Morgunblaðið - 26.10.1995, Blaðsíða 1
RÁÐSTEFWA
Bankamenn skoða
efnahagslífið/4
RÁÐGJAFI
Starfsmannastefna
mikilvæg /6
VERSLUN
Samkeppni í sölu
snyrtivara /9
VIDSKIFTIMVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 26. OKTOBER 1995
BLAÐ
B
Burmeister
Mikil óvissa ríkir um framtíð
skipasmíðastöðvarinnar Bur-
meister & Wain í Danmörku eftir
að helsti lánardrottinn stöðv-
arinnar, Chemical Bank, hafnaði
áætlun um fjárhagslega endur-
skipulagningu fyrirtækisins.
Chemical Bank á um 8,7 milljónir
dollara af skuldabréfum fyrirtæk-
isins. Sjá bls. b8.
Flugleiðir
Velta Flugleiða vegna tveggja
nýrra leiða til Boston og Halifax
á næsta ári eykst um sem nemur
tveimur milljörðum króna. Þetta
samsvarar um það bil þriðjungi
af veltuaukningu vegna stækk-
unar álversins í Straumsvík. Áætl-
að er að 60 þúsund manns ferðist
á þessum leiðum.
Bankar
Útlánsvextir bankanna hækkuðu
í vor um 0,4 til 1 prósentustig en
hafa ekki breyst undanfarna 5
mánuði. Að öllu óbreyttu stefnir
nú í að meðalvextir verðtryggðra
lána á árinu verði um 0,8 pró-
sentustigum hærri en síðasta ári
og verði 8,7% í stað 7,9%, en
meðalvextir óverðtryggðra lána
hækki um 0,6 prósentustig, úr
10,9% í 11,5% milli ára.
SÖLUGENGIDOLLARS
KennitöSur sparisjóðanna 1994
Heildar- Framlagí
útlán afskritta-
Hagnaður Eignarfjár-
e. skatta Eigið fé hlutfall (%)
Sparisjóður millj. kr reikning millj. kr. millj. kr. millj.kr. skv. BIS
Sparisj. Reykjavíkur og nágr. 7.740 -69 60 819 13,4
Sparisj. Hafnarfjarðar 5.329 -64 60 1.001 21,0
Sparisj. í Keflavík 5.240 -158 1 451 8,7
Sparisj. vélstjóra 4.420 -31 38 741 17,4
Sparisj. Mýrarsýslu 2.620 -62 17 451 18,2
Sparisj. Kópavogs 1.729 -29 5 113 8,4
Sparisj. Vestmannaeyja 1.055 -13 18 163 15,7
Sparisj. Bolungarvíkur 1.364 -13 22 291 33,7
Sparisj. Ólafsfjarðar 1.149 -40 5 125 10,8
Sparisj. Svarfdæla 864 -21 7 156 16,1
Sparisj. V-Húnavatnssýslu 813 -20 15 120 15,2
Eyrarsparisjóður 760 -12 2 76 9,9
Sparisj. Siglufjarðar 642 -10 4 132 24,3
Sparisj. Norðfjarðar 473 -6 17 133 33,9
Sparisj. S-Þingeyinga 450 -23 -7 51 10,7
Sparisj. Glæsibæjarhrepps 408 -4 11 74 21,5
Sparisj. Þórshafnar og nágr. 385 -10 7 100 34,2
Sparisj. Akureyrar og Arnhr. 334 -4 11 128 45,3
Sparisj. Þingeyrarhrepps 310 -9 6 81 28,8
Sparisj. Ólafsvíkur 351 -5 7 62 17,8
Sparisj. Önundarfjörður 330 -4 8 86 33,2
Sparisj. Hornafjarðar og nágr. 267 -5 2 19 8,9
Sparisj. Höfðhverfinga 211 -6 6 47 23,1
Sparisj. Mývetninga 193 -14 -6 24 11,4
Sparisj. Strandamanna 153 -1 9 65 47,9
Sparisj. Hrútfirðinga 103 -1 2 21 36,2
Sparisj. Súðavíkur 111 -1 3 15 13,4
Sparisj. Árneshrepps 29 -1 0 7 37,9
Sparisj. Hólahrepps 14 0 0 5 49,8
Sparisjóðir samtals 37.847 -635 330 5.557 16.6
Markaðshlutdeild sparisjóða
miðað við heildarinnlán viðskiptabanka og sparisjóða
1990 1991 1992 1993 1994 1995
Ávöxtun 20 ára spariskírteina lækkar
um 0,2 prósentustig í útboði ríkissjóðs
Setur íiuldnn
kraft í lækkun
langtíma vaxta
NIÐURSTAÐA útboðs Lánasýslu
ríkisins á verðtryggðum spariskír-
teinum ríkissjóðs til tuttugu ára í
gær gefur sterka vísbendingu um
að frekari lækkanir langtímavaxta
séu framundan, að mati sérfræð-
inga. Er búist við að ávöxtunarkrafa
húsbréfa muni lækka umtalsvert
strax í kjölfarið eða jafnvel niður
fyrir 5,8% á nýjasta flokki bréfanna.
Alls bárust 109 gild tilboð að fjár-
hæð 2.180 milljónir króna að sölu-
verðmæti í útboðinu. Tilboðum þrett-
án aðila var tekið og nam heildarfjár-
hæð þeirra 594 milljónum króna.
Meðalávöxtun samþykktra tilboða í
verðtryggð spariskírteini til tuttugu
ára lækkaði úr 5,95% í 5,75%, en
var 5,79% á skírteinum til tíu ára.
Tíu ára árgreiðsluskírteini voru nú
boðin út í fyrsta sinn og var meðal-
ávöxtun samþykktra tilboða í þau
5,77%.
í athugun að efna til
aukaútboðs
Pétur Kristinsson, hjá Lánasýslu
ríkisins, segir að þátttakan í útboð-
inu hafi verið mun betri en hann
átti von á. „Þörfin á tuttugu ára
skírteinunum var fimmfalt meiri en
við reiknuðum með og því er í athug-
un að vera með aukaútboð eftir hálf-
an mánuð. Þetta er annað útboðið
með tuttugu ára skírteini og greini-
legt að mikil þörf er fyrir þau. Avöxt-
unarkrafan lækkar töluvert og með
hliðsjón af mikilli eftirspurn má bú-
ast við enn frekari lækkun á eftir-
markaði."
Árni Oddur Þórðarson, forstöðu-
maður hjá Skandia, segir að niður-
stöður útboðsins í gær sýni vel að
markaðurinn hafi trú á áframhald-
andi vaxtalækkun. „Lægri ávöxtun-
arkrafa og gífurlegur áhugi á tutt-
ugu ára bréfum gefur þetta skýrt
til kynna. Þá er áberandi þessa dag-
ana að spurn eftir bréfum er langt
umfram framboð. Vaxtalækkun á
næstu vikum kæmi því ekki á óvart.“
„Húsbréfin seldust upp“
Davíð Björnsson, forstöðumaður
hjá Landsbréfum, segir að niðurstaða
útboðsins sé mjög sterk vísbending
á markaðnum um hvert stefni. „Þeg-
ar niðurstaðan varð ljós seldust hús-
bréf upp hjá okkur og það kæmi mér
ekki á óvart þó ávöxtunarkrafa hús-
bréfa lækkaði frekar í kjölfarið. Þetta
setur aukinn kraft í lækkunina."
Davíð kvaðst reikna með því að
ávöxtunarkrafan færi jafnvel niður
fyrir 5,8%. „Við höfum orðið varir
við það að framboð annarra verð-
tryggðra bréfa frá fyrirtækjum og
sveitarfélögum er mjög lítið á mark-
aðnum og þau eru því ekki að spenna
upp ávöxtunarkröfu eins og oft áður.
Þá er töluvert af erlendum lánum
að fara beint til stórra lántakenda
hér á landi. Sem dæmi má nefna
að Norræni fjárfestingarbankinn
hefur lánað til nokkurra stórfyrir-
tækja á árinu.“
ISLENSKI
LÍFEYRISSJÓÐ URINN
fyrirhyggja til framtíðar
íslenski lífeyrissjóðurinn hf, séreignasjóður í umsjá Landsbréfa,
hefur sýnt bestu ávöxtun séreignasjóða sl. fjögur ár.
Allir sem vilja skapa sér og sínum meira öryggi
í framtíðinni eiga erindi í sjóðinn.
SUÐURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVIK, S
m
Ráðgjafar Landsbréfa hf.
og umboðsmenn í
Landsbanka Islands
um allt land
veita allar frckari upplýsingar
i
y LANDSBRÉF HF.
fti - ht^ihh
588 9200, BREFAS
5 8 8 8 5 9