Morgunblaðið - 06.06.1996, Side 2
2 C FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Samkeppn-
islög brotín
af tveimur
ljósmynda-
stofum
SAMKEPPNISRÁÐ hefur lagt bann
við frekari dreifingu auglýs-
ingabæklings frá tveimur ljósmynda-
stofum á höfuðborgarsvæðinu vegna
villandi upplýsinga sem þar komi
fram og brjóti í bága við samkeppnis-
lög.
Samkeppnisstofnun bárust kvartanir
vegna auglýsingabæklings sem Ljós-
myndastofa Kópavogs og Ljós-
myndastofan Mynd dreifðu á lands-
byggðinni fyrir fermingar í vor. Sam-
kvæmt dreifibréfinu eru fyrrnefndar
ljósmyndastofur með langlægsta
verðið á landinu. Eins er vísað í niður-
stöðu verðkönnununar sem Sam-
keppnisstofnun framkvæmdi og sagt
að þegar tekið sé tillit til fjölda
mynda og stærðar þeirra séu aðrar
ljósmyndastofur allt að ljórum sinn-
um dýrari.
Umrædd verðkönnun var gerð í
febrúar 1995 og tók einungis til 14
ljósmyndastofa á höfuðborgarsvæð-
inu. I frétt frá Samkeppnisstofnun,
sem fylgdi niðurstöðum könnunar-
innar, segir „það er afar misjafnt
hvað er innifalið í verði myndatö-
kunnar. Sem dæmi má nefna að fjöldi
lappa er mjög mismunandi og það
sama má segja um stærð myndanna.
Útilokað er að bera á raunhæfan
hátt saman verðlagningu Ijósmynd-
anna.“
í ályktunum frá auglýsinganefnd
og Samkeppnisstofnun kemur fram
ósk um að dreifibréfíð verði ekki birt
framar, þar sem upplýsingar í því
bijóti í bága við 20. og 21. grein
samkeppnislaga. Fullyrðingar sem
þar komi fram séu ósannaðar og því
óhæfilegar gagnvart hagsmunum
neytenda. Þær gefi villandi upplýs-
ingar og séu ósanngjarnar gagnvart
kep_pinautum.
A fundi Samkeppnisráðs var úr-
skurðað á eftirfarandi hátt í málinu.
„Með vísan til 20. og 21. gr. sam-
keppnislaga nr. 8/1993 og með heim-
ild í 51. gr. sömu laga bannar Sam-
keppnisráð Ljósmyndastofu Kópa-
vogs, Hamraborg 11, Kópavogi, og
Ljósmyndastofunni Mynd, Trönu-
hrauni 8, Hafnarfirði, að birta eftir-
farandi upplýsingar í auglýsingum
þeirra á fermingarmyndatökum:
1. að hvergi fáist jafnmikið fyrir
peningana samkvæmt niðurstöðu
verðkönnunar sem fram hafí farið á
vegum Samkeppnisstofnunar;
2. að úr könnun Samkeppnisstofn-
unar sé hægt að lesa að þeir séu
með lægsta verðið þegar tekið hafi
verið tillit til §ölda og stærðar
mynda;
3. að þær séu með langlægsta
verðið á landinu.
Verði banninu ekki fylgt mun
Samkeppnisráð beita viðurlögum
samkeppnisl aga. “
Talsmenn banka og lífeyrissjóða fagna skýrslu starfshóps viðskiptaráðherra um skuldabréfamarkaðinn
Sannar að vöxtum hafi
ekki verið haldið uppi
TALSMENN banka og lífeyrissjóða fagna mjög
þeirri niðurstöðu starfshóps viðskiptaráðherra um
skuldabréfamarkaðinn að vextir á honum hafi í
meginatriðum ráðist af framboði og eftirspurn.
Þar með hafi kenningar um að þessar stofnanir
haldi uppi vöxtum í landinu verið afsannaðar.
Valur Valsson, bankastjóri íslandsbanka og for-
maður Sambands íslenskra viðskiptabanka, kvaðst
á kynningarfundi um skýrslu starfshópsins á
þriðjudag fagna þeirri niðurstöðu starfshópsins að
markaðurinn starfi í aðalatriðum rétt og vextir
breyttust í samræmi við markaðsaðstæður. „Það
er sérstök ástæða til að vekja athygli á þessari
niðurstöðu því málsmetandi menn hafa ítrekað
haldið því fram á liðnum árum að þetta gildi ekki.
Þeir hafa sagt að ekki sé nægjanleg samkeppni á
markaðnum og að bankar og sparisjóðir haldi vöxt-
unum uppi. Ég endurtek að ég fagna því að sýnt
hefur verið fram á að þetta er ekki rétt.“
Valur vék í ávarpi sínu hins vegar ekki að þeirri
niðurstöðu starfshópsins að bankar og sparisjóðir
virtust ekki nota upplýsingar frá peningamarkaði
við ákvörðun á útlánsvöxtum á óverðtryggðum
lánum. Þá minntist hann heldur ekki á þá fullyrð-
ingu að vaxtamunur milli óverðtryggðra inn- og
útlána væri óeðlilega mikill samanborið við vaxta-
mun verðtryggðra inn- og útlána. Valur kvaðst í
samtali við Morgunblaðið telja að þetta atriði í
áliti starfshópsins hafi verið með minniháttar mál-
um sem þar var verið að fjalla um. „Aðalatriðið í
niðurstöðu starfshópsins var það að vextir í stórum
dráttum fara eftir framboði og eftirspurn í land-
inu. Það er hins vegar rétt að ekki er endanlega
búið að aðlaga allt vaxtakerfið í landinu að þessu
frelsi og það tekur greinilega einhvern tíma. Þá
er ekki aðeins verið að tala um óverðtryggða vexti
banka og sparisjóða heldur á einnig eftir að taka
á dráttarvöxtunum. Menn eru að vinna á þessu
verki og það tekur enn einhvern tíma.
Valur sagði að meðal þess sem hefði valdið erfið-
leikum hjá bönkum og sparisjóðum við að taka
mið af peningamarkaðnum væri einfaldlega við
hvað ætti að miða. „Það hefur alls ekki verið aug-
ljóst mál við hvaða vexti á peningamarkaðnum
eigi að miða. Tíminn mun leysa það vandamál
vegna þess að menn þurfa að byggja þetta á ein-
hverjum stöðugum grunni sem myndast ekki nema
á ákveðnum tíma.“
Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Sambands
almennra lífeyrissjóða, vitnaði í sinni ræðu til
ummæla viðskiptaráðherra á aðalfundi Sambands
íslenskra sparisjóða í október sl. Þar sagði ráðherr-
ann að lífeyrissjóðirnir í skjóli einkaréttar á því
að fara með lífeyrissparnað Iandsmanna hefðu
yfirburða stöðu á þessum markaði og gætu haft
afgerandi áhrif á vaxtastigið. Afkoma lífeyrissjóð-
anna hefði verið að batna á undanförnum árum og
í skjóli þessara aðstæðna hefði þeim tekist að halda
uppi háu vaxtastigi.
Hrafn sagði að meginniðurstaða sérfræðihópsins
gengi þvert á þessa skoðun ráðherrans, en þar
væri mjög ákveðið fullyrt að hér á landi hefði átt
sér stað jákvæð þróun á markaði fyrir skuldabréf
undanfarin ár og vextir á honum ráðist í meginatr-
iðum af framboði og eftirspurn.
Þá fagnaði Hrafn niðurstöðu hópsins um að
sterk staða lífeyrissjóða hefði ekki komið í veg
fyrir hreyfanleika vaxta. „Þessi meginniðurstaða
sérfræðihópsins er þeim mun ánægjulegri fyrir
forsvarsmenn lífeyrissjóðanna að hún beinlínis
hrekur margendurteknar og órökstuddar fullyrð-
ingar í þá veru að lífeyrissjóðirnir hafi afgerandi
áhrif á vaxtastigið og að lífeyrissjóðunum í skjóli
fákeppni hafi tekist að halda uppi háu vaxtastigi
í landinu."
Fyrirtæki á Verðbréfaþingi:
Breyting á gengi hlutabréfa frá áramótum
Breyting frá áramótum
Gengi 31.12.95 31.5.96
Marel
Hraðfr. Eskifj.
Skagstrendingur
Síldarvinnslan
Tæknival
OLÍS
Vinnslustöðin
Skinnaiðnaður
Útg.f. Akureyringa
Grandi
Haraldur Böðv.
Pharmaco
SÍF
Plastprent
(sl. sjávarafurðir
Þormóður rammi
Skeljungur
Hampiðjan
Elmskip
Lyfjaverslun ísl.
Flugleiðir
Ehf. Alþýðub.
Olíufélagið
íslandsbanki
ísl. hlutabréfasj.
Sæplast
Auðlind
Sam. verktakar
Hlutabréfasj.
Hlutabrsj. Norðurl.|| 8%
SR-Mjöl gj 7%
Alm. hlutabrsj. |§j 7%
Sjóvá-Almennar 0%
KEA 0%
-11% H Jarðboranir
-19% ■■ Ármannsfell
Formaður bankaráðs Landsbankans um Lind hf.
Allar upplýsingar
gefnar sem lög
gera ráð fyrir
KJARTAN Gunnarsson, formaður
bankaráðs Landsbanka Islands, vill
ekki tjá sig um málefni eignarleigu-
fyrirtækisins Lindar hf. í tilefni af
umræðum um það mál sem fram
fóru á alþingi í vikunni. Hann segir
að allar upplýsingar um Landsbank-
ann hafi verið gefnar sem lög geri
ráð fyrir að verði gefnar.
Þetta mál kom til umræðu í fyrir-
spurnartíma á alþingi. Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir spurði þar
Finn Ingólfsson viðskiptaráðherra
hvort rétt væri að Landsbankinn
hefði tapað 600 milljónum á Lind
og hvernig bankanum væri ætlað
að ráða við tapið í ljósi erfiðrar eig-
infjárstöðu. Þá spurði hún einnig
hvaða ákvarðanir hefðu leitt til
tapsins og hveijir væru ábyrgir fyr-
ir því. Finnur svaraði því til að
bankaráð Landsbankans væri nú
að fjalla um útlánatop á undanförn-
um árum og það mætti búast við
að tap Lindar og annarra aðila sem
tengdust bankanum yrði skoðað.
Hann hefði ekki upplýsingar um
tapið.
„Það eru allar upplýsingar gefnar
um Landsbankann sem lög gera ráð
fyrir að séu gefnar. Afkoma bank-
ans og fyrirtækja hans kemur fram
í reikningum hans,“ sagði Kjartan
í samtali við Morgunblaðið.
í fyrirspurn sinni lýsti Ásta
Ragnheiður því yfir að það væri
krafa almennings að fá skýrar upp-
lýsingar um málefni Lindar, ástæð-
ur tapsins og hvort stjórnendur
bankans yrðu látnir sæta ábyrgð
eða látnir sitja áfram í toppstöðum
í bankanum eftir þetta mikla tap.
Aðspurður um þessa fullyrðingu
sagði Kjartan aðeins að allir vissu
að fyrirtækinu hefði verið lokað og
stjórnandanum sagt upp störfum.
Verðbréfaþing tekur upp eftir-
lit með „sýndarviðskiptum “
VERÐBRÉFAÞING íslands og
bankaeftirlit Seðlabankans hafa
fengið það hlutverk að fylgjast
með svokölluðum „sýndarvið-
skiptum" í viðskiptakerfi þingsins.
Með þessu er átt við viðskipti sem
talin eru gefa ranga mynd af
umfangi þeirra eða hafa óhæfileg
áhrif á verðmyndun.
„Þegar lögin um verðbréfavið-
skipti voru endurskoðuð í vetur
og afgreidd í marsmánuði kom inn
nýtt ákvæði í kaflanum um með-
ferð trúnaðarupplýsinga,“ sagði
Stefán Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfaþings, í
samtali við Morgunblaðið. „Þap
segir að einstaklingum eða lögað-
ilum sé óheimilt að taka þátt í,
stuðla að eða hvetja til viðskipta
með verðbréf eða annarra aðgerða
í því skyni að gefa ranga mynd
af umfangi viðskipta með tiltekin
verðbréf eða hafa óeðlileg eða
óhæfileg áhrif á verðmyndum í
verðbréfaviðskiptum. Þetta er það
sem við höfum kallað sýndarvið-
skipti en í greinargerð með frum-
varpinu er talað um enska hugtak-
ið „market manipulation“. Það er
auðvitað ljóst að Verðbréfaþing
er í bestri aðstöðu til að fylgjast
með viðskiptunum á markaðnum.
Við gerum faglegar, fjárhagslegar
og siðferðilegar kröfur til þingað-
ila og fylgjumst með því að reglum
þingsins og lögum um verðbréfa-
viðskipti sé fylgt.“
Aðspurður um hvort ástæða
væri til að ætla að slík viðskipti
hefðu verið stunduð hér á landi
benti Stefán á að þetta lagaá-
kvæði væri tilkomið vegna sam-
ræmingar við Evrópulöggjöfina.
„Þetta hefur komið inn í löggjöf
ýmissa annarra ríkja á undanförn-
um árum. Þau eru smám saman
að koma sér upp skilgreiningum,
hugtökum og vinnulagi til að átta
sig á því um hvað er verið að taia.
Lagaákvæðið er því ekki sett sem
svar við einhveiju misferli sem
hefur tröllriðið markaðnum. Hitt
er annað mál að það getur vel
verið að hér hafi verið stunduð
einhver sýndarviðskipti.
Sem dæmi má nefna að sýndar-
viðskipti geta verið mjög freistandi
þegar um er að ræða yfirtöku- eða
samrunatilboð fyrirtækja á mark-
aði. Þá getur það í senn verið
freistandi fyrir þá sem eru að selja
bréf eða þá sem vilja hindra að
málið nái fram að ganga. Þannig
má sem dæmi taka nýlegar viðræð-
ur Samherja og Utgerðarfélags
Akureyringa. Þar hefði svona
staða getað komið upp.“
Reiknistofa
bankanna
endurnýjar
móðurtölvu
REIKNISTOFA bankanna hef-
ur gengið frá samningum við
Nýheija hf. um kaup á nýrri
móðurtölvu. Tölvan er af nýrri
kynslóð loftkældra IBM-móð-
urtölva og verður hún afkasta-
mesta tölva landsins, að því er
segir í frétt frá Nýheija. Nýja
vélin vegur um 600 kíló og tek-
ur um 2 fermetra af gólfplássi
en til samanburðar vegur nú-
verandi móðurtölva Reiknistof-
unnar um 20 tonn og þekur
um 65 fermetra. Tölvukaupin
munu þvf spara Reiknistofunni
um 63 fermetra í gólfrými.
Nýja vélin, sem er af gerð-
inni IBM 9672, er umtalsvert
hagkvæmari í rekstri en sú
eldri, notar aðeins um 10% af
orkuþörf eldri vélarinnar. Töl-
van samanstendur af sex
25MIPS örgjörvum, 512 MB
minni, netspjaldi ásamt ljósleið-
aratengjum við önnur jað-
artæki. Búnaðurinn verður af-
hentur Rb í þessum mánuði og
mun leysa eldri vélina af
skömmu síðar.