Morgunblaðið - 28.11.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 28.11.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA JWðtUtllfafeÍto 1995 ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER BLAD C SUND / BIKARKEPPNIN SH meistari í fyrsta sinn Morgunblaðið/Jón Svavarsson SUNDFÉLAG Hafnarfjarðar fagnaði sigri í 1. deildarkeppni Sundsambandsins um helgina í fyrsta sinn, en félag- ið fagnar um þessar mundir fimmtíu ára afmæli sínu. Hér er hinn vaski hópur Sundfélagsins ásamt formanni sínum lengst til vinstri, Magnúsi Þorkelssyni, og bikarnum eftirsótta. Samstaðan / C8 JUDO / OPNA SKANDINAVISKA MEISTARAMOTIÐ Bjami og Vernharð með gull BJARNI Friðriksson og Vernharð Þorleifsson unnu gullverðlaun á Opna skandinavíska meistaramót- inu í júdó sem fram fór í Vejen í Danmörku um helgina. Bjarni sigraði í opnum flokki og Vernharð í-95 kg flokki. Bjarni vann allar fjórar viðureignir sín- ar í opnum flokki. Hann lagði Dana, Þjóðverja og Svía til að komast í úrslita- glímuna gegn Kreuz frá Þýskalandi. Bjarni vann Þjóðveijann á ippon í úrslitum á innan við tveimur mínútum. Halldór Hafsteinsson keppti einnig í opnum flokki og vann þar eina glímu. Vernharð vann allar þijár viðureignir sínar í -95 kg flokknum og tvær þeirra á ippon og var þar með kominn í úrslit. Þar mætti hann Guershner frá Þýska- landi og sigraði á yuko (5 stig) eftir spennandi glímu. Vernharð meiddist í keppninni og keppti því ekki í opnum flokki. Bjarni Friðriksson keppti einnig í sama flokki og hafnaði í þriðja sæti, tapaði fyrir fyrrnefndum Guershner í undanúrslitum. Halldór Hafsteinsson varð þriðji í -86 kg flokki, vann fimm viðureignir á ippon, en tapaði einni. Bjarni Skúlason og Erík- ur Kristinsson kepptu í -71 kg flokki. Bjarni vann eina glímu en tapaði tveimur og Eiríkur sömuleiðis. íslendingar höfnuðu í öðru sæti í liða- keppninni, næstir á eftir Svíum sem unnu tvenn gullverðlaun, ein silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun. Keppendur á mótinu voru 250 frá 14 þjóðum. Haukur í þriðja sæti íWinterpark HAUKUR Arnórsson úr Ármanni náði þriðja sæti á Alþjóðlegu stigamóti (FlS-móti) í svigi í Winterpark í Bandaríkjunum á sunnudaginn. Hann hlaut 20,60 styrkstig sem er langbesti árangur hans til þessa. Hann átti áður best 82,49 stig. Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði og Arnór Gunnarsson frá ísafirði kepptu einnig á mótinu, en féllu úr keppni. Kristinn keppir í fyrsta risavigi heimsbikars- ins á þessu keppnistímabili í Vail í Bandaríkjun- um á laugardaginn. Sýnt verður beint frá keppn- inni á Eurosport. Daníel sjöundi í Vauladalen DANÍEL Jakobsson, skíðagöngumaður sem keppir fyrir Ólafsfjörð, varð í 7. sæti af 34 kepp- enum í 15 km göngu sem fram fór í Vauladalen í Noregi á sunnudag. Sigurvegari var Norðmað- urinn Tor Arne Hettland, sem er fyrrum heims- meistari unglinga, á 37,17 mínútum. Daníel gekk á 38,46 mínútum. Með í mótinu voru B-landsliðs- menn Norðmanna og Svía, auk A-landsliðsmanna Sviss og PóUands. Næsta mót Daníels er sænska bikarkeppnin sem fram fer í Luleá um næstu helgi. Hann ætlaði að taka þátt í heimsbikarmót- inu í Gállevare í Sviþjóð á fimmtudag, en er hættur við það. Elfsborg bíður eftir Kristjáni TALSMAÐUR sænska 1. deiidar liðsins Elfsborg í Borás sagði við Morgunblaðið í gær að Kristján Jónsson, landsliðsmaður í Fram, væri væntanleg- ur til liðsins í næstu viku til að skoða aðstæður en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Elfsborg er fornfrægt félag og á meðal stuðn- ingsmannaþess er Ingvar Carlsson, forsætisráð- herra Svíþjóðar. Sigurður Friðriksson, sem lék með U-I8 ára landsliðinu gegn Færeyingum í sumar sem leið, hefur leikið með yngri flokkum félagsins og er í aðal leikmannahópnum en hef- ur ekki unnið sér sæti I liðinu. Pétur með samning frá Hammerby PÉTUR Marteinsson, miðvörður Framliðsins, fór til að ræða við forráðamenn sænska liðsins Hammerby um helgina og skoða aðstæður hjá félaginu. Pétur er kominn heim með uppkast að samningi upp á vasann og mun skoða hann nánar áður hann gefur liðinu svar. Betsy Harris meiddist illa BETSY Harris, bandaríska stúlkan i 1. deildar liði Breiðabliks í kðrfuknattleik, meiddist undir Iok leiks Breiðabliks og ÍA um helgina. Hún sneri sig illa á ökkla og segja læknar að hún sé alla vega illa tognuð og búast jafnvel við að sprunga sé í beini. Hún er nú I gifsi en læknar ætla að athuga hana nánar á fimmtudaginn. Breiðablik á eftir að leika tvo leiki fyrir ára- mót, gegn Keflvíkingum og KR, og (jóst að'hún verður varla með í þeim leikjum. KR fær liðsstyrk KR-INGAR hafa fengið liðsstyrk í 1. deild kvenna í körfuknattleik en bándaríska stúlkan Majenica Rupe er gengin til liðs við félagið. Rupe er 195 sentimetrar og leikur stöðu miðherja og kemur frá Notre Dame háskólanum þar sem hún lék í fjögur ár. í fyrra lék hún í Venezúela i úrvals- deildinni þar í landi. SUNDDROTTNING OG SELLÓLEIKARIFRÁ KEFLAVÍK / C2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.