Morgunblaðið - 25.08.1995, Side 1

Morgunblaðið - 25.08.1995, Side 1
LÆQSTA-VERÐ ABYRGÐ Á BÍLALEIGUBÍLUM FLORIDA BRETLAND 1 KANARÍ 11 TÚNIS MAROBCKÓ MALAGA 9.980 BAHAMAS 21.060 Innifalift (veríi er: kaskótrytmina, lækkun íjáUsóbyrafiar, trygglng g, stuldi og allir staðbundnlr skattar, 011 verí eru I Islenskum krónum og eru vlkuverS.FIorida! ótakmarkaftur akstur og kaskó. ’m mm 588 35 35 Oplö món-tós Ó-18 lau 10-tó F ærri til Bandaríkjanna og Englands en fleiri til Norðurlanda Jg TÖLUVERÐ breyting hefur orðið á umsóknum um námslán fyrir veturinn 95/96 miðað við tvö síðustu ár. Samtals hafa S 6.354 nemendur sótt um náms- lán í vetur, þar af 4.532 til náms á íslandi, en í fyrra sótti 6.541 nemandi um, og fyrir veturinn 93/94 lágu fyrir 6.647 umsóknir. Samkvæmt upplýsingum frá Lánasjóði íslenskra námsmanna á enn eftir að skrá umsóknir og lít- ur út fyrir að svipaður fjöldi um- sókna verði í ár. Nemendum í láns- hæfu námi hefur og fjölgað, en margt bendir til þess að fleiri bjargi sér upp á eigin spýtur eftir að lána- reglur LÍN voru hertar árið 1992. Tölur um fjölda umsækjenda ber að taka með fyrirvara þar sem ekki allir fá námslán. Sumir hætta námi, aðrir skila ekki tilætluðum námsár- angri og enn aðrir eru of tekjuháir. Töluverð fækkun hefur orðið á umsóknum um lán í Bandaríkjunum (úr 649 veturinn 93/94 í 491 vetur- inn 95/96) og í Englandi (úr 147 veturinn 93/94 í 117 nú). Sam- kvæmt heimildum frá LÍN er um eðlilega þróun að ræða þar sem lög- um um Lánasjóð íslenskra náms- manna var breytt árið 1992 og regl- ur hertar um nám í svokölluðum „skólagjaldalöndum“, Bandaríkjun- um og Englandi en þar eru skóla- gjöld há. Fólk í sérnámi og BÆ- eða BS-námi þarf að taka óhagstæðari lán fyrir skólagjöldum en þeir sem stunda framhaldsnám. Umsóknum um lán til náms á Norðurlöndum hefur fjölgað úr 618 veturinn 93/94 í 757. Þar eru ekki skólagjöld og liggur straumur náms- manna í BA-námi aðallega til Dan- merkur. Nú liggja fyrir 454 umsókn- ir um nám í Danmörku en voru 341 veturinn 93/94. Hefðbundið í vall á námslandl Athyglisvert er hversu fáir sækja um lán til náms í Japan og Kína, en umsóknir um lán til náms i Japan eru aðeins tvær og ein umsókn ligg- ur fyrir um námslán í Kína. Tvær eru um Rússland og í Ástralíu hefur fækkað úr 8 umsóknum um námslán veturinn 93/94 í eina umsókn fyrir veturinn í vetur. Svo virðist sem ís- lenskir námsmenn séu mjög hefð- bundnir í vali sínu á námslandi. ■ FOSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995 Bakpokar eru í tísku við öll tækifæri BENSÍNDÆLAN í upprunalegu umhverfi. HANDKNÚIN bensíndæla frá því skömmu eftir stríð verður afhent Ár- bæjarsafni á mánudag. Olíuverslun ís- lands gefur dæluna og sér um að setja hana upp. Ofan á henni verður lukt, eins og var í gamla daga og hringtorg lagt í kringum hana. Þá er unnið að því að fá gamlan bensínstöðvarkofa úr Hrísey. Ráðgert er láta bíl frá sama tíma standa við dæluna. Dælan var fyrr í notkun á bensín- stöð í Biskupsstungunum, sennilega á Gígjarhólskoti. Hún kom til landsins um miðjan 5. áratugin. Um tíu árum síðar voru fyrstu rafmagnsdælurnar teknar í notkun og þær leystu hand- knúnar síðan af hólmi. Helga María Bragadóttir markaðs- fræðingur á Árbæjarsafni segir að dælan verði vísir að athafnasvæði við Kornhúsið. „Við viljum leggja meiri áherslu á atvinnulífið og vonumst til að fleiri fyrirtæki sjái hag sinn í koma með hluti úr sögu sinni. Oft halda menn að slíkir hlutir séu ónýtt drasl en svo er alls ekki. Þetta er mikilvæg- ur hluti af sögunni og er til góðs fyrir safnið, fyrirtækin og skattborgarana að tengsl Árbæjarsafns við atvinnulífið verði sterkari. Þetta er einnig hluti af þeirri stefnu okkar að safnið verði lif- andi og áhugaverðara fyrir gesti.“ Olíuverslun íslands er elsta olíufélag landsins og Ragnheiður Björk Guð- mundsdóttir fulltrúi markaðssviðs seg- ir að það hafi verið til umræðu hvern- ig mætti varðveita sögu þess. „Þegar við sáum umfjöllun í Morgunblaðinu um nýjar áherslur á Árbæjarsafni ákváðum við að þetta væri góð leið til þess. Við vonumst einnig til að önnur fyrirtæki feti í fótspor okkar.“ Að sögn Ragnheiðar varð umstangið kringum bensíndæluna til að elsta bensíndæla landins fannst. Verður hún gerð upp og gefin á safnið. Hún verð- ur sett upp á fyrirhuguðu samgöng- uminjasafni Árbæjarsafns. ■ GRUNN SKÓLANEMAR eru ekki þeir einu sem bera bak- poka í vetur. Þótt hliðarveski og töskur haldi enn velli eiga bakpokar auknum vinsældum að fagna hjá öllum aldurshóp- um, að sögn afgreiðslufólks í tískuverslunum. Þeir fást í ýmsum stærðum, gerðum og litum úr öllum mögulegum efnum; striga, lakki, leðri, sat- íni og næloni. Svava Johansen í tískuversl- uninni Sautján segir bakpoka hafa verið í tísku í rúmlega ár, vinsældir þeirra séu enn að aukast og konur á öllum aldri kaupi bakpoka til að bera við hverskyns tækifæri. í sama streng tóku afgreiðslustúlkur í Cosmo og fleiri verslunum. Víðir Þorgrímsson, eigandi Tösku- og hanskabúðarinnar, stærstu sérverslunar landsins af því tagi, segir bakpoka vinsæla meðal yngri kynslóðar- innar. Þeim sem hjóli eða gangi mikið fínnist þægilegt að bera slíka poka þótt vinsældir þeirra hér hafi ekki verið eins miklar og víða er- lendis, lík- lega vegna þess að ís- lendingar fari allra sinna ferða á bíl- um. ■ Morgunblaðið/Ámi Sæberg Sparilegur bakpoki úr rauðu satíni. Bakpokareru að verða vinsælir við öll tækifæri. 4.699 4.690 4532 Fjöldi umsækjenda um námslán 1993-95 Norður- lönd 757 Ameríka ’93 ’94 '95 Bretlands- eyjar 188188. „ i3i '93 '94 ’95 þaraf Bandarikin Önnur lönd HHi- '93 '94 '95 þaraf - Danmörk '93 '94 '95 þaraf England Önnur Evrópulönd 445 .nfi 406 379 þaraf Þýskaland 993 »1994 Í1995 Tölurnar 1995 eru ekki sambærilegar við fyrri tölur þar eð umsóknir eru enn að berast. Bensíndæla sett upp á Árbæjarsafni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.