Morgunblaðið - 13.08.1996, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 13.08.1996, Qupperneq 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR13. ÁGÚST 1996 B 7 KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA KR aftur í efsta sæti eftir sigur á Vai og jafntefli ÍA gegn Leiftri. Ætlum okkur að fagna meistaratítlinum í ár 1|AÁ 19. mínútu átti Ein- ■ ar Þór Dameisson lag- lega sendingu frá vinstri kanti inn á vítateig Valsmanna þar sem knötturinn fór yfir Jón Grétar Jónsson og barst þaðan til Rík- harðs Daðasonar, sem skoraði laglega frarahjá Lárusi í markinu. 2a^%Á 77. mínútu tók Ein- ■ ^#ar Þór góðan sprett upp miðjuna og renndi svo knett- inum áfram til Ásmundar Har- aldssonar. Ásmundur ætlaði að senda inn á vítateiginn en knött- urinn hrökk af Gunnari Einars- syni og þaðan til Ríkharðs Daða- sonar, sem skoraði örugglega og bætti þar með við öðru marki sínu í leiknum. 3HJ%Fimm mínútum fyrir ■ %#leikslok sparkaði Kristján markvörður Finnbogason langt fram völlinn og framlengdi Ríkharður Daðason svo knöttinn áfram inn á vítateiginn þar sem Einar Þór Danielsson var réttur maður á réttum stað og gull- tryggði stóran sigur KR-inga. KR-INGAR skutust á ný á topp 1. deildar karla í knatt- spyrnu þegar þeir lögðu Valsmenn að velli, 3:0, í bráð- fjörugum og skemmtilegum leik í Frostaskjólinu á sunnu- dagskvöld. KR-ingar hafa nú eins stigs forskot á Skaga- menn á toppi deildarinnar þegar tólf umferðir eru búnar og má allt eins búast við að einvfgi þessara iiða um ís- landsmeistaratitilinn muni standa allt fram í lokaum- ferðina þegar KR-ingar sækja Skagamenn heim upp á Akra- nes. rátt fyrir að aðstæður til knattspymuiðkunar hafi ekki verið eins og best verður á kosið í vesturbænum á sunnudag sýndu ■■■■■■ KR-ingar og Vals- Sigurgeir menn oft og tíðum Guðiaugsson mjög skemmtileg tilþrif í leiknum og fengu bæði lið nokkur ágæt tæki- færi til þess að taka forystuna áður en Ríkharður Daðason kom heimamönnum yfir um miðjan fyrri hálfleik með góðu marki eft- ir laglegan undirbúning Einars Þórs Daníelssonar. Eftir mark heimamanna fóru Valsmenn að bíta betur frá sér á miðjunni og freistuðu þess að ógna marki KR-inga en lengi vel virtist sem neistann vantaði í sóknarleik þeirra og þurfti Krist- ján Finnbogason, markvörður heimamanna, aldrei að taka á honum stóra sínum það sem eftir lifði fyrri hálfleiksins. I síðari hálfleik komu svo gest- irnir öllu beittari til leiks, tóku öll völd á miðjunni og gerðu nokkrar ágætar tiiraunir til þess að jafna metin en vörn KR-inga var þétt fyrir og allt kom því fyrir ekki hjá Valsmönnum. Þeg- ar stundarfjórðungur var til leiks- loka virtist síðan sem mesti móð- urinn rynni af gestunum og var Ríkharður Daðason óheppinn að skora ekki sitt annað mark í leiknum þegar þrumuskot hans small í þverslá Valsmarksins. Ríkharður þurfti þó ekki að bíða lengi eftir öðru markinu því tveim- ur mínútum síðar skoraði hann laglega framhjá Lárusi markverði Vals eftir skemmtilegt samspil þeirra Einars Þórs og Ásmundar Haraldssonar. Eftir þetta var róðurinn orðinn fullþungur fyrir Valsmenn, sem þó eiga hrós skilið fyrir mikla baráttu og dugnað í leiknum, og var það svo Einar Þór Daníelsson, sem gulltryggði sigur heima- manna með laglegu marki fimm mínútum fyrir leikslok. „Þetta var mjög erfiður leikur og eins og hann þróaðist var sigur okkar e.t.v. helst til stór. Við lék- um engu að síður vel og höfum fullan hug á að halda okkur á toppnum. KR-ingar hafa beðið alltof lengi eftir íslandsmeistarat- itlinum og við ætlum okkur svo sannarlega að fagna honum í ár,“ sagði Lúkas Kostic, þjálfari KR- inga, og var að vonum hinn kát- asti í leikslok. ÍA tapaði stigum heima Vindurinn lék stórt hlutverk en furða hvað mönnum tókst að gera Skagamenn hafa ekki tapað mörgum stigum á heimavelli undanfarin ár. I fyrra sigruðu þeir í átta heimaleikjum Steinþór oSS^ðu eitt jafn- Guðbjartsson tefli, gegn Leiftri. skrífar Fyrir 12. umferð frá Akranesi íslandsmótsins höfðu íslandsmeist- ararnir sigrað í öllum heimaleikjun- um en eins og á liðnu tímabili var það Leiftur sem breytti gangi mála. Að þessu sinni gerðu liðin marka- laust jafntefli í baráttuleik og var mesta furða hvað mönnum tókst að gera miðað við aðstæður, suð- austan kalda, jafnvel stinning- skalda. Vindurinn lék stórt hlutverk. Gestirnir höfðu hann í bakið í fyrri hálfleik og voru nokkuð aðgangs- harðir án þess samt að skapa veru- lega hættu. Þeir sóttu stíft og uppskáru átta horn gegn einu heimamanna en nýttu sér ekki að- stæður - skot að marki mátti telja á fíngrum annarrar handar. Gunn- ar Oddsson fékk besta færið undir lok hálfleiksins en skaut í stöng eftir gott spil. Bjarni Guðjónsson átti gott skot í hliðarnet Leifturs úr þröngri stöðu skömmu síðar en hann hafði sýndi sömu tilþrif eftir stundarfjórðungsleik. Seinni hálfleikur var sem spegil- mynd þess fyrri og voru heimamenn mun sókndjarfari þó vindurinn hafi ekki nýst þeim frekar en Leiftri fyrir hlé. Þeir reyndu samt fleiri markskot en mótherjamir gerðu í sömu stöðu í fyrri hálfleik en Þor- valdur Jónsson var vei á verði í marki gestanna og þrisvar náðu Leiftursmenn að bjarga fyrir horn. Gunnar Oddsson skapaði reyndar gestunum óvænt mjög gott færi snemma i hálfleiknum sem rann út í sandinn en besta færið kom undir lokin þegar Alexander Högnason skallaði yfír mark Leifturs eftir aukaspymu frá hægri. Það segir sig sjálft að slæmt er að leika knattspyrnu við aðstæður Morgunblaðið/Golli ÓLAFUR Þórðarson, fyrirllðl ÍA, og Ragnar Gíslason, Leiftursmaður reyna að koma fætl f það sem allt snýst um - knöttinn. Hvorugu liðlnu tókst að koma honum f mark að þessu slnni. eins og voru á Akranesi í fyrradag. Með það í huga verður að gefa leik- mönnum prik fyrir viljann. Mikið var í húfi fyrir bæði lið og baráttan var mikil á miðsvæðinu en skiljan- lega gekk illa að byggja upp spil. Fyrir vikið fengu framheijarnir úr litlu að moða og oft var það til- viljunum háð hvar boltinn lenti eft- ir fyrirhugaða sendingu á sam- heija. En þetta eru aðstæður sem íslenskir knattspyrnumenn geta átt von á nær hvenær sem er en sem betur fer hafa þær heyrt til undan- tekninga í sumar. Dortmund og Kais- erslautern úr leik ÞAU óvæntu úrslit urðu í fyrstu umferð þýsku bikarkeppninnar í knattspyrnu um helgina að bæði deildarmeistararnir Borussia Dortmund og bikarmeistararnir Kaiserslautern féllu úr keppni eftir að hafa beðið ósigur fyrir heldur minni spámönnum. Dortmund tapaði 3:4 fyrir Wattenscheid eftir framlengingu en Kaiserslautern varð hins vegar að lúta í lægra haldi fyrir nær algjörlega óþekktu liði, Greuther Fiirth, 0:1. Sigurinn léttir af Lúkas Kostic segir KR-inga hafa beðið alltof lengi okkur pressu Ingólfur Ingólfsson kom inná sem vara- maður og skoraði bæði mörk Stjörnunnar GÆFAN var hliðholl Stjörnumönnum þegar þeir mættu Keflvíking- um á heimavelli sínum í 12. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu á sunnudagskvöldið, og sigruðu 2:1. Heimamenn voru betri aðilinn í leiknum, en náðu þó ekki að knýja fram sigur fyrr en á lokamín- útu leiksins. „Við vorum betri aðilinn í leiknum, það var klaufalegt að missa þetta niður en það var vissulega ánægjulegt að klára þetta á lokamínútunni og þetta léttir af okkur pressu," sagði Ingólf- ur Ingólfsson, sem gerði bæði mörk Stjörnunnar í leiknum. Ríkharður gerði tvö Morgunblaðið/Golli RÍKHARÐUR Daðason gerði tvö af þremur mörkum KR-inga þegar þeir lögðu Valsmenn að velll og skut- ust aftur á topp 1. delldarlnnar. Ríkharður fagnar hér síðara markl sínu, er hann kom Vesturbæjarliðinu í 2:0. Það er Ásmundur Haraldsson sem hangir um háls Ríkharðar. Leikurinn var daufur í byijun en gestirnir voru þó heldur spræk- ari. Um miðbik fyrri hálfleiks sóttu heimamenn í sig „ .. veðrið og komust þrí- Eríksson vegis > ákjósanleg skrifar fseri, en ávallt var það Ólafur Gott- skálksson markvörður sem sá við þeim með góðri markvörslu. Stjörnumenn höfðu yfirhöndinni til að byija með í síðari hálfleik, héldu uppteknum hætti og sköpuðu sér færi, og komust yfir þegar stund- arfjórðungur var tii leiksloka. Þetta vakti gestina, því ekki tók það þá nema fjórar mínútur að jafna leik- inn. Skömmu síðar fékk Ragnar Margeirsson ákjósanlegt tækifæri til að koma gestunum yfir, en Bjarni Sigurðsson bjargaði með úthlaupi. Stjörnumenn, sem höfðu verið betri aðilinn nær allan leikinn, reyndu af mætti að tryggja sér sigur, og tókst það á lokamínútunni eftir nokkrar þungar sóknir. Stjörnumenn voru mun betri aðil- Ofært var til Eyja LEIK Vestmannaeyinga og Breiðabliksmanna, sem fara átti fram á sunnudagskvöldið í Eyjum, var frestað þar sem ekki var flug- veður. Leikurinn hefur verið settur á mánudagskvöldið 2. september kl. 18, milli 14. og 15. umferðar. a Æ Þórhallur Dan Jóhannesson fékk _ ■ I boltann á vítateigshomi vinstra megin við mark Grindvíkinga á 22. mínútu. Hann renndi boitanum til Krístins Tómas- sonar sem skaut föstu skoti að marki og Albert í markinu náði ekki að festa hendur á hálum knettinum sem fór í markið OaÁ%ÞórhaUnr Dan Jóhannesson á ■ ■Lþetta mark því hann kom upp hægra megin og lék á tvo varnarmenn Grindvíkinga áður en hann skaut framhjá úthlaupandi markmanni rétt innan vítateigs og í mark á 42. mínútu. 0H *% Ásgeir Már Ásgeirsson tók horn- ■ syPspyrnu frá hægri á 61. mínútu og skrúfaði boltann inn að marki Grindvík- inga. Á markteig nánast fyrir miðju marki nikkaði Kristinn Tómasson f boltann sem fór í markið. 1a ^% Guðmundur Torfason gaf fyrir ■ "■Jmarki Fylkismanna frá hægri á 88. mínútu og til Ólafs Ingólfssonar sem skaut viðstöðulaust að marki framhjá Kjart- ani og í markhornið vinstra megin 1mJ§ Kristimi Tómasson fullkomn- ■■waði þrennu sína á 88. mínútu þegar hann lék frá miðju vallarins og í gegnum vörn Grindvíkinga og skaut síðan yfir Albert í markinu. Glæsilega gert en varnarmenn Grindvíkinga nánast eins og áhorfendur að markinu. 2a/| Óli Stefán Fióventsson náði að ■®Tkióra í bakkann á lokamínútunni með skailamarki eftir sendingu Guðlaugs Arnar Jónssonar inn í vítateig Fylkismanna. Fylkismenn klifra upp stigatöfluna FYLKISMENN hafa halað inn sex stig úr tveimur leikjum gegn Suðurnesjaliðunum og komið sér úr fallsæti í það sjötta á stuttum tíma. Fyrri sig- urinn var gegn Keflvíkingum og síðari gegn heimamönnum í Grindavík á sunnudaginn í 6 marka leik. Leikurinn endaði með sigri Fylkis 4:2. ft%að var snemma ljóst að gestirn- ir úr Árbænum voru komnir til að sigra í leiknum því þeir voru miklu mun frískari Frímann en heimamenn í Ólafsson leiknum. Færin voru skrífarfrá þeirra og þeir áttu nn 3V ekki í vandræðum með að bijóta máttlausan sóknar- leik Grindvíkinga niður. Þórhallur Dan og Kristinn Tómasson unnu vel saman í fyrra marki hálfleiksins og á 30. mínútu átti Þórhallur góða tilraun þegar hann skaut yfir mark- vörð Grindvíkinga eftir misheppn- aða markspyrnu en hárfínt yfir markið. Hann skoraði síðan gott mark rétt fyrir hálfleik eftir gott einstaklingsframtak. Fylkismenn létu ekki staðar num- ið í seinni hálfleik og Bjarki Péturs- son var í.ærri því að skora á 50. mínútu. Grindvíkingar voru ívið líf- legri í upphafi seinni hálfleiks en það fjaraði út og mark Kristins Tómassonar á 61. mínútu gerði nánast út um leikinn. Heimamenn reyndu þó að klóra í bakkann en segja má að ráðaleysi þeirra var um tíma algjört og enginn sem tók af skarið við að reyna að byggja upp spil í liðinu. Guðmundur Torfason þjálfari skipti sjálfum sér inná og átti sendingu á Ólaf Ingólfsson sem skoraði fallegt mark á 83. mínútu. Þá hefur besta manni Fylkisliðs- ins, Kristni Tómassyni, sjálfsagt þótt komið nóg og hann fullkomn- aði þrennuna rétt fyrir leikslok eft- ir að hafa leikið varnarmenn Grind- víkinga grátt. „Þetta var rosalega ljúft, að gera þessi þijú mörk. Maður hefur svo sem gert það áður en aldrei með hundrað þúsund kall undir,“ sagði Kristinn um þrennuna sína. Óli Stefán Flóventsson rétti hlut Grindvíkinga á síðustu mínútunni en þeir áttu aidrei möguleika á að snúa honum sér í hag. Þeir voru að leika sinn slakasta leik í sumar á heimavelli í leik þar sem stigin voru dýrmæt. „Það er alltaf dýrt að tapa sama hvernig maður tap- ar. Fyrri hálfleikur var dapur hjá okkur og þeir fengu frið til að gera það sem þeir þurftu að gera. Ég fékk smá von þegar við skoruðum fyrra markið en það gekk ekki eft- ir. Við duttum niður á dapran leik í dag og þetta þýðir áframhaldandi baráttu hjá okkur fyrir sæti í deild- inni en enga uppgjöf," sagði Guð- mundur Torfason þjálfari og leik- maður Grindvíkinga eftir leikinn. Varnarmennirnir Ólafur Örn Bjarnason og Guðjón Ásmundsson voru bestir Grindvíkinga en Fylkis- menn börðust allir sem einn og uppskáru vel. inn í leiknum, en gekk fremur illa að ljúka annars vænlegum sóknum. Baldur Bjarnason var allt í öllu hjá þeim, gladdi áhorfendur hvað eftir annað með leikni sinni og snerpu og hefur sjaldan verið betri en nú. Gor- an Kristófer Micic átti einnig góða spretti. Hjá Keflvíkingum var það Olafur Gottskálksson sem bjargaði liði sínu frá stóru tapi, og var frammistaða hans í engu samræmi við slakan leik samheijanna. Jóhann Guðmundsson átti þó ágæta spretti á hægri kantinum, og augljóslega efnispiltur þar á ferðinni. 1:0= Á 74. mínútu náðu Stjörnumenn snöggri sókn, Rúnar Sigmundsson sendi knöttinn á Ingólf Ingólfsson sem staddur var rétt fyrir utan miðjan vítateiginn, og skaut giæsilega óveijandi í hægra homið uppi. B agj Eftir aukaspyrnu ■ | fyrir utan vítateig Stjörnumanna á 78. mínútu barst knötturinn í loft upp inni í vítateignum, Jóhann Guð- mundsson greip tækifærið, kastaði sér aftur á bak og spyrnti knettinum með bakfalls- spymu af miklum krafti í netið, hreint út sagt stórkostlegt mark. 2a Á iokamínútu leiks- ■ | ins sendi Goran Micie fýrir mark Keflvíkinga frá hægri, Baldur Bjarnason skali- aði að marki og við hægri stöng- ina var það Ingólfur lugólfsson sem náði að nikka knettinum í netið. Man. Utd. tók IMewcastle í kennslustund Þau mjög svo óvæntu úrslit litu dagsins ljós í leik Manchester United og Newcastle um góðgerð- arskjöldinn á sunnudag að ensku meistararnir báru sigurorð af stjömum prýddu liði Newcastle, 4:0. „Þegar ég lít á tákn Newcastle- liðsins fyllist ég stolti yfír því að tilheyra þessu félagi og ég krefst þess ætíð að allir mínir leikmenn leiki með hjartanu og gefi sig hundrað prósent í leikina. Það gerð- ist hins vegar ekki í þessum leik og baráttuviljinn og ástríðan voru ekki til staðar. Okkur var boðið að leika þennan leik því Manchester sigraði tvöfalt á síðasta tímabili en ég vildi óska þess að þeir hefðu boðið einhveijum öðrum. Þetta var hræðilegt," sagði Kevin Keegan, knattspyrnustjóri Newcastle, að leik loknum og dýr- asti knattspyrnumaður heims, Alan Shearer, sem hafnaði boði frá ensku meisturunum áður en hann ákvað að ganga til liðs við Newcastle, tók í sama streng: „Við lékum einfald- lega illa og Manchester refsaði okk- ur í hvert einasta skipti, sem við sofnuðum á verðinum. Þeir áttu þetta skilið." Manchester United tefldi fram mjög öflugu liði gegn Newcastle á sunnudaginn með Frakkann Eric Cantona, sem kosinn var besti mað- ur vallarins í leikslok, í broddi fylk- ingar og komust þeir Karel Pobor- sky og Jordi Cryuff hreint ágætlega frá sínum fyrsta alvöruleik með ensku meisturunum. Cantona og Nicky Butt komu Manchester í 2:0 í fyrri hálfleik en þeir David Beckham og Roy Keane bættu við tveimur mörkum til við- bótar á síðustu fimm mínútum leiksins og vissu stjörnur New- castle-liðsins á borð við Alan Shear- er, Les Ferdinand, Faustino Asp- rilla, David Ginola og Phillipe Al- bert varla hvaðan á sig stóð veðrið. Manchester United lék mjög vel í þessum leik og má teljast líklegt að haldi liðið áfram að leika eins og það gerði á sunnudag muni það eiga eftir að reynast öðrum liðum erfitt að hrifsa enska meistaratitil- inn af strákunum frá Old Trafford. Reuter Eitt „fagn“ af fjórum NICKY Butt gerði annað mark United og fagnar hér (fyrir miðju) ásamt Ryan Gyggs, tll vinstrl, og Paul Scholes.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.