist
þjálfari hjá Xamax Neuchat-
el, tók síðan við landsliðl
Sviss 1992.
hopper.
Ef íslenska liðið nær góðum leik,
þá á það möguleika á sigri. Að
mínu mati hefur svissneska liðið
ekki verið að leika eins vel að und-
anförnu og það gerði í fyrra, þegar
liðið lék í heimsmeistarakeppninni
í Bandaríkjunum,“ sagði Sigurður
Grétarsson.
Leikmenn
Markverðir
Marco Pascolo, Servett.............. 29
Pascal Zuberbiihler, Grasshopper..... 2
Varnarmenn
Alain Geiger, Grasshopper...........106
Stéphane Henchoz, Hamburger.......... 9
Dominique Herr, Sion................ 50
Marc Hottiger, Newcastle............ 53
Yvan Quentin, Sion.................. 19
Pascal Thiiler, Grasshopper.......... 4
Ramon Vega, Grasshopper.............. 5
Miðju og sóknarleikmenn
Christian Colombo, Lugano............ 4
Sébastien Fournier, Sion............. 6
Marco Grassi, Renners............... 17
Adrian Knup, Karlsruhe.............. 39
Christophe Ohrel, St. Etienne........ 40
Ciriaco Sforza, Bayern Munchen...... 34
Alain Sutter, Bayern Miinchen........ 56
Kubilay Tuerkyilmaz, Galatasaray.... 43
Johann Vogel, Grasshopper............. 2
Dario Zuffi, Basel.................. 17
EIMSKIP
Sími 525 7000 • Fax 525 7179
Netfang: mottaka@eimskip.is
V|S / QISQH V1|AH