Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 B 3
VIÐSKIPTI
Tölvusýningin á dögunum virðist ætla að skila góðum árangri
Spreng-
ingí
tölvusölu
TÖLVUSALA hefur aukist gríð-
arlega að undanf örnu og svo
virðist sem tölvusýningin sem
haldin var um siðustu helgi hafi
valdið nokkurri sprengingu á
þessum markaði.
Þeir aðilar sem Morgunblaðið
ræddi við segja söluna venjulega
taka mikjnn kipp í september og
salan sé yfirleitt nokkuð góð
fram á vor. Nú hafi salan hins
vegar farið nokkuð snemma af
stað auk þess sem hún sé tals-
vert meiri en undanfarin ár.
Ægir Ármannsson, verkefna-
sljóri tölvusölu Tæknivals, segir
að svo virðist sem fólk sé að
verða æ meðvitaðra um það að
þetta sé framtíðin og því fyrr
sem það taki þátt því betra. Hann
segir söluna hafa verið mjög
góða í septembermánuði og mikl-
ar pantanir liggi fyrir.
Pétur Ragnarsson, deildar-
stjóri PC-deildar Nýherja, segir
að þar hafi orðið alger sprenging
um helgina en fyrirtækið seldi
tölvur á sýningunni. „Við erum
nú góðu vanir en við höfum ekki
lent í svona löguðu í seinni tíð.
Við erum ekki ennþá búnir að
afgreiða nærri því allt sem við
seldum um helgina." Hann segist
skjóta á að um 150 vélar hafi
selst á sýningunni en auk þess
hafi verið stöðugur straumur
fólks nú eftir helgina. Birgðir séu
nær búnar og stór sending sé á
leiðinni. Því sé ekki gert ráð fyr-
ir því að neitt lát verði á þessari
sölu.
Reynir Jónsson, sölustjóri Ein-
ars J. Skúlasonar, segir að þar á
bæ hafi menn ekki heldur farið
varhluta af þessari aukningu.
Hann villþó fara varlega með
aðdraga of miklar ályktanir af
þessari aukningu ennþá þar sem
ekki sé komið í ljós hvort hún
muni endast.
Margmiðlunin heillar
Svo virðist sem tölvur með
margmiðlunarbúnaði séu hvað
vinsælastar í dag. Flestar tölvur
sem einstaklingar kaupa eru með
þeim búnaði auk þess sem mikil
sala er í mótöldum. Pétur segir
t.d. að u.þ.b. önnur hver tölva
sem seljist hjá Nýherja í dag sé
búin mótaldi. Það virðist því ekk-
ert lát vera á nýjungagirni land-
ans.
♦ » ■
Sala Maraþons
sjöfaldast
FORSVARSMENN Friggjar segj-
ast mjög ánægðir með þann árang-
ur sem auglýsingaherferð fyrirtæk-
isins fyrr á þessu ári hafi skilað
þeim. Að sögn Þorsteins Gunnars-
sonar, markaðsstjóra Friggjar,
fengust mjög sterk viðbrögð frá
neytendum strax í upphafi herferð-
arinnar og segir hann söluna í júlí
hafa margfaldast miðað við meðal-
sölu næstu þriggja mánaða þar á
undan.
Þorsteinn segir þessa söluaukn-
ingu hafa haldið að mestu leyti.
„í júlí seldum við um 8.000 pakka
af þvottaefninu og salan í ágúst
og september hefur verið á bilinu
6-7.000 pakkar. Auk þessarar
söluaukningar höfum við fengið
mjög jákvæð og góð viðbrögð frá
neytendum." Hann segistekki þora
að leggja mat á hver markaðshlut-
deild fyrirtækisins sé á þessum
markaði í kjölfar þessarar sölu-
aukningar.
Morgunblaðið/Ásdís
Hækkunin íAmer-
íkusiglingum um 8%
Eimskip vísar á bug gagnrýni á 21%
hækkun flutningsgjalda
ALMENN gjaldskrá Eimskips yfir
innflutning frá Bandaríkjunum hef-
ur hækkað um tæplega 8% í íslensk-
um krónum frá 1. nóvember 1993.
Á sama tíma hefur verðbólgan hér
innanlands verið um 4,5%.
Forráðamenn Samskipa hafa
gert hækkanir á gjaldskrá Eimskips
yfir þessa flutninga að umtalsefni
í tengslum við útboð á flutningum
fyrir varnarliðið. Af hálfu þess fé-
lags var bent á í Morgunblaðinu á
þriðjudag að Eimskip hefði hækkað
almenna gjaldskrá um 21% frá því
í nóvember 1993. Á sama tíma
væri Eimskip að lækka flutnings-
gjöld til varnarliðsins um 42%.
Þórður Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri flutningasviðs Eim-
skips, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að samanburður á flutnings-
gjöldum í dollurum talið segði að-
eins hálfa söguna. Staðreyndin
væri sú að gjaldskrá fyrir flutninga
frá Ameríku hefði hækkað um tæp
8% í íslenskum krónum frá því í
nóvember 1993. Þá væru ýmsir
aðilar með þjónustusamninga við
Eimskip sem ekki byggðu alfarið
á gjaldskránni. „Frá því farið var
að bjóða út varnarliðsflutninga
hafa flutningsgjöld sveiflast um-
talsvert og ekki í samræmi við
breytingar á flutningsgjöldum á
íslenska markaðnum."
Hann kvaðst einnig vilja mót-
mæla þeim fullyrðingum að dregið
hefði úr samkeppni eftir að Sam-
skip hættu siglingum á Ameríku-
leiðinni. „Það er mikil samkeppni í
Ameríkusiglingum því bæði Jöklar
og Van Ommeren hafa reglubundn-
ar siglingar á þeirri leið auk Eim-
skips.“
IhV^mIiI
Allt bendir til að Winnipeg, Kanada verði miðdepill umræðna
um alla verslun sem varðar vetrarbúnað, 9-13 febrúar, 1996.
Möguleikar? bá mun borgin verða í brennidepli um allan
heim hvað varðar grósku í
markaðsmöguleikum alls þess er
varðar vetrarbúnað.
Grípið þetta tækifæri. Takið þátt
í vetrarlifi Winnipegborgar í miðdepli
Norður-Ameríku, verið með í
WINNIPEG RÁÐSTEFNU OG SÝNINGU BORGA Á
KÖLDUM SLÓÐUM.
Fyrirtæki sem bjóða upp á vörur eða þjónustu
sem henta við vetraraðstæður geta notfært sér þetta sérstaka
tækifæri til að ná til heimsmarkaðarins með þátttöku í sýningunni.
Viðstaddir sýninguna í Fundamiðstöð Winnipegborgar verða
borgarstjórar og aðrir opinberir aðilar, ásamt fulltrúum
verslunarfyrirtækja um allan heim.
Þér er boðið, sem embættismanni, háskólaborgara, opinberum
starfemanni, verslunarfrömuði eða sjálfboðaliða um þjóðfelag-
sumbætur, að koma til Winnipeg og kynna þér þjóðfélagslegar og
efnahagslegar hliðar mannlífe í vetrarríki í blómlegri borg.
Yfirskriftin er, Mannlíf, að búa, vinna og leika sér á köldum slóðum.
Átta vel valin námssvið tryggja góð not af þátttöku í ráðstefnunni.
hú getur valið um
•Fjölmiðlun
•Leikir og skemmtanir
•Afekekktir staðir
•Húsaskjól, hönnun og umhverfismál
•Samgöngur
•Þingað um íþróttalækningar
Verið hjartanlega
velkomin
•Dýragarðar á-köldum vetri
•Sérstök ráðstefna um málefni og aðgang fýrir V
fatlaðra á köldum slóðum.
Þelr aðilar í Winnipeg sem standa að
dægradvöl, menningarviðburðum og
atvinnurekstri hafa skipulagt kynnin-
garferðir fyrir þátttakendur og gesti, maka ■ ■ . .
þeirra og böm, að þeir megi kynnast'af eigin
raun blómiegu mannlífi borgarinnar. Mundu Ifka að í
Winnipeg endist bandaríkjadollarinn þriðjungi lengur.
í Winnipeg er unnið af kappi til þess að WINNIPEG
RÁÐSTEFNAN OG SÝNING BORGA Á KÖLDUM SLÓÐUM, fari
sem best fram. Við erum einmitt fræg fyrir hlýjar móttökur
sérstaklega á köldum vetrardögum.
Winnipeg býður þátttakendur og gesti velkomna að njóta
þessarar hlýju. Við getum annast hverskonar þarfir um
sýningarsvæði eftir því sem óskað er. Gjörið svo vel að panta
sýningarsvæði svo fljótt sem unnt er. Varðandi frekari upplýsingar
um skráningu sýninga, þátttöku í ráðstefnunni og um Winnipeg
yfirleitt haf samband við
7th lntemAtional Wlnter Cltles Wlnnlpeg ’96
(Sjöunda ALÞ|ÓÐLEG RÁÐSTEFNA BORGA Á
KÖLDUM SLÓÐUM, Winnipeg 96)
320 -25 Forks Market Road
Winnipeg, Manitoba.Canada R3C 4S8
Slmi: 204-943-1970*
Fax: 204-942-4043
Intemet:
http://www.Touiism.Winnij3eg.MB.CA/winterct/
E-mail: Wpglnfo@Tourism.WlnhijDeg.MB.CA
'Simaþjónusta einungls á ensku
Canadikin
XANAUAK nátli nilCRUG
Canada