Morgunblaðið - 21.09.1995, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 B 5
VIÐSKIPTI
Útflutningsverðmæti og magn
slátraðs eldisfisks 1987-1995
Heildarmagn af slátraðri
eldisbleikju 1987-1995
0«— —i—easaBM—BB— I —B —i, u_■
1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995
áætlun
Landssambands fiskeldis- og haf-
beitarstöðva, segir að bleikjueldis-
stöðvum hafi fjölgað mjög mikið
á sama tíma, úr 34 árið 1991 í 47
á síðasta ári. „Skilaboðin frá okk-
ur hjá landssambandinu nú eru
þau, að það verði að halda áfram
að vinna markaði því það er ekk-
ert gefið að koma bleikjunni inn
á markaði þar sem þetta er ný
afurð. Við leggjum því ofurkapp
á markaðssetninguna og að
tryggja þessum mörkuðum há-
gæðafisk í allri meðhöndlun.“
Stöðugt verð en dýr vinnsla
Silfurstjarnan hefur verið helsti
útflytjandi á bleikju til Bandaríkj-
anna að .undanförnu og auk þess
að flytja út eigin framleiðslu hefur
fyrirtækið flutt út afurðir annarra
fiskeldisstöðva og selt þær í gegn-
um Aquanor Marketing inc. Bene-
dikt Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Silfurstjörnunnar, segir
helsta kostinn við bleikjueldið vera
hversu stöðugt verðið hafi verið.
„Verðið á bleikjunni hefur verið
hið sama í erlendri mynt frá úpp-
hafi og það virðist vera mun stöð-
ugra en verð á laxi, sem hefur
sveiflast mjög mikið. Hins vegar
er vaxtarhraði bleikjunnar mun
hægari þannig að hún er nokkuð
dýrari í framleiðslu en laxinn. Við
þurfum því að fá gott verð ef fram-
leiðslan á að borga sig.“
Hann segir að tekist hafí að
auka vaxtarhraðann nokkuð með
kynbótum að undanförnu en þó
hafi framfarirnar verið mun meiri
í laxeldinu hvað það snertir. Hann
á þó von á því að þróunin verði
hin sama í bleikjunni. „Jafnvel
má búast við því að þróunin verði
enn hraðari í vaxtarhraða blekj-
unnar þar sem þetta er nokkuð
villtur stofn og við eigum enn eft-
ir að ná tökum á honum.“
Staðan fer batnandi
Vigfús segir stöðu fískeldis-
stöðvanna hafa farið batnandi að
undanförnu. „Framleiðsla stöðv-
anna hefur verið að aukast jafnt
og þétt á undanförnum árum og
nemur aukningin u.þ.b. 15% á ári
að meðaltali. Þá erum við að tala
um heildarframleiðslu ársins, þ.e.
með laxeldinu. Verðmætin hafa á
sama hátt verið að aukast og þetta
er núna að skila u.þ.b. 1 milljarði
króna í útflutningsverðmæti á ári.
A móti kemur að þessi grein hefur
ekki notið neinna opinberra lána
eða styrkja frá 1991 og það er
auðvitað athyglisvert þar sem við
erum að tala um landbúnaðaraf-
urð. Ennfremur veldur forsaga
fiskeldisins mönnum miklum erfið-
leikum og t.d. er nánast ómögu-
legt að fá nokkra lánafyrirgre-
iðslu. Þeir sem eru að reka þessar
stöðvar í dag gera það því fyrir
eigið fé.“
Vigfús segir það ekki síst mikil-
vægt í þessu samhengi að góð tök
hafi náðst á eldinu sjálfu og sé
það nú farið að ganga stóráfalla-
laust. „Nú er svo komið að menn
eru farnir að vinna af fullum krafti
í hagræðingu í rekstri stöðvanna,
m.a. með því að auka vaxtarhraða
með kynbótum í stöðvunum, auka
gæði og vinna betur að markaðs-
málum. Það er því loks farið að
myndast svigrúm til að standa í
slíkri vinnu. Allt byggist þetta á
þekkingu og ég held að það sé
þessi þekking ásamt þróunarstarfi
undanfarinna ára sem sé að skila
sér nú.“
ACO • ACO • ACO
KMM
Forysta
í faxtækjum
fra
aco
SKIPHOLTI 17 • 105 REYKJAVÍK
SÍMI: 562 7333 ■ FAX: 562 8622
TIMIÞINN ER DYRMÆTUR !
Ef þú auglýsir eftir starfsmanni
sjálf/-ur eyðir þú verulegum tíma í
úrvinnslu innsendra umsókna.
Sparaðu þér tíma og leitaðu
aðstoðar fagmanna.
STRA Starfsráðningar ehf var stofnað þann 10.
september 1994. Fyrirtœkið býður hins vegar upp á
áratugs reynslu og sérhœfingu íþeirri þjónustu er felst
í milligöngu við mannaráðningar ásamt ráðgjöf á sviði
starfsmannamála. Þrír starfsmenn starfa hjá
fyrirtœkinu við starfsráðgjöf.
ST
RA
Starfsráðningar ehf
Mörkinni 3 ■ 108 Reykjavík
Sími: 588 3031 ■ Fax: 588 3044
Guðný Harðardóttir
- kjarni málsins!________
SíimáanA l
Skriflegt samband viö stærstu fréttastofu
landsins tryggir þér upplýsingar um allt sem
skiptir þig máli - þegar þú vilt - þar sem þú vilt,
hvort sem þú færö Morgunblaðið inn um
bréfalúguna eöa um Alnetið.
Kjarni málsins, þegar þú vilt - þar sem þú vilt!