Morgunblaðið - 22.12.1995, Side 3

Morgunblaðið - 22.12.1995, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995 C 3 tafl og spil var kennt við djöfulinn sjálfan. Gleðin gerði biskupa reiða, gleðin sem Jón Samsonarson lýsir svo í bók sinni Kvæði og dansleikir. „Gleðifólk- ið stígur dansinn og gengur um gólf í vikivaka, þegar á milli verður í gleði- leiknum. Dansinn dunar, kvæði eru kveðin, og allt er í gangi í gleðistof- unni.“ „í gleðileikjunum hefur verið kveðskapur og hreyfing, en þar gefst gleðifólkinu einnig kostur á að horfa á leik og taka þátt í leik. Karlmenn taka á sig gervi, ákveðin atriði eru sýnd og fólkið leikur. Trúlega hefur gleðistofan verið alþýðu manna hið eina leikhús og leiksvið sem völ var á.“ Ekki höfðu allir klerkar andúð á gleðinni en andstaðan bar sigurorð af gleðinni og fell hún að lokum al- veg niður og ekkert kom í staðinn. Harðindi, farsóttir og örbirgð hefur sennilega hjálpað til við að kveða hana niður. En dansleikjahaldið hvarf að minnsta kosti og það er merkilegt því það var vinsælt í út- löndum á 18. og 19. öld en það „fór ekki að breiðast út um sveitir hér á landi fyrr en um og eftir 1880“. Sumir fræðimenn hafa sagt að dansalaust samfélag manna sé óhugs- andi. En svo er ekki því samkvæmt heimildum virðast íslendingar hafa verið án dansa í tvær aldir og jafnvel lengur í sumum héruðum, eftir því sem Jón Samsonarson skrifar. Dr. Ámi Björnsson skrifar um jólin í bók sína Saga daganna: „Talsverð rök hafa verið færð að því að jól sé samstofna við latnesku orðin jocus og joculus sem þýðir „gamanmál" og „skemmtun" og af sama stofni væri franska lýsingarorðið joli sem í ensku fékk myndina jolly. Orðið merkir sam- kvæmt því „gleðihátíð“.“ Jólin virðast samt ekki hafa verið það í tvær aldir eins og bent var á. Það eimir jafnvel enn af and- styggðinni við gleðileg jól, því sú skoðun heyrist stundum að ekki sé við hæfi að spila á spil um jólin eða að gleðjast mjög fyrr en á annan í jólum. Tafl og spil eða ráðlaust reik með lát og leik lítt trúi eg kristnum sæmi. Þessa vísu orti síra Jón Magnússon í Laufás á 17. öld og um miðbik 18. aldar var gefin út konungleg tilskip- un um helgidagahald og stendur þar meðal annars: Allt tafl, leikir, hlaup spil, gárunga-hjal og skemmtan... fyrirbjóðast alvarlega hér með öllum, einum og sérhveijum án mismunar að viðlögðu straffi sem helgidagsbrot áskil- ur. Þetta viðhélst lengur en góðu hófi gegndi og segir Árni Björnsson að „Ömmur og afar sem fram undir miðja 20. öld ömuðust við gamanmál- um á jólanótt og jóladag höfðu orðið fyrir innrætingu frá eigin öfum og ömmum sem ólust upp nálægt miðri 19. öld. Gleðln nú á dögum Gamla íslenska hefðin um dans og leiki var gieymd og tröllum gefin en á 19. öld fór að bera á einföldum samkvæmisdönsum frá Danmörku. Árni segir að þeim hafi fylgt söngur og hálfgerð prentsmiðjudanska. Svipað er að segja um dans kringum jólatré og söng eins og Adam átti syni sjö, Göngum við í kringum einibeijarunn, Nú skal segja, Gekk égyfir sjó og land, Hún Þymirós var besta barn. Landsmenn hafa tekið gleðina aftur og jólagleðin hefur þróast. Flestir taka nú gleðina út fyrir jólin en það má merkja af jólaglögginu en fyrirtæki eða starfsmannafélög blása til þess á aðventunni og getur gleðin orðið þónokkur. Jólahlaðborð veitingahúsanna hafa víst aldrei verið betur sótt en á þessari aðventu og mest sækja þau saman starfsmenn fyrirtækja. Segja má að aðventan sé að verða gleðihátíð en fólk reyni svo að hafa það rólegt um jólin sjálf við snæðing á kræsingum, lestur góðra bóka og að njóta besta efnisins sem fjölmiðlar hafa upp á að bjóða. Margir bregða sér í kirkju, aðrir á dansleik annan í jólum eða um áramót. ■ Gunnar Hersveinn . Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir TVENNT að skála og virðist í dansstellingum. Utskurður á rúmfjöl frá 18. öld. Thorlacius (Setberg 1995) er handbók fyrir eigendur mynd- bandsvéla og reynir höfundurinn að kenna hvernig búa megi til skemmtilegar myndir. Bókin sýnir vel möguleika myndbandsvéla og ættu eigendur slíkra véla að geta fengið ýmsar góðar hugmyndir með lestri. Hér er brot úr bókinni úr kaflanum Fyrstu kynni og fjall- ar um fyrirsætur: „Það, hvernig aðalpersónu er komið fyrir innan myndrammans þegar mynd er tekin, ræður miklu um áhrifin sem myndin á eftir að hafa á áhorfendur. í þessu efni nýtur mynd- bandstökumaður þess að áhorfendur hans eru löngu orðnir kunnugir myndmáli sjónvarpsins. Það er til dæmis úrelt staðhæfing úr heimi kvik- myndanna (hafi hún þá nokkurn tíma átt rétt á sér) að persóna eða hlutur á miðjum myndfleti tákni kyrrstæða mynd. Ándlit á miðri mynd kallar einmitt á at- hygli áhorfenda, einkum ef það er tekið í nærmynd. Gættu þess að láta höku mannsins ekki „hvíla á“ neðri brún skjásins, það kemur yfirleitt illa út.“ Yngri kynslóðirnar þekkja myndbandsvélar nokkuð, til dæm- is eru yfirleitt sérstakir videóklúb- bar í menntaskólum og tæki til sem nemendur geta notað. Það er skemmtilegt að gera hreyfi- myndir en það þarfnast bæði und- irbúnings og eftirvinnslu vilji tökumenn ekki valda áhorfendum sínum leiðindum. Skólanemendur ættu að nota myndbandsvélar meira og kennarar jafnvel að láta þá skila verkefnum á formi myndbanda. Rit- gerðir eru nefnilega of- nýtt form. Frumskilyrði er að fá góða hugmynd að mynd, og svo að gera handrit með myndrömmum og texta. Næst er nauðsynlegt að gera „skotlista" eða myndáætlun sem felst í því að raða tökum upp í hentuga röð. Það er nefnilega lög- mál að lélegur undirbúningur merkir lélega mynd. Svona mætti lengi telja en vonandi fjölgar góð- um heimagerðum myndum á næstu árum. Það hefur einmitt vantað bók á íslensku um mynd- bandstökur. ■ Margir eiga vélar en ffóir kunna ó þær. DAGLEGT LÍF rmm> NJÁLSGATA 9, REYKJAVÍK - Látlaust hús, sem gert hefur verið við, var áður íbúðarhús en er nú barnaheimili. Morgunblaðið/Ámi Sæberg TJARNARGATA 24, Reykjavík - Byggt 1904-1905, núna er unnið að því að bárujárnsklæða húsið að nýju. Bárujárn hefur staðið af sér veður og vinda og tískubylgjur BÁRUJÁRN hefur óvíða átt P meira upp á pallborðið í húsa- g gerðarlist en á íslandi. Þó er j töluvert um slíkar klæðningar á Falklandseyjum, þar sem veð- urfar er svipað og hér, í Færeyj- um og Afríku. Hingað barst efniviðurinn frá Englandi seint ™ á 7. tug seinustu aldar og hefur g hann allar götur síðan verið notaður sem klæðning á' hús og á þök. Vinsældirnar döluðu þó um hálfrar aldar skeið þegar stein- steypa varð alls ráðandi og menn fóru að þreifa sig áfram með notkun húðaðs stáls á þök. Samfara áhuga manna á friðun húsa fékk bárujámið uppreisn æru og augu manna opnuð- ust á ný fyrir ágæti þess. Þótt bárujárnið sé samofíð ís- lenskri byggingarsögu og bæjar- menningu hafa haldgóðar upplýs- ingar og almennur fróðleikur ekki verið til á einum stað fyrr en nú að Minjavemd réðst í útgáfu bæklings um efnið. Höfundar Bárujáms, arki- tektarnir Hjörleifur Stefánsson, sem jafnframt er ritstjóri verksins, Grétar Markússon og Stefán Öm Stefánsson rekja sögu bárujámsins, telja upp kostina, gera nafngiftinni skil og leiðbeina um meðferð, viðgerð, frá- gang og endurbætur. Hjörleifur segir að bárujám hafí átt auknum vinsældum að fagna hin síðari ár og fólk verið áhugasamt um viðhald eldri járnklæddra húsa. Að sama skapi sjáist merki um að þekking á efnisnotkun og meðferð við frágang, sem áður hafði þróast, hafí fallið niður að miklu leyti og oft hafí verið ráðist í framkvæmdir af meira kappi en forsjá. „Iðnaðarmenn og einstaklingar hafa stundum notað þetta merka byggingarefni af góðum hug en lít- illi þekkingu. Frágangi hefur oft ver- ið ábótavant bæði hvað varðar fagleg atriði og útlitsatriði. Enduijámuð hús hafa því stundum misst hluta af sínum upprunalegu útlitseinkenn- um og sjarma. Of mikið hefur verið gert úr frágangi þar sem slíkt á ekki við, fjölmörg dæmi em um léleg- an frágang, sem veldur lekahættu og alls konar handvömm sem hefur orðið til að spilla þessari merku menningararfleið." Hjörleifur segir að miklu máli skipti að upphaflegt handverk frið- aðra húsa og húsa, sem hafa menn- ingarsögulegt gildi, varðveitist og efnisnotkun og aðferðum sé ekki raskað nema í undantekningartilvik- um. Hyggja verði að smæstu atriðum og velja af kostgæfni hentugustu aðferðina. „Þótt bárujárnsklæðning húsa ‘ byggist á handverki sem hófst á öld- inni sem leið er enn verið að bæta aðferðir og útfærslur. Við gerð bók- arinnar er leitast við að draga fram í dagsljósið hvernig bámjámsnotkun hefur þróast og handverkið mótast. Við mælum vitaskuld með aðferð sem við teljum hentugasta og fullkomn- asta. Hvert hús verður þó að skoða með tilliti til sérstöðu þess og sér- kenna og meta hvemig einstök atriði skuli leyst." Allur fróðleikur og leiðbeiningar í ritinu Bárujám er sóttur í smiðju sérfróðra manna. Hjörleifur segist vonast til að ritið megi verða til þess að glæða áhuga á notkun bámjáms við byggingu nýrra húsa jafnframt því að gagnast sem handhægt upp- flettirit fyrir þá sem em að bæta og laga eldri hús. ■ Bárótta þalgámið í BÁRUJÁRNI segir að samnefnt efni hafl boríst hingað um 1870 þegar verslunarleiðir til Englands opnuðust vegna sauðasölunnar svokölluðu. Þá hófst umtalsverð- ur útflutningur á lifandi sauðfé og nýjar verslunarvörur, þar á meðal bárujámið, komu með skip- unum sem sóttu sauðféð. Grein eftir Valgarð Breið- fjörð, smið og verslunarmann, sem birtist í blaðinu Reykvíking- ur árið 1894 þykir ómetanleg heimild um upphaf bárujárn- snotkunar. í Bárujárni er greinin birt í heild, en hér verður stiklað á stóru. „Þetta byggingarefni er nú farið að ryðja sjer svo til rúms hjer í Reykjavík, helzt á seinni árum, að á hvert hús sem nú er byggt hjer úr timbrí er það brúk- að bæði á þak og jafnvel á veggi. Rjett fyrir 1870 fluttist hingað hið fyrsta bárótta þakjárn og var lagt á húsið í Krýsuvíkurnámun- um, sem síðar var rifið, og flutt þaðan 1872. Var Geir Zoéga sá fyrsti hjer í Reykjavík, sem fékk galvaníserað bárótt þakjárn, og lagði það á útúrbyggingu hjá sjer. Arið 1876 fjekk W.Ó. Breið- fjörð svo þetta þakjárn, og lagði það á húsþak sitt og hliðar, en þetta þakjárn fór þó ekki að verða almennt hjer fyrr en um og eptir 1880, og almennt var það ekki lagt á húsveggi fyrr en eptir 1890.“ Langur kafli fer í leiðbeining- ar um lagningu þakjárnsins sam- kvæmt skriflegum leiðbeining- um, sem W.Ó. Breiðfjörð fékk sendar frá Eng- landi. Höfundur greinarínnar var- ar fólk við að hlaupa eftir því sem hann nefnir „endingarlausar pjátursplötur“ þótt þær séu ódýrari og eins ættu menn að varast að brúka ógalvaniseraða nagla. Hann hnýtir í smiði fyrir handvömm ogbruðl viðjárnlagningu. „Vjer göngum að því sem gefnu sam- kvæmt núríkjandi hugsunar- hætti, að bæði smiðir og hús- byggjendur ef til vill í svipinn reiðist oss ærið fyrir þessar útá- setningar og víðvíkjandi hinu bárótta þakjárni og meðhöndlun þess. En annaðhvort er, eptir voru álita, að segja sannleikann, þó súmir veigri sjer við því, eða þegja; með hræsni fetast ekkert spor áfram til sannra framfara eður endurbóta. Og hjer er margra manna fjármunum hætta búin af vanþekkingu, ef ekki er í tíma aðgjört.11 ■ KLUKKUBERG 9, HAFNARFIRÐI - Dæmi um nútímahús klætt hefðbundnu bárujárni. Arkitekt Hróbjartur Hróbjartsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.