Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 8
GOLF / RYDER-BIKARINN
Spennandi
lokadagur
Evrópubúar sigruðu í Bandaríkjunum
EVRÓPUBÚAR sigruðu Bandaríkjamenn í keppninni um Ryder-
bikarinn sem fram fór á Oak Hill vellinum í Bandaríkjunum. Þetta
var ein mest spennandi keppni sögunnar og aðeins í annað sinn
sem Evrópu tekst að leggja Bandaríkjamenn á þeirra heima-
velli. Spennan var mjög mikil ílokin því Bandaríkjamenn náðu
þriggja stiga forystu snemma síðasta daginn en Nick Falddo kom
Evrópu yfir og írski nýliðinn Philip Walton gulltryggði Evrópu
sigur, 14,5 gegn 13,5. Leikmenn Evrópu gátu þvífarið með Conc-
orde til Evrópu með góðri samvisku og í einu sætinu var það
sem allir vildu taka með yfir hafið — Ryderbikarinn.
Bandaríkjamenn leiddu með níu
vinningum gegn sjö áður en
kapparnir hófu holukeppnina á
sunnudeginum. Bandaríkjamenn
byijuðu síðan betur og Tom Lehman
vann Seve Ballesteros 4:3 en Mark
James lagaði stöðuna á ný með því
að vinna Jeff Maggert, einnig á 15.
holu. Staðan 8:10. Davis Love vann
Constantino Rocca í þriðja leiknum,
3:2 og höfðu nú 8:11 yfír. Það var
þó huggum harmi gegn að staðan
var vænleg úti á velli. Howard Clark
vann Peter Jacobsen á 18. holu og
Ian Woosnam og Fred Couples skildu
jafnir. Staðan því 9,5:12,5, enn mun-
aði þremur vinningum og sjö riðlar
enn að spila.
Colin Montgomerie vann Ben
Crenshaw á 17. holu og David Gil-
ford vann Brad Faxon á síðustu holu.
Bandaríkjamaðurinn Corey Pavin
lagaði stöðuna fyrir sína menn með
því að vinna Bernhard Langer á 16.
holu en Sam Torrance jafnaði með
því að vinna Loren Roberts 2:1. Þrír
riðlar erftir úti á velli og staðan jöfn,
12,5:12,5.
Faldo bjargaði
málunum
Nick Faldo, sem hafði leikið fjóra
leiki og tapað þremur, var tvær hol-
ur undir þegar hann og Curtis
Strange komu á 16. teig. Bn með
gríðarlegu keppnisskapi og útsjóna-
semi tókst Faldo að vinna allar þijár
holurnar og koma Evrópu yfir í fyrsta
sinn síðanfyrsti leikurinn var leikinn
á föstudaginn. Hann rak niður met-
ers pútt á síðustu og sigurinn var í
höfn. „Þetta var mesta pútt sem ég
hef tekið um æfina,“ sagði Faldo um
leið og félagar hans fögnuðu honum
innilega og það var ekki laust við
að þessi hávaxni Breti táraðist, en
Faldo hefur löngum verið talinn allt
að ómannlegur vegna þess hversu
einbeittur hann er þegar hann leikur
golf.
Nýliðinn Philip Walton náði síðan
að gulltryggja sigurinn er hann vann
Jay Haas á síðustu holu og það skipti
ekki máli þó Svíinn Per-Ulrik Johans-
son tapaði fyrir fyrrum skólafélaga
sínum Phil Mickelson í síaðsta leikn-
um. Evrópa vann 14,5:13,5. „Þegar
ég var að leika 18. brautina hélt ég
að fæturnir myndu ekki hafa að bera
mig alla leið, þeir skulfu svo rosa-
lega,“ sagði hinn 32 ára gamli Du-
blinarbúi.
Það var gríðarleg spenna þegar
Faldo undirbjó púttið enda mikið í
húfi. Strange hafði mistekist rúm-
lega tveggja metra pútt sem hefði
jafnað leikinn og sett mikla pressu
á þá fjóra sem eftir voru. „Það skalf
allt nema pútterinn minn,“ sagði
Faldo sem einbeitti sér rosalega við
púttið, lokaði augunum og gaf sér
góðan tíma. „Við ræddum ekkert um
það fyrir síðasta daginn að við vær-
um tveimur stigum undir. Menn vissu
hvað þurfti að gera. Vinna, vinna
og vinna, það var það eina sem komst
að í hausnum á okkur. Það kann að
vera að það hafí verið af hinu góða
að vera undir því þá var ekki eins
mikil pressa á okkur. Við höfðum í
sjálfu sér engu að tapa og urðum
að leika til sigurs. Allir," sagði Faldo,
en hann tapaði einmitt fyrir Strange
á Oak Hill vellinum árið 1989 í Opna
bandaríska mótinu, í 18 holu umspili.
Strange var að vonum vonsvikinn.
Hann hefur ekki sigrað í móti síðan
á Oak Hill 1989 og það vakti því
nokkra furu þegar Lanny Wadkins
valdi hann í liðið. „Sveiflan, sem ég
er búinn að vinna í í þijú ár, var
ekki til staðar í dag og ég veit ekki
hversu lengi ég á að þijóskast við
að reyna að breyta henni. Andlega
var ég tilbúinn í slaginn en sveiflan
hélt ekki. Það eina sem ég get hugað
mig við var að tapa fyrir Nick, því
hann er einn albesti kylfingur sem
uppi hefur verið,“ sagði Strange.
Hann sagðist eiga von á að vera
tekinn í gegn af fjölmiðlum, en hann
tapaði öllum þremur leikjum sínum.
„Það skiptir ekki máli hversu harka-
lega ég verð tekinn í gegn, það kemst
Reuter
BERNHARD Langer slær upp úr glompu, en hann sigraði í
tveimur leikjum og tapaði þremur í keppninni að þessu slnni.
aldrei í hálfkvist við hvernig ég mun
taka sjálfan mig í gegn. Ég vil ekki
trúa því að höfum tapað.“
Gallacher snjall
Bernard Gallacher, fyrirliði Evr-
ópuliðsins, var snjall þegar hann rað-
aði liði sínu út síðasta daginn. Hann
fór þá óvenjulegu leið að hafa
reynslumestu leikmenn sína um mið-
bikið og láta síðan tvo nýliða í síð-
ustu tvo riðlana. Þetta gekk eftir,
því Evrópa fékk 5,5 vinninga á móti
1,5 úr úr þeim reynslumiklu. „Ég er
svo sannarleg ánægður með hvemig
dróst í riðla í dag, nákvæmlega eins
og ég vildi. Það tók mig reyndar
nokkuð langan tíma að sannfæra
sjálfan mig um að Philip [Walton]
og Per-Ulrik Johansson myndu ekki
fá neina pressu þó þeir væru í síð-
ustu riðlunum — og ég hafði hér um
bil rétt fyrir mér. Ég vil ekki taka
neinn leikmann útúr, þeir léku allir
frábærelga í dag og Philip var dá-
samlegur."
Gallacher var gagnrýndur fyrir
tveimur árum fyrir að vinna ekki
bikarinn þá og menn voru í vafa um
hæfileika hans til að stjóma liðinu.
„Ég hef alltaf sagt að fyrirliðastarfið
er ofmetið. Menn hafa sagt að eng-
inn geti verið fyrirliði nema hafa si-
garð á hinu eða þessu mótinu, en
ég er ósammála því og ég get ekki
fallist á að fyrirliðinn hlusti ekki á
aðra. Ég hlusta á aðra og tek síðan
mína ákvörðun, og sé ekkert athuga-
vert við það og er ánægður að ég
sannaði það í dag,“ sagði fyrirliðinn.
Seve er
enn hetja
ÞRÁTT fyrir að leika aðeins
þijá leiki og vinna einn þeirra
er Spánverjinn Severino Bal-
lesteros enn helja Evrópu í
Ryderkeppninni. Enginn hefur
fengið eins mörg stig í gegnum
árin, hann hefur 19 sinnum sigr-
að, fimm sinnum gert jafntefli
og tíu sinnum tapað. „Þetta var
erfið vika, ég fékk bara að leika
þijá hringi og hitti bara þijár
brautir. Eg er búinn að slá niður
allt röffið á vellinum og hér á
enginn eftir að týna bolta á
næstunni," sagði Ballesteros
hinn kátasti eftir sigurinn.
„Segðu fólkinu líka frá hinum
vilta lífi sem þú sást þegar þú
varst út um allt,“ sagði Faldo
og skýrskotaði til þess að Bal-
lesteros var alltaf út í móum.
Þrátt fyrir slakt gengi núna
sagði Bernard Gallacher, fyrir-
liði um hann: „Hann var mjög
mikilvægur fyrir liðið og allir
töldu sig þurfa að gera eitthvað
fyrir Seve því hann hefur gert
svo mikið fyrir golfið í Evrópu.“
Undir þetta tóku allir liðsmenn
Evrópu með því að standa upp
og klappa fyrir honum.
Tveir fóru
holu í höggi
TVEIR kylfingar fóru holu í
höggi í Rydernum að þessu
sinni. Constantino Rocca gerði
sér lítið fyrir á laugardaginn og
fór holu í höggi á sjöttu braut,
sem er 153 metra löng og á
sunnudaginn skellti Howard
Clark sér holu í höggi á 176
metra langri 11. brautinni, en
hann lék við Peter Jacobsen og
vann á síðustu holu. Þýðingar-
mikil hola í höggi. Hinn litríki
ítali fagnaði ógurlega á laugar-
daginn, hoppaði um og Sani
Torrance, félagi hans í fjór-
leiknum, faðmaði hann að sér
og lyfti honum enda voru þeir
félagar komnir með fjögurra
holna forystu eftir sex holur.
Menn telja að aðeins hafi fjór-
ir kylfingar farið holu í höggi í
Ryder. Peter Butler gerði það
árið 1973 á Muirfield og Nick
Faldo á Belfry árið 1993. Sjötta
holan á Oak Hill er vinsæl til
að fara holu í höggi á því á
Opna bandaríska árið 1989 fóru
fjórir holu í höggi á innan við
tveimur klukkustundum á örð-
um degi mótisns. Þetta voru
Doug Weaver, Mark Wiebe,
Jerry Pate og Nick Price.
ÞUNGU fargi var létt af Phllllp Walton sem
hér faðmar Bernard Gallacher fyrirliði.
BALLESTEROS faðmar Faldo eftir að hann
hafði gefið Evrópu tóninn á lokasprettinum.
WSm
pJiorðimtliMiiiíi
Árangurinn
Árangur kylfinganna var misjafn eins og gengur og gerist. Hér fer
árangur hvers og eins:
Evrópa:
Seve Ballesteros 1-0-2, Howard Clark 1-0-1, Nick Faldo 2-0-3,
David Gilford 3-0-1, Mark James 1-0-1, Per-Ulrik Johansson 1-0-2,
Bernhard Langer 2-0-3, Colin Montgomerie 2-0-3, Costantino Rocca
3-0-2, Sam Torrance 3-0-2, Philip Walton 1-0-1, Ian Woosnam 1-1-1.
Bandaríkin:
Fred Couples 2-1-1, Ben Crenshaw 0-0-3, Brad Faxon 1-0-2, Jay
Haas 1-0-3, Peter Jacobsen 1-0-2, Tom Lehman 2-0-1, Davis Love
3-0-2, Jeff Maggert 2-0-2, Phil Mickelson 3-0-0, Corey Pavin 4-0-1,
Loren Roberts 3-0-1, Curtis Strange 0-0-3.
ENGLAND: 122 212 1 X X 1112 ITALIA: 1X1 X21 11X X22X