Morgunblaðið - 21.03.1996, Qupperneq 4
4 B FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Engin lognmolla
á lyfjamarkaði
Tvö ný apótek munu hefja rekstur fljótlega í kjölfar þess að losað
hefar veríð um hömlur á fjölda þeirra. Almennt er talið að þjón-
usta apótekanna muni aukast með harðnandi samkeppni. Meiri
óvissa ríkir hins vegar um verðþróun enda eru þar enn ýmsir
lausir endar. Þessar breytingar voru mjög umdeildar á sínum tíma
og því fer fjarri að óánægja apótekara með hið nýja fyrirkomulag
hafí hjaðnað eins og Þorsteinn Víglundsson komst að
er hann kynnti sér þessi mál.
SELTJARNARNES
* • ••
| nýtt apótek
sm
• s
REYKJAVIK
i^j mm
BESSASTAÐA- /
HREPPUR
KÓPAVOGUR 'lChn,
GARÐABÆR
• //
\.yjr
HAFNARFJORÐUR •
Staðsetning apóteka á
höfuðborqarsvæðinu
MIKLAR hártoganir urðu
á Alþingi í október síð-
astliðnum um það
ákvæði lyfjalaga frá
1994 sem veita átti frelsi í lyfsölu
hér á landi. Við setningu laganna
á sínum tíma var gildistöku þess
kafla laganna er fjallaði um þessi
mál, sem og þeim kafla er fjalíaði
um aukið frelsi í ákvörðun lyfja-
verðs, frestað fram til 1. nóvember
á síðasta ári en svo fór að Alþingi
frestaði gildistökunni um nokkra
mánuði til viðbótar eða fram til
15. mars.
Nú þegar þessir kaflar laganna
hafa tekið gildi liggja fyrir í heil-
brigðisráðuneytinu a.m.k. 6 um-
sóknir um lyfsöluleyfi. Fjórar þess-
ara umsókna eru vegna apóteka
sem þegar eru starfandi. Þetta eru
Iðunnarapótek, Reykjavíkurapó-
tek, Selfossapótek og Stjörnuapó-
tek. Leyfí Iðunnarapóteks er útr-
unnið vegna eigendaskipta en leyfi
hinna þriggja útrunnin þar sem
nýju lögin kveða á um að leyfið
þurfi að gefa út á nafn lyfjafræð-
ings. Reykjavíkurapótek er hins
vegar rekið af Háskóla íslands en
hin tvö af kaupfélögum og því
þarf að breyta leyfi þeirra að form-
inu til.
Þá liggja fyrir a.m.k. tvær um-
sóknir vegna nýrra apóteka, ann-
ars vegar Lyfju hf. í Reykjavík
og hins vegar nýs apóteks í
Reykjanesbæ.
Umsóknirnar
í réttum farvegi
Forsvarsmenn Lyfju hf. lýstu
því yfir fyrir skömmu að stefnt
væri að því að opna hina nýju lyfja-
verslun á morgun. Hins vegar var
ekki unnt að taka umsókn fyrir-
tækisins til umfjöllunar fyrr en að
lögin höfðu tekið gildi og nú hefur
Borgarráð vísað umsókninni til
Borgarlögmanns og því fyrirséð
að opnun verslunarinnar dragist
eitthvað á langinn.
Að sögn Rannveigar Gunnars-
dóttur, setts skrifstofustjóra í heil-
brigðisráðuneytinu, voru þær um-
sóknir sem töldust fullfrágengnar
sendar viðkomandi sveitarstjórn-
um til umsagnar sl. mánudag. Þar
á meðal var umsókn Lyfju hf. Hún
segir að þegar umsögn liggi fyrir
og ráðuneytið hafi veitt leyfið þurfi
Lyfjaeftirlitið að taka út húsnæðið
til þess að starfsemi nýja apóteks-
ins geti hafist. Segir Rannveig að
afgreiðslutíminn sé því að stórum
hluta undir þessum aðilum kominn
en hún búist ekki við því að ráð-
herra verði lengi að svara þegar
þessar umsagnir liggi fyrir.
Þegar heildsala með áfengi var
gefín fijáls þann 1. desember sl.
voru leyfísveitingar fjölmargra
heildsala afgreiddar fyrir 1. des-
ember þannig að viðkomandi aðil-
ar höfðu heimild til að flytja inn
áfengi frá fyrsta degi. Aðspurð
um ástæður þess að ekki hafi ver-
ið hægt að beita sömu vinnubrögð-
um í þessu tilfelii segir Rannveig
að það skýrist fyrst og fremst af
því að fjölmörg atriði hafi verið
óafgreidd fram á síðustu daga.
Hins vegar séu þetta ekki sam-
bærileg mál sökum þess hversu
fjölþætt skilyrði lyfjaverslanir
þurfi að uppfylla.
„Þetta var spurning um hvort
sett yrði reglugerð eða ekki og
einnig hvers konar leiðbeiningar
yrðu gefnar til sveitarfélaga. Þetta
eru hlutir sem hafa verið að skýr-
ast síðustu stigum málsins. Fólk
er ekkert sammála því þarna eru
gífurlega hagsmunir í húfi og
þetta var spurning um hvernig
málið yrði meðhöndlað. Þegar að
upp var staðið gátum við ekki
meðhöndlað þetta mál fyrr en lög-
in höfðu tekið gildi.“
Rannveig segir að auk fyrr-
greindra umsókna séu nokkrar
aðrar formlegar umsóknir til um-
fjöllunar hjá ráðuneytinu, þ.á.m. 4
á höfuðborgarsvæðinu, en ekki sé
hægt að tjá sig neitt nánar um
þær að svo stöddu þar sem ekki
sé útséð um hvaða umsóknir upp-
fylli þau tæknilegu skilyrði sem
séu sett.
5000 íbúar að baki hverri
rekstrareiningu
Heilbrigðisráðherra hefur sent
öllum sveitarfélögum á landinu
leiðbeiningar um við hvaða viðmið-
anir skuli stuðst þegar að umsögn
er veitt um veitingu nýs lyfsölu-
leyfis. í bréfínu kemur m.a. fram
að samkvæmt túlkun ríkislög-
manns beri ráðherra að veita nýtt
lyfsöluleyfi, ef sveitarstjórn leggst
ekki gegn því og umsækjandi upp-
fyllir önnur þau skilyrði sem sett
eru.
Þessi skilyrði eru að viðkomandi
lyfjafræðingur hafi starfað í a.m.k.
þijú ár, hafí starfsleyfí sem lyfja-
fræðingur hér á landi og hafi versl-
unarleyfi eða hafi gert samning
við aðila með slíkt leyfi. Þá þarf
Lyfjaeftirlitið að hafa tekið út og
samþykkt þá aðstöðu sem er til
staðar í nýju apóteki.
Þau atriði sem ráðherra nefnir
í bréfu sínu sveitarstjórnum til
viðmiðunar eru einkum tvö. Ann-
ars vegar að lyfjabúðir séu stað-
settar á sem aðgengilegustum
stöðum fyrir sjúklinga og almenn-
ing. Þannig sé tekið tillit til stað-
setningar heilsugæslustöðva,
læknastofa og þjónustu- og at-
vinnusvæða sem og skipulags
íbúðarhverfa.
Þá er einnig gefinn upp fjöldi
íbúa að baki hverri rekstrarein-
ingu í þéttbýli til viðmiðunar. í
bréfinu segir að miða megi við
að um 5.000 íbúar séu að baki
hverri einingu. Takmarkanir
þessa efnis ollu ýmsum þing-
mönnum áhyggjum við frestun á
gildistöku þessara ákvæða lyfja-
laga síðastliðið haust og var m.a.
samþykkt í heilbrigðisnefnd Al-
þingis að ekki skyldi breyta
ákvæðum laganna efnislega á
neinn hátt. Hér er þó ekki um
kvöð að ræða heldur einungis
viðmiðun sem ekki ætti að binda
hendur sveitarstjórna á neinn
hátt.
Áhrifa nýrrar samkeppni
þegar farið að gæta
Þeir Róbert Melax og Ingi Guð-
jónsson eru fyrstu aðilarnir til að
nýta sér lagabreytingarnar, en
þeir hafa stofnað nýtt apótek,
Lyíju hf., sem nú er reiknað með
að opni í síðari hluta næstu viku.
Róbert segir breytingarnar frá
því að ný lög tóku gildi 1994 vera
töluverðar, þó svo að enn hafi
engin ný apótek verið opnuð á
grunavelli þeirra. „Nú eru apótek-
in að kappkosta við að bæta um-
hverfi sitt og þjónustu þannig að
það falli neytendanum betur í geð.
Ég veit t.d. að fjöldi apóteka er
að setja upp nýjar innréttingar hjá
sér, opnunartími hefur í mörgum
tilfellum verið lengdur og það er
allt á fullu til þess að mæta auk-
inni samkeppni.“
Róbert segir að Lyfja muni
leggja mikla áherslu á aukna þjón-
ustu, t.d. með því að veita við-
skiptavinunum meiri og aðgengi-
legri upplýsingar en gert hafi ver-
ið hingað til. Meðal annars hafi
verið tekið upp samstarf við Félag
íslenskra heimilislækna um útgáfu
tæplega 30 lítilla bæklinga sem
fjalli um hina algengustu sjúk-
dóma og meðferð á þeim.
„I bæklingunum er að finna
lýsingu á viðkomandi sjúkdómum,
hvenær sjúklingur eigi að leita til
læknis og í þeim tilfellum þar sem
mögulegt er að ráða bót á málinu
með lausasölulyíjum þá bendum
við á þau lyf sem til eru við sjúk-
dómnum."
Umsókn Lyfju þýðingarmikil
Á aðalfundi Apótekarafélags
íslands þann 9. mars sl. var sam-
þykkt að stofna nýtt félag, Félag
íslenskra lyfsöluleyfishafa, sem
opið yrði öllum sem hefðu lyfsölu-
leyfi hér á landi en gamla Apótek-
arafélaginu yrði jafnframt lokað
fyrir nýjum meðlimum.
Róbert segist telja þetta mjög
eðlilega ráðstöfun í ljósi þeirra
eigna sem Apótekarafélagið eigi
og reiknar hann með því að a.m.k.
annar þeirra félaga sæki um aðild
að nýja félaginu.
„Því er hins vegar ekki að leyna
að við erum eflaust óvinsælustu
menn landsins meðal apótekara.
Ef við hefðum ekki fylgt þessu
máli eftir sl. haust þá er ég per-
sónulega sannfærður um það að
búið væri að snúaþessu kerfi aft-
ur til einokunar. Eg er því sann-
færður um að okkar frumkvæði
hafi komið í veg fyrir áframhald-
andi einokun."
Umsögn Borgarráðs og lyfjaeft-
irlitsins ætti vart að vera annað
en formsatriði, að sögn Róberts,
þar sem haft hafí verið samráð við
þessa aðila við uppbyggingu hins
nýja apóteks. „Við fengum óform-
lega umsögn Borgarráðs fyrir
nokkru þess efnis að þeir sam-
þykktu þetta leyfi og sú umsögn
var einnig send ráðuneytinu. Lyfja-
eftirlitið hefur skoðað húsnæðið og
samþykkt teikningar okkar og við
höfum verið að vinna með þeim
allt frá því í haust. Þetta eru því
aðeins formsatriði sem verið er að
vinna eftir í þessu tilfelli."