Morgunblaðið - 11.11.1995, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 D 7
Kímin hversdagsrómantík
MYNPLIST
Kjarvalsstadir
MÁLVERK, HÖGGMYND-
IR, BLÖNDUÐ TÆKNI
Samsýning. Opið kl. 10-18 alla daga
til 6. des. Sýningarskrá kr. 800
Aðgangur kr. 300 (gildir á allar
sýningar).
ÞAÐ hefur löngum verið talið
álitamál hvort allar sýningar í opin-
berum söfnum skuli vera á ábyrgð
fastráðinna starfsmanna, eða hvort
leitað skuli á stundum til utanað-
komandi aðila til að fá inn ný við-
horf og ólík vinnubrögð. Þetta hef-
ur nú verið gert á Kjarvalsstöðum,
en þar hefur verið opnuð sýning
sem Auður Ólafsdóttir listfræðing-
ur hefur valið og sett upp undir
heitinu „Eins konar hversdagsróm-
antík“.
í sýningarskrá rekur Auður að
nokkru hugsunina að baki sýning-
unni, þegar hún bendir á að „í
myndlistarhraðlest samtímans er
stundum talað um að kynslóða-
skipti verði á fimm ára fresti". Því
sé öðru hverju nauðsynlegt „að
taka púlsinn á þreifingum yngstu
kynslóðarinnar í íslenskri mynd-
list“, og þetta er sýningunni ætlað
að gera. Til þess verks hefur hún
valið sextán myndlistarmenn sem
eiga það sameiginlegt að vera
fæddir á sjöunda áratugnum, hafa
lokið listnámi hér heima og erlend-
is, og vera starfandi myndlistar-
fólk. Þennan hóp, ólík efnistök
listamannanna og viðfangsefni, tel-
ur Auður gefa bestu mögulegu
myndina af því sem er að gerjast
meðal ungs myndlistarfólks í dag.
Stór hlutur málverksins hér kann
að koma mörgum á óvart í fyrstu,
en er í góðu samræmi við hægfara
þróun sem listunnendur hafa merkt
síðustu ár í átt til kyrrlátra mál-
verka sem eru hvoru tveggja í senn,
kímin og íbyggin. Þetta er gjör-
breyting frá þeim öfluga express-
ionisma sem var að finna í hinu
svokallaða nýja málverki, sem kom
fram á sjónarsviðið hér fyrir rösk-
um áratug.
Þetta sést hér gleggst í málverk-
um þeirra Birgis S. Birgissonar,
Steinunnar H. Sigurðardóttur, Sig-
tryggs B. Baldvinssonar, Þorra
Hringssonar og jafnvel Valgerðar
Guðlaugsdóttur, þó þar komi einnig
fleira til. Þær ríkulegu tilvísanir
sem finna má í þessum verkum til
listasögunnar, æskunnar, málunar-
tækninnar og hvunndagsins skapa
um leið afar persónulega tjáningu
viðkomandi listafólks, sem er vel
aðgengileg fyrir áhorfendur. Svip-
að má segja um verk þeirra Lilju
B. Egilsdóttur, Victors G. Cilia og
BIRGIR Snæbjörn Birgisson:
Drengur á bát og ritur. 1995.
jafnvel Guðbjargar H. Leaman, þó
málverkið sjálft sé þar viðfangs-
efnið fremur en ytri tilvísanir.
Landslagshefðin er í nokkuð sér-
stakri endurnýjun hjá sumum hér,
og má einkum benda á verk Þor-
bjargar Þorvaldsdóttur, þar sem
gömul minni hverfast saman á nýj-
an hátt. Gústaf G. Bollason er
vissulega einnig að vinna með land-
ið, en á nokkuð annan hátt, og
svipað má segja um framlag Huldu
H. Ágústsdóttur, sem raunar teng-
ist þó ekki síður myndbandalist en
nýsköpun landslagshefðarinnar.
Ymislegt á sýningunni virðist
fremur tengjast hinu liðna en því
sem framundan er. Innsetningar,
list orðsins og tæknispil hafa verið
mjög áberandi á listvettvangi síð-
ustu tvo áratugi og eru enn öflug
listform, en njóta minni athygli en
áður í þeirri endurskoðun og end-
urnýjun s'em aldarlokin kalla á. Hér
hallar líka á þessi verk í samhengi
heildarinnar.
Sýningarskráin sem fylgir er að
þessu sinni unnin með nýju sniði
sem er handhægt í notkun, þó það
kunni að hugnast söfnurum illa.
Hér er um að ræða möppu sem
inniheldur stór kort af verkum ein-
stakra listamanna, og hefti með
ágætum og upplýsandi texta Auðar
Ólafsdóttur. Efnislega er helst að
lesandinn sakni samræmds yfirlits
yfir feril þess listafólks sem hér
sýnir og ætti að vera sjálfsagður
hluti sýningarskrár.
í heildina er þetta vel heppnuð
og áhugaverð sýning á verkum
yngstu kynslóðar starfandi mynd-
listarfólks, sem vert er að benda
fólki á; hana má taka sem eins
konar spá um framtíðina og kæmi
ekki á óvart þó ýmsir úr hópi sýn-
enda hér ættu eftir að marka sín
spor með afgerandi hætti í íslensk-
um listheimi næstu áratugina.
Eiríkur Þorláksson
Magnificat
í Landakotskirkju
DÓMKÓRINN og
kammerhljómsveit
undir stjórn Rutar
Ingólfsdóttur og ein-
söngvararnir Marta
G. Halldórsdóttir,
Signý Sæmundsdótt-
ir, Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, Þorgeir
J. Andrésson og
Bergþór Pálsson
munu í dagkl. 17
flytja Magnificateftir
J. S. Bach í Landa-
kotskirkju. Tónleik-
arnir verða endur-
teknir á sunnudag kl.
17.
Sljórnandi tónleik-
anna verður prófessor Hans Jo-
achim Rotzsch, sem hefur starf-
að í fjölda ára við sömu kirkju
og Bach, Tómasarkirkjuna í
Leipzig.
Magnificat sem er lofsöngur
Maríu, samdi J.S. Bach árið 1723
og var það sungið við aftansöng
jóla í Tómasarkirkjunni í Leipz-
ig. Bach umskrifaði
verkið seinna eða
1730 og hefur það
verið flutt síðan á
þann hátt. Verkið er
fyrir fimm einsöngv-
ara, fimmraddaðan
kór og hljómsveit.
Mótettan „Jesu,
meine Freude“ verð-
ur einnig flutt á tón-
leikunum í Landa-
kotskirkju. Mótett-
an, sem er fyrir
fimmraddaðan kór
og undirleik, var
einnig samin á árum
Bachs í Leipzig. Hún
var sungin við útfar-
ir heldri borgara. Textann valdi
Bach sjálfur og lýsir hann af-
stöðu hans til lrfs og dauða.
„Þó mín bíði böl og stríð,
er mitt skart og yndið bjarta
Jesús, heill míns hjarta."
Johann
Sebastian Bach
Myndlistar-
maður
mánaðarins í
Gallerí List
ÆJA, Þórey Magnúsdóttir,
opnar sýningu á málverkum í
Gallerí List við Skipholt 50b í
dag, laugardaginn 11. nóvem-
ber, ld. 11. Opnunartími Gall-
erí Listar er virka daga frá kl.
11-18 og laugardaga frá kl.
11-14, sýningin stendur út
mánuðinn.
Æja lauk stúdentsprófi af
listasviði Fjölbrautaskólans í
Breiðholti 1981. Hún stundaði
nám í Myndlistarskóla Reykja-
víkur 1979-1984. Æja hóf nám
við Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1982 og lauk prófi úr
Myndmótunardeild 1985. Einn-
ig var hún við nám í glersteypu
þjá Jónasi B. Jónassyni gler-
listamanni árið 1994. Á síðustu
árum hefur hún unnið að list
sinni. Æja hefur haldið tvær
einkasýningar og tekið þátt í
fjölmörgum samsýningum hér-
lendis.
Steinleir og
strákskapur
MYNPUST
Gallcrí Úmbra/
Mokka
LEIRLIST/BLÖNDUÐ
TÆKNI
Lára K. Samúelsdóttir/Ásmundur
Ásmundsson. Gallerí Úmbra: Opið
kl. 14-18 alla daga nema mánud. til
15. nóv. Mokka: Opið alla dagatil
17. nóv. Aðgangur ókeypis.
ÞAÐ er stutt á milli þessara sýn-
ingarstaða, en það er lengra bil á
milli þess sem þar getur að líta;
annars vegar er hefðbundin úr-
vinnsla skraut- og nytjamuna, hins
vegar stráksleg skemmtun á grunni
spurninga um á hveiju ein listsýning
kunni að byggja og hlut listamanns-
ins sjálfs í þvi samhengi.
Lára K. Samúelsdóttir
Lára stundaði nám við kennara-
deild Myndlista- og handíðaskóla
íslands um miðjan áttunda áratug-
inn, en sneri aftur síðar til að setjast
í keramikdeildina. Eftir að hafa
starfað sem myndmenntakennari á
annan áratug tók hún fyrir nokkrum
árum að helga sig leirnum, og hefur
tekið þátt í nokkrum samsýningum,
en hér er á ferðinni fyrsta einkasýn-
ing hennar.
Listakonan sýnir tæplega fjörutíu
verk unnin í steinleir. Þeim má skipta
í tvo meginflokka; annars vegar
ramma og hins vegar ker, skálar og
fleira, sem hún kallar einu nafni
„meiri eða minni leirmál". Milli þess-
ara tveggja er síðan mót af eyra í
ramma, sem vísar til listasögunnar.
Um leið vísar þetta tiltekna verk
til rammanna sem fylla einn vegg-
inn, en þar má fínna úrvinnslu sem
bendir til ýmissa þekktra verka.
Þessir rammar eru að vissu marki
hluti af eins konar „afleiðslu“-iðnaði
tengdum iistasögunni, sem verður
gjarna mjög klisjukenndur; hér er
þó farið vel með efnið, en rammarn-
ir hefðu eflaust notið sín best einir.
Hin ýmsu leirmál, ker og skálar,
eru áhugaverðasti þáttur sýningar-
innar. Hér er farið mjög faglega
með efnið, og vönduð vinnubrögð
skila sér í tignarlegum verkum, eink-
um í kerum og stærri skálum eins
og nr. 20 og 36. Fínleg litbrigði blá-
mans njóta sín vel í mörgum þeirra,
sem og sú mynsturvinna, sem kemur
fram í mörgum verkanna, jafnt stór-
um kerum sem smáum bollum.
Verklagið er hér til fyrirmyndar
og skilar af sér vel unnum gripum,
sem ættu að sóma sér vel innan leir-
listarinnar.
Ásmundur Ásmundsson
í Mokka hefur verið komið fyrir
nokkrum verkum frá ungum lista-
manni, Ásmundi Ásmundssyni, sem
stundar nú frekara listnám í New
York. Ásmundur hélt sína fýrstu
einkasýningu í Gerðubergi stuttu
eftir að hann útskrifaðist frá MHÍ
fyrir tveimur árum, og hefur tekið
þátt í ýmsum samsýningum síðan.
Yfirskrift sýningarinnar hér er
„Ásmyndir á (S)Mokka!!“, sem er
vægt sagt of sjálfsagður orðaleikur
til að vera fyndinn, en það virðist
öðru fremur markmiðið með ýmsu
því sem hér er sett fram. Þetta á
við 18 ljósmyndir frá vinnustofu
listamannsins og 6 svonefnda „Snið-
uga skúlptúra" sem eru einföld gifs-
verk þar sem formgæðin eru óljós,
en titlarnir eiga að marka verkin.
Sterkasti þáttur uppsetningarinn-
ar felst í tveimur ljósmyndum af
listamanninum sem nefndar eru
„Fyrir og eftir“, og er skemmtilegt
að velta fyrir sér því hyldýpi sem
er milli tilvísana myndanna, þó
breyting þeirra sé í sjálfu sér ein-
föld; annars vegar einurð, alvarleiki,
ákveðni - en hins vegar ögrun,
kæruleysi og sjálfumgleði.
Annað atriði við þessa framkvæmd
sem lyftir brún gesta er að finna í
sýningarskránni, þar sem gert er
góðlátlegt grín að mikilfengleik um-
fangsmeiri sýninga og öllum þeim
sem að slíku verki koma; hér þakkar
listamaðurinn auðmjúklega öllum
sem áttu einhvern þátt í að sýningin
varð til - skrifurum, uppsetjurum,
ljósmyndurum, umboðsmönnum,
sendisveinum - nánast þrátt fyrir
lítinn hlut listamannsins sjálfs.
Þessi strákskapur Ásmundar
minnir réttilega á að listsýning er
oft spurning um framsetningu frem-
ur en innihald, og hlutur listamanns-
ins sjálfs getur verið eftir því veiga-
lítill.
Eiríkur Þorláksson
MENNING/LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Kjarval - mótunarár 1885-1930.
Sýn. Einskonar hversdagsleg róman-
tík og sýn. Einars Sveinss. tii 9. des.
Listasafn Islands
Sýn. safns Ásgríms Jónss. til 26. nóv.
Gallerí Fold
Sigurbjörg og Adam sýna til 19. nóv.
Gallerí Borg
Ingálvur af Reyni sýnir.
Listhús 39
Einar Már Guðvarðarson og Susanne
Christensen sýna til 27. nóv.
Hafnarborg Erla B. Axelsd., og Jón
Gunnarss., sýna til 27. nóv.
Ásmundarsalur
Ásdís Kalman sýnir til 19. nóv.
Norræna húsið
Ljósmyndasýn. Tove Kurtzweill til
12. nóv., Grafíksýn. til 3. des. í and-
dyri; Berta Moltke frá Danm. sýnir
grafíkverk til 3. des. og Lína Lang-
sokkur/jólasýn. til 31. des.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
Sýning á völdum andlitsmyndum eft-
ir Sigurjón Ólafsson.
Gallerí Úmbra
Lára K. Samúelsd. sýnir leirv. til 15. nóv.
Gallerí Sólon íslandus
Steph. sýnir ljósmyndir til 16. nóv.
(jnnur hæð
Alan Charlton sýnir út desember
Nýlistasafnið
Guðný og Thomas sýna og Martin f
Setustofu til 26. nóv.
Gallerí Greip
Tinna Gunnarsdóttir sýnir til 26 nóv.
Mokka
Ásmundur Ásmundsson sýnir.
Við Hamarinn
Karl Jóhann Jónsson sýnir til 12. nóv.
Listhúsið, Laugardal
Eva Benjamínsdóttir sýnir ._______
TONLIST
Laugardagur 11. nóvember
Skagf. söngsv. og söngsv. Drangey
með afm.tónl. t Langholtskirkju kl.
17. Einsöngstónl. í Selfosskirkju kl.
16; Svava K. Ingólfsd. messósópran
og Iwona Jagla pranól. Magnifica
eftir Bach í Landakotskirkju kl. 17.
Sunnudagur 12. nóvember
Magnifica eftir Bach í Landakots-
kirkju kl. 17. Tónlistard. Dómkirkj-
unnar kl. 15; Natalia Chow og Helgi
Pétursson.
Miðvikudagur 15. nóvember
Haustvísa í Hafnarborg; kl. 20. Kór
Langholtskirkju í kirkjunni kl. 20.30.
Blásarakammermúsík í Áskirkju kl.
20.30.
Fimmtudagur 16. nóvcmber
Senoritukórinn og gamlir fóstbræður
skemmta ásamt öðrum gestum að
Ægisgötu 7 kl. 20.30.
Föstudagur 17. nóvember
Karlak. Fóslbræður í Digraneskirkju kl.
20.30. -
Laugardagur 18. nóvember
Kór Langholtskirkju í Logal. Borg-
arf. kl. 15.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Þrek og tár sun. 12. nóv., ftm., fös.,
lau. Taktu lagið, Lóa sun. 12. nóv.,
fim., fos., lau. Stakkaskipti lau. 11.
nóv. Sannur karlmaður lau. 11. nóv.
Kardemommubærinn lau. 11. nóv., sun.,
lau. Glerbrot mið. 15. nóv.
Borgarleikhúsið
Lína Langsokkur lau. 11 nóv., sun.
Súperstar lau. 11. nóv., fim.
Tvískinnungsóperan lau. 11. nóv.
Hvað dreymdi þig Valentína? lau. 11.
nóv., fós. BarPar frums. lau. 11. nóv.,
fds., lau. Við borgum ekki Við borgum
ekki lau. 18. nóv. íslenski dansflokkur-
inn: Sex ballettverk sun. 12. nóv., lau.
Hamingjupakkið á Litla sviðinu.
Dagur, söng, dans og leikverk sun. 12.
nóv.
MöguleikhúsiðÆvintýrabókin lau. 11.
nóv., sun., mið.
Loftkastalinn: Rocky Hotror lau. 11.
nóv., fös.
HafnarQarðarleikhúsið: Himnaríki,
lau. 11. nóv., fós.
fslenska óperan: Carmina Burana lau.
11. nóv., Madama Butterfly sun. 12. nóv.
Kaffileikhúsið: Sápa þtjú og hálft fös.
17. nóv. Kennslustundin frums. lau. 11.
nóv., fim. Sögukvöld mið. 15. nóv.
Leikfélag Akureyrar
Drakúla lau. 11. nóv., lau.
Listvinafélag HaJlgrímskirkju
Heimur Guðríðar, í safitaðarsal Hall-
grímskirkju sun. 12. nóv., mið.
Furðuleikhúsið: „Bétveir" í Tjamarbíó
sun. 12. nóv.
Kópavogsleikhúsið: Galdrakarlinn f Oz
lau. 11. nóv., sun. Leikhúskjallarinn
Dagskrá urn Arthur Miller mánud.kv.
KVIKMYNDIR
MÍR
„Hin unga sveit“ 1. hluti sun. kl. 16.
Norræna húsið Herremannsbruden
Norsk kvikm. fýrir börn sun. kl. 14.