Morgunblaðið - 21.10.1995, Qupperneq 1
• Hin heilaga minning/3
• Uppsveifla í útgáfu/4
• Nöldrað um Heaney/6
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
MENNING
USTIR
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 BLAÐ{
Arthur Miller áttræður
Morgunblaðið/Ásdís
Röskir
ræningjar
KARDEMOMMUBÆRINN eftir
Thorbjörn Egner verður frum-
sýndur í fimmta sinn í Þjóðleik-
húsinu í dag og munu ræningj-
arnir þrír væntanlega baða sig
í sviðsljósinu. Nánar er fjallað
um sýninguna á blaðsíðu 3 í
Menningarblaðinu í dag.
ÁSHILDUR Haraldsdóttir SELMA Guðmundsdóttir
flautuleikari. píanóleikari.
Smáverk á
tónleikumog
geisladiski
Ashildur
Haraldsdóttir
flautuleikari og
Selma Guðmunds-
dóttir píanóleikari
halda útgáfutón-
leika í Hafnarborg,
menningar- og
listastofnun Hafn-
arfjarðar, á morgun
sunnudag kl. 20.30.
Á efnisskrá tón-
leikanna er að finna
úrval stuttra tón-
verka, svokallaðra
smáverka, fyrir
flautu og píanó sem
þær Áshildur og
Selma hafa nýlega
leikið inn á hljóm-
disk. Diskurinn,
sem ber nafnið Min-
iatures, kemur út
hjá útgáfufyrirtæk-
inu Spori á næst-
unni.
Áshildur sagðist
í spjalli við Morgun-
blaðið efast um að
smáverkin hafi ver-
ið leikin hér á landi
áður og sum þeirra
hafa jafnvel aldrei
verið leikin inn á
plötu áður. „Margt
af því sem ég spila
er eitthvað sem ég
hef grafið upp hér
og þar. Sum verkin eru eftir
óþekkt tónskáld sem ég fann ekki
einu sinni í tónlistarorðabókum,
þótt inn á milli séu þekktari verk.“
Áshildur sagði að flautuleikarar
leiki mikið sömu verkin aftur og
aftur og þá gjarnan verk sem þeir
læra meðan þeir eru í námi. „Mér
finnst oft gleymast að
flest frá síðustu
aldamótum og
tengdust Tónlistar-
háskólanum í París.
Verk íslensku höf-
undanna, þeirra
Árna Björnssonar,
Atla Heimis Sveins-
sonar og Þorkels
Sigurbjörnssonar,
eru mun yngri en
eru svipuð að lengd.
leita annað og finna ný verk. Eg
er alltaf að leita að verkum og
grúska hér og þar og vonast alltaf
eftir að finna einhveijar perlur
þótt auðvitað kaupi ég einnig mik-
ið af ónothæfum verkum,“ sagði
Áshildur.
Hún sagði að
smáverkin væru
Tveir
fingurbijótar
Áshildur sagði að
á diskinum og efnis-
skrá tónleikanna
væru tveir sannkall-
aðir fingurbrjótar
sem eiga að leiða í
ljós hvers flautan er
tæknilega megnug.
„Þetta eru tvö smá-
verk. Ég spila þau
til að hrista upp í
fólki og bijóta uþp
stemmninguna á
diskinum,“ sagði'
hún.
Áshildur býr í
París og hefur nóg
að gera við spila-
mennsku bæði sem
einleikari og með
kammerhljómsveit.
Hún segist leika
u.þ.b. tvisvar á ári
á tónleikum hér á landi sem er
að hennar sögn hæfilegt fyrir
stærð markaðsins en bætti við að
hún myndi fegin vilja búa á ís-
landi ef unnt væri að leika þar
oftar. Væntanlegur er diskur sem
gefinn verður út í Svíþjóð en þar
leikur Áshildur, með undirleik
hljómsveitar, konserta frá barr-
okktímabilinu og mun hún fylgja
honum eftir þar í landi á næst-
unni.
Samstarf hennar og Selmu er
nýtt af nálinni og hefur það geng-
ið mjög vel enda Selma sjóuð í
meðleik á geisladiskum að sögn
Áshildar, en hún lék meðal ann-
ars með Sigrúnu Eðvaldsdótt-
ur fiðluleikara á disk hennar,
Cantabile. Selma hefur
einnig haldið fjölda ein-
leikstónleika, leikið einleik
með hljómsveitum og spil-
að kammertónlist.
gp,
Norwich. Reuter.
BANDARÍSKA leikritaskáld-
ið Arthur Miller hélt upp á
80 ára afmæli sitt á þriðjudag
með því að gefa út nýja skáld-
sögu og greina frá nýju leik-
riti, sem hann hefði í smíðum.
Arthur Miller
Miller er eitt helsta leik-
ritaskáld þessarar aldar, þótt
ef til vill þekki hann fleiri
fyrir að hafa verið kvæntur
Marilyn Monroe og barist
gegn kommúnistaveiðum Jos-
ephs McCarthys í Bandaríkj-
unum, en að hafa skrifað
„Sölumaður deyr“ og „Horft
af brúnni".
Skrifar meira nú
Skáldskapargyðjan virðist
ekki hafa yfirgefið Miller og
hann kveðst skrifa meira nú
en hann gerði fyrir nokkrum
árum. „Þetta er arður, sem
ég átti ekki von á,“ sagði
Miller á afmælisdeginum.
„Að geta skrifað hvað sem
mér sýnist og hafa minni
áhyggjur en áður af því
hvernig því er tekið."
Miller kaus að halda upp á
afmælið í nýju leikhúsi, sem
verið er að reisa í Norwich á
Austur-Englandi. Við háskól-
ann þar er sérstök deild
kennd við MiIIer.
Miller lætur sér fátt um
uppfærslur og leiksýningar á
Broadway finnast um þessar
mundir og hægri sveiflan í
bandariskum stjórnmálum er
honum lítt að skapi.
„Það er meira sýnt eftir
Tennessee Williams í London,
en í New York. Á síðasta ári
voru aðeins tvö hefðbundin
leikrit sýnd á Broadway. Allt
hitt voru söngleikir. Há
útgjöld hafa lamað New
York [í leikhúsmálum],“
sagði Miller.
Gagnrýnir
Bandaríkjaþing
„Þetta er afturhalds-
amasta Bandaríkjaþing,
sem ég hef upplifað. En
stjórnmál eru eins og
stórt gerdeig, sem lyftist
og fellur og hefur á sér
endaskipti í sífellu. Eins
og stendur er pólitíkin til
hægri og það er ég ekki
ánægður með.“
Nýja skáldsagan hans,
„Sú látlausa" (The Plain
Girl), sem er aðeins 50
blaðsíður að lengd, hefur
fengið misjafnar viðtök-
ur, en hann lætur það
ekki á sig fá: „Það
væri hins vegar hræði-
legt ef þeir segðu að hún
væri of löng.“
Miller kveðst ætla að
Ijúka nýju leikriti inn-
an hálfs árs og segist
enn hafa úthald til að
vinna myrkranna á
milli.
Nú er verið að kvik-
mynda eitt af vinsælustu
leikritum hans, „I deigl-
unni“ (The Crucible), með
Daniel Day-Lewis og
Winonu Ryder í aðal-
hlutverkum. Verkið
fjallar um nornaveiðarnar
í Salem í Massachusetts, en
er í raun ádeila á kommún-
istaveiðar hinnar svokölluðu
óamerísku nefndar Banda-
ríkjaþings á sjötta áratugn-
um.
Leikritið hefur selst í sjö
milljónum eintaka í pappírs-
kilju í Bandaríkjunum. Miller
skrifaði kvikmyndahandritið
og segir að boðskapur þess
sé enn í fullu gildi.
„Sjúkleg tortryggni færist
jafnt og þétt í aukana í heim-
inum og leikritið fjallar
um dulda ógn af því tagi,“
segir Miller.
Fagnar með
nýrri bók og
boðar leikrit
!