Morgunblaðið - 12.12.1995, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Michael Jordan tekjuhæstur 1995, fjórða árið í röð
MICHAEL JORDAN [ 2.900 milljónir kr.
körfuknattleikur
TYSON
hnefaleikar
-,-Q
c/> ro
Q
2 5=
Q ^
Nr. 3
2 600 m kr , I Stærstur hlutinn af þessu er
MIkf ’ ' ......fyrir 89 sek. í hringnum í
ágúst en nokkur hluti eru
fyrirframgreiðslur
1.600 m.kr.
1.500
£
§ v.
Q -2
Q <S
et^
Nr.4
1.430
Ul ^
ii
o-i
S-t
5s
Nr.5
1.170
I
s.
8=§
o-a
Oc
Nr.6
1.040
Nr.7
I
3
*
Ot
o
3 cn
Nr.8
Til samanburðar má
nefna að fyrir ári síðan
kostaði Guðbjörgin nýja
um 1.600 milljónir kr.
I
o
1=1
sig
o <0
S §;
S'i?
Nr.9
I
CD
Uj
-ic
l-s
s-!2
lNr.10
■ NOKKRUM stuðningsmönum
Vlkings var heitt í hamsi eftir leik-
inn gegn KA í 1. deildinni í hand-
bolta í Víkinnl á sunnudaginn og
fóru inná völlinn eftir leikinn til að
„ræða“ við dómarana. Starfsmönn-
um hússins tókst þó að sjá til þess
að heitir áhorfendur kæmust ekki
of nálægt dómurunum.
■ FIMLEIKASTÚLKUR úr
Gróttu sýndu dans í leikhléi í leik
Gróttu og FH á Seltjarnarnesi á
sunnudaginn. Nokkrir hressir
áhorfendur sögðu að það hefði ver-
ið meira spennandi en fyrri hálfleik-
ur handboltamannanna.
■ HARALDUR Hannesson, sem
í vor var valinn besti leikmaður
handboltaliðs ÍBV, hefur lítð leikið
með fram til þessa vegna meiðsla
í baki. Hann var þó með gegn KR
á laugardaginn og skoraði tvö mörk
en lét lítið fyrir sér fara eftir það.
■ KARL Malone gerði 51 stig
fyrir Utah í 123:109 sigri gegn
Golden State í NBA-deildinni um
helgina. Tveimur dögum fyrr lék
Mahmoud Abdul-Rauf hjá Den-
ver sama leikinn í sömu höll en
Mm
FOLK
enginn hefur skorað meira í leik á
tímabilinu.
■ MALONE hitti úr 19 af 28
skottilraunum utan af velli og úr
13 af 16 vítaskotum. Þetta er hæsta
skor hans í tæplega sex ár en í
janúar 1990 skoraði hann 61 stig
gegn Milwaukee og er það per-
sónulegt met.
■ PATRICK Ewing hefur leikið
mjög vel fyrir New York að undan-
förnu en hann gerði 29 stig í Atl-
anta um helgina. Þá vann New
York 101:92 og gerði Ewing 14
stig í fjórða leikhluta en Atlanta
setti boltann aðeins einu sinni niður
á síðustu níu mínútunum. „Mér leið
vel í fjórða leikhluta," sagði Ewing.
„Ég vil alltaf fá boltann og fékk
hann.“
■ MICHAEL Jordan var með 45
stig fyrir Chicago gegn Mil-
waukee og er það persónulegt met
hjá honum á tímabilinu. Chicago
vann 118:106.
■ PREDRAG Danilovic tryggði
Miami fyrsta sigur félagsins í Pho-
enix. Nýliðinn gerði 30 stig og
nokkrum sekúndum fyrir leikslok
náði hann frákasti og gaf á Kurt
Thomas sem skoraði, 94:92.
■ JERRY Colangelo, eigandi
Phoenix í NBA-deildinni og Ariz-
ona í bandarísku hafnaboltadeild-
inni, er svo gott sem búinn að
tryggja sér Winnipeg Jets í NHL-
deildinni í íshokkí og sagði um helg-
ina að samningar þess efnis yrðu
Undirritaðir í dag.
■ EIGENDUR Jets voru í viðræð-
um við fulltrúa Minneapoiis og St.
Paul, en upp úr slitnaði í liðinni
viku. Jets hefur verið í Winnipeg
í Kanada í 23 ár en nú bendir allt
til að liðið flytji suður til Phoenix
að loknu yfirstandandi tímabili.
HM’98
Heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu verður viða-
meiri með hverri keppni. Fleiri
nöfn verða í hattinum í Louvre-
safninu í París í dag en áður
þegar .^dregið hefur
verið í riðla HM, en
90 mínútna dag-
skránni, dagskrá sem
er eins löng og knatt-
spyrnuleikur, verður
sjónvarpað beint um
allan heim. Sumir
skilja eflaust ekki
eftirvæntinguna og spyrja hvaða
máli skipti í hvaða riðli lið lenda
en þeir sem tengjast viðkomandi
liðum á einn eða annan hátt vita
að mikið er í húfi.
í fyrsta lagi skiptir mjög miklú1
máli að komast í 32 liða úrslita-
keppnina. Það að vera í hópi
þeirra bestu hefur mikið að segja
og ekki skemmir fyrir að greiðsl-
ur eru í samræmi við árangi’’ -
því lengra sem lið kemsi, því
meiri hagnaður.
Með fyrrnefnt í huga hefur
drátturinn í dag allt að segja.
Ekki aðeins fyrir lið sem eiga
raunhæfa möguleika á að kom-
ast í úrslitakeppnina heldur líka
fyrir „litlu“ liðin eins og ísland.
Þau geta komist í hærri styrk-
leikaflokk og átt þannig meiri
möguleika í næstu keppni en
„hagstæður“ dráttur getur einn-
ig fleytt þeim langt í komandi
keppni. Sala á sjónvarps- og
auglýsingarétti getur líka skipt
sköpum fyrir fátækari sambönd.
Liðum Evrópu hefur verið rað-
að í sex_ styrkleikaflokka eftir
árangri. Island er í fjórða styrk-
leikaflokki ásamt Lettlandi, Wal-
es, Ungveijalandi, Kýpur, Úkra-
ínu, Slóveníu, Georgíu og Júgó-
slavíu. Þessi lið lenda ekki saman
en að öðru leyti er allt opið inn-
an hvers styrkleikaflokks.
Að þessu sinni taka 173 þjóð-
ir þátt í keppninni. Frakkar sem
gestgjafar og Brasilíumenn sem
heimsmeistarar fara beint í úr-
slitakeppnina en hinar þjóðirnar
keppa um lausu sætin í hverri
álfu. HM í Bandaríkjunum í fyrra
gaf um 293 milljónir svissneskra
franka í hagnað vegna að-
göngumiðasölu, styrktaraðila og
sölu sjónvarpsréttar en nú er
gert ráð fyrir að hagnaður vegna
sömu þátta verði um 450 milljón-
ii svissneskra franka (um 25
mi'.ljarðar). Stór hluti fer til
mótshaldara og Alþjóða knatt-
spymusambandsins, FIFA, en
aliir fá einhvern hluta af kök-
unni.
Miklir möguleikar eru á að
ísland lendi í riðli með „gulllið-
um“. Verði það að veruleika
blasa við ný vandamál. Þegar
ísland og Sviss léku í Evrópu-
keppninni á Laugardaisvelli í
sumar komu um 1.500 Sviss-
lendingar gagngert til landsins
vegna leiksins. Stuðningsmenn
Englands, Irlands og Hollands
em þekktir fyrir að fylgja liðum
sínum í enn ríkari mæli og sama
má segja um stuðningsmenn
ýmissa annarra liða. Að óbreyttu
er ekki aðstaða til að taka á
móti þessu fólki. Svo furðulegt
sem það er er vinsælasta íþrótt
landsins ekki samkeppnisfær.
Og verið er að draga í HM ’98.
Steinþór
Guðbjartsson
íslendingar geta lent í
„hagstæðum" riðli og
mætt „gullliðum"
ÁttiAkureyringurinn LÁRUS ORRISIGURÐSSON von á svona góðu gengi Stoke?
Árangurinn
framar vonum
LARUS ORRI Sigurðsson og samherjar hans hjá Stoke hafa
staðið sig mjög vel að undanförnu og eru nú komnir ítoppbar-
áttuna íensku 1. deildinni. Stoke sigraði WBA 1:0 á útivelli
um helgina og hefur unnið fjóra síðustu leiki sína með sömu
markatölu. Liðið hefur ekki tapað deildarleik sfðan 28. október
og unnið sex af sfðustu sjö, einum leik lauk með jafntefli.
Stoke er nú í 2. til 7. sæti deildarinnar með 34 stig, þremur
stigum á eftir Sunderland, sem er efst.
Lárus Orri, sem er 22 ára, gekk
til liðs við Stoke í lok síðasta
árs, vann sér fljótlega sæti í byij-
unarliðinu og var
Ff,ir viðureignin gegn
Vg/B WBA um helgina
Jónatansson 50. leikur hans
með liðinu. Fyrir
yfirstandandi tímabil skrifaði hann
undir þriggja ára samning við fé-
lagið sem veitir honum aukið
starfsöryggi. Eiginkona hans er
Sveindís Benediktsdóttir og eign-
uðust þau son fyrir nokkrum vik-
um, sem hefur verið nefndur Sig-
urður Marteinn og verður skírður
hér heima í sumar.
- Nú heíur liðinu gengið vei og
er komið í toppbaráttuna, hver er
skýringin á þessu góða gengi liðs-
ins?
„Það hefur gengið framar okkar
björtustu vonum. Þegar það geng-
ur svona vel er gaman að lifa.
Mikil barátta er í leikmannahópn-
um og stemmningin ótrúlega góð.
Það vinna allir fyrir einn og einn
fyrir alla og ætli það sé ekki skýr-
ingin á því hversu vel hefur geng-
ið. Við erum með baráttulið sem
gefur andstæðingnum aldrei frið.“
- Hvaða leikaðferð spilar liðið?
„Við leikum yfirleitt með fimm
manna vörn, það er að segja þijá
miðverði og tvo bakverði, á útivöll-
um en fjögurra manna vörn í hei-
maleikjum. Þetta er dæmigerður
enskur fótbolti.“
- Nú hefur þú leikið alia leiki liðs-
ins síðan 1. febrúar. Hvada stöðu
hefur þú verið í að undanförnu?
„Ég hef verið miðvörður síðustu
tvo leiki. Ég var settur í bakvarðar-
stöðuna þegar Ian Cranson kom
inn í liðið eftir meiðsli í byijun
nóvember en síðan meiddist Vince
Overson fyrirliði fyrir þremur leikj-
um og þá var ég aftur færður í
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
LÁRUS Orri, sem er 22 ára, er ánægður með lífið hjá Stoke
og hefur nú leikið yfir 40 leiki með liðinu á þessu ári.
stöðu miðvarðar við hlið Cran-
sons.“
- Lou Macari var kosinn fram-
kvæmdastjóri nóvembermánaðar í
1. deild. Hvernig kanntu við hann?
„Mér líkar ágætlega við Macari.
Hann hefur sérstakar skoðanir á
hlutunum og verður að fá að hafa
þær í friði. Hann leggur mikið upp
úr því að leikmenn séu í góðri
æfingu og það er því æft af krafti.
Og hann virðist hafa trú á mér,
annars væri ég ekki í liðinu."
- Þegar liðinu gengur svona vel
koma þá ekki fieiri stúðningsmenn
á völlinn?
„Jú, jú. Þetta fylgist alltaf að.
Við höfum haft mjög góða aðsókn
í síðustu heimaleikjum. Við feng-
um þijú þúsund aðgöngumiða á
útileikinn gegn West Bromvich síð-
asta laugardag og þeir seldust upp
á skömmum tima og komust færri
með okkur en vildu. Ahuginn er
mikill og vonandi verður framhald
á þessu góða gengi.“
- Eru ieikmenn og þjálfari farnir
að gera sér vonir um að komast
upp í úrvalsdeildina?
„Já, auðvitað. Þessi sigurganga
í undanförnum leikjum segir okkur
að það er ýmislegt hægt. Hvers
vegna ættum við ekki að komast
upp? Við erum í toppbaráttunni
og ætlum okkur auðvitað að vera
þar áfram. Annars er þetta svo
fljótt að breytast því munurinn á
efstu og neðstu liðum er ekki svo
mikill. Það eru margir leikir eftir
og því of snemmt að spá um það
hvort við komust upp eða ekki, en
við erum inni í myndinni."