Morgunblaðið - 25.08.1995, Page 6

Morgunblaðið - 25.08.1995, Page 6
6 B FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG Morgunblaðið/Jón Svavarsson MARIE-Louise Jarnebrink, Anna Skogsberg og Eva Tillberg. fslensk bióðtrú í sænskri heimildarmynd FYRIR skömmu voru hér á landi þijár sænskar konur að kanna að- stæður fyrir gerð heimildamyndar um íslenska þjóðtrú. Þær Eva Till- berg, Marie-Louise Jamebrink og Anna Skogsberg eru nýútskrifaðar úr námi í gerð heimildarmynda frá Norræna lýðháskólanum í Biskops- amö í Svíþjóð og völdu ísland sem sitt fyrsta viðfangsefni í kvikmynda- gerðinni. „í Svíþjóð er vaxandi áhugi á fom- norrænum fræðum og þjóðtrú en hann er samt ekki eins íifandi og sterkur og hér á landi. Að tala um álfa í Svíþjóð þykir til dæmis frekar hallærislegt en hér hafa álfabyggðir meira að segja áhrif á ákvarðanir í stjórnsýslu. Við viljum komast að því hvers vegna þjóðtrúin er svo sterk hér.“ Það var á fyrirlestri hjá Þórhalli Heimissyni guðfræðingi í Uppsölum sem hugmyndin kviknaði um að kvik- mynda þetta efni. Hann benti þeim jafnframt á hveija væri best að tala við hér á íslandi. í þessari fyrstu heimsókn hafa þær meðal annars tekið viðtal við Jörmund Inga Hansen alsheijargoða ásatrúarmanna, Erlu Stefánsdóttur miðil og fleiri. Efnið sem þær taka upp nú ætla þær að sýna sjónvarpsstöðvum í Sví- þjóð, Sænsku kvikmyndastofnuninni og öðram þeim sem gætu keypt eða styrkt gerð fullunnins þáttar. „Þetta er fyrsta verkefnið sem við vinnum að og við þurfum að sýna hvað við getum. En það era góðar líkur á að þetta verði að veraleika, áhuginn á efninu er mikill." Ef fjár- málamennimir í Svíþjóð samþykkja munu tökur heQast um jólaleytið. Þá verður meðal annars litið við á blóti ásatrúarmanna. Þær stöllur hyggjast síðan koma aftur næsta sumar og ljúka verkinu. Kostnaður- inn við gerð myndarinnar verður u.þ.b. 3-5 milljónir króna. ■ Hvað heitir hjáþeim « gjaldmiðillinh' Ríki Albanía Angóla Arúba Bhutan Búrúndí Falklandseyjar Gabon Haiti Kambódía Kórea (N- og S-) Lesotho Líbýa Macau Máritanía Nicaragua Pakistan Sómalía Surínam Venesúela Víetnam Zaire Zimbabwe Gjaldmlðill lek kwanza gyllini rúpía/nguitrum franki pund dalasi gourde riel won maloti dinar pataca ouguiya cordoba rúpfa sillingur gyllini bolivar dong zaire dollar Siómeni Mðar heimsóttir f Ósvir Morgunblaðið/ÞHY GEIR Guðmundsson, safnvörður í sjóminjasafninu á Ósvör, tekur á móti gestum í fullum skrúða af gömlu gerðinni. SJÓMENNIRNIR hafa líklega róið út í góða veðrinu og era væntanleg- ir á hverri stundu með aflann. Einn sjóarinn hefur orðið eftir og tekur á móti gestum klæddur fullum skrúða, skinnfötum sem era sér- staklega verkuð í fitu og lýsi svo þau verði vatnsþétt. Sjómaðurinn gestrisni er safn- vörðurinn Geir Guðmundsson, íklæddur sjógalla af gömlu gerð- inni. Geir leiðbeinir fólki um safnið og segir frá sjómennsku fyrri tíðar, um daglegt líf mannanna sem sóttu sjóinn, fanggæsluna sem gætti afl- ans, sérstöðu formannsins sem öllu réð og mátti einn fara upp á hjall- loftið og hvað mennimir gerðu sér til dægrastyttingar, hvað þeir borð- uðu og hvemig aflinn var verkaður og nýttur. Ósvör er eitt þriggja safna í Byggðasafni Vestíjarða. Önnur söfn era sjóminjadeild í Tumhúsinu í Neðstakaupstað og Minjasafn Ön- undaríjarðar á Flateyri. Á Ósvör hefur verið iengi útræði og verbúð fram eftir öldum en hún var endur- byggð 1989-90 á gömlum tóftum í þeim tilgangi að verða sjóminjasafn Vestfjarða. í Ósvör er allt sem viðkemur fyrri tíðar sjómennsku til sýnis, allt frá bátum, sjófatnaði og matvælum til verkaðs fisks í hjöllum, lúðuhrogn- um og saltfisks í saithúsinu þar sem fengurinn var geymdur. Það er eins og sjómenn hafí bragðið sér frá augnablik. Sýrakút- ar, veiðarfæri og verkaður fiskur era á jarðhæðinni og á loftinu era vistarverar sjómanna. Þar era lukt- ir, rokkur og kistlar með mat að heiman og aðrir persónulegir munir íbúa. Þegar veður er of vont til þess að róa til fiskjar er tíminn nýttur til þess að beita á línu. Á kvöldin er ullarþráður spunninn á rokknum eða kaðall snúinn úr hrosshári. Á morgnana þegar heppilegt var að róa kepptust áhafnimar við að vera á undan á miðin og rifu menn sig upp árla og læddust út til þess að vekja ekki menn úr hinni áhöfninni. Upphafsatriði Verstöðvarinnar íslands er tekið upp í Ósvör og get- ur verið að margir safngestir kann- ist við húsakostinn úr myndinni. Verbúðin er ætluð tveimur skipsá- höfnum og var henni skipt með þili. Hún er af þeirri gerð verbúða sem tíðkuðust í Bolungarvík seinni hluta síðustu aldar, með e.k. baðstofulofti eins og híbýli vora til sveita. Átta manns vora í áhöfn, svo að 16-18 manns hreiðraðu um sig í húsinu á Ósvör og þröngt var á þingi. Á loft- inu beggja megin eru fjögur flet undir súð og í þeim hvíldu átta sjó- menn, tveir í hveiju fleti. Úti fyrir liggur sexæringur í fjöranni og fisk- ur hangir í hjöllum. Hressilegt sjáv- arloftið er frískandi og golan ber með sér lykt af söltum sjó og þangi. Geir skýrir af miklum sannfær- HVERNIG VAR FLUGIÐ? „Bilar flug FARÞEGAR í fiugi Lufthansa nr. 4386 frá Stuttgart til Parísar söfn- uðust að útgönguhliðinu klukku- stund fyrir brottför. Tíminn var nægur og hann leið fijótt yfir reyf- aranum. Þegar brottfarartíminn rann upp var tilkynnt: Seinkun, vél- in biluð, beðið eftir varahlut, næstu fréttir eftir klukkustund, gerið svo vel að fá ykkur drykki. Ekkert stór- mál því jafnvel þótt seinkun yrði talsverð ætti að vera ráðrúm til að ná vél Flugleiða frá París og heim enda voram við félagarnir bara með handfarangur. Streituhaldið GSM símaliðið tók hins vegar að hringja út um allar jarðir og segja að það myndi hringja aftur seinna! Til hvers í ósköpunum? Ný tilkynning: Viðgerð stendur yfir, næstu fréttir eftir klukkustund, gerið svo vel að fá ykkur hressingu. Flestir tóku að maula skrínukostinn frá Lufthansa: samlokur, epli, súkkulaðibiti og safí, aðrir reyndu að fá fluginu breytt til að komast nú leiðar sinnar (sem var dálítið snúið því flugmenn SAS vora í verk- falli þennan dag) og enn aðrir rifust við Lufthansamanninn. Enn var til- kynnt: Brottför áætluð hálfátta, þremur tímum eftir áætlaðan tíma. Nú var orðið heldur lítið ráðrúm fyrir okkur félagana í París, ekki síst þar sem við þurftum að færa okkur milli flugvalla. En Lufthansa- maðurinn ráðlagði okkur að halda af stað og sagðist greiða gistingu í : | ■ ' | ■' í f \ París ef við misstum af Flugleiðaþot- unni. Og hann fékk að standa við það því brottförin tafðist enn og við fóram ekki í loftið fyrr en kl. 21 í stað 17. Með illu eða góðu I París rembdust Lufthansa-menn eins og ijúpan við staurinn því um leið og lent va_r vorum við fjögur sem ætluðum til íslands beðin að gefa okkur fram og drifin í ieigubíl yfir á Orly flugvöll. Þegar þangað var komið voru allir aðrir farþegar komnir um borð og búið að loka. Við fréttum síðar að Flugleiðafólkið á Orly hefði sagt strax við Luft- hansamennina á Charles de Gaulle flugvellinum að það þýddi ekkert að senda okkur yfir, vélin yrði ekki lát- in bíða. Klukkan var orðin ellefu þegar þetta var ljóst og flestir flug- vallastarfsmenn á heimleið. En okk- ÞEGAR flugáætlanir fara úr skorðum er ekki annað að gera en skoða flugstöðvarnar vel og vandlega, reyna veitingaþjón- ustuna, versla ef svo ber undir og lesa reyfara. Þeir sem eru hins vegar mjög „important" liggja í GSM símanum sínum og rífast þess á milli í flugvallarstarfs- mönnum yfir fráleitri þjónustu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.