Morgunblaðið - 31.07.1996, Page 4
4 D MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 1996
Q99 ATLAIMTA '96
MORGUNBLAÐIÐ
Masterkova hló
Mutola kvartaði
undan kulda
að öllu saman
SVETLANA Masterkova réð
sér ekki af kæti eftir sigur í 800
metra hlaupi kvenna, og hljóp
sigurhring eins og um kapp-
hlaup væri að ræða. Barnsleg
gleði hennar braust og oft út á
verðlaunapallinum eftir hlaup-
ið.
Þó Masterkova hafi unnið brons
á EM innanhúss í Stokkhólmi
sl. vetur og ekki tapað hlaupi í sum-
ar töldu sérfræðingar, að hún myndi
ekki lenda á verðlaunapalli. Þar
bjuggust flestir við Mariu Mutolu
frá Mózambík, Ana Fidelia Quirot
frá Kúbu og Kelly Holmes Bret-
landi. Mutola hafði ekki tapað 800
metrum frá 1992 en sagðist eftir
hlaupið hafa þjáðst af kvefi og kann
það að skýra hvers vegna enda-
spretturinn var ekki jafn kröftugur
og venjulega.
En Masterkovu
var sama þótt sér-
fræðingar klóruðu
sig í kollinum, hún
brosti að öllu saman,
alla leið á verðlauna-
pallinn, gleði hennar
var innileg. Með
töfrandi hlaupi réð
Masterkova lögum
og lofum í hlaupinu
og naut aðstoðar
löndu sinnar Jelenu
Afanasjevu, sem
hafði forystu fram-
an af. Masterkova ____________
tók við eftir um 200
metra og reyndi einhver að ógna
henni eða komast upp að hlið henn-
ar jók hún hraðan. Holmes gerði
slíka tilraun þegar 200 metrar voru
eftir en eyddi of miklu púðri í það
og féll úr öðru sæti í það fjórða á
síðustu 20 metrum.
800 IVI HLAUP KVENIMA
Með töfrandi hlaupi
réð Masterkova lög-
um og lofum í hlaup-
inu og naut aðstoð-
ar löndu sinnar
Jelenu Afanasjevu
RUSSNESKA stúlkan Svetlana Masterkova með forystu í 800 metra hlauplnu. Fast
á hæla henni kemur Ana Fidelia Quirot frá Kúbu, sem varð í öðru sæti, og breska
stúlkan Kelly Holmes, sem varð í fjórða sæti.
MARIA Mutola frá Mozambique lenti í þriðja sæti í
800 metra hlaupi kvenna og sagði að kuldinn hefði
komið í veg fyrir að hún ynni til gullverðiauna en
hitinn var um 28 gráður þegar hlaupið fór fram í
fyrrakvöld. Rússinn Svetlana Masterkova sigraði
óvænt og heimsmeistarinn Ana Quirot varð í öðru
sæti en Mozambique
fagnaði fyrstu verðlaun-
unum á Ólympíuleikum.
„Fáir vita að ég kvefað-
ist illa í liðinni viku og
ég hef verið með mikinn
hósta,“ sagði Mutola, sem
er 23 ára og varð heims-
meistari í Stuttgart 1993
en lenti í fjórða sæti á
Ólympíuleikunum í Barc-
elona 1992. „Mér Ieið
strax betur daginn fyrir
hlaupið en var ekki búin
að ná mér 100%.“
Mutola náði besta tím-
anum í undanrásum en
hafði ekki kraft í Ma-
sterkovu og Quirot síðustu
200 metrana í úrsUtunum.
„Ég reyndi að forðast
vandrseði því ég vissi að
það yrðu pústrar í þvög-
unni en ég hljóp ekki vel,“
sagði stúlkan en á HM í
Gautaborg í fyrra var hún
dæmd úr leik í undarásum
fyrir að stiga á linu. Þá
hafði hún sigrað 42 sinn-
um i röð í 800 metra
hlaupi og hún hafði ekki
tapað á þessu ári. Mutola
á öll landsmet í 200 m til
3.000 m hlaupi í Moz-
ambique en hún þykir líka
góð knattspymukona og
þurfti að telja henni trú
um að hætta í fótboltanum
til að geta einbeitt sér að
hlaupunum.
Reuter
Komin á ný eftir slæmt slys
Með sigrinum er Masterkova
fyrsta sovétkonan eða Rússinn til
að vinna greinina frá því Tatjana
Kazankína vann gullið á heimsmeti
í Montreal fyrir 20 árum. í því
hlaupi varð þjálfari hennar, Svetl-
ana Styrkína, fimmta. „Ég óttaðist
Mutola og Quirot, bjóst við að þær
myndu vinna. Ég undirbjó mig vel
fyrir leikana, æfði mjög mikið og
stíft, ég elska að æfa,“ sagði hún.
Quirot var ánægð. „Silfur er jafn
mikilvægt og gull,“ sagði hún en í
Barcelona vann Quirot brons.
„Stjórnvöldum í löndum okkar kem-
ur ekki saman, en hér virðast allir
þekkja mig og biðja um eiginhand-
aráritun. Það snertir hjarta mitt,“
sagði hún.
Svetlana
i Masterkova
Rússlandi
Ólympíumeistari í 800 metra
hlaupi kvenna.
Aldur: 28 ára, fædd í Moskvu.
Persónulegt met: 1:56.76 - 1993.
Fyrri árangur: Áttunda í 800
metrunum á heimsmeistaramótinu
‘1991 - Þriðja í 800 metrunum á
Evrópumeistaramótinu 1991
Önnur í 800 metrunum á heims-
meistaramótinu innanhúss 1993 -
Þriðja í 800 metrunum á Evrópu-
meistaramótinu innanhúss 1996.
■ Þjálfari Svetlönu Masterkovu er
hin góðkunna hlaupakona Svetl-
ana Styrkina, sem komst í úrslit
í 800 metra hlaupinu á Ólympíu-
leikunum í Montreal 1976. Ma-
. sterkova eignaðist barn fyrir
tveimur árum og hefur sökum þess
ekkert keppt síðan þá en hún er
nú komin aftur á fulla ferð, greini-
lega með góðum árangri.
ALLIR vita að hæfileg hreyfing er holl. Ana Fidelia Quirot tekur
dýpra í árinni og segir að hreyfing hafi bjargað lífi hennar. Þess-
ari 33 ára gömlu kúbönsku hlaupadrottningu, sem varð önnur í
800 metra hlaupi kvenna, var vart hugað Iff fyrir þremur árum
þegar hún brenndist illa, en hlaup áttu hug hennar allan og það
var stórsigur fyrir hana að komast á verðlaunapall í Atlanta.
Quirot varð í þriðja sæti í 800
metra hlaupi kvenna á
Ólympíuleikunum í Barcelona 1992
og hafði þar með skapað sér nafn
meðal sterkustu hlaupakvenna
heims. í janúar næsta ár kviknaði
í heima hjá henni eftir að frumstæð
eldavél, sem hún var að vinna við,
sprakk í loft upp. Hún brenndist
mjög illa og var vart hugað líf enda
var hún í 20 daga í gjörgæslu.
Pedro Perez Duenas, fyrrum heims-
methafi í þrístökki, bjargaði lífi
hennar, en ekki tókst að bjarga
barni hennar, en hún var komin sjö
mánuði á leið þegar slysið varð.
„Hún mun lifa, en það er óvíst að
hún geti nokkum tíma hlaupið aft-
ur,“ var Castró forseta sagt þegar
hann heimsótti hana á sjúkrahúsið
þar sem hún lá meðvitundarlaus,
en millinafn hennar er í höfuðið á
forsetanum. „Ójú, ég mun hlaupa
á ný,“ umlaði hún þá og Kastró tók
gleiði sína á ný.
Þeir voru margir sem töldu að
hún myndi aldrei geta hlaupið aft-
ur, alla vega ekki komist í fremstu
röð á nýjan leik. En hún var á öðru
máli og um leið og hún var úr lífs-
hættu hóf hún að skipuleggja æf-
ingar sínar og má segja að hún
hafi verið gripin þráhyggju; svo
ákveðin var hún í að komast í
fremstu röð á ný.
Æfði á sjúkrabeð
„Eftir að ég var úr lífshættu
notaði ég tímann á sjúkrahúsinu til
að æfa,“ sagði hún fréttamönnum
eftir verðlaunaafhendinguna í fyrri-
nótt. „íþróttirnar hjálpuðu mér mik-
ið og þrátt fyrir hrakspár margra
var ég ákveðin í að komast aftur
þar sem ég var í 800 metra hlaup-
inu áður en slysið varð. Flestir töldu
það sjálfsagt ógerlegt en ef ég hefði
ekki haft þetta markmið og farið
að hlaupa aftur er ég viss um að
ég hefði ekki lifað þetta af,“ sagði
Quirot.
Hún segir að það sé mikill sigur
fyrir sig að hafa komist á verð-
launapall, alveg
sama úr hvaða
málmi verð-
launapeningur-
inn væri gerður.
„Það er eins og
draumur hafi
ræst. Að vera
aftur á Ólympíu-
leikum og gera
betur en á síð-
ustu leikum er
frábært og fyrir
mér er þetta eins og að fá gullverð-
laun,“ sagði Quirot sem var talin
ein af þeim sem gæti sigrað.
Það liðu ekki nema átta mánuð-
ir frá því hún lenti í slysinu þar
til hún tók þátt í fyrsta mótinu.
Læknar hennar voru ekki ánægðir
með þetta enda kom í ljós að hún
hafði byrjað of snemma og varð
að fara í enn frekari aðgerðir, sér-
staklega til að græða skinn á hand-
leggi, háls, brjóst og maga. „Ég
er búinn að missa tölu á þeim að-
gerðum sem ég hef farið í,“ segir
Quirot, en sjúkrahús hennar segir
þær 21 talsins. „Eftir eina mjög
sára aðgerð lofaði ég sjálfri mér
tvennu; að keppa hér í Atlanta
árið 1996 og að eignast annað
barn síðar meir.“
í fyrra mætti hún síðan á alþjóð-
leg mót á nýjan leik. Quirot segir
að hún verði að fara í aðgerð síðar
meir, þegar hún hætti að keppa,
en hún telur sig vera komna með
99,9% hreyfigetu og með því að
fara í eina aðgerð í viðbót mun hún
ná fullum bata.
Á Castro forseta og bylting-
unni mikið að þakka
Quirot tileinkaði silfurverðlaunin
kúbönsku byltingunni og foringjan-
um Fidel Castro enda segir hún að
hefði byltingin ekki verið gerð á
sínum tíma væri hún ekki á lífi. „Án
byltingarinnar
AIMA FIDELIA QUIROT
„Hún mun lifa, en
það er óvíst að hún
geti nokkurn tíma
hlaupið aftur"
hefði ég aldrei
orðið íþrótta-
maður og hefði
ég ekki verið
íþróttamaður
hefði ekki verið
gert svona mikið
fyrir mig eftir
slysið," segir
hlaupadrottn-
ingin og bætir
við að hún hafi
ekki átt von á svona góðum móttök-
um frá bandarískum áhorfendum.
„Móttökurnar komu mér á óvart
og ég er mjög ánægð með þær, það
var klappað fyrir mér hér eins og
gert er heima og það þykir mér
vænt um.“
Karlatímaritið Playboy útnefndi
Quirot fegurstu íþróttakonu heims
fyrir nokkrum árum og bauð henni
gull og græna skóga fyrir að sitja
fyrir hjá ljósmyndurum blaðsins.
Hún var tíður gestur á baðströndum
Havana, oftast í litlu rauðu bikin.
En hún hafnaði tilboði Playboy enda
var hún vinsæl í sínu heimalandi
og Fidel Castro gerði meðal annars
alltaf hlé á fundum sínum þegar
hún var að keppa til að geta fylgst
með kenni. Kærastinn hennar,
heimsmethafinn í hástökki, Javier
Sotomayor, kallaði hana gyðju og
öll þjóðin tilbað jörðina þar sem hún
hljóp um.
Horfi í hjarta fólks,
ekki andlit þess
Sögusagnir hafa gengið um að
hún haldi við forseta Kúbu og einn-
ig hefur því verið haldið fram að
þegar slysið varð hafi hún verið að
reyna að svifta sig lífi vegna þess
að Sotomayor, sem er giftur, hafi
sagt henni upp þegar hann frétti
að hún væri ófrísk. Dagblað í Atl-
anta bendir hins vegar á það í gær
að hún og Sotomayor búi í sama
herbergi í ólympíuþopinu.
Hvort sem þessar sögusagnir eru
réttar eða ekkýþá er eitt víst: Qui-
rot er hetja Ölympíuleikanna. Á
meðan íþróttamennirnir tala um
sársaukamörk, hitan og slæmt
skipulag, þá er á meðal keppenda
33 ára gömul kúbönsk stúlka sem
notaði hálfa klukkustund fyrir
framan spegilinn fyrir hvert hlaup,
stúlka sem vaknaði dag einn og
komst að því að hún gat ekki lyft
hendinni til að greiða sér.
„Ég græt ennþá yfir því að hafa
misst barnið sem fékk ekki tæki-
færi til að lifa. Ég vildi óska að
ég gæti klæðst tískufatnaði og að
ég gæti farið á stöndina, en á sama
tíma eru milljónir manna í heimin-
um sem eiga í miklu meiri erfiðleik-
um en ég. Ég lít fólk öðrum augum
í dag en ég gerði fyrir slysið. Ég
horfi í hjarta þess, en ekki andlit.
Þegar einhver varð ástafanginn af
mér í „gamla“ daga var það sjálf-
sagt vegna útlitsins, en næst þegar
einhver verður ástfanginn af mér
er það vegna þess hvernig ég er,
ekki vegna útlitsins," sagði þessi
mikla hlaupakona.