Morgunblaðið - 18.01.1996, Síða 6
6 B FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sverrir
EIRÍKUR Sigurðsson, kaupmaður í 10-11, í verslun sinni í Glæsibæ. Búðirnar eru nú fimm talsins en verður fjölgað í sjö á árinu.
10-11 sækirfram á
matvörumarkaðnum
Fyrirtækið ætlar að opnar þijár nýjar versl-
anir á þessu ári jafnframt því sem það geng-
ur til samstarfs við bresku smásölukeðjuna
Tesco. Hins vegar verður verslun 10-11 í
Borgarkringlunni lokað á næstunni að kröfu
Kringlunnar, Kristinn Briem ræddi við
Eirík Sigurðsson, eiganda 10-11, um stöðu
fyrirtækisins og framtíðaráform hans.
EIRÍK Sigurðsson, kaup-
mann í 10-11, má án efa
kalla guðföður svokall-
aðra klukkubúða á ís-
landi. Hann setti fyrstu 10-11 versl-
unina á stofn við Engihjalla árið
1991 ásamt eiginkonu sinni, Helgu
Gísladóttur, sem var opin frá klukk-
an 10 á morgnana til 11 á kvöldin
alla daga vikunnar. Þar með var
lagður grunnur að nútímalegri
verslunarkeðju sem vaxið hefur ört
frá þeim tíma, þrátt fyrir að aðrir
hafi reynt að líkja eftir honum og
stórmarkaðir lengt sinn opnunar-
tím_a.
Á síðasta ári nam velta fyrirtæk-
isins um 1,7 milljörðum í fimm versl-
unum og hafði vaxið um 70% frá
árinu á undan. Á þessu ári er gert
ráð fyrir að setja þijár nýjar verslan-
ir á stofn og er því áætlað að veltan
í ár nemi um 2,4 milljörðum króna.
Hins vegar liggur fyrir að versl-
uninni í Borgarkringlunni verði lok-
að þar sem hún féll ekki að hug-
myndum forráðamanna Kringlunn-
ar um framtíðarskipulag á svæðinu.
Eins og kunnugt er hafa eigendur
Borgarkringlunnar átt í viðræðum
við Kringluna um að setja húsin
undir sameiginlega yfirstjórn og
samnýta bílastæði húsanna. í þeim
hugmyndum er gert ráð fyrir veru-
legri uppstokkun á verslunarrekstri
í Borgarkringlunni.
Ákveðin hugmyndafræði
að baki 10-11
Eiríkur á ekki langt að sækja
áhugann á matvöruverslun því hann
er sonur Sigurðar Matthíassonar og
Vigdísar Eiríksdóttur sem stofnuðu
verslunina Víði árið 1951. Víðir
varð gjaldþrota fyrir tíu árum og
Eiríkur kom reynslunni ríkari inn á
markaðinn á ný fáum árum síðar
til að stofna 10-11.
„Ég sá fyrir mér fyrir tíu árum
að það væri pláss á markaðnum
fyrir þessa tegund búða þegar opn-
unartími yrði gefinn frjáls," sagði
Eiríkur þegar hann var spurður um
aðdragandann að stofnun 10-11.
„Opnunartími var gefinn frjáls árið
1990 og ég opnaði fyrstu búðina
árið eftir. Hins vegar gerði ég mér
grein fyrir því strax í byijun að
þessar búðir þyrfti að byggja upp
með sérstökum hætti. Þetta þyrfti
að vera verslanakeðja með ákveðna
hugmyndafræði að baki. Þar þyrfti
að ieggja höfuðáherslu á langan
opnunartíma alla daga, hreinlæti,
ferskar vörur og hagstætt verð.
Ég tel að 10-11 séu einu búðirnir
sinnar tegundar hér á landi. Þrátt
fyrir að aðrar búðir hafi valið sér
nafnið 10-10 eða 11-11 þá vinna
þær ekki eftir sömu stefnu og 10-11.
Það er ekki nóg að ákveða einn
góðan veðurdag að hafa opið lengur
en áður, heldur þurfa búðimar að
vera betri en almennt gerist og verð-
ið hagstætt.
Hjá 10-11 er einnig lögð mikil
áhersla á starfsmannamál. Við ráð-
um eingöngu mjög ábyrgt starfsfólk
og leggjum mikið upp úr því að
hægt sé að treysta því. Launin eru
hærri en gengur og gerist, en það
skilar sér til baka í vandaðri vinnu
beint til neytandans. Ég mótaði
ákveðið vinnufyrirkomulag strax í
upphafi vegna hins langa opnunar-
tíma sem hefur verið þróað með til-
liti til óska starfsmannanna og fyrir-
tækisins. Fólkið vinnur mikið en'fær
góð frí inn á milli. Það á alltaf sína
frídaga og veit um þá fyrir vissu
með löngum fyrirvara."
Það er sérstakt markmið hjá
10-11 að halda fjárfestingum í lág-
marki, bæði í innréttingum, hús-
næði og birgðum. Þar að auki hefur
Eiríkur farið allsérstæða leið varð-
andi húsaleigusamninga sem miðar
að því að lágmarka áhættuna í
rekstrinum. „Við höfum horft upp
á erfíðleika og gjaldþrot fyrirtækja
í þessari grein. Húseigendur hafa
oft farið illa út úr viðskiptum við
matvöruversianir og ekki fengið
sína leigu greidda þegar hlutirnir
hafa ekki gengið rétt fyrir sig.
Hjá 10-11 eru húsaleigusamning-
ar byggðir upp á því að húsaleigan
er ákveðið hlutfall af veltu. Á því
er hvorki hámark né lágmark. Þetta
þýðir það að húseigandinn nýtur
góðs af því ef vel gengur hjá okk-
ur, en hann þarf að taka á sig lækk-
un ef illa gengur.
í mínu tilviki yrði bæði verslunin
og húseigandinn að taka höndum
saman ef erfíðleikar gerðu vart við
sig. Ég hef sem betur fer ekki lent
í þessari stöðu ennþá og húseigend-
ur eru allir mjög ánægðir.11
Ódýrari en Hagkaup
og Nóatún
Eiríkur leggur mikla áherslu á
að viðskiptavinir 10-11 eigi kost á
að versla þegar þeim henti og að
einfaldleikinn sé jafnan í fyrirrúmi
í rekstrínum. „Búðirnar sinna þörf-
um neytenda á þægilegan hátt því
þeir geta komið á öllum tímum og
keypt inn þær neysluvörur sem
vantar hveiju sinni. Það virðist vera
gífurlegur markaður fyrir þessar
tegundir verslana því þótt fleiri
10-11 búðir hafi verið að bætast
við, hefur orðið stöðug aukning í
hinum búðunum. Fólk virðist vilja
nota 10-11 búðirnar eins og búrið
heima hjá sér. Það getur verslað
þegar því hentar í stað þess að gera
einhver risainnkaup á vörum í stór-
mörkuðum sem það hefur e.t.v. enga
þörf fyrir eða hætta er á að skemm-
ist.
Stórmarkaðirnir eru að selja allt
að 8-10 þúsund vörutegundir en við
erum einungis me_ð 2.700 tegundir
af neysluvörum. Ég reyni ekki að
troða upp á fólk vörum sem það
hefur enga þörf fyrir. Við reynum
að vera með hnitmiðað vöruval til
að koma til móts við óskir neyt-
enda.“
-í kjölfarið á stofnun 10-11
spruttu upp aðrar verslanir með
langan opnunartíma og stórmark-
aðir hafa lengt sinn opnunartíma
undanfarin misseri. Hefur þetta
ekki haft nein áhrif á ykkar rekstur?
„Stórmarkaðirnir hafa elt okkur
uppi varðandi sinn opnunartíma. Ég
tel að þeir séu komnir út fyrir þann
ramma sem var settur í upphafi í
þessu efni og að lengri opnunartími
sé þeim afar kostnaðarsamur. Á
endanum verður það neytandinn
sem greiðir þennan kostnað. Aftur
á móti er rekstrargrunnur 10-11
miðaður við langan opnunartíma.
Lengri opnunartími stórmark-
aðanna hefur alls ekki dregið úr
okkar sölu, þar sem við erum fylli-
lega samkeppnisliæf við Nóatún og
Hagkaup, bæði hvað snertir verð
og gæði. Þannig hefur 10-11 verið
ódýrari en báðir þessir stórmarkað-
ir, skv. verðkönnunum.“
Stofnar dreifingarmiðstöð
á þessu ári
- Nú hafa stórmarkaðir samein-
ast um innkaup sín og um áramótin
stofnuðu kaupfélögin og Nóatún til
slíks samstarfs í Búri ehf. Hver er
þín staða i þessu efni?
„Ég vinn mjög náið með íslensk-
um framleiðendum og heildsölum.
Það er engin kjötvinnsla í fyrirtæk-
inu heldur skipti ég við þá aðila sem
hafa sérhæft sig í framleiðslu á kjöt-
vörum. Stefna okkar felur í sér að
hafa hraða umsetningu á vörunum
og að greiðslur berist fljótt til okkar
birgja. Þannig veltum við lager
50-60 sinnum á ári.
10-11 hefur einnig byggt upp
nútímalega tölvutækni við innkaup,
Kerfíð veitir okkur upplýsingar á
hveijum degi um það hvernig rekst-
urinn gekk deginum áður.
Ég gerði mér strax í upphafí grein
fyrir því að fyrr eða síðar þyrfti að
setja á stofn dreifingarstöð fyrir
verslanir okkar. Önnur fyrirtæki
eins og Hagkaup og Bónus hafa
sett á stofn stóra heildsölu og nú
ætla kaupfélögin og Nóatún að
stofna sambærilegt fyrirtæki. Ég tel
að heildsalar geti sinnt sínu hlut-
verki mjög vel fyrir mig. Hins vegar
ætla ég að setja á stofn dreifingar-
stöð á þessu ári sem safnar vörunum
frá mínum birgjum á einn stað og
þaðan verður þeim dreift til búð-
anna. Ég ætla engu að síður að
halda hröðum veltuhraða og ekki
binda fjármagn í lager. Það skapast
verulegur sparnaður í dreifingu því
heildsaiar þurfa ekki lengur að
dreifa vörunum til allra verslananna
heldur fara þær á einn stað. Þetta
sparar síðan mikla vinnu í bókhaldi
því búðirnar munu panta frá safn-
lager í stað þess að pantað sé frá
einstökum heildsölum.
Til viðbótar get ég nefnt að ég
hef hafíð samstarf við breska fyrir-
tækið Tesco, sem er eitt stærsta
smásölufyrirtæki Bretlands. „Ég
mun kaupa vörur sem eru sérmerkt-
ar Tesco beint frá birgðastöð þeirra
í Bretlandi en fæ auk þess að njóta
góðs af þekkingu þeirra í smásölu-
verslun. Á þennan hátt ætla ég að
bjóða enn ódýrari vörur í 10-11
ásamt öðrum vörum frá íslenskum
heildsölum. Þetta er mitt svar við
sérmerkjavörum stórmarkaðanna.
Viðskiptavinir 10-11 verða örugg-
lega mjög ánægðir með þessar vör-
ur sem eru væntanlegar á markað-
inn í næsta mánuði."
10-11-búðir á landsbyggðinni?
10-11 verslanirnar eru nú fímm
talsins víðsvegar á höfuðborgar-
svæðinu, þ.e. í Borgarkringlunni,
Glæsibæ, Miðbæ Hafnaríjarðar,
Engihjalla og Laugalæk. Því vaknar
sú spurning hvað sé framundan í
uppbyggingu nýrra verslana hjá
fyrirtækinu.
„Fyrirtækið hefur bætt við búðum
eftir efnum og ástæðum á hveijum
tíma. Ég er núna að skoða sjö mögu-
leika á opnun nýrra búða og hef
ákveðið að opna á þessu ári þijár
búðir.
Jafnframt er ég að skoða mögu-
leika á opnun búða í nágrenni við
höfuðborgarsvæðið frá Borgarnesi,
á Reykjanesi og Suðurlandi. Ég tel
að það vanti búðir eins og 10-11 á
stöðum á landsbyggðinni því neyt-
endur þar eru ekkert öðruvísi en í
Reykjavík,“ segir Eiríkur.
Lokað í Borgarkringlu
Samningar hafa tekist um að
10-11 versluninni í Borgarkringl-
unni verði lokað og fær fyrirtækið
bætur frá húseigendum fyrir riftun
á leigusamningi sínum til tíu ára.
„Samningaviðræður hafa staðið yfir
undanfarið ár og að lokum fékk ég
tilboð sem erfitt var að hafna," seg-
ir Eiríkur. „Ég tel skynsamlegra
fyrir mig að fá bætur fyrir þessa
hluti og eyða orkunni í uppbyggingu
fleiri búða, frekar en að beijast við
þau öfl sem þarna eru. Áðilar í
Kringlunni hafa ekki verið reiðubún-
ir að leyfa mér að taka þátt í þess-
ari uppbyggingu. Mér hefur verið
tilkynnt að sameining Kringlunnar
og Borgarkringlunnar verði ekki að
veruleika nema ég fari út.
Búðin í Borgarkringlunni hefur
gengið vel og var með um 32% veltu-
aukningu frá árinu á undan. Mér
hefur líkað vel að vera þarna og við
lögðum mikla vinnu í að byggja
hana upp. Hins vegar ætla ég að
finna nýjan stað fyrir hana í ná-
grenni við Borgarkringluna," sagði
Eiríkur Sigurðsson að lokum.