Morgunblaðið - 13.08.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
2N*r0iut(I*fetí>
B
1996
ÞRIÐJUDAGUR 13. AGUST
BLAD
Rioch rekinn
FH meist-
ari þriðja
arið i roð
SVEIT FH sigraði þriðja árið í röð í
bikarkeppni FRÍ 1. deild sem fram
fór um helgina. Félagið hlaut 230
stig en Armenningar hlutu annað
sætið með 214 stig. í þriðja sæti varð
ÍR með 204 stig. Þar á eftir komu
sveitir HSK, UMSS og UMSK en það
varð hlutskipti Borgfirðinga og Þin-
geyinga að faila í aðra deild. í þeirra
stað koma sameiginlegt lið UMSE og
UFA og Húnvetningar í 1. deild að ári.
Skemmtileg keppni var í flestum
greinum og hér að ofan má sjá
fremstu menn í 3.000 metra hindr-
unarhlaupi á fullri ferð. Fremstur
er Daníel Guðmundsson, Ármanni
sem sigraði í hlaupinu en á eftir
honum koma Sveinn Ernstsson, ÍR,
Sveinn Margeirsson, UMSS, Jóhann
Ingibergsson FH og Björgvin Frið-
riksson UMSK.
■ Mótið / B4,B5
■ úrslit / B10
Stjórn enska knattspyrnufélags-
ins Arsenal ákvað í gær að
segja knattspyrnustjóra sínum,
Bruce Rioch, upp störfum.
„Það er mat stjómar að það þjóni
best langtíma hagsmunum félagsins
að herra Rioch láti af störfum hjá
Arsenal," sagði í tilkynningu félags-
ins í gær. Engin viðhlýtandi skýring
frá félaginu hefur fengist á þessari
fyrirvaralausu uppsögn sem kom
flestum á óvart en Rioch hefur ný-
lega skrifað undir samning við félag-
ið eftir að hafa verið ósamnings-
bundinn því frá upphafi. Hann tók
við starfi knattspyrnustjóra fyrir
þrettán mánuðum eftir að George
Graham hafði verið látinn sigla sinn
sjó. Ekki var tilkynnt um eftirmann
Riochs en við starfmu tók tímabund-
ið Stewart Houston aðstoðarknatt-
spyrnustjóri og Pat Rice þjálfari, en
ljóst er að menn verða að hafa hrað-
ar hendur því keppni í úrvalsdeild-
inni í Englandi hefst á laugardag.
Enginn knattspyrnustjóri hefur
staldrað jafnt stutt við hjá Arsenal
á síðustu 50 árum.
Hugsanleg skýring sem velt hefur
verið upp fyrir brottrekstrinum er
sú að Rioch hefur ekki keypt neina
leikmenn fyrir keppnistímabilið sem
hefst um næstu helgi. Rioch á að
hafa verið búinn að setja fram óska-
lista leikmanna sem hann vildi fá
en David Dean, varaformaður stjórn-
ar, sem séð hefur um leikmannakaup
hjá félaginu hefur ekki lyndað við
Rioch og stungið listanum undir stól.
Þá er vit-að að hann hefur ekki átt
skap saman við ýmsa stjórnarmenn
og átt í orðaskaki við Ian Wright,
leikmann.
Rioch tók við stjórn hjá Arsenal
í fyrra og keypti strax Hollendinginn
Dennis Bergkamp fyrir metupphæð
og í kjölfarið David Platt, en síðan
hefur fátt gerst og árangur félagsins
ekki eins góður og margir höfðu
vonað á síðastliðnum vetri. Orðróm-
ur hefur verið uppi þess efnis að
stjórnarmönnum hafí þótt of hátt
verð greitt fyrir Bergkamp.
„Ég er undrandi," sagði Alan
Smith fyrrum leikmaður Arsenal í
gær. „Hann hafði nýlega skrifað
undir samning við félagið og aðeins
var beðið eftir staðfestingu stjórnar.
Uppsögnin kemur því mönnum í
opna skjöldu en það vita fáir hvað
gerist bak við tjöldin."
„Uppsögnin kemur mér ekki á
óvart, það hefur ýmsu verið hvíslað
og atburðir hafa hnigið í þessa átt,“
sagði fyrrum knattspyrnustjóri fé-
lagsins Terry Neill.
„Ég trúi þessu vart,“ sagði Paul
Merson leikmaður Arsenal í gær.
„Okkur hefur ekki gengið sem best
í æfingaleikjum upp síðkastið en á
þessu átti ég ekki von því það er
svo stuttur tími þar til keppnistíma-
bilið hefst og mér finnst ákvörðunin
vafasöm með hagsmuni leikmanna
og stuðningsmanna í huga.“
KIMATTSPYRNA: KR-INGAR AFTUR KOMNIR Á TOPPINN / B6
f/ÆSm
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö
1.5 al 5 1 10.582.640
2. pfú> f 184.250
3.4»15 120 10.590
4. 3af5 4.268 690
| Samtals: 4.393 15.535.360
:L»T,T«»l
BÓNUSTÖLUR
Fjöldi
vinninga
vinnings
upphæö
Vinningar
23.260.000
995.660
31.690
232
1.730
801
210
Samtals
1040
48.338.750
Hcíldarvinningsupphæ&: A Istandi:
48.338.750 1.818.750
08
12
08
96
UPPLÝSINGAR
' Fyrsti vinningur i Lotto 5 38 var
seldur hja Skeijungi viö Skaqabraut
a Akranesi. Bonusvinningarnir voru
soldlr i Reykjnvik, Kopavogi og a
Flúöum
Vertu viobuin(n) vinningi
,\\ mikifs að vlnr>a
1. vinningur er áætlaður 40 milljomr kr,