Morgunblaðið - 28.11.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JWðtUtllfafeÍto
1995
ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER
BLAD
C
SUND / BIKARKEPPNIN
SH meistari í fyrsta sinn
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SUNDFÉLAG Hafnarfjarðar fagnaði sigri í 1. deildarkeppni Sundsambandsins um helgina í fyrsta sinn, en félag-
ið fagnar um þessar mundir fimmtíu ára afmæli sínu. Hér er hinn vaski hópur Sundfélagsins ásamt formanni
sínum lengst til vinstri, Magnúsi Þorkelssyni, og bikarnum eftirsótta.
Samstaðan / C8
JUDO / OPNA SKANDINAVISKA MEISTARAMOTIÐ
Bjami og Vernharð með gull
BJARNI Friðriksson og Vernharð
Þorleifsson unnu gullverðlaun á
Opna skandinavíska meistaramót-
inu í júdó sem fram fór í Vejen í
Danmörku um helgina. Bjarni sigraði
í opnum flokki og Vernharð í-95 kg
flokki.
Bjarni vann allar fjórar viðureignir sín-
ar í opnum flokki. Hann lagði Dana,
Þjóðverja og Svía til að komast í úrslita-
glímuna gegn Kreuz frá Þýskalandi.
Bjarni vann Þjóðveijann á ippon í úrslitum
á innan við tveimur mínútum. Halldór
Hafsteinsson keppti einnig í opnum flokki
og vann þar eina glímu.
Vernharð vann allar þijár viðureignir
sínar í -95 kg flokknum og tvær þeirra
á ippon og var þar með kominn í úrslit.
Þar mætti hann Guershner frá Þýska-
landi og sigraði á yuko (5 stig) eftir
spennandi glímu. Vernharð meiddist í
keppninni og keppti því ekki í opnum
flokki. Bjarni Friðriksson keppti einnig
í sama flokki og hafnaði í þriðja sæti,
tapaði fyrir fyrrnefndum Guershner í
undanúrslitum.
Halldór Hafsteinsson varð þriðji í -86
kg flokki, vann fimm viðureignir á ippon,
en tapaði einni. Bjarni Skúlason og Erík-
ur Kristinsson kepptu í -71 kg flokki.
Bjarni vann eina glímu en tapaði tveimur
og Eiríkur sömuleiðis.
íslendingar höfnuðu í öðru sæti í liða-
keppninni, næstir á eftir Svíum sem unnu
tvenn gullverðlaun, ein silfurverðlaun og
tvenn bronsverðlaun. Keppendur á mótinu
voru 250 frá 14 þjóðum.
Haukur í þriðja
sæti íWinterpark
HAUKUR Arnórsson úr Ármanni náði þriðja
sæti á Alþjóðlegu stigamóti (FlS-móti) í svigi í
Winterpark í Bandaríkjunum á sunnudaginn.
Hann hlaut 20,60 styrkstig sem er langbesti
árangur hans til þessa. Hann átti áður best 82,49
stig. Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði og Arnór
Gunnarsson frá ísafirði kepptu einnig á mótinu,
en féllu úr keppni.
Kristinn keppir í fyrsta risavigi heimsbikars-
ins á þessu keppnistímabili í Vail í Bandaríkjun-
um á laugardaginn. Sýnt verður beint frá keppn-
inni á Eurosport.
Daníel sjöundi í
Vauladalen
DANÍEL Jakobsson, skíðagöngumaður sem
keppir fyrir Ólafsfjörð, varð í 7. sæti af 34 kepp-
enum í 15 km göngu sem fram fór í Vauladalen
í Noregi á sunnudag. Sigurvegari var Norðmað-
urinn Tor Arne Hettland, sem er fyrrum heims-
meistari unglinga, á 37,17 mínútum. Daníel gekk
á 38,46 mínútum. Með í mótinu voru B-landsliðs-
menn Norðmanna og Svía, auk A-landsliðsmanna
Sviss og PóUands. Næsta mót Daníels er sænska
bikarkeppnin sem fram fer í Luleá um næstu
helgi. Hann ætlaði að taka þátt í heimsbikarmót-
inu í Gállevare í Sviþjóð á fimmtudag, en er
hættur við það.
Elfsborg bíður
eftir Kristjáni
TALSMAÐUR sænska 1. deiidar liðsins Elfsborg
í Borás sagði við Morgunblaðið í gær að Kristján
Jónsson, landsliðsmaður í Fram, væri væntanleg-
ur til liðsins í næstu viku til að skoða aðstæður
en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Elfsborg er fornfrægt félag og á meðal stuðn-
ingsmannaþess er Ingvar Carlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar. Sigurður Friðriksson, sem lék
með U-I8 ára landsliðinu gegn Færeyingum í
sumar sem leið, hefur leikið með yngri flokkum
félagsins og er í aðal leikmannahópnum en hef-
ur ekki unnið sér sæti I liðinu.
Pétur með
samning frá
Hammerby
PÉTUR Marteinsson, miðvörður Framliðsins, fór
til að ræða við forráðamenn sænska liðsins
Hammerby um helgina og skoða aðstæður hjá
félaginu. Pétur er kominn heim með uppkast
að samningi upp á vasann og mun skoða hann
nánar áður hann gefur liðinu svar.
Betsy Harris
meiddist illa
BETSY Harris, bandaríska stúlkan i 1. deildar
liði Breiðabliks í kðrfuknattleik, meiddist undir
Iok leiks Breiðabliks og ÍA um helgina. Hún
sneri sig illa á ökkla og segja læknar að hún sé
alla vega illa tognuð og búast jafnvel við að
sprunga sé í beini. Hún er nú I gifsi en læknar
ætla að athuga hana nánar á fimmtudaginn.
Breiðablik á eftir að leika tvo leiki fyrir ára-
mót, gegn Keflvíkingum og KR, og (jóst að'hún
verður varla með í þeim leikjum.
KR fær liðsstyrk
KR-INGAR hafa fengið liðsstyrk í 1. deild kvenna
í körfuknattleik en bándaríska stúlkan Majenica
Rupe er gengin til liðs við félagið. Rupe er 195
sentimetrar og leikur stöðu miðherja og kemur
frá Notre Dame háskólanum þar sem hún lék í
fjögur ár. í fyrra lék hún í Venezúela i úrvals-
deildinni þar í landi.
SUNDDROTTNING OG SELLÓLEIKARIFRÁ KEFLAVÍK / C2