Morgunblaðið - 31.07.1996, Page 12
*****
Norbert Elliott
þjálfari Guðrúnar
Vona
að stutt
verði
við bak
hennar
NORBERT Elliott, þjálfari
Guðrúnar Arnardóttur,
segist vona að yfirvöld á
íslandi styðji við bakið á
henni eins og hún eigi skil-
ið. „Hún hefur allt sem til
þarf til að ná árangri og
hefur staðið sig mjög vel.
Ef þið fylgist með öðrum
keppendum hér þá eru all-
ir með lið aðstoðarmanna
með sér, eins og nauðsyn-
legt er. Hún verður mjög
góður fulltrúi íslands á
heimsmeistaramóti og
Ólympíuleikum ef hún get-
ur haldið áfram af fullum
krafti,“ sagði Elliott við
Morgunblaðið.
Það er gott að setja íslandsmet
tvo daga í röð, ekki síst á
Ólympíuleikum, en á þeim vettvangi
hafði íslandsmet í fijálsíþróttum
ekki fallið í 20 ár þar til Guðrún
tók sig til á sunnudaginn. Á mánu-
dagskvöld bætti hún metið svo aft-
ur, en hljóp þó ekki eins vel og
daginn áður - hún fipaðist í hlaup-
inu og fór ekki eins liðlega yfir
sumar grindurnar.
„Það eru smá vonbrigði að kom-
ast ekki áfram. Byrjunín var góð
en svo fór ég að gera mistök." En
samt setti hún íslandsmet: „Já, og
ég er að reyna að hugga mig við
það,“ sagði Guðrún og reyndi að
brosa.
Guðrún hljóp í seinni riðlinum, á
4. braut. Henni á vinstri hönd var
Bretinn Sally Gunnell, fyrrum
heimsmethafi, og á hægri hönd hin
bandaríska Sandra-Farmer Patrick.
Har.dan við hana var svo heims-
meistarinn og heimsmethafinn Kim
Batten, einnig frá Bandaríkjunum.
Áður en hlaupið hófst þurftu stúlk-
urnar að bíða lengi. Þegar þær voru
komnar út á brautina varð nefnilega
Ijóst að Carl Lewis hafði sigrað í
langstökkinu og þar með tryggt sér
ólympíugull í greininni í fjórða
skipti í röð, og því fylgdu mikil
fagnaðarlæti og sigurhringur hjá
þessum frábæra íþróttamanni.
Stúlkurnar brðu því lengi við start-
blokkirpar. Skyldi það ekki hafa
verið erfítt? „Jú, það hafði svolítið
truflandi áhrif en það á jafnt við
um okkur allar. Allir eru stressaðir
fyrir svona hlaup, hvað sem þeir
heita.“
Guðrún sagðist hafa verið mjög
ákveðin áður en hún lagði af stað.
„Ég hugsaði með mér að fyrst ég
gat unnið þessar stelpur í gær gæti
ég það alveg eins í dag.“ Hún byij-
aði svo mjög vel, eins og hún sagði
sjálf og fór fljótlega fram úr Farmer-
Patrick en síðan fór hún að gera
mistök. „Ég hljóp mjög áreynslu-
laust í riðlinum í gær - þá var allt
mjög eðlilegt - en nú fipaðist ég og
líkiega er þar um að kenna reynslu-
leysi; bæði í að keppa á svona stóru
móti gegn þessum stelpum og líka
reynsluleysi í þessari grein, sem ég
er hálfgerður nýgræðingur í.“ Sally
Gunnell, sem var á þriðju braut, var
um það bil að fara fram úr Guðrúnu
skömmu áður en komið var í síðustu
beygjuna er hún datt. Meiddist og
hætti, en Guðrún sagði það ekki
hafa truflað sig.
Guðrún hljóp ekki eins létt og
leikandi eins og á sunnudaginn, þó
svo tíminn væri betri, missti taktinn
um tíma og notaði ekki eins mörg
skref milli grinda og hún á að gera.
„Ég hefði getað gefist upp. Fann
að ég var að klikka, en var ákveðin
í að hætta ekki og er ánægð með
það. Ég vissi að ég yrði að gefa allt
í þetta sem ég átti, og gerði það.“
Rauða ljónynjan, eins og Rauða
ljónið, Bjarni Felixson íþróttafrétta-
maður á RUV, kallaði Guðrúnu ein-
hvern tíma tók einmitt mjög góðan
sprett í lokin. „Það er líklega ljón-
ynjueðlið í mér; ég gefst aldrei upp,“
sagði Guðrún. „Ég er alltaf sterk-
ust'undir lokin því þegar ég sé enda-
línuna fæ ég aukinn kraft.“
íslandsmethafinn sagðist þurfa
svolítinn tíma til að átta sig á því
sem hefði gerst og hvað framtíðin
bæri í skauti sér. „Tilfinningin var
rosalega góð að koma fyrst í mark
á Ólympíuleikum - þó það hafi ekki
verið í úrslitum," sagði Guðrún, en
hún sigraði í riðlinum í 1. umferð.
„Ég er mjög þakklát fyrir að hafa
getað keppt hér og að hafa staðið
mig - því mér finnst ég hafa staðið
mig. Ánnað væri dónaskapur við
skaparann." Hún lýsti yfir sérstakri
ánægju með að hafa getað haft
þjálfara sinn, Norbert Elliott, með
sér því það skipti sköpum. „Hann
hefur endalausa trú á mér. Telur
mér trú um að allt sé mögulegt -
engar takmarkanir séu til, og það
skiptir miklu máli. Hann sagðist
reyndar ætla að lemja mig (!) ef
ég bætti mig ekki í dag. Ég óttast
það auðvitað ekki en ef hann lemdi
mig myndi ég bara lemja hann
fastar á móti,“ sagði Guðrún og
bætti við: „Þetta er mjög gott sam-
band þjálfara og íþróttamanns."
Guðrún hefur nýlokið námi við
háskólann í Athens, eins og fram
hefur komið. Hún er á heimleið í
sumar og sagðist setjast niður með
fjölskyldu sinni, foreldrum og systk-
inum, til að ákveða framhaldið.
„Þegar ég er búinn að leggja svona
mikið á mig er spuming hvort ég
verði ekki að halda áfram. Ég verð
25 ára í haust og það yrði enginn
vandi að halda áfram á fullu í tvö
ár enn, jafnvel fjögur. Ég sagði
alltaf við sjálfa mig, að Ólympíu-
leikarnir myndu skipta máli upp á
framhaldið og mér finnst ég hafa
staðið mig. Eg var mjög ánægð
með að hlaupa undir 55 sekúndum
í riðlakeppninni og nú gerði ég það
aftur, þannig að ég get ekki annað
en verið ánægð. Að hafa náð þessu
er gott fyrir mig og alla heima sem
hafa hjálpað mér. Ég vona bara að
einhvetjar litlar stelpur hafi verið
að horfa á mig og segi sem svo að
fyrst ég geti þetta geti þær það líka.
Eg er nefnilega ekkert sérstök -
bara venjulegur Islendingur."
Guðrún Arnardóttir bætti íslandsmetið annan daginn í röð en komst ekki í úrslitahlaupið
Reynj að hugga mig
við íslandsmetið
Guðrún segir ekki Ijóst
hvert framhaldið verður.
Hana langar greinilega að
halda áfram, helst undir
stjórn Elliotts því þegar
Morgunblaðið spurði hvort
samstarfi þeirra væri hér
með lokið eftir Ólympíu-
leikana, svaraði Guðrún:
„Vonandi ekki.“ Það verð-
ur svo að koma í Jjós hvað
verður. Hvort hún verður
á Laugarvatni næsta vetur,
þar sem hún hefur fengið
inni i Iþróttakennaraskó-
lanum, eða í Bandaríkjun-
um við æfingar.
Guðrún Arnardóttir
hljóp á 54,81 sek. í und-
anúrslitum 400 m
grindahlaupsins. Skapti
Hallgrímsson sá hana
þá setja Islandsmet
annan daginn í röð og
ná tíunda besta tíman-
um, en átta komust í
úrslit.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
GUÐRÚN Arnardóttir, lengst til hægrl, kemur í kjölfar Sllvia Rleger, Þýskalandi og
Söndru Farmer Patrick, Bandaríkjunum.
Meistarinn úr leik
NÚVERANDI ólympíumeistari í
400 metra grindahlaupi kvenna,
Sally Gunnell frá Bretlandi,
meiddist í undanúrslitum 400
metra grindahlaupsins í fyrrinótt.
Hún hljóp á þriðju braut en Guð-
rún Arnardóttir hljóp á þeirri
fjórðu. Gunnell fór að haltra eftir
sjöttu grindina og féll síðar á
brautina, en hún hafði meiðst á
hásin fyrr í þessum mánuði.