Morgunblaðið - 01.06.1996, Page 1
fWiatjjiimMaiÖiifo
• Sýn til annarra átta/2
• Eldsál þegar að trúnni kom/3
• Efnið kaus sér búning/8
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996
BLAÐ
Jessye
Norman á
Olympíu-
leika
SÓPRANSÖNGKONAN
Jessye Norman mun syngja
við setningarathöfnina í Atl-
anta í Goergíu í Bandaríkjun-
um, 19. júlí, þegar Ólympíu-
leikarnir hefjast, en þá verður
öld frá því fyrstu nútíma leik-
arnir fóru fram í Grikklandi.
Jessye Norman mun flytja
verk, sem nefnt er eftir kjör-
orðum Ólympíuleikanna: „Ci-
tius, Altius, Fortius" sem hef-
ur verið þýtt: „Hraðar, hærra,
sterkari." Höfundur lags er
Mark Watters og textinn er
eftir Lorraine Feather.
Don Mischer, sem skipu-
leggur setningarathöfnina
fyrir ólympíunefnd Atlanta,
segir að það hafi þótt við
hæfi að semja sérstakt verk
í tilefni aldarafmælisins. Og
einkar skemmtilegt væri, að
þessi þekkta óperusöngkona
frá Georgíu yrði flytjandinn.
Heaney opn-
ar sýningn
SEAMUS Heaney, sem hlaut
nóbelsverðlaunin í bókmennt-
um á síðasta ári, mun opna
alþjóðlegu bókasýninguna
sem haldin verður í Frankfurt
í október nk.
Verður Heaney einn af
þrjátíu írskum rithöfundum
sem sækja sýninguna, sem er
hin stærsta sinnar tegundar
í heiminum. A kíðasta ári
sóttu 9.000 útgefendur frá
97 löndum sýninguna en hún
stendur í eina viku.
Reykjavíkur-
borg fær
veggteppi
REYKJAVÍKURBORG hafa
verið færð þrjú veggteppi að
gjöf og er myndefnið úr
forníslenskum handritum.
Teppin eru hönnuð eftir
ljósritum frá Ámastofnun af
Asu Ólafsdóttur, myndlistar-
manni, og saumuð með kross-
spori í stramma. Var þetta
samstarfsvinna hjá konum á
Sléttuvegi 11-13, unnin í fé-
lagsmiðstöðinni á staðnum.
Leiðbeinandi var Ragnheiður
Thorarensen og tók vinnan
átján mánuði.
Veggteppin eru til sýnis í
félagsmiðstöðinni á Sléttu-
vegi 11-13.
■ Laglínan/C4
Fyrsta sýningin á
íslenskum portrettum
ÁTTATÍU íslenskar portrett-
myndir verða á sýningu í Hafnar-
borg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, sem opnuð verður
8. júní og er Þetta í fyrsta sinn
sem yfirlitsssýning er höfð á þesu
sviði íslenskrar myndlistar á tutt-
ugustu öld. Verkin eru fengin að
láni víða að, frá söfnum, stofnun-
um, fyrirtækjum og einstakling-
um, en þau verða um 80 talsins
eftir á fímmta tug listamanna,
þeirra á meðal Þórarin B. Þorláks-
son, Ásgrím Jónsson, Jón Stefáns-
son, Jóhannes Kjarval, Kristján
Davíðsson, Ágúst Petersen. Eirík
Smith, Helga Þorgils og Pál Guð-
mundsson frá Húsafelli.
Aðalsteinn Ingólfssin listfræð-
ingur hefur haft umsjón með
undirbúningi sýningarinnar og rit-
ar auk þess texta í skrá sem gefin
verður út í tilefni hennar.
Margar af helstu perlunum
„Portrettmyndir hafa verið snar
þáttur í sköpun íslenskra lista-
nlanna á þessari öld, en heldur
hefur viljað brenna við að þessi
grein myndlistarinnar hafí verið
afskipt þegar framlag íslenskra
listamanna er metið,“ segir Aðal-
steinn. „Engu að síður er meðal
þeirra að finna margar af helstu
perlum sumra bestu málara sem
hér hafa verið uppi, auk þess sem
þessar myndir eru ómetanleg
heimild um fólk og tíðaranda."
Á sýningunni í Hafnarborg
verður áhersla lögð á málverk og
leitast við að kynna portrettmynd-
ir af ýmsu tagi. A sýningunni
verða myndir eftir listamenn, sem
urðu þjóðkunnir af list sinni fyrr
á öldinni, en einnig myndir yngri
málara og voru sumar þeirra unn-
ar sérstaklega í tilefni þessarar
sýningar.
Galdra-
Loftur
frumsýndur
GALDRA-LOFTUR, ný íslensk
ópera eftir Jón Ásgeirsson, verð-
ur frumsýnd í íslensku óperunni
í kvöld kl. 20.00 í tengslum við
Listahátíð í Reykjavík. Byggir
hón á samnefndu leikriti Jó-
hanns Sigurjónssonar sem notið
hefur fádæma vinsælda í ís-
lensku leikhúsi lengst af þessari
öld. Stærstu hlutverkin í sýning-
unni, Loftur og Steinunn, eru í
höndum Þorgeirs J. Andréssonar
og Elínar Óskar Óskarsdóttur,
sem hér skiptast á skoðunum að
viðstöddum Lofti Erlingssyni
sem syngur samvisku Galdra-
Lofts.
Jóhann Freyr
Björgvinsson
Skrifaði
undir samn-
ing við Ball-
ett í Texas
JÓHANN Freyr Björgvinsson ball-
ettdansari hjá Islenska dansflokkn-
um hefur skrifað undir samning við
listdansflokkinn
Ballet Austin í
Texas. Samning-
urinn er til eins
árs og fer Jóhann
utan í september
ef atvinnuleyfi
fæst.
Jóhann sagði í
samtali við Morg-
unblaðið að samn-
ingurinn væri til-
kominn vegna
tengsla Lambros
Lambrou listræns stjórnenda Ballet
Austin við íslenska dansflokkinn en
hann hefur tvisvar sett upp dansverk
hjá flokknum. „Ég veit um tvö önn-
ur tilvik þar sem hann falaðist eftir
kröftum mínum í einstök verkefni
sem ég gat ekki tekið að mér. Ég
lét hann vita núna að ég væri tilbú-
inn að taka að mér fullt starf, ef
hann hefði enn áhuga, og ég fékk
sendan samning um hæl.“ Hann
sagði að samningurinn fæli ekki í
sér nein tiltekin sérverkefni. „Þetta
er 20 manna flokkur og fylgir ný-
klassískri stefnu. Hann setur upp
ýmsa þekktustu balletta tónbók-
menntanna líkt og Svanavatnið og
Hnotubijótinn svo einhveijir séu
nefndir. Mér líst mjög vei á þetta.
Þetta er kærkomið tækifæri sem
getur opnað mér ýmsar dyr,“ sagði
Jóhann.
Jóhann er 23 ára og lærði listdans
á íslandi og í Svíþjóð. Hann hefur
verið fastráðinn við íslenska dans-
flokkinn í þijú ár og fer með aðal-
hlutverkið, Guðmund góða, í sýningu
dansflokksins á Listahátíð á _ „Fé-
hirslu vors herra“ eftir Nönnu Ólafs-
dóttur og Siguijón Jóhannsson.
Morgunblaðið/Halldór