Morgunblaðið - 25.08.1995, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995 B 5
DAGLEGT LÍF
Hann var með útgerð
og verkar nú vestfirskan harðfisk
Morgunblaðið/ÞHY
FINNBOGI Jónsson verkar harðfisk á ísafirði.
VESTFIRSKUR harðfiskur þykir
af mörgum lostæti og eru dæmi
um að höfuðborgarbúar og aðrir
iandsmenn panti sér fisk um
langan veg til þess geta bitið í
ekta vestfirskan harðfisk.
Finnbogi Jónsson er eini harð-
fiskverkandinn á Isafirði og
þurrkar ýsu, steinbít og þorsk,
en einnig verkar Óskar Friðbjarn-
arson harðfisk og hákari á Hnífs-
dal.
Verkaður með
gamla laginu
Finnbogi hefur nú verkað
harðfisk í 13-14 ár en var með
útgerð áður. Hann segir sérstöðu
vestfirska harðfisksins liggja í
því að fiskurinn sé verkaður með
gamla laginu. Hann sé þurrkaður
í hjöllum í köldu og þurru lofts-
lagi og er byijað snemma á ve-
turna að þurrka fiskinn og haldið
áfram á meðan veður leyfir þar
til snemma á vorin. „Víða annars
staðar er fiskurinn þurrkaður inni
og mörgum finnst hann ekki jafn
góður fyrir vikið. Þurrt loftslagið
á Vestfjörðum hentar einkar vel
til þess að þurrka fisk.“
Mikilvægt að rétt
veðurskilyrði séu fyrstu
vlkur þurrkunar
„Hjallarnir eru hafðir á vinda-
sömum og frostsælum stöðum
og þá verkast fiskurinn best.
Mikilvægt er að rétt veðurskilyrði
séu fyrstu vikurnar þegar fiskur-
inn er hengdur upp til þurrkunar
svo að hið rétta vestfirska bragð
komi fram. Fiskurinn þornar á
u.þ.b. fimm vikum og svo þarf
hann um tvo mánuði að ryðja
sig. Þá er hann tekinn og barinn,
settur í umbúðir og seldur.
Harðfiskur geymist betur
óbarinn, en þægilegra er að borða
hann sé hann barinn. Þó finnst
sumum hann bragðbetri ef hann
er óbarinn og gott að bíta í hann
þannig.
Fiskurinn rýrnar töluvert við
þurrkun. Eftir þurrkun vegur
fiskurinn 7-9% af þyngdinni þeg-
ar hann var dreginn úr sjó og
það er helsta skýringin á því
hvers vegna harðfiskur er yfir-
leitt dýr. í eitt kíló af harðfiski
fer u.þ.b. 11-14 kíló af nýveidd-
um fiski.
Fólk ætti alltaf að geyma
harðfisk í frosti til þess að halda
honum ferskum. Annars er hann
fljótari að eyðileggjast. Það er
útbreiddur misskilningur að
hann megi geyma við stofuhita,"
segir Finnbogi.
Finnbogi segir að mesta salan
á harðfiski sé í byijun desem-
ber, kringum jólin og á Þorran-
um. Á sumrin tekur svo harð-
fisksalan aftur kipp og virðist
vera algengt að taka harðfisk
með í nesti í sumarfríið. Einnig
er vinsælt að senda vinum og
vandamönnum erlendis harð-
fiskpakka.
Finnbogi segir að lúða hafi
verið einstaka sinnum þurrkuð
og er hún stundum kölluð sýslu-
mannskonfekt og þyki herra-
mannsmatur. ■
Guðsorð að ryðja
sér til rúms á alnetinu
GUÐ er ekki kominn með tölvupóst
en engu að síður er orð Guðs farið
að ryðja sér rúms á alnetinu. Hægt
er að kalla upp ýmsar helgimyndir
á tölvuskjáinn til að komast í sam-
band við sinn raunverulega söfnuð.
Prestar í Bandaríkjunum segja ár-
angurinn vera góð andleg heilsa og
vellíðan safnaðarbarnanna.
Grein um þetta birtist í bandaríska
blaðinu Longevity fyrir nokkru. Þar
kemur fram að jafnvel hinar íhalds-
sömustu kirkjur eru komnar á alnet-
ið vestra. Kaþólska erkibiskupsdæm-
ið í New York er með tölvu-„spjall“
á þriðjudagsmorgnum í gegnum
Prodigy sem er eitt margra fyrir-
tækja sem koma áskrifendum í sam-
band og bjóða ýmsa upplýsingaþjón-
ustu gegn mánaðarlegu gjaldi.
Viðbrögð áskrifanda eru góð og
fólk ber ýmist upp spumingar, er
með vangaveltur um trú sína eða
þarf hreinlega einhvern til að tala
við og fá hjá ráðgjöf.
Fólk að leita eftir stuðningi
og ráðgjöf
Annað fyrirtæki sem söfnuðir hafa
samvinnu við er CompuServe. Ymsar
kirkjur í Bandaríkjunum eru tengdar
í gegnum þá, m.a. rétttrúnaðarkirkj-
an þar í landi. Sr. Gregory C. Havril-
ak er upplýsingafulltrúi rétttrúnað-
arkirkjunnar í Bandaríkjunum. Hann
segir að með þessum hætti geti fólk
fengið upplýsingar af ýmsum toga
s.s. um hvernig á að annast gamalt
fólk, hvernig á að biðja fyrir sjúkum,
kenna barni bænir eða fólk getur
rætt við starfsfólk kirkjunnar með
þessum hætti ef því líður illa. Séra
Havrilak segir að ef tölvur geti hjálp-
að fólki að vera í sambandi við kirkj-
una sína sem er nauðsynlegt blóm-
legu safnaðarstarfi þá muni kirkjan
halda áfram að starfa á alnetinu.
Hann bendir á að ef þetta veiti fólki
tilfinningalegan stuðning þá verði
líkamleg og andleg heilsa þessa fólks
líka betri en ella.
Hjónabandsráðgjöf
á alneti
Marlene Maheu, sem er doktor í
sálarfræði, samsinnir þessu og segir
að andleg heilsa blómstri í menningu
þar sem fjölskyldur haldi vel saman
og samband sé náið. Og þó að alnet-
ið komi aldrei í staðinn fyrir náin
fjölskyldubönd þá sé þessi þjónusta
af sama toga þar sem fólk er að leita
eftir stuðningi. Dr. Maheu er yfir-
maður nýrrar línu á alnetinu sem
heitir Sjálfshjálp. Notendur biðja um
upplýsingar um hjónabandið, frama,
kynlíf, uppeldi, vináttu og svo fram-
vegis og fá þá ráðgjöf um það efni
sem beðið er um.
Enginn viðmælanda í umræddri
grein hélt að Guðs orð á alnetinu
kæmi í veg fyrir blómlegt .safnaðar-
líf í kirkjum landsins þótt milljónir
manna geti nú leitað Guðs á alnetinu.
■
grg
Sex ára sigling
frá Síberíu til íslands
REKAVIÐUR hefur löngum
reynst íslendingum vel í tijálausu
landinu. Hann berst okkur frá
barrskógabeltinu í Rússlandi eftir
áralangt volk í norðlægum höfum.
í nýjasta hefti tímaritsins Jökull
segir Olafur Eggertsson jarðfræð-
ingur frá rannsóknum sínum á
árhringjum í rekaviði sem miða
að því að finna uppruna
hans og rekleiðir.
Meginhluti rekaviðar
sem finnst við strendur
íslands er fura, greni og
lerki. Tvær fyrrnefndu
tijátegundirnar eru yíir-
leitt ættaðar úr timbur-
flotum skógarhöggs-
manna sem látnir eru
fljóta niður ár í vest-
urhluta Rússland. Á fur-
una og grenið vantar yfirleitt ræt-
urnar og á þeim sjást greinileg
sagarför. Lerkið losnar hins vegar
af náttúrlegum orsökum þegar
árnar grafa undan því við bakkana
og það heldur því rótum sínum.
Lerkið er algengasta tijátegundin
austan við ána Lenu í Síberíu og
talið er að þau tré sem rekur á
land hér séu ættuð þaðan.
MeA hafís til íslands
Timbur helst ekki á floti í sjónum
nema takmarkaðan tíma.
Smám saman sogar það
í sig vatnið og sekkur að
lokum. Rannsóknir sýna
að grenitré haldast á floti
í mesta lagi í um 17
mánuði og aðrar tegundir
enn skemur. Trén eru
mun lengur að berast til
íslands, eða að minnsta
kosti sex ár, og oftast
lengur. Talið er að hafís
beri þau mestan hluta leiðarinnar.
Ólafur Eggertsson tekur sem
dæmi tré sem berast með ám í
Hvítahaf. Þau fljóta þaðan með
Rannsóknir
sýna aó greni-
tré haldast á
floti í mesta
lagi í um 17
mónuéi
straumum í Barentshaf þar sem
þau lenda í hafís og fijósa föst.
Isinn berst með straumi og vindum
að Svalbarða, norður og vestur
fyrir hann og síðan með Austur-
Grænlandsstraumnum í suður að
norðurströnd íslands. Þar bráðnar
ísinn og rekaviðurinn berst á land.
Rannsóknir Ólafs benda til þess
að hafís hér við land sé upprunn-
inn úr Barentshafi og strönd Sí-
beríu. Þær gefa einnig til kynna
að mengunarslys í Barentshafi
gæti haft áhrif á sjóinn við ísland.
Þessar upplýsingar eru íhugunar-
efni nú þegar áætlanir eru uppi
um olíuvinnslu þar. ■
HÞ