Morgunblaðið - 19.03.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.03.1996, Blaðsíða 1
 1996 ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ BLAÐ SUIMD: SEX ÍSLAIMDSMET FÉLLU í VESTMAIMINIAEYJUM / B4 Vernharð í þriðja sæti VERNHARÐ Þorleifsson, júdó- maður frá Akureyri, varð í þriðja sæti í 95 kílógramma flokki á sterku móti í Póllandi um helg- ina. Með þessum góða árangri skaust Vernharð upp í 9. sætið í stigakeppninni fyrir Ólympíuleik- ana í sumar, er með 194 stig, en níu efstu ölast sjálfkrafa keppnis- rétt á Ólympíuleikunum í Atlanta. Bjarni Friðriksson keppti einnig á mótinu, vann eina viðureign en tapaði síðan tveimur og lenti í níunda sæti. Bjarni er í 13. sæti á stigalistanum með 104 stig. Vernharð lagði Guido frá Italíu í fyrstu umferð. Italinn, sem er í 4. sæti listans, var yfir allt þar til 9 sekúndur voru pftir að Vern- harð náði Yoka, eða 5 stigum, og sigraði. Næstur var jafnaldri Vernaharðs, Malijskas frá Lithá- en. Efir 55 sekúndur náði Vern- harð frábæru kasti og sigraði á Ippon. Viðureignin við Svirid frá Hvíta-Rússlandi var æsispennandi og skiptust þeir á um að hafa forystuna. Varnharð náði að jafna er 40 sekúndur voru eftir og það dugði til sigurs með úrskurði allra þriggja dómaranna. Vernharð tapaði hins vegar fyrir heimsmeistaranum Mastula frá Póllandi í undanúrslitum, en sá hefur ekki tapað viðureign í tvö ár. Lokagliman var við Jakl frá Tékklandi, sem er í 7. sæti á Iistanum. Vernharð var mjög ör- uggur og sjálfstraustið var komið. Tékkinn varð að játa sig sigrað- ann án þess að ná að skora stig gegn Vernharð. Rodman í sex leikja bann DENNIS Rodman, ieikmaður með Chicago Bulls, sem missti stjórn á skapi sínu um helgina, réðist að dómara, var í gær dæmdur í sex leikja bann og sektað- ur um 1,3 rniHj. isl. kr. Rodman verður fjarri góðu gamni þegar Bulls leikur þrjá leiki á næstu fjóru dögum. ■ Rodmantil / B8 mval Morgunblaðið/RAX Tveir í bann RODNEY Dobart úr Grindavík og Jón Arnar Ingvars- son úr Haukum, voru í gær dæmdir í eins leiks bann og verða ekki með þegr lióin mætast í kvöld. Teitur Órlygsson ætlar að reyna að leika með Njarðvíkingum þegar þeir taka á móti grönnum sínum úr Keflavík, en Teitur meiddist illa á ökla á laugardaglnn. Hér má sjá þá Dobart og Jason Willl- ford í baráttunnl um knöttinn. Leikirnir / B5. 16.03.1996 21130 Fjöldi vinninga vinnings- upphæð vinningar 4.133.280 406.170 pMa 101 6.930 4. 3al5 3.049 530 3.1 S2 6.855.350 L< ' , . VINNINGSTOLUR MIÐVIKUDAGINN AÐALTOLUR BONUSTOLUR 19M34H44 Fjöldi vinninga vinnings- upphæð Vinmngar 53.849.000 272.666 107.110 4. 4at6 208 1.630 696 200 54.814.126 907 Heildnrvinningsupphacö: Á Islandi: 54.814.126 965.126 KIN y 12.03.-18.03/96 UPPLÝSINGAR • Fyrsti vinningur fór óskiptur til heppins lottó- þátttakanda á laugardaginn og fékk hann í sinn hlut rúmlega 4,1 mílljón króna. Vinningsmiðinn var scldur i sóluturninum Svarta svaninum i Reykjavik. • Bónusvinningurinn kr. 406.170, var cinnig óskipt- ur á iaugardaginn og kom hann i hlut heppins Brciðholtsbúa. Vinningsiniðinn var seldur i sólu- turninum Hólagorði í Reykjavik. vertu viðbuin(n) vmmngi íl mlkiis að yiít’’ 1. vinningur er aaetlaður 44 milljónir kr. HANDKNATTLEIKUR Svo gæti farið að hálfgerð ís- lendinganýlenda verði í Þýskalandi næsta vetur þegar handknattleiksvertíðin hefst. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins eru miklar líkur á að Viggó Sig- urðsson taki að sér að þjálfa lið Wuppertal og í Þýskalandi er talað um að til liðsins muni líklega koma einir þrír leikmenn auk Ólafs Stef- ánssonar sem þegar hefur skrifað undir samning við félagið. JUDO Viggó Sigurðsson vildi ekki tjá sig um málið í gær er Morgunblað- ið ræddi við hann, sagðist hafa skotist í helgarferð til Þýskalands en vildi ekki segja hvert. Sam- kvæmt heimildum í Þýskalandi er búist við að Viggó taki við liðinu og með honum komi Rússinn Dmítrí Filippov úr Stjörnunni, Dagur Sigurðsson úr Val og Guð- mundur Hrafnkelsson, markvörður Vals. Nafn Gunnars Beinteinsson- ar úr FH hefur einnig verið nefnt í þessu sambandi. Viggó vildi ekk- ert gefa upp hvort einhveijir færu með honum til Wuppertal ef hann tæki við liðinu. Wuppertal leikur í annarri deild- inni og er stefnan sett á sæti í þeirri fyrstu en fyrir komandi keppnistímabil verða Wuppertal og Wuppertaler sameinuð og munu bera nafn fyrra liðsins. Samkvæmt nýjum reglum um frjálst flæði vinnuafls, og um leið íþrótta- manna, innan landamæra Evrópu- bandalagsins mega þýsk lið vera með eins marga leikmenn af því svæði og þau vilja, og á þetta einn- ig við um Evrópska efnahagssvæð- ið og þurfa leikmenn frá EES-lönd- um líklega ekki að sækja um at- vinnuleyfi í landinu. Auk þess mega þýsk lið vera með tvo er- lenda leikmenn, leikmenn sem koma annars staðar að. HANDKNATTLEIKUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.