Morgunblaðið - 09.08.1995, Blaðsíða 1
AUGLYSING
Arnór Guðjohnsen leikur .tímamótaleik gegn Svisslendingum, sinn sextugasta landsleik. Hér sést hann
kljást við Jonas Thern, fyrirliða Svía, í jafnteflislelk, 1:1, í Stokkhólmi á dögunum.
Laugardalsvöllur
16. águst
Evrópukeppni landsliða
/-------------------------\
Forsala
Forsala aðgöngumiða á
landsleik íslands og Sviss
verður sem hér segir.
25. júlí - 13. ágúst
Á bensínstöðvum ESSO til
Safnkortshafa (allir geta orð-
ið safnkortshafar).
8. ágúst - 16. ágúst
í verslunum Eymundsson,
Spörtu á Laugavegi og hjá
íslenskum getraunum.
14. ágúst - 16. ágúst
Á Laugardalsvelli
VERÐ
Verð aðgöngumiða innan
sviga er til safnkortshafa.
Stúka: 2.000 (1.700)
Stæði: 1.000 (800)
Börn: 500 (400)
V_________________________/
Hljómleikar og
HemmiGunn
Umgjörð landsleiksins verður
afar glæsileg og hefst dag-
skráin tveimur tímum fyrir
leik — kl. 19, með því að tvær
af kunnustu hljómsveitum
landsins Sniglabandið og
Sixties leika, auk Sólstranda-
gæjanna. Kynnir kvöldsins
verður, landsliðskappinn fyrr-
verandi sjónvarpsmaðurinn
sívinsæli Hermann Gunnars-
son.
Leikur íslands og Sviss hefst
kl. 21 á Laugardalsvellinum,
miðvikudaginn 16. ágúst og
verður leikið í flóðljósum.
Knattspyrnusamband Islands
mun bjóða upp á sannkallaða
fjölskyldustemmningu, þar
sem umgjörð leiksins verður
afar glæsileg og margt til
skemmtunar. Látið ekki þá
skemmtun fram hjá ykkur
fara. Allir á völlinn!